Morgunblaðið - 27.07.1980, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ1980
21
Mjólkur-
bað
Sífellt eykst áhugi fólks á
snyrtivörum sem unnar eru
úr náttúrulegum efnum.
Margar verksmiðjur sem
framleiða snyrtivörur hafa á
ný uppgötvað mjólkurbaðið
og framleiða nú „mjólkur-
baðsduft", að því er segir í
þætti fyrir konur í færeysku
dagblaði.
En mjólkin sem í duftinu
er er blönduð ýmsum efnum,
þar á meðal ilmefnum. Því þá
ekki að kaupa venjulega
mjólk og hella út í baðvatnið.
Blaðið segir að ef einum og
hálfum lítra af mjólk er hellt
út í baðkarið mýki það upp
húðina og auki á vellíðan auk
þess sem það er ódýrt „bað-
salt“.
Pierrot
látbragðs-
dúkkur
Franski látbragðsleikarinn
Pierrot er heimsfrægur og
hefur áhrifa listar hans gætt
víðs vegar í veröldinni. Hér-
lendis hafa dúkkur, sem gerð-
ar eru í listsköpunarstíl Pier-
rots náð nokkrum vinsældum
og eru að sögn notaðar til
skrauts á stóla, í sófa og
eiginlega hvar sem fólk kýs
að hafa þær.
Dúkkurnar hafa höfuð,
hendur og fætur úr postulíni,
en búkurinn er eins og á
tuskudúkku. Hægt er að velja
um hvít- og svartklæddar
dúkkur, með möttu eða gljá-
andi postulíni og eru þær í
tveimur stærðum. Dúkkurn-
ar eru franskar að uppruna
og fást --í verzluninni Corus,
Hafnarstræti, og kostar
stærri gerðin um 20 þús. kr.
stk., en þær minni um 13 þús.
kr.
Látbragðsfjölskyldan. Ef
myndin prentast vel má sjá
tárin, sem teiknuð eru á
andlit brúðanna.
I.jÓHin. Mbl. Emllia.
Garðhúsgögn
Þegar gott er veður vilja
flestir eyða deginum úti við
eins mikið og kostur er. Ekki
dregur það úr ánægjunni að
hafa þá góð húsgögn í garðin-
um eða á svölunum, ef slíkt er
fyrir hendi.
Þær voru ekki margar hús-
gagnaverslanirnar, sem Dag-
legt líf hafði samband við, sem
höfðu haft garðhúsgögn á
boðstólum í sumar. En þær
sem höfðu haft þau höfðu
annað hvort selt þau öll eða
áttu lítið eftir.
Stólar þessir kosta 56.200 krónur stykkið. Þeir eru úr járni og áii og
eiga ekki að ryðga að sögn þeirra sem til þekkja. Þeir fást hjá
Bólstrun Ingólfs.
Þægmdaauki á
góðviðrisdögum
Til að mynda hafði hús-
gagnadeild Vörumarkaðsins
fyrr í sumar haft sett af
garðhúsgögnum úr furu, bekk,
borð og tvo stóla, á 120 þúsund
krónur. Verslunin átti hins
vegar aðeins eftir sett úr eik á
419.000 krónur.
Hins vegar á Vörumarkað-
urinn til þrjár tegundir af
sólbekkjum. Sá ódýrasti kost-
ar 21.800 krónur en sá dýrasti
69.800. Er það þýskur bekkur
sem er merktur TUV sem er
þýskur gæðastimpill á hús-
gögnum.
Bólstrun Ingólfs í Austur-
stræti selur ensk húsgögn úr
járni og áli og eru þau hvít að
lit. Til eru þrjár tegundir af
stólum og tvær af borðum.
Fyrir helgina voru stólarnir
til í versluninni og kostuðu
56.200 krónur stykkið en borð-
in voru væntanleg í þessari
viku. Síðast þegar þau fengust
kostuðu þau 97.300 og 187.000
krónur.
Nokkrar sportvöruverslanir
áttu til nóg af garðhúsgögnum
er haft var samband við þær
fyrir helgi. Þau húsgögn sem
þær hafa á boðstólum hefur
fólk ýmist kallað sólhúsgögn
eða tjaldhúsgögn þar sem
oftast má leggja þau saman,
og taka því lítið rúm í
geymslu.
