Morgunblaðið - 09.08.1980, Qupperneq 1
40 SIÐUR
177. tbl. 67. árg.
LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Tyrkland:
22 dæmdir til
dauða í einu
Adana. Tyrklandi, 8. ágúst. AP.
HERDÓMSTÓLL í Tyrklandi
dæmdi i dag 22 hægrisinnaða
ofgamenn til dauða fyrir að hafa
borið ábyrgð á dauða 111 manna
í átökum. sem brutust út miili
hægri og vinstri sinna i desember
1978. Fjórtán sakborningar voru
dæmdir i ævilangt fangelsi og
304 fengu styttri fangeisisdóma.
Aðrir sakborningar, 411 að tölu.
voru sýknaðir af ákærum. Ekki
Pólland:
hafa áður verið jafnmargir i einu
á sakborningabekk i dómsmáii i
Tyrklandi.
Saksóknarar í málinu höfðu
krafizt dauðadóms yfir 330 hinna
ákærðu, en þeir eru félagar í
hægri sinnaðri hreyfingu Múham-
eðstrúarmanna. Réttarhöldin hafa
staðið yfir í eitt ár og á meðan
hafa tveir sakborningar látizt og
tvær konur í hópi hinna ákærðu
alið börn.
Enn verkföll
Varsjá, 8. ámist. AP.
SORPHREINSUNARMENN í
þremur borgarhverfum i Varsjá
eru i verkfalli og hafa krafizt
hærri iauna og tryggingar fyrir
auknu kjötframboði, að þvi er
heimildir i röðum andófsmanna
greindu frá í dag. Verkfalismenn
Kennedy
vongóður
New York, 8. ágiist. AP.
EDWARD Kennedy öldunga-
deildarþingmaður fullyrti i dag
við komu sina á landsþing
demókrata i New York, að hann
ætti enn góða möguleika á að
hreppa útnefningu flokks sins
til forsetaframboðs. Sagði
Kennedy starfsmenn sina hafa
rætt þessi mál við fjölda væntan-
legra fulltrúa á þinginu og gæfu
þau viðtöl sér góðar vonir.
Landsþing demókrata hefst á
mánudag í New York. Kennedy
kemur á þingið með 1234 full-
trúa, en Carter forseti hefur
tryggt sér stuðning 1985 fulltrúa.
Til að hljóta útnefningu í for-
setakjör þarf stuðning 1666 full-
trúa. Stuðningsmenn Kennedys
beina nú kröftum sínum að því
að fá þingsköpunum breytt á
þann veg, að fulltrúar geti gengið
óbundnir til fyrstu atkvæða-
greiðslu.
Kennedy hefur neitað að lýsa
því yfir að hann muni styðja
Carter í kosningabaráttunni
hljóti Carter útnefningu flokks-
hafa einnig krafizt launauppbót-
ar fyrir heilsuspiilandi störf.
Borgaryfirvöld hafa fengið aðra
verkamenn til að hreinsa sorpið í
borgarhverfunum þremur, en það
hefði ella legið í haugum og rotnað
í hitum sumarsins. Að sögn and-
ófsmanna fengust þeir sem nú
hreinsa sorpið aðeins til þess á
grundvelli þess, að þeir væru að
koma í veg fyrir að sjúkdómar
bærust út.
Sömu heimildir greindu frá því í
dag, að á fimmtudag hafi lokið
verkföllum ýmissa starfshópa í
spunaverksmiðjum í borginni
Lodz, um 140 kílómetrum frá
Varsjá. Verkföllunum lauk með
því að verkfallsmenn fengu launa-
hækkanir, en ekki er Ijóst hve
miklar þær eru.
Fellibylurinn
stefnir á Texas
FELLIBYLURINN Allen stefnir nú
á ofsahraða á suðurströnd Texas
og var í gærkvöldi búist við að
hann skylli á ströndina laust fyrir
hádegi í dag, laugardag. 87 manns
hafa látizt af völdum fellibylsins á
eyjum í Karíbahafi undanfarna
daga. Allen fer með um 30 km
hraða á klukkustund en vindhvið-
urnar eru um átta sinnum öflugri.
Loftþrýstingurinn í miðju fellibyls-
ins er um 900 millibör og hefur
aðeins einu sinni áður mælzt minni
loftþrýstingur í fellibyl á þessum
slóðum.
