Morgunblaðið - 09.08.1980, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1980
Hreinskilin
skoðanaskipti
segir Hannes Hafstein um fund íslenskra
og sovéskra diplómata
AFGHANISTANMÁLIÐ,
öryggi diplómata, Palest-
ínudeilan, stjórnarfarið í
Kamphutseu og mörg
fleiri mál voru til umræðu
á fundi íslenskra og sov-
éskra diplómata í gær, að
því er Ilannes Ilafstein
skrifstofustjóri utanríkis-
ráðuneytisins tjáði
blaðamanni Morgunblaðs-
ins í gær. Af hálfu íslend-
inga tóku þátt í viðræðun-
um þeir Hannes Hafstein
og Sveinn Björnsson, en
auk túlks voru frá Sovét-
ríkjunum þeri Farafanov
yfirmaður Skandinavíu-
deildar sovéska utanríkis-
ráðuneytisins í Moskvu,
Þorleifur
Þórðarson
látinn
ÞORLEIFUR Þórðarson fyrrver-
andi forstjóri Ferðaskrifstofu
ríkisins er látinn. Þorleifur var
fæddur 27. apríl 1908 í Ólafsvík.
Hann lauk námi við Verzlun-
arskóla ísiands, nam síðan erlend-
is og auk forstjórastarfa við
Ferðaskrifstofu ríkisins kenndi
hann við Samvinnuskólann um
árabil.
Tolstov sendiráðunautur
og Streltzov sendiherra.
Hannes Hafstein sagði fund-
inn hafa verið hreinskilinn, þar
sem menn ræddu málin og
skýrðu stefnu og sjónarmið
ríkja sinna í hinum ýmsu mál-
um er til umræðu verða á
Allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna í New York í næsta
mánuði. Kvað Hannes réttara
að nefna fundinn „skoðana-
skiptafund" en „samráðsfund",
og hann kvaðst ekki búast við að
neinar breytingar yrðu á af-
stöðu ríkjanna tveggja til marg-
víslegra alþjóðamála eftir fund-
inn.
Varðandi innrás Sovétmanna
í Afghanistan, sagði Hannes, að
Islendingar hefðu sérstaklega
tekið það fram, að stefna ís-
lensku ríkisstjórnarinnar í því
máli væri óbreytt, og myndu
íslendingar því styðja tillögu
32ja ríkja þriðja heimsins, um
að málið yrði tekið til sérstakrar
umfjöllunar á Allsherjarþing-
inu.
Farafanov og menn hans hafa
einnig átt viðræður við íslenska
utanríkisþjónustustarfsmenn
um Madrid-ráðstefnuna, þar
sem fjalla á um þróun mála eftir
ráðstefnuna i Helsinki á dögun-
um. Af hálfu íslenskra stjórn-
valda tóku þátt í þeim viðræðum
þeir Níels P. Sigurðsson, Ólafur
Egilsson og Sveinn Björnsson.
Dagsbrún samþykkir
verkfallsheimild
FJÖLMENNUR félagsfundur
Dagsbrúnar samþykkti í gær
með öllum greiddum atkvæðum
gegn fimm, verkfallsheimild til
handa stjórn og trúnaðar-
mannaráði. Á fundinum var
ákveðið að boða til félagsfundar
að nýju, ef eitthvað sérstakt
gerðist í samningaviðræðunum.
kvæmda þótt þeim skildist að
búið væri að ákveða fram-
kvæmdina.
Símagjöldin við útlönd:
„Vonumst eftir að
hækkunin komi ekki til“
segir yfirverkfræðingur Landsímans
MORGUNBLAÐIÐ kannaði
hvort búið væri að ákveða
hækkun á simagjöldum til út-
landa með tilkomu jarðstöðv-
arinnar, en til athugunar hef-
ur verið hjá stjórnvöldum að
leggja söluskatt á þau sámtöi.
Ólafur Steinar Valdimarsson í
samgönguráðuneytinu kvað
ekkert ákveðið í þessum efn-
um, en Gústaf Arnar yfirverk-
fræðingur hjá pósti og sima
kvað margt benda til að hér
yrði um erfitt mál að ræða.“
„Ríkissjóður sleppir sjaldan
því, sem hann getur náð í,“
sagði Gústaf, „en við vonumst
til þess ennþá að þetta geti
orðið jákvæð afgreiðsla og
hækkunin komi ekki til.“
Aðspurður svaraði Gústaf
því í sambandi við skrefataln-
ingu á innanbæjarsímtöl að
ekki hefði ennþá verið ákveðið
hvenær hún kæmi til fram-
Frá fundi íslenskra og sovéskra embættismanna í gærmorgun í utanríkisráðuneytinu. Á myndinni eru,
talið frá vinstri: Sveinn Björnsson, Hannes Hafstein, Farafanov, Streltzov, túlkur frá sovéska sendiráðinu
í Reykjavík og Tolstov, sendiráðunautur. Ljósm.: Emiiía Björnsd.
Síldarstofninn leitar á fornar
slóðir við Island og Jan Mayen
— nái hann ákveðinni stærð, segir Gunnar Flóvenz
„MÉR
koma aðgerðir Norð-
manna varðandi norsk-
íslenska síldarstofninn, ekki
á óvart, enda hef ég fylgst
allnáið með framkomu þeirra
í þessum málum, í langan
tíma,“ sagði Gunnar Flóvenz
framkvæmdastjóri Sildarút-
vegsnefndar í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins í
gærkvöldi, er hann var spurð-
ur álits á svari Eyvinds Bolle
til Steingrims Hermannsson-
ar.
