Morgunblaðið - 09.08.1980, Síða 12

Morgunblaðið - 09.08.1980, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST. I980 2Hov]junIiTníní> á gönguleiðum Hornstranda Texti: Fríöa Proppé Myndir: Greinarhöfundur og Matthías G. Pétursson „Yandfundið í veröldinni“ „ísland er fagurt land með óspillta náttúru og ég vona aö það fari ekki fyrir því eins og öðrum löndum. Þetta landsvæði hér á Hornströndum er einstakt að þessu leyti — annað eins er vandfundið í veröldinni. Þið verðið að varðveita það.“ Þessi orð lét Eng- lendingurinn Paul Stevens falla, er blaðamaður Mbl. hitti hann og ferða- félaga hans að Hornbjargsvita í Látravík á Hornströndum sunnudag- inn 27. júlí sl. Ferðafélagar hans voru frá Bretlandi, Skotlandi og Kanada og áttu varla nógsamlega sterk lýsingarorð til að lýsa hrifningu sinni, enda skartaöi náttúran sínu fegursta í blíöskaparveðri. Að sögn Jóhanns vitavarðar á Hornbjargsvita og Hjalta Hjaltasonar skipstjóra Fagraness, sem annast áætlunarferðir til Hornstranda, hefur ferðamannastraumur verið mikill til Hornstranda sl. sumur. Útlendingar hafa síöustu árin verið í meirihluta, en í sumar hefur þetta snúizt við og landinn náð miklum meirihluta. En hvaö er það, sem gerir Horn- strandir svo eftirsóknarverðar? Landslag er með því fjölbreyttasta sem gerist, þverhnípt björg með yztu ströndum, hrjóstrugt fjalllendi, bratt- ar hlíöar og inn úr víkum láglendi, sem þröngur fjallahringur veitir skjól fyrir öðrum áttum en þeirri, sem stendur beint inn víkurnar. Dýralíf er fjölbreytt og má þar fyrstan telja fuglinn, sem skiptir milljónum og viðheldur stofni sínum á þröngum syllum í snarbröttum björgunum, en býr þar við mikil þrengsli, þrátt fyrir víðáttu bjargsins. Regla og skipulag í þessari þröngu byggð er þó undra- gott og áreiðanlega mörgum öðrum þéttbýlisbúum til eftirbreytni. Margar fuglategundir, aðrar en sjófugl, eiga sér einnig friðland á Hornströndum. Þá hefur silungur verið mikill í ám og vötnum, en því miöur virðist óvenju lítið af honum þetta áriö og óttast sumir um afdrif hans. Selur er algengur gestur á klettóttum ströndum og strendurnar, klettóttar og sendnar á víxl, eru hlaðnar rekaviði og öðru sem hafiö skilar af sér. Sökum hálendis og stöðu landsins lengst í norðri á gróðurfar í höggi við mislynd náttúruöfl, en athygli vekur hvönnin, sem virðist setja sig niður á ólíklegustu stööum. Hálendiö er víöa mosavaxiö og lynggróöur í hlíðum og góð berjalönd eru víða. Trjágróður er ekki mikill, en menn gera sér vonir um að hann geti komiö þar til með tímanum. Margt er því að sjá á Hornströnd- um, sem ekki ber fyrir augu bæjar- og borgarbúa á hverjum degi, en mörgum vex í augum að leggja upp í Hornstrandaferð því eftir aö þangaö er komiö verður ferðalangur að treysta á veðurguðina og sjálfan sig, bæði hvað björg og aðbúnað snertir. • Ekki veröur komizt um landsvæöið nema fótgangandi eða á sjó með ströndum, en sjóferð ein sér gefur aöeins hluta af heildarmynd Horn- stranda. Ekki sakar fyrir feröalang, sem leggur í Hornstrandaferð, að bæta inn í myndina smáinnsýn í sögu þeirra, er þennan afskekkta staö byggðu og baráttu þeirra við óblíö náttúruöflin, en byggð lagðist endan- lega niður á Hornströndum í byrjun sjötta áratugarins. Mbl. bauðst að taka þátt í ellefu daga gönguferð um Hornstrandir og verður í dag og næstu daga sagt frá ferð þessari í máli og myndum. þið verðið að varð- veita það <■ Á brún Hornbjargs. Jörundur trónar sam útvörður afst i myndinni. Við Skipakletta var byrjað að flssöa að og var um tvennt að velja, klífa klettana eða fi sir sjðbað. Uppi í klettunum i miðri mynd er Guðmundur Samúelsson, Akranesi, ( vinstra horninu niðri Hratnhildur Samúelsdðttir, Hnífsdal. Krakkarnir i myndinni heita Sigga og Jðhann. Hópurinn í ferð þessari taldi 17 manns og voru samferðamenn á ýmsum aldri — sá yngsti varð sjö ára í ferðinni — af báðum kynjum og frá ýmsum stöðum á landinu. Flestir voru í upphafi ferðar óvanir fjallgöngum og því fyrir- séð, að ef hópurinn næði áætlun, sem var að ganga frá Hornbjargi yfir í Aðalvík, væri flestum, með sæmilega heilsu, fært að gera slíkt hið sama. Hópurinn hafði þó mjög góðan fararstjóra, sem er land- vörður Náttúruverndarráðs og þekkir gönguleiðir og landshætti sem fingur handa sinna, en að sögn hans má með sæmilega góðum landakortum rata réttar leiðir, og einnig eru allar helstu gönguleiðir varðaðar. Lagt var upp frá ísafirði á Erni Í.S. 18, 20 tonna báti, aðfaranótt laugardagsins 26. júlí s.l., en hann hafði verið fenginn að láni til fararinnar. Siglt var sem leið lá í góðu veðri í lygnum sjó yfir Isafjarðardjúp, fyrir Grænuhlíð og Straumnes þar sem sjó gerði fyrst ókyrran vegna strauma og nokkrir úr hópnum þjáðust því af hvimleiðri sjóveiki. Komið var við í Fljótavík og vistir og klæðnaður settur í land til að létta byrðum af óvönu göngufólki. Áfram var síð- an haldið sjóleiðina fyrir Kögur- nes og Hælavíkurbjarg og komið í

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.