Morgunblaðið - 09.08.1980, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1980
Haft í hótunum
Kjartan Ólafason rit-
•tjóri Þjóóviljans lætur
•kki aó sór hæóa. Engu
•r likara en hann telji þaó
felaat í starfi sínu sem
málsvari ríkisstjórnarinn-
ar aó berja hötóinu vió
steininn og þrástagast á
nauósyn ranglætisíns.
Hann skrifar forystugrein
í blaó sitt í gær, sem ber
heitiö „Lítil skattheimta"
og síóasta setning henn-
ar hljóöar á þennan veg:
„Hitt stendur aó í heild
•ru beinir skattar síst of
háir á landi hér.“
Menn geta svo sem
auóveldlega gert sór i
hugarlund, hvernig inn-
maturinn er, þegar um-
búóirnar eru meó þess-
um hætti. Kjartan veltir
meóal annars fyrir sár
staóhæfingum manna
um aó vió íslendingar
■áum langt aó baki óór-
um Norðurlandaþjóóum
hvaó varóar margvíslega
félagslega þjónustu og
félagsleg réttindi al-
mennings, og hvaó hægt
gangi að hrinda fram
ýmsum opinberum fram-
kvæmdum, sem að kalla.
Og síóan spyr Kjartan
með stjórnur í augunum:
„En skyldi ekki vera
nokkurt samhengi þarna
vió þá lágu skatta sem
hér eru greiddir?" Greini-
legt er, aó Kjartani þykir
síóur en svo vanþórf á aó
fjölga stjörnutékkunum
•vonefndu frá flokks-
bróóur hans Ragnars
Arnalds, fjármálaráó-
herra.
Þessar hótanir Þjóó-
viljaritstjórans í garó al-
mennings um að menn
séu ekki ofgóöir aó borga
þaó, sem á þá er lagt og
jafnvel enn meira, eru í
góóu samræmi vió yfir-
lýsingar fjármálaráó-
herra, sem hefur látió orð
falla á þann veg, aó bein-
línis hlægilegt sé að
heyra kveinstafi manna
undir háum sköttum hér
á landi. Hótanirnar falla
•innig vel aö þeim áróóri
Þjóóviljans undanfarna
daga, aó til lítils sé aó
auka kaupmáttinn, ef
launþegar noti laun sín til
þess eins aó kaupa sér
nýja bfla og eitthvert
annaó slfkt drasl. Auk
þess sem þaó sé fárán-
legt aö láta þaó eftir
mönnum aó „sóa dýr-
mætum gjaldeyri" í slika
vitleysu. Stjórnlist
kommúnista leynir sér
•kki: Hækkum skattana
•nn meira, komum í veg
fyrir innflutning á bflum
og öóru drasli, spörum
gjaldeyri og aukum um-
•vif ríkishítarinnar.
Aö fylgjast meö
Ráóherrar hafa látió
sem svo, ekki sist Svavar
Gestsson fyrrum vió-
skiptaráöherra, aó þaó
hafi komió þeim í opna
skjöldu, aó erfiöleikar
væru á bandaríska fisk-
markaðnum. Árni Bene-
diktsson fjallar um þetta
mál f Tímanum í gær og
segir meóal annars:
„Vióskiptaráóuneytió
hefur f þjónustu sinni
mjög færan starfsmann,
sem jafnan fylgist meó
gangi sölumála. Hann fær
jafnóóum f hendur allar
tölur um sölur sjávaraf-
uróa, magn og verð. Þar
aó auki spyrst hann jafn-
an fyrir um horfur á
mörkuðum og fær svör,
•ftir þvf sem fyrir liggur
hverju sinni. Þar aó auki
veita sölusamtökin hon-
um jafnan allar upplýs-
ingar aó fyrra bragði um
hreyfingar á markaósaó-
•tæóum og breytingar á
horfum .. .öll vitneskja
um þessi mál eru þvf fyrir
hendi og til afnota fyrir
rfkisstjórn. Rfkisstjórn og
•instaka ráöherrar hafa
þvf viö engan aó sakast
nema sjálfan sig ef þá
skortir upplýsingar um
þessi mál.
Þar aó auki fylgist
Þjóöhagsstofnun jafnan
vel meö þvf sem er að
gerast í markaösmálum,
•kki einasta hór á landi
heldur einnig vfóa annars
•taóar. Þjóóhagsstofnun
gefur rfkisstjórn aó
sjálfsögóu upplýsingar
um þessi mál þegar þess
er óskaó ...