I Útilífi í Glæsibæ eru til
ýmsar tegundir af stólum sem
kosta frá 5.700 krónum upp í
38.500 krónur. Sólbekkir eru
til á 19.200 og 23.500 krónur.
Þá eru til barnastólar á 4.500.
Það sem gerir stólana mis-
munandi eru helst dýnurnar.
Sumir eru með bólstruðum
dýnum og aðrir ekki. Enn
aðrir eru með eins konar
áföstu fótaskammeli.
Tvær tegundir eru til af
borðum. Ferkantað borð á
15.700 og hringlótt á 29.500
krónur.
Þá er þar til ferðasett sem
inniheldur borð og fjóra kolla.
Það kostar 23.700 krónur.
Settið má brjóta saman og
rúmast það í lítilli ferðatösku.
t Vörumarkaðnum fæst þetta eikarsett á 419.000 krónur. Aðeins þetta
eina sett kom til landsins en fyrr i sumar hafði vershinin á boðstólum
garðhúsgagnasett úr furu á 120.000 krónur.
Sóistólar með áföstu skammelt eru meðal þeirra garðhúsgagna sem
fást í Útiiifi. Þeir kosta frá 26.500 upp i 38.500 krónur.
Þrjár tegundir af sólbekkjum. sem fást i Vörumarkaðnum. Þeim i
miðjunni má breyta i stól eins og sést og bekkinn til vinstri má stilla
að vild.
KERRUBEISLI
HÖGGDEYFAÚRVAL
FJAÐRIR
FJAÐRIR FYRIR
LAND ROVER
KÚPLINGSDISKAR
KÚPLINGSPRESSUR
SPINDILKÚLUR
STÝRISENDAR
VIFTUREIMAR
KVEIKJUHLUTIR
FLEST í RAFKERFID
HELLA aðalluktir, lukta-
gler, luktaspeglar og
margs konar raf-
magnsv.
BOSCH luktir o.fl.
S.E.V. MARCHALL lukt.
CIBIE luktir.
LJÓSASAMLOKUR
BÍLAPERUR allar geröir
RAFMAGNSVÍR
FLAUTUR 6—24 volt
ÞURRKUMÓTOR 6—24v
ÞURRKUBLÖD ANCO
ÞURRKUARMAR
BREMSUBORÐAR
BREMSUKLOSSAR
ÚTVARPSSTENGUR
HÁTALARAR
SPEGLAR í úrvali
MOTTUR
HJÓLKOPPAR
AURHLÍFAR
MÆLAR alls konar
ÞÉTTIGÚMMÍ OG LÍM
HOSUR + KLEMMUR
RÚÐUSPRAUTUR
FELGULYKLAR
LOFTPUMPUR
STÝRISHLÍFAR
KRÓMLISTAR
BENSÍNLOK
DRAGHNOÐ
VERKSTÆÐISTJAKKAR
HNAKKAPUÐAR
ÖSKUBAKKAR
FARANGURSGRINDUR
BÖGGLABÖND
PÚSTRÖRAKLEMMUR
RAFKERTI
LOFTFLAUTUR
BENZÍNSÍUR
EIRRÖR+FITTINGS
BRETTAKRÓM
SLÍPIPAPPÍR
VATNSDÆLUR
ÞVOTTAKÚSTAR
SMURKOPPAR
SÆTAAKLÆDI
MIÐSTOÐVAR 12 og 24
DRÁTTARKÚLUR
VAGNTENGI, KRÓKAR
HLJOÐKUTAR —
THRUSH
HOLLEY BLÖNDUNGAR
F. U.S.A. BÍLA
SETTí BLÖNDUNGA
LOFTHREINSARAR
LOFTHREINSARA
VERKFÆRI úrval
MÆLITÆKI f. rafgeyma
NOACK sænskir úrvals
rafgeymar
ISOPON OG P-38 beztu
viðgerða- og fylliefnin
PLASTI-KOTE sprey-
lökkin til blettunar o.fl.
Athugið
allt úrvalið
Sími 82722