Morgunblaðið - 10.06.1980, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 10.06.1980, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ1980 43 Frá opnun skriístofunnar. Stuðningsmenn Guðlaugs í Mosfellssveit STUÐNINGSMENN Guðlaugs Þorvaldssonar í Mosfellssveit hafa opnað skrifstofu í verzlana- miðstöðinni Þverholti, Mosfells- sveit og verður hún opin virka daga frá kl. 17—21 en aðra daga frá kl. 14-18. Á meðal þeirra, sem skipa framkvæmdaráð í Mosfellssveit eru: Guðmundur Magnússon, Axel Aspelund, Kristján Þorgeirsson, Úlfhildur Hermannsdóttir, Jón Ólafsson, Magnús Guðmundsson, Karl Andrésson, Karl Jensson og Ágústa Haraldsdóttir. (Úr (rétUtilkynningu). Stuðningsmenn Vigdísar í Eyjum STUÐNINGSMENN Vigdísar Finnbogadóttur hafa opnað skrifstofu í Miðstræti 11 í Vest- mannaeyjum. í framkvæmdanefnd stuðnings- manna eru þessir menn: Eiríkur Guðnason, Hrafnhildur Ástþórs- Húsavík: Kal víðar en álitið var í upphafi Húsavik. 9. júni. VEÐRIÐ í vikunni hefur verið nokkuð gott, aðeins úrfelli fyrstu dagana. Sólfar hefur verið nokkuð en hiti ekki yfir meðal- lagi sérstaklega hefur verið kalt hér um næt- ur. Sauðburði er víðast hvar lokið og hefur hann gengið mjög vel, þó finnst mörgum bændum þeir fá minna tvílembt en áður. Þá má geta þess að spretta er meiri nú en á sama tíma í fyrra. Kal er nokkuð víða í túnum en álitið var í upphafi, sérstaklega þegar það er haft í huga að vetur og vor voru mjög milt. — Fréttaritari dóttir, Jóhanna Andersen, Sigríð- ur Angantýsdóttir, Vilborg Gísla- dóttir og Ólöf Bárðardóttir. (Cr (réttatilkynningu frá Ktuðnings- mönnum) Stuðningsmenn Vigdísar í Hornafirði STUÐNINGSMENN Vigdísar Finnbogadóttur í Austur-Skafta- fellssýslu hafa opnað skrifstofu á Höfn í Hornafirði að Miðtúni 21 (Miðgarði). / Forstöðumaður skrifstofunnar er Erla Ásgeirsdóttir. Kosninga- nefnd fyrir Höfn skipa Erla Ás- geirsdóttir, Anna Halldórsdóttir, Björn Grétar Sveinsson, Kristín Gísladóttir, Arnbjörn Jónsson, Sigríður Helgadóttir og Ásdís Marteinsdóttir. í héraðsnefnd eiga sæti, Þorsteinn Geirsson, Lovísa Einarsdóttir, Unnur Kristjáns- dóttir, Ingibjörg Zóphaníasdóttir og Margrét Guðbrandsdóttir. (Úr fréttatilkynningu). Stuðningsmenn Alberts í Stykkishólmi STUÐNINGSMENN Al- berts Guðmundssonar í Stykkishólmi hafa opnað skrifstofu í verkalýðshús- inu, en hún verður opin á þriðjudögum og fimmtu- dögum frá kl. 8—10.30. Kjörin hefur verið fimmtán manna framkvæmdanefnd. Formaður hennar er Sigfús Sigurðsson. Aðrir í fram- kvæmdanefndinni eru: Einar Magnússon, Einar Sigfússon, Guðni Friðriksson, Gunnleifur Kjartansson, Hinrik Finnsson, Högni Bæringsson, Kristinn Finnsson, Lárus Kr. Jónsson, Númi Fjeldsted, Sigurður Kristinsson, Svavar Edilonss- on, Bjarni Lárentíunsson, Pét- ur Jack og Þorsteinn Sigurðs- son. . (Ur fréttatilkynningu). Stuðningsmenn Guðlaugs í Hafnarfirði STUÐNINGSMENN Guðlaugs Þorvaldssonar í Ilafnarfirði hafa opnað skrifstofu að Reykjavík- urvegi 66. Forstöðumaður skrifstofunnar er Hólmfriður Finnbogadóttir og er skrifstofan opin virka daga frá kl. 16—22 en aðra daga frá kl, 14-19. I kosninganefnd