Þaó var f júlímánuói
1979 aó Guójón Ólafsson,
forstjóri lceland Seafood
Corporation f Bandarfkj-
unum, lýsti þvf opinber-
lega f fjölmiólum aó bú-
ast mætti við erfiöari tfó
á Bandaríkjamarkaöi.
Sfóan hefur þaó þráfald-
lega komió fram opinber-
lega, aó samkeppni á
þessum markaði færi
harónandi. Þaó hefur þvf
legiö lengi fyrir hvaó hef-
ur verió aö gerast á
þeasum markaói og hefði
•ngum þurft aó koma
þaó á óvart. Því veröur
•kki trúaó að þaó vefjist
fyrir neinum aó skilja aö
„harónandi samkeppni"
þýöir annaó hvort aó sala
dregst saman eóa aó
verö lækkar. Þó viröist
þaó hafa gerst.“
Þaó er von, aó Árni
Benediktsson velti fyrir
sér, hvort ráðherrarnir
skilji merkingu þeirra
oróa, sem hann nefnir.
Hinu má þó ekki gleyma,
aö kommúnistar viöur-
kenna ekki tílvist hins
frjálsa markaðar og þeir
stjórna f landinu án þess
aó fylgjast meó þvf, sem
þar er aö gerastl
4 SIÐA — ÞJODVILJINN F8»tud»gur 8. ágdst 1*8».
DJOBVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds
hreyfingar og þjódfrelsis
Ltgefandi: CtgAfufélag Þjóöviljans
Frs mkv emdastjórl. Eiöur Bergmann
Ritatjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson Kjartan Olafsson
Fréttasljdri: Vilborg Haröardóttir
Lítil skattheimta
Indriði G. Þorsteinsson:
Kokteilrógur
Mér til nokkurrar undrunar
virðist þýzkur maður, sem mér
skilst að hafi gert sér far um að
skrifa um bækur íslendinga í
Vestur-Þýzkalandi, ekki getað
skrifað svo um eina ómerkilega
menningarviku í Vestur-Berlín
öðruvísi en draga nafn mitt inn í
þá umræðu.
Þessi maður, Heinz Baruske,
skrifaði á sínum tíma grein, þar
sem mín var getið heldur óhóflega
sem rithöfundar. Skömmu siðar
kom hann til íslands, ég held á
árinu 1974, og kvartaði þá undan
því við mig, að hann hefði ekki
frið fyrir bréfum frá íslandi, þar
sem harðlega væri borið til baka,
að ég væri rithöfundur. Ég væri
einskonar fífl, sem sómakærir
erlendir bókmenntamenn ættu
betur að láta vera að minnast á.
Jafnframt var hann ásakaður í
þessum bréfum um að gleyma að
feta helztu rithöfunda landsins.
!g sagði veslings manninum að
hann yrði strax að gera bragarbót
á þessu, svo hann héldi ærunni,
a.m.k. á íslandi, en að kvöldi þess
dags, sem hann talaði við mig átti
hann heimboð hjá einum þeirra
rithöfunda, sem hann gleymdi.
Síðan hef ég ekki heyrt Heinz
Barflske eða séð.
Nú kemur þessi klakaklár aftur
fram á sjónarsviðið til að lýsa því
yfir í Morgunblaðinu í tilefni af
„menningarviku", að bók minni
„Land og synir„ hafi verið hafnað
í Þýzkalandi árið 1966. Þetta er
auðvitað huggunarríkt tal fyrir
þá, sem eflaust hafa iitið á það
sem herfileg mistök að bókin
skyldi koma út á þýzku. Þá aðila
get ég upplýst um, að ég átti ekki
nokkurn minnsta þátt í útgáfunni
annan en gefa heimild til hennar.
