Morgunblaðið - 25.10.1980, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1980
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1980
25
JltofgissittUtfrife
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson.
Björn Jóhannsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033.
Áskriftargjald 5.500.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 280
kr. eintakiö.
Stefnuræða
án stefnu
Þær fjórar meginniðurstöður, sem athugull hlustandi
getur dregið af stefnuræðu forsætisráðherra og umræð-
um um hana, eru þessar:
Eftir níu mánaða fum og fuður og algjört aðgerðarleysi á
vettvangi efnahags- og dýrtíðarmála, stendur ríkisstjórnin í
málefnalegri vörn á öllum vígstöðvum. Ekki er hægt að kalla
þá vök, sem ríkisstjórnin varðist í á fimmtudagskvöldið,
annað en pólitískt gjaldþrot.
I málflutningi stjórnarliða örlaði hvergi á samræmdri
stefnu til að mæta viðblasandi þróun efnahagsmála í
þjóðarbúskapnum, eða neinu því, sem gert gæti „niðurtaln-
inguna" gildandi eða komið í stað hennar.
Þrátt fyrir fimi framsóknarmanna í að fara kringum merg
málsins var hver setning, sem gekk fram af munni þeirra,
þrungin óróa vegna þess, að árangur er enginn í „verðbólgu-
hömlun" og holskefla nýrrar dýrtíðaröldu framundan.
Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og aðrir
talsmenn stjórnarandstöðu, sýndu fram á, að framundan
væru 20 til 25% launahækkanir, 1. desember nk., í formi
hækkaðs grunnkaups og hækkaðra verðbóta á laun, og
samsvarandi hækkanir fiskverðs og búvöru. Þar sem
undirstöðuatvinnuvegur okkar, fiskvinnslan, er þegar rekinn
með halla, má búast við stórfelldu „gengissigi í einu stökki“,
eins og verðlagsmálaráðherra orðar það, með tilheyrandi
áhrifum á verðlagsþróunina. Spurningin er því, hver viðbrögð
ríkisstjórnarinnar verða upp úr áramótum. Má e.t.v. búast
við „leiftursókn“ og nýjum „febrúarlögum“.
Geir Hallgrímsson sagði efnislega: Ríkisstjórnin setti
efnahagsnefnd á laggir, sem skilaði áliti í ágústmánuði sl., en
ekkert fylgdi í kjölfarið. Ráðherranefnd fjallaði um tillögurn-
ar, en ekkert gerðizt. Efnahagsaðgerðir voru boðaðar 1.
september. Ekkert gerðizt. Formaður Framsóknarflokksins
sagði á fundi norður í Vopnafirði að ríkisstjórnin yrði ekki
langlíf, ef hún sæti aðgerðarlaus. Aðgerðarleysið er áfram
vörumerki hennar. Þá átti næst að láta hendur standa fram
úr ermum fyrir 1. nóvember og 1. desember. Tómas Árnason,
verðlagsmálaráðherra, segir sig hrylla við holskeflunni 1.
desember nk., ef ekkert verði að gert. Nú er engu að síður búið
að afskrifa þessar dagsetningar eins og allar þær fyrri.
Niðurtalningarleið Framsóknar, kosningatrompið, hefur orð-
ið sér svo rækilega til skammar, að forsætisráðherra minnist
ekki orði á hana í hálfrar klukkustundar ræðu, frekar en
snöru í hengds manns húsi.
Geir Hallgrímsson sagði ennfremur að gjaldmiðilsbreyting
sú, sem framundan væri, hefði takmarkað gildi nema
róttækar efnahagsráðstafanir verði gerðar fyrir breyting-
una, þann veg að nýkrónan fengi stöðugleika til frambúðar.
Ein út af fyrir sig hefur þessi formbreyting takmarkað vægi.
Að öllu óbreyttu verður íslenzka nýkrónan mun verðminni en
aðrar Norðurlandakrónur strax upp úr áramótum og
væntanlega helmingi minni innan skamms tíma. Forsætis-
ráðherra sagði, aðspurður í útvarpsviðtali í fyrrakvöld, að
efnahagsráðstafanir í tengslum við gjaldeyrisbreytinguna
hefðu verið ræddar innan ríkisstjórnarinnar, en engin
niðurstaða væri komin. Niðurstaðan, sem átti að vera
forsenda myndunar ríkisstjórnar í febrúarmánuði sl. er engin
komin enn. í þessum orðum forsætisráðherra felst þverskurð-
armynd af ríkisstjórninni, starfsháttum hennar og árangri.