í Hafnarfirði eru eftirtaldir: Baldvin Her- mannsson, Benedikt Guðbjarts- son, Guðríður Elíasdóttir, Ingvar Viktorsson, Jón KR. Óskarsson, Páll V. Daníelsson, Hallgrímur Pétursson, Gunnar Hólmsteinsson og Hjörleifur Gunnarsson. Sumarferðir Víðsýnar Ahersla lögð á Norðurlanda- ferðir og fornar söguslóðir Ferðaskrifstofan Víðsýn var stofnuð 1978 af sr. Frank M. Halldórssyni í þeim tilgangi að auðvelda fólki ferðir til Norður- landanna og ýmissa sögufrægra staða, þar sem hann hafði oft dvalist og ferðast um, sem farar- stjóri í sumarleyfum sínum. Ferðaskrifstofan leggur áherslu á að kynna fólki fornfræga staði. Ferðir á slóðir Biblíunnar hafa verið vinsælar og skipað verðugan sess hjá ferðaskrifstofunni. Einn- ig leggur ferðaskrifstofan áherslu á það að fararstjórarnir dvelji allan daginn með fólkinu og séu til taks hvenær sem þarf. í fyrra voru farnar tvær ferðir til ísrael, ein Mið-Evrópuferð og ein til Grikklands og Egyptalands. í sumar eru áætlaðar eftirtald- ar ferðir: Mið-Evrópuferð — Oberammargau Brottför 26. júní 1980. Flogið til Frankfurt. Gist í Rudesheim í tvær nætur. Þeir, sem þess óska geta svifið upp að Niederwald- minnismerkinu, sem gnæfir yfir grænar vínekrurnar. Þaðan er gott útsýni yfir næstu Rínar- byggðir og skipaumferðina á Rín. Flestum er það ógleymanlegt að sigla á Rín framhjá Lorelei klett- inum. Þá verða allir að ganga eftir Drosselgasse, þar sem Rínarvín eru fram borin í ótal veitingastof- um, og söngurinn hljómar og dansinn dunar allan sólarhring- inn. Ekið til suðurs um blómlegar byggðir Rínardals, komið til Heid- elberg háskólabæjarins forn- fræga. Ekið til Baden-Baden, sem er þekktur heilsulindarbær. Þar verður gist. Farið frafBaden-Bad- en til Freiburg. Þá liggur leiðin um norður Sviss þar sem Alparnir blasa við í suðri. Síðan verður ekið til Liechtenstein til Garmisch- Partenkirchen, Þeir, sem þess óska geta farið og séð helgileikina í Oberammergau, sem hafa verið fluttir á 10 ára fresti frá árinu 1634. Það ár var þorpsbúum hlíft við Svarta dauða og í þakkarskyni lofuðu þeir, að setja á svið píslar- leik til að minna á þjáningar Krists, dauða hans og upprisu. Vegna þessara leikja er bærinn löngu orðinn heimsfrægur og dregur að sér ferðamenn alls staðar að úr heiminum. í næsta nágrenni eru kastalarnir Ho- henschwangau og Neuschwan- stein. í Týrol er upp á margt að bjóða þar ríkir sérstök stemning. Þá er haldið til Austurríkis. í Salzburg og Vín verður lögð áh- ersla á að sækja tónleika eða óperuna. Frá Austurríki er ekið til Múnchen og þaðan til Augsburg. Komið er við í Dachau, þar sem menn geta skoðað útrýmingarbúð- ir Nasista síðustu dagana er dvalið í Frankfurt. Mið-Evrópuferð Brottför 31. júlí 1980. Flogið til Frankfurt. Gisting í Rúdesheim í 4 nætur. Ekið um Moseldal til Trier. í þessum 2000 ára gamla bæ eru varðveittar fornminjar frá því á dögum Rómverja. Porta Nigra, Basilika og rómverska leikhúsið. Ekið til Strassbourg í Frakklandi. Ekið um austanvert Frakkland framhjá Mulhouse til Basel og síðan áfram að Vierwaldstátter- vatni í Sviss. Gisting í Luzern í 4 nætur. Boðið