A efri myndinni má sjá hvernig
Allen lítur út á mynd, sem tekin
var frá gervitungli og neðri myndin
sýnir fjallháar öldurnar, sem felli-
bylurinn myndar.
(AP myndir)
Bakhtiar stofnar samtök
gegn valdhöfum í Iran
Teheran, París, 8. ájfúst. AP.
SHAPOUR Bakhtiar íyrrum
forsætisráðherra írans til-
kynnti i Paris í dag, að hann
hefði stofnað samtök til að
berjast gegn núverandi vald-
höfum í Teheran. í yfirlýs-
ingu, sem send var frá heimili
Bakhtiars i Paris, skoraði
hann á alla írani að taka þátt i
þessari baráttu og frelsa iand-
ið úr klóm þeirra spilltu,
fávisu einræðisafla, sem nú
réðu þar rikjum.
íransstjórn hótaði í dag að kalla
heim sendiherra sinn í Moskvu,
hætti Sovétmenn ekki stuðningi
sínum við Irak. Iranski sendiherr-
Nota Sovétmenn sýkla-
vopn í Afganistan?
Wa.shinKt«n. Nýju Delhi, 8. águst. AP.
BANDARÍSKA utanrikisráðu-
neytið birti i dag skýrslu, þar
scm greint er frá rúmlega 100
atvikum, þar sem sannað þykir
að sovézkum sýklavopnum hafi
verið beitt i Afganistan, Laos
og Kambódiu. Segir i skýrsl-
unni, að sum þessara vopna geti
valdið dauða, en önnur ýmsum
sjúkieika.
Dregið hefur úr bardögum í
Afganistan undanfarið, að því er
vestrænar heimildir í Kabul
herma, en útvarpið í Kabul
skýrði þó frá því í dag, að
stjórnarherinn hefði banað 28
uppreisnarmönnum í einu norð-
urhéraða landsins.
Afganski herinn hefur verið
látinn skerast í leikinn og jafna
deilur milli bíleigenda, leigubíl-
stjóra og annarra þeirra, sem
þurfa að nota benzín í Kabul.
Benzín hefur mjög verið af
skornum skammti í Afganistan
undanfarið og hefur hver kaup-
andi aðeins getað fengið kevpta
fimm lítra í einu. Hefur oft
komið til handalögmála í Kabul
vegna þessa, að því er vestrænir
heimildarmenn segja.
ann í Moskvu sakaði Sovétmenn í
dag um að senda Irökum vopn,
sem notuð séu til árása á tran og
sagði að eðlilegt stjórnmálasam-
band milli Sovétríkjanna og írans
gæti ekki haldið áfram á meðan
þannig væri í pottinn búið.
Búizt er við því að Bani-Sadr
forseti írans tilnefni nýjan for-
sætisráðherra á næstu dögum.
Teheran útvarpið gerði því í dag
skóna, að Muhammed AIi Rajaie
menntamálaráðherra yrði fyrir
valinu. Bani-Sadr dró nýlega til
baka fyrri tilnefningu sína í þetta
embætti. íransþing mun fjalla um
tilnefninguna og sætti það sig við
ákvörðun forsetans getur það því
næst snúið sér að því að fjalla um
örlög bandarísku gíslanna í land-
Um 800 íranskir námsmenn og
stuðningsmenn þeirra fóru í dag í
göngu í Washington til að lýsa
yfir stuðningi við stjórn Khomein-
is. Gangan fór friðsamlega fram,
en mikið lögreglulið var viðbúið
því að grípa í taumana, ef á
göngumenn hefði verið ráðizt.
ítalska lögreglan tók í dag í sína
vörzlu 22 írani sem efnt höfðu til
mótmæla í Péturskirkjunni í Róm.
Vildu íranimir ná tali af páfa og
mótmæla meðferð á írönskum
stúdentum í Bandaríkjunum og
Evrópulöndum.
70 þúsunda
minnzt í dag
í Nagasaki
í DAG eru 35 ár liðin frá því að
bandarísk sprengjuflugvél varp-
aði kjarnorkusprengju á borgina
Nagasaki í Japan. Mikil minn-
ingarathöfn verður í borginni af
þessu tilefni og verður hún til-
einkuð vonum manna um allan
heim um frið. Sjötíu þúsund
manns fórust 9. ágúst 1945 í
kjarnorkuárásinni á Nagasaki.
Þremur dögum áður var sams
konar sprengju varpað á Hiro-
shima og fórust þá um 100
þúsund manns.