Morgunblaðið - 25.10.1980, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1980 2 1
Vatnslitamyndir
Sigurðar Thoroddsens
Sýning
Sigríðar
Björnsdóttur
I Listmunahúsinu við Lækj-
argötu, stendur nú yfir sýning á
nýjum verkum eftir Sigríði
Björnsdóttur. Hún hefur stund-
að myndlist nokkuð lengi og er
því enginn viðvaningur hvað það
snertir. Hér áður var Sigríður
mjög upptekin af óhlutlægri
myndlist, en eins og svo margir
aðrir, hefur hún undið sínu
kvæði í kross nú síðustu árin og
gefið sig á vald landslagsmynda.
Má sjá árangur af þessari
stefnubreytingu hjá Sigríði á
núverandi sýningu hennar í List-
munahúsinu. Þar sýnir Sigríður
72 litlar landslagsmyndir, sem
gerðar eru með Acryl-litum á
pappa og undir rjáfri eru fáeinar
abstraktar myndir gerðar í
hennar gamla stíl. Það mun vera
sannast mála, að enn sem komið
er heldur Sigríður einnig tryggð
við sinn fyrri myndheim. Þar
sem hún fann stað og stund fyrir
ljóðræna útrás sína.
Þessar nýju myndir Sigríðar
eru ekki stórar að flatarmáli.
Þær eru unnar eins og um
olíuliti væri að ræða og er það
mikið hól um myndgerð Sigríð-
ar, að henni tekst ágætlega að ná
hinni hráu áferð úr Acryl-litun-
um og gera þá bæði kraftmeiri
og aðgengilegri en ella. Þetta eru
samstæð verk, sem hafa mjög
hugljúfan blæ. Þau eru að vísu
nokkuð lík hvort öðru og ekki
hefði sakað, að mun meiri fjöl-
breytni í litavali hefði verið að
ræða. Þegar Sigríður einbeitir
sér að einfaldri og hreinni
myndbyggingu, finnst mér henni
takast hvað best. Nefni þá þessu
I
til sönnunar vetrarlandslög, er
mest áhrif höfðu á mig persónu-
lega. Ef til vill er það einmitt
þessi myndgerð, er sýnir gleggst
hvernig Sigríður ræður bæði við
fyrirmyndir og efnivið. Ég verð
að játa, að ég fann ekki sama
kraft í þeim verkum er voru
litskrúðugri og á stundum flókn-
ari í allri meðferð.
Þetta er mjög snotur sýning
hjá Sigríði og ég held að ekki sé
ofsögum sagt: Að hún vaxi sem
myndlistakona af þessum verk-
um. Sýning sem þessi fer mjög
vel í húsnæðinu og heildarsvipur
er bæði skemmtilegur og eftir-
minnilegur í senn. Við kynningu
af þessum verkum Sigríðar, fer
það ekki milli mála, að hún
virðist hafa fundið sér miklu
eðlilegra tjáningarform í þess-
um litlu landslagsmyndum, en
oft áður. Sem iistakona virðist
Sigríður Björnsdóttir standa á
krossgötum og persónulega
finnst mér margt blasa við, sem
lofar góðu. Ef framhald verður
eins og þessi sýning lofar, er
ástæða til að gleðjast með Sig-
ríði og gefa henni grænt ljós.
Sem sagt: Engu spáð, en vinnu-
gleðin og viljinn er fyrir hendi
hjá listakonunni.
Löngum vildi það brenna við
hér á landi, að ekkert var álitið
fyllilega gjaldgeng myndlist,
nema olíumálverkið. Allar aðrar
gerðir myndlistar, sem voru
„undir gleri", eins og stundum er
sagt, töldust til óæðri listar.
Þetta átti ekki hvað minnst við
vatnslitamyndir að ég ekki nefni
teikningar. Það er ekki fyrr en
nú á ailra síðustu og bestu
tímum að þessu dæmi hefur að
einhverju verið snúið til hins
betra. En óneitanlega örlar enn
fyrir hinum gömlu fordómum,
hvað þetta snertir.
Vatnslitir eru afar vandmeð-
farnir og myndgerð með þeim
því um margt miklu erfiðari en
t.d., olíulitir. Því hefur verið
haldið til streitu að eingöngu
afskaplega næmir og viðkvæmn-
ir listamenn gætu höndlað
vatnsliti þannig að verulegur
árangur næðist. Ekki skal ég
mótmæla þessu og heldur ekki
samþykkja. En eitt er vitað, að
amlóðar í meðferð lita hafa ekki
erindi, sem erfiði á þessu sviði.
Hver og einn myndlistarmaður
velur sér þá tækni er honum
fellur best og það mun sannast á
Sigurði Thoroddsen að hann
hefur lagt stund á þá myndgerð
er höfðað hefur sérstaklega til
hans. Það er vatnslitir og teikn-
ing. Þrátt fyrir amstur daglegs
Myndlist
ettir VALTÝ
PÉTURSSON
lífs hefur Sigurður jafnan gefið
sér nægan tíma til að stunda þá
listgrein, er næst honum hefur
verið: Vatnslitirnir. A núverandi
sýningu Sigurðar Thoroddsen í
Listaskála alþýðu er 150 vatns-
litamyndir og af þessum fjölda
eru um það bil 2/3 nýjar myndir,
hinar eru frá síðastliðnum árum
en samt mun ein myndanna vera
frá árinu 1924. Þótt ekki sé hér
uin yfirlitssýningu að ræða, má
vel sjá og greina hver þróun
hefur verið í þessari myndgerð
Sigurðar. Þegar um svo mikið
magn mynda er að ræða og hér,
verður varla komist hjá að
verkin verði nokkuð misjöfn.
Þannig er það og á þessari
sýningu Sigurðar. Ef ég nefni
aðeins örfáar myndir, er mér
fundust fremri öðrum á þessari
sýningu, bendi ég á: No. 6, 10, 16,
60, 52, 113 og 148. Hér fer ég
fljótt yfir, enda vart annara
kosta völ, þegar svo margt
mynda er á veggjum og raun ber
vitni í Listaskála alþýðu, sem
stendur. Sigurður hefur næma
tilfinningu fyrir litum og hann
upplifir náttúruna á viðkvæman
hátt. Það er eins hjá Sigurði og
svo mörgum öðrum, að hann nær
bestum árangri, er hann stillir
öllu í hóf og horfir á veröldina
með rómantískan og dulrænan
heim. Ég hafði ánægju af mörg-
um þessum verkum Sigurðar og
mér er ríkt í huga, hér á
árunum, er Sigurður sat á Al-
þingi og dundaði sér undir ræðu-
höldum við að teikna sam-
starfsmenn. Mikið öfundaði
maður Sigurð fyrir hve hann var
flínkur að gera skopmyndir. Og
þetta sást allt af áhorf-
endapöllum hins háa Alþingis.
Þakkir fyrir skemmtilega sýn-
ingu, til hamingju.
HEIMILISTÆKJA-SÝNING
UM HELGINA
LAUGARDAG OG SUNNUDAG FRÁ KL. 1 - 6.
Hin stórglæsilegu Amerísku heimilistæki frá
Ensku heimilistækin frá
KENWOOD
Komið og kynnið ykkur hið fjölbreytta
úrval Kenwood heimilistækja.