„Um frammistöðu okkar manna
almennt í þessum samskiptum við
Norðmennina vil ég ekkert segja
að sinni, því það yrði aðeins til að
veikja stöðu okkar eins og hún er í
dag,“ sagði Gunnar ennfremur.
„Af sömu ástæðu hef ég ekki talið
rétt að gera athugasemdir við svar
Ólafs Jóhannessonar utanríkis-
ráðherra við grein minni í Morg-
unblaðinu þann 10. júlí. Mér er
kunnugt um að Ólafur Jóhannes-
son hefur bæði fyrr og nú reynt að
hafa áhrif á Norðmennina til þess
Drukknaði
í Norðurá
MAÐURINN sem drukknaði í
Norðurá s.l. fimmtudagskvöld þar
sem hann var við veiðar á báti
ásamt félaga sínum, hét Atli Þór
Helgason. Hann var þrjátíu ára
gamall til heimilis að Vallholti 13
á Akranesi og lætur eftir sig konu
og þrjú börn.
að leysa síldveiðimálin á viðun-
andi hátt fyrir okkur, þótt það
hafi ekki borið árangur til þessa.
Aftur á móti virðist svo sem
Ólafi hafi ekki verið skýrt nægi-
lega vel frá því, sem gerðist á
fundum norsk-islensku síldveiði-
nefndarinnar í júní. Ég fagna því
hins vegar, að Islendingar eru nú
loksins að átta sig á því, þótt seint
sé, að uppbygging norsk-íslenska
síldarstofnsins getur skipt sköp-
um um efnahagslega afkomu
okkar í framtíðinni. Fiskifræð-
ingar eru sammála um það, að nái
þessi stofn ákveðinni stærð, muni
hann halda á haf út í ætisleit að
lokinni hrygningu, og benda allar
líkur til þess að hann haldi þá á
fornar slóðir við ísland og Jan
Mayen,“ sagði Gunnar Flóvenz að
lokum.
Islenska andóísnefndin:
Maimréttindi
verði virt
MORGUNBLAÐINU hefur borist
svohljóðandi fréttatilkynning frá
islensku andófsnefndinni.
Islenzk stjórnvöld hafa dagana
7.-8. ágúst setið að viðræðum við
sérlegan sendimann Sovétstjórn-
arinnar um alþjóðamál, þar á
meðal lokasamþykkt um örygg-
ismál Evrópu, svonefndan Hels-
inki-sáttmála. Eins og kunnugt er
hafa sovézk stjórnvöld þverbrotið
mikilvægustu ákvæði hennar þ.e.
a.s. ákvæði um mannréttindi. ís-
lenzka andófsnefndin telur óeðli-
legt að íslenzk stjórnvöld sitji að
þessum viðræðum án þess að
krefjast þess opinberlega að sov-
ézk stjórnvöld virði undirritaðan
sáttmála og sleppi úr haldi þeim
mönnum, sem fangelsaðir hafa
verið vegna baráttu sinnar fyrir
því, að mannréttindaákvæði
Helsinki-sáttmálans séu höfð í
heiðri i Sovétríkjunum.
Skemmdarverk
í Hafnarfirði
SKEMMDARVERK voru unnin í
nýbyggingu við Brekku-byggð í
Hafnarfirði í fyrrakvöld. Brotnar
voru 11 rúður með tvöföldu gleri,
sem biðu ísetningar. Nemur tjónið
hundruðum þúsunda króna. Grun-
ur leikur á að krakkar hafi þarna
verið að verki og er málið í
rannsókn.
Hitaveitustjóri um stjórnvöld:
„Beðið eftir
hægu andláti44
MORGUNBLAÐIÐ innti Jó-
hannes Zoega hitaveitustjóra
álits i gær á því að ríkis-
stjórnin hefur enn einu sinni
frestað afgreiðslu á beiðni
Hitaveitu Reykjavíkur um
gjaldhækkun.
„Ég hef ekkert um það að
segja," sagði Hitaveitustjóri,
„það virðist vera beðið eftir
hægu andláti flestra atvinnu-
hátta og tiltekta í þjóðfélag-
inu. Við því er víst ekkert að
segja, við höfum ekkert fregn-
að frá stjórnvöldum og vitum
ekkert hvað þeir hugsa sér, en
hjá okkur er allt í hnút og við
getum ekkert hreyft okkur.“
Furðufyrirbæri
yf ir Ægissíðunni
„KLUKKAN var liðlega 12 á mið-
nætti og mér var litið út um
gluggann sem snýr út að sjónum við
/Egissiðuna og þá sá ég hvar eitt-
hvað sem liktist disk eða feikna
stóru hjóli fór með ofsalegum hraða
um himininn og leiftraði út frá þvi
með eldglæringum eins og á sér stað
þegar sjornuljós brennur,“ sagði
Sóiveig Jónsdóttir Fornhaga 26 i
samtali við Morgunblaðið i gær, en
atburður þessi átti sér stað föstu-
dagskvöldið 24. júli s.l.
„Ég náði strax í sjónauka," hélt
Sólveig áfram, „og gáði að þessu aftur
en það hafði horfið bak við nálægt
hús, en þá sá ég hvar eitthvað
fyrirbrigði stóð kyrrt á himni á
svipuðum slóðum og ég hafði séð
fyrra fyrirbærið og þegar ég bar
sjónaukann að því var það að sjá í
útliti eins og feikn stórt grill á bíl
með fjórum luktum með sterkum
ljósum. Smástund var þetta kyrrt en
þaut síðan burtu með ofsahraða í
suðvesturátt. Aldrei fyrr hef ég séð
neitt kynlegt, en með þessu fylgdist
ég í 1—2 mínútur og þar sem ég sá
mikinn mun á síðara fyrirbærinu með
sjónaukanum hefur það ekki verið
óralangt í burtu“.