er upp á skoðunar- ferðir til Zúrich og upp á fjallið Pílatus, sem er 2132 m á hæð. Farið er með svifbraut upp á tindinn. Tíu mínútna ferð er til Lido, sem er góð baðströnd við vatnið. Ekið frá Luzern um Schaffhausen, þar sem Rínarfoss- ar eru skoðaðir, um Svörtuskóga til Freiburg. Gisting í Freiburg. Ekið um Suður-Þýskaland til Heidelberg. Síðustu dagana er dvalið í Frankfurt. Norðurlandaferðir Brottför 14. júlí og 4. ágúst. Flogið til Kaupmannahafnar. Ferðast um Norður-Sjáland og Jótland. Siglt til Larvík við Osló- fjörð. Ekið til Þelamerkur, dvalið á fjallahóteli. Boðið upp á ýmsar fróðlegar og skemmtilegar skoð- unarferðir. Komið til Oslóar. Ekið um Svíþjóð, Uddevalla, Kungálv, Gautaborg og farið með ferju til baka til Kaupmannahafnar. Einnig skipuleggur ferðaskrif- stofan einstaklings ferðir um Norðurlönd og kappkostar að veita sem ódýrastar og þægi- legastar ferðir. Israel Flogið er um Kaupmannahöfn til Cairo. Ekið með bíl til Jerúsa- lem. Dvalið í Hinni helgu borg í sex daga og allir merkustu stað- irnir heimsóttir, þá er einnig Jóna Hansen framkvæmdastjóri Viðsýnar. dvalið í Tíberías við Genesaret- vatnið og í baðstrandarbænum Netanya. Boðið er upp á fjölda skoðunarferða m.a. til Betlehem, Hebron, Jeríkó, Olíufjallsins og annarra þekktra Biblíustaða. Ferðin er fróðleg og glæsileg, og bent á það, að Víðsýn er eina ferðaskrifstofan sem skipuleggur ferðir sérstaklega um söguslóðir Biblíunnar í ísrael. Mexico Brottför 20. ágúst 1980. Mexico, land Aztekanna, er mik- il menningarperla. I landinu eru stórkostleg mannvirki og list, sem aðeins Aztekar og Mayar kunnu tökin á. Alls staðar er að finna greinilegan vitnisburð um glæsi- lega fortíð þeirra. En Mexico er ekki aðeins fortíð. Það reyna menn ekki eingöngu í höfuðborg- inni Mexico City, sem er meðal stærstu borga í heimi með 10 milljón íbúum. Mexico er fjöl- mennasta spænskumælandi land í heimi, þó tala ekki allir íbúarnir spænsku, rúmlega milljón Indíán- ar tala aðeins sín eigin tungumál og mállýskur. í landinu er mikið um allskonar hátíðahöld. Á Gari- balditorgi í Mexico City er eins og ávallt sé þjóðhátíð. Frá Mexico City er áhugavert að fara í skoðunarferðir og kynna sér menningu hinna fornu Indíána. Síðustu dagana er dvalið í Aca- pulco, sem hefur stundum verið kölluð paradís Tnilljónamær- inganna. Þar eru baðstrendur og fjölbreytilegt skemmtanalíf. Grikkland — Egyptaland Brottför 23. ágúst 1980. Flogið um Kaupmannahöfn til Cairo. Skoðaðar eru margar þekktustu fornminjar heims í Egyptalandi og Grikklandi. í báðum löndum er fornfræg menning og er kapp- kostað að sýna fólki þessa sögu- frægu staði og kynna því menn- ingu þessara þjóða. Meðal þess, sem séð er í skoðunarferð um Grikkland má nefna Akropolis, Delfi, Seifshofið og Apollohofið, en í Egyptalandi: Muhamed Ali moskuna og kirkjuna, sem byggð er yfir hellinn sem sagt var að María og Jósep hafi dvalið í með Jesú, pýramídana, Karnak hofið og dal konunganna í Luxor. Þá er í báðum löndum boðið upp á dvöl á sólarströndum. (Úr fréttatilkynningu)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.