Ég hef aldrei legið við dyr er-
lendra bókaútgefenda til að biðja
þá um að gefa út, hvað þá setið
IndriAi G. Þorsteinsson
með þeim svera morgunverði. Út-
gáfufyrirtækið Herder gaf bókina
út að eigin tilhlutan og seldi hana
upp á þremur mánuðum að mig
minnir. Hún hefur a.m.k. verið
ófáanleg frá árinu 1967. Fyrirtæk-
ið var svo kurteist að senda mér
úrklippur úr nokkrum tugum
blaða í Vestur-Þýzkalandi, þar
sem bókarinnar var mjög lofsam-
lega getið, og kannski nokkuð um
of víða. Heinz Barúska segir hins
vegar að bókinni hafi verið hafn-
að. Hann er sem sagt búinn að
læra tungumál íslenzkra vina
sinna, og hefur væntanlega með
því bjargað ærunni.
Fyrir misskilning var kvik-
myndin „Land og synir" sýnd á
„menningarvikunni" í Berlín. Má
vera að Heinz Barúske hafi brugð-
ið svo við að sjá hana, að hann
hafi talið sig þurfa að seilast aftur
til ársins 1966 um ósannindi til að
geta lýst því yfir, að myndin sé
byggð á skáldsögu sem átti, „eins
og fyrr er getið erfitt uppdráttar í
þýzku útgáfunni". Síðan er reynt
að snúa út úr einföldum og
auðskiljanlegum atriðum myndar-
innar, samkvæmt þeim heila-
þvotti, sem þessi þýzki bókmennt-
amaður hefur orðið fyrir, og er
þar miðað við fyrri grein hans um
undirritaðan, sem hann var
skammaður hvað mest fyrir héðan
að heiman.
Það er sýnilegt að hin íslenzka
menningarstarfsemi er í fullum
gangi þarna ytra. Mér er kunnugt
um hana úr fleiri löndum. Nú er
það mál, sem mér kemur ekki við,
þótt einhverjir vilji efna til viku í
Berlin til að viðra innræti sitt með
meiru. Ég get t.d. ekkert gert að
því, þótt ekkert hafi komið út á
þýzku eftir þau skáld, sem sóttu
þessa viku. Það má gefa út öll
þeirra verk án þess mér komi það
við. Ég gæti líka látið kyrrt liggja
þótt Heins Barúske sé sleginn
einhverjum kokteilrógi. Hins veg-
ar er málatilbúnaður þannig, að
nú virðist eiga að tryggja, að
kvikmyndin Land og synir hljóti
lítinn byr í Þýzkalandi. Þannig á
að freista þess að missa hana ekki
út, eins og bókina. Það mál hittir
fleiri fyrir en mig, og þess vegna
er mér ekki alveg sama. Við Heinz
Barúske vil ég segja þetta. Verði
haldið áfram að klifa á því til að
þjóna undir íslenzka vini, að þýzka
útgáfan hafi átt erfitt uppdráttar,
mun ég ekki sjá mér annað fært
en birta eitthvað af ritdómum og
jafnframt söluskýrslu frá Herder.
Það ætti að nægja Barúske og
vinum hans til að fara ekki með
svona frásagnir í blöð af tilefnis-
lausu, enda fer bezt á því fyrir
þetta fólk að halda málinu á stigi
hljóðskrafsins áfram.
7
Kynningarguðþjónusta
vegna væntanlegra prestkosninga í Seljaprestakalli
fer fram í Bústaðakirkju þann 10. ágúst kl. 11.
Séra Valgeir Ástráösson annar umsækjandi Selja-
prestakalls predikar. Guöþjónustunni verður útvarp-
aö á miðbylgju 1412 KHZ 210 metrar.
Safnaðarnefnd.
1970 Bílgreinasambandið 1980
^Aðalfundur
Aöalfundur Bílgreinasambandsins veröur haldinn
laugardaginn 23. ágúst n.k. kl. 15.00 aö Eddu-hótel-
inu á Laugarvatni.
Dagskrá samkvæmt 9. gr. laga félagsins. Auk
almennra aöalfundarstarfa vill stjórnin vekja athygii á
fundum sérgreinahópa, erindum, umræöum, kvik-
myndasýningu, skoöunarferö og dansleik. Sjá nánar
í dreifibréfi.
Félagar eru hvattir til aö fjölmenna og tilkynna
þátttöku á þar til gerðum eyðublööum fyrir 18. ágúst
n.k.
Stjórnin.
Okkur
vantar
duglegar
stúlkur og
stráka
AUSTURBÆR
Breiöageröi
Lindargata
Hringið í síma
35408
Breytt
símanúmer
á afgreiöslu
Morgunblaösins
83033
IGÞ