Formaður Sjálfstæðisflokksins lagði í lok ræðu sinnar
áherzlu á það, að fyrsta skilyrðið til að vinna á verðbólgunni
væri að draga úr ríkisumsvifum og skattaálögum, svo
svigrúm skapist til að bæta kjör hinna lægst launuðu og efla
framtak, hugvit og dugnað í þjóðarbúskapnum. Hefja verður
nýja sókn í orkumálum og orkufrekum iðnaði til að breikka
grundvöll verðmætasköpunar og varða veg til aukinna
þjóðartekna og bættra lífskjara. I þeim málaflokki þarf hin
dauða hönd Alþýðubandalagsins að víkja.
Málefnalegur ágreiningur er meðal sjálfstæðismanna,
sagði Geir, um afstöðuna til núverandi ríkisstjórnar. En það
er von mín og vissa, að þegar þessi ríkisstjórn er öll, megi
allir sjálfstæðismenn taka höndum saman, trúir hugsjónum
sínum og stefnu. Það er því bæði þjóðarnauðsyn og
flokksnauðsyn að þessi ríkisstjórn fari frá hið fyrsta.
Herra forseti.
Góðir áheyrendur.
Því er eins farið með ræðu forsætis-
ráðherra og segir um veðrið í vísunni:
„Veðrið er hvorki vont né gott
varla kalt og ekki heitt.
Það er hvorki þurrt né vott.
Það er svo sem ekki neitt."
Við hlustendur vorum einskis vísari
um stefnu ríkisstjórnarinnar eftir ræð-
una en áður. Að þessu leyti reis ræðan
ekki undir nafni. Stefnuræða var hún
ekki.
En hún leiddi í ljós svo ekki varð um
villst, að núverandi ríkisstjórn var ekki
mynduð til að jafna ágreining á milli
aðstandenda sinna og því síður til að
leysa vanda, er blasti við þjóðinni í
ársbyrjun. Um ekkert slíkt var samið
við myndun ríkisstjórnarinnar. Aðrar
hvatir lágu að baki.
Starfsferill ríkisstjórnarinnar sýnir
stefnuleysi, aðgerðarleysi og úrræða-
leysi. Á 3ja mánaða fresti upphefjast
rokur framsóknarmanna, að eitthvað
þurfi að gera í baráttunni gegn verð-
bólgunni, en jafnoft lyppast þeir niður,
þegar alþýðubandalagsmenn sussa á þá
og segja þeim að hætta slíku „blaðri".
Þriðja aflið í ríkisstjórninni er mátt-
vana og er ekki tekið aivarlegar en
nytsamir sakleysingjar endranær.
Stjórnarmyndunin sem átti að
bjarga sóma Alþingis hefur orðið
Alþingi til minnkunnar. í stað þess að
horfast í augu við vandamálin og semja
um lausn þeirra, féllu framsóknarmenn
og alþýðubandalagsmenn fyrir þeirri
freistingu að kljúfa Sjálfstæðisflokk-
inn. Ef sá veikleiki, sú freisting hefði
ekki verið fyrir hendi, væri nú önnur og
aflmeiri þingræðisstjórn að störfum,
en utanþingstjórn væri einnig þjóðinni
snöggtum betri en núverandi ríkis-
stjórn.
Utanþingstjórn hefði lagt tillögur
sínar fyrir Alþingi og alþingismenn og
flokkar þurft að taka afstöðu til þeirra.
Menn hefðu fengizt við vandann en
ekki flotið sofandi að feigðarósi í
sjálfsánægju valdadrauma eins og ráð-
herrar núverandi ríkisstjórnar.
★
Áður var rætt um 2ja ára baráttu
gegn verðbólgu, eins og í málefnasamn-
ingnum segir: „að á árinu 1982 verði
verðbólgan orðin svipuð og í helztu
viðskiptalöndum íslendinga", en nú er
dregið í land. Sleppt er allri viðmiðun
við viðskiptalönd okkar, og talað um
3ja ára áætlun „þannig að i lok ársins
1982 hafi verðbólgan náðst verulega
niður".
En verst er, að ekkert miðar. Fjárlög
núverandi ríkisstjórnar byggðust í
apríl á 31% verðbólgu á þessu ári,
forsætisráðherra lenti í sennu á Al-
þingi og í fjölmiðlum skömmu síðar, að
verðbólgan yrði ekki 50% heldur um
40% á árinu en viðurkennir nú, að hún
verði 52—54%. Og allar líkur benda til,
að verðbólgan verði tvöfalt meiri en
forsendur ríkisstjórnarinnar fyrir fjár-
lögum í apríl gerðu ráð fyrir.
Spáð hefur verið, að haldi fram sem
horfir verði verðbólguvöxturinn kom-
inn í milli 80—90% að ári liðnu.
En hvort sem ráðherrum eða þing-
flokksformönnum stjórnarliðsins er
bent á staðreyndir liðins tíma eða spár
um framtíðina, þá hrista þeir glókoll-
ana sína og telja sig hafa efnahagsað-
gerðir í undirbúningi.
Efnahagsnefnd var sett í sumar og
skilaði áliti í ágúst. Formaður hennar
sagði, að tillögur hennar yrðu birtar þá
í næstu viku, ef vel gengi. En það hefur
bersýnilega gengið illa. Ráðherranefnd
fjallaði um tillögurnar, en ekkert
gerðist. Efnahagsaðgerðir áttu að
koma til framkvæmda 1. september.
Ekkert gerðist. Steingrímur Her-
mannsson sagði í Vopnafirði, að ríkis-
stjórnin yrði ekki langlíf, ef hún sæti
aðgerðarlaus. En ekkert gerðist. Þá átti
næst að láta hendur standa fram úr
ermum fyrir 1. nóvember og 1. desem-
ber. Tómas Árnason segir sig hrylla við
holskeflunni 1. desember, ef ekkert
verður aðgert, en nú er líka búið að
afskrifa þær dagsetningar. Niðurtaln-
ingaraðferð Framsóknar, kosninga-
tromp þeirra og framlag í stjórnarsátt-
málann er nú gengin sér svo til húðar
og hefur beðið slíkt skipbrot að forsæt-
isráðherra minnist ekki orði á hana,
frekar en sriöru í hengds manns húsi.
Og framsóknarmenn láta sér það
lynda. Hverju fórna framsóknarmenn
ekki fyrir ráðherrastólana, meðan þeir
telja sig gæta hagsmuna SÍS?
Nú er hálmstráið, að gjaldmiðils-
breytingin um áramót veiti ríkisstjórn-
inni skjól. Gunnar Thoroddsen segir:
„Þegar hver króna verður hundrað
sinnum meira virði en nú, þá er hún
komin í hóp annarra gjaldmiðla á
Norðurlöndum". En sannleikurinn er
sá, að strax eftir gjaldmiðilsbreyting-
una um áramót verður íslenzka krónan
mun verðminni en aðrar Norðurlanda-
krónur og væntanlega helmingi minni
innan skamms tíma. Gjaldmiðilsbreyt-
ingin er eingöngu formbreyting en ekki
efnisbreyting og eingöngu til skaða, ef
ekki er búið fyrir breytinguna að gera
róttækar efnahagsráðstafanir. En fyrir
liggur, að það verður ekki gert. Að-
spurður í útvarpsviðtali í gærkvöldi um
fyrirhugaðar efnahagsráðstafanir í
tengslum við gjaldmiðilsbreytinguna,
sagði Gunnar Thoroddsen að þær hefðu
verið ræddar innan ríkisstjórnarinnar,
en engin niðurstaða væri komin. Niður-
staða, sem átti að vera forsenda
myndunar ríkisstjórnar í febrúarmán-
uði sl. er engin komin enn.
Allir kannast við söguna um keisar-
ann, sem spilaði á fiðlu, meðan borgin
brann.
Nú brenna fjármunir einstaklinga,
heimila og fyrirtækja upp í báli
verðbólgunnar, meðan stjórnvöld láta
sér fátt um finnast.
Alþýðubandalagsmenn gengu til
stjórnarsamstarfs í ársbyrjun til að
lækka vexti, koma í veg fyrir sífelldar
gengisfellingar og vernda kaupmátt
launa, að eigin sögn. Efndirnar hafa