Morgunblaðið - 09.08.1980, Page 16
16
Bjartar nætur
FERÐALEIKHÚSIÐ heldur áfram sýningum á „Light
Nights" að Fríkirkjuvegi 11. Sýningarnar eru fjórar í viku
fram til 31. ágúst, það er á fimmtudags-, föstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöldum, og hefjast þær kl. 21
öll kvöldin.
Sýningar þessar eru einkum ætlaðar enskumælandi
ferðamönnum.
Sveinn Sigfús Nina
Kjarvalsstaðir:
Nína, Sveinn og Sigfús
ÞESSA dagana stendur yfir á
Kjarvalsstöðum sýning þriggja
listamanna, Nínu Gautadóttur,
Sveins Björnssonar og Sigfúsar
Halldórssonar.
Nina Gautadóttir sýnir nú í
fyrsta sinn hérlendis. A sýning-
unni eru 13 veggskúlptúr-verk,
sem gerð eru á árunum 1975—
’80. Nína lærði á listaskóla í
París þar sem hún er einnig
búsett nú. í myndir sínar notar
hún aðallega netagarn og hamp.
Verkin eru öll til sölu.
Sveinn Björnsson hefur mál-
að frá árinu 1964 og lærði við
akademíuna í Kaupmannahöfn.
Hann hefur mikið verið til sjós,
en er nú rannsóknarlögreglu-
maður. Sveinn á margar sýn-
ingar að baki, en síðast sýndi
hann í Kaupmannahöfn 1978.
Sigfús Halldórsson hóf nám í
málaralist 16 ára gamall og
lærði þá hjá Birni Björnssyni og
Marteini Guðmundssyni. Árið
1944 fór hann til Englands og
lærði leiktjaldagerð, auk þess
sem hann tók húsamálun sem
aukagrein. Þetta er þriðja sýn-
ing Sigfúsar. Alls eru 84 málverk
eftir hann á sýningunni, þar af
52 til sölu.
Sýningargestir á Kjarvals-
stöðum munu fá aukaglaðning á
sunnudagskvöld kl. 21, en þá
munu þau Sigurveig Hjaltested
og Kristinn Bergþórsson taka
lagið við undirleik Sigfúsar
Halldórssonar.
Sýning listamannanna er opin
alla daga frá kl. 14—22 og
stendur til 24. ágúst.
„Undirbúningsvinna er
talsverð," sagði hann, „því
fyrst þarf ég að fara út í
skóg að finna efnivið og
gera hann smíðahæfan.
Síðan hefst smíðin sjálf,
við skurð á trénu, sam-
setningu og saumaskap.
Öskjurnar eru saumaðar
saman með tágum eða
birkitrjárótum, sem ég
hef fyrst þurrkað og rúll-
að upp og síðan bleytt
áður en ég nota þær. Því
næst ber ég fernisolíu á
Hér á landi er nú stadd-
ur norskur maður, Johan
Hopstad að nafni, sem
þessa dagana sýnir í
bókasafni Norræna húss-
ins handunna muni, gerða
með vinnuaðferðum frá
víkingatímanum.
í samtali við blm. Mbl.
sagðist Johan vera u.þ.b.
viku að smíða sauma-
skrínu. Þar sem ekki væri
hægt að vinna stöðugt að
hverjum hlut yrði hann að
hafa fleiri í takinu í senn.
öskjuna og bíð síðan þar
til hún er þornuð. Þá
strýk ég yfir hana með
sandpappír, þannig að
hún verði ekki hrjúf við-
komu.“
Johan Hopstad var
spurður um áhuga fólks á
þessari starfsemi. Kvað
Askja sem Johan Hopstad smíð-
aði sérstaklega fyrir íslands-
ferðina. Eins og sést á mynd-
inni eru öll samskeytin saumuð
saman en ekki límd.
Norðmaðurinn Johan Hopstad sem um þessar mundir sýnir ýmsa
gagnsmuni úr tré og næfri i bókasafni Norræna hússins.
„Þó að vinnu-
aðferðin sé
aldagömul þá
tel ég
að menn
eigi að fylgja
kröfum tímans66
hann mikla aðsókn vera
að námskeiðum sem hann
héldi og kæmust færri að
en vildu. „Ég tek aðeins
átta nemendur í einu því
ég vil að þeir læri þessi
handbrögð vel, og ég vil
geta sinnt þeim, svarað
spurningum þeirra, þann-
ig að þeir geti síðar meir
leiðbeint öðrum og þessi
handbrögð gangi frá einni
kynslóð til annarrar.
Það er mér sérstök
ánægja hve ungt fólk sýn-
ir þessu mikinn áhuga og
ég held að það sé orðið
þreytt á allri fjöldafram-
leiðslunni og vilji skapa
eitthvað sjálft, en ekki
taka við einhverju fjölda-
framleiddu sem er notað
aðeins í skamman tíma og
síðan hent.
Þó að vinnuaðferðin sé
aldagömul þá tel ég að
menn eigi frekar að fylgja
kröfum tímans en smíða
eingöngu eftirlíkingar af
safngripum. Það er mín
skoðun að menn eigi að
reyna að skapa eitthvað
nýtt, því það er mannin-
um áskapað. En það er
alls ekkert verra að kunna
að smíða muni eins og
þeir voru í gamla daga.“
Johan Hopstad er
þrænskur að uppruna en
býr nú í Bodö. Hann hefur
stundað handavinnu-
kennslu en hann fékk
áhuga á þessari gömlu
vinnuaðferð fyrir aðeins
nokkrum árum. Hann er
algjörlega sjálfmenntaður
á þessu sviði því að enginn
sinnti þessari iðju áður en
hann hófst handa. Á síð-
astliðnum tveimur árum
hefur Johan haldið sex
sýningar og allsstaðar
vakið mikla eftirtekt.