Morgunblaðið - 27.07.1980, Síða 32
TVeir slitu úr sér
Laxá i Aðaldal hefur oft verið
nefnd perla íslenskra laxveiðiáa
ok víst er áin fallex þar sem hún
liðast um Aðaldalinn. Áin er
fræK fyrir margar sakir og ekki
síst þær, að hún er ein Kjöfulasta
laxveiðiá landsins. I>ar renna
veiðimenn færum sinum sumar-
langt <>k þar er mesta vonin um
að setja i „þann stóra“. t>ar hafa
mörg ævintýri gerst, þar er
sögusvið margra mersjaðra
veiðisaKna <>k hafa menn sett þar
i svo stóra laxa, aö með ólikind-
um er. Stærsti lax, sem veiðst
hefur i Laxá, vó 36 pund og
auðvitað hafa menn misst þar
stærri laxa, „þann stóra“, sem
alla veiðimenn dreymir um að ná.
MorKunhlaðsmenn voru á ferð
i Aðaldalnum <>k veittu veiði-
menn þeim KÓðfúsleKa leyfi til að
fylKjast með veiðunum eina
daKstund <>k verður reynt að lýsa
þeim deKÍ í máli ok myndum.
Sprækur lax á
Skriðuklöpp
Við Skriðuklöpp var Ólafur
Johnson að veiðum ásamt Guð-
rúnu konu sinni og ekki höfðu
Morgunblaðsmenn fylgst lengi
með veiðunum, er Ólafur setti í
fallegan fisk. Viðureignin tók um
15 mínútur og var laxinn hinn
fjörugasti. Fiskurinn var rúm 10
pund og tók svartan Toby.
„Ég er nú ekki alltof ánægður
með að þið séuð að taka af mér
myndir, strákar," sagði Ólafur, og
rotaði laxinn, „því ég veiði helst á
flugu. Annars höfum við veitt hér
í Laxá í tíu ár, og hér er dásamlegt
að vera, fallegt umhverfi og
skemmtileg á. Þetta er fimmti
laxinn, sem ég fæ hér að þessu
sinni, hinir veiddust allir á flugu.
og sá
þriðji fór
með alla
línuna
Veiðin hefur ekki gengið neitt
sérlega vel hjá okkur nú, síðasta
hópi gekk betur."
Ékki vildu menn tefja Ólaf
lengur frá veiðinni, svo við fylgd-
umst með honum af bakkanum.
Ekki ginu þó fleiri fiskar við
agninu að þessu sinni, svo leitað
var á önnur mið.
Alltaf von á
þeim stóra
Næst lá leiðin niður að Æðar-
fossum, en fyrir ofan fossana voru
hjónin Borghildur og Hilmar
Fenger að landa fallegum fiski í
sameiningu. Þegar laxinn var
kominn á land, áræddu menn að
kasta kveðju á þau hjón og spjalla
stuttlega við þau.
„Þetta er fjórði fiskurinn, sem
við veiðum nú,“ sagði Hilmar, „en
sá stærsti var 17 pund. Fyrsta
fiskinn fékk ég á Efra Hólmavaði
á flugu, þá fékk ég tvo á maðk og
loks þennan á spón hér í Mjósundi.
Það eru liðin tíu ár síðan þetta
veiðiholl var stofnað, en frum-
kvöðull að stofnun þess var Sig-
urður Samúelssön. Þetta er þann-
ig hjá okkur, að það eru maður og
kona með stöng, enda best, að
alltaf sé einn til aðstoðar við
löndunina, því bakkarnir eru oft
háir.
Annars er þetta ákaflega ynd-
isleg og skemmtileg á og svo er
alltaf von á þeim stóra," sagði
Hilmar, og kastaði út á ný.
Við notuðum tækifærið og
spjölluðum stuttlega við Borg-
hildi, konu hans. „Ég reyni alltaf
að veiða svolítið og fæ svona einn
og einn,“ sagði Borghildur. „Hins
vegar er samstarfið i hávegum
haft hér, þegar Hilmar er búinn
áð setja í hann, þá hjálpa ég
honum við löndunina.
Ég hef ekki veitt neinn enn, en
það er aldrei að vita, það er jú
einn og hálfur dagur eftir," sagði
Borghildur.
Þau Elín Kaaber og
Gunnar J. Friöriksson með
einn spriklandi í háfnum.
Mikill fiskur
Við Brúarstreng voru þau Elín
Kaaber og Gunnar J. Friðriksson
að veiðum og var Gunnar með
hann á, þegar Morgunblaðsmenn
komu þar að. Skömmu síðar land-
aði hann fallegum laxi, nálægt tíu
pundum að þyngd.
„Ég var ekki lengi með hann
þennan," sagði Gunnar og losaði
fluguna úr laxinum. „Ég reyni að
halda frekar stíft við þá, mér
finnst betra að missa þá strax ef
þeir eru illa teknir. Svo er líka
betra að landa þeim fljótt, því
annars getur slýið hlaðist á línuna
og aukið hættuna á því, að laxinn
tapist.
Laxá er geysilega fjölbreytileg
og skemmtileg á og hafa fiskarnir
veiðst um alla ána að þessu sinni.
Fossarnir hafa venjulega gefið
mestan afla, en þeir hafa brugðist
núna. Það er mikill fiskur í ánni,
mér sýnist, að það sé mun meira
en í fyrra. Vegna hvers það er, er
ekki nokkur leið að segja um, en
það er líklegt, að þessi árgangur sé
einfaldlega mjög sterkur.
Það gerir manni oft erfitt fyrir,
hve mikið slý er í ánni og þess
vegna notar maður flotlínuna
mikið, því hún tekur á sig minna
slý en línur sem sökkva. Veiðin
hjá okkur hefur gengið þokkalega,
ég hef fengið fjóra fiska á fluguna
og konan einn á minnow," sagði
Gunnar J. Friðriksson.
Nú var Gunnar búinn að gera
klárt á ný og kastaði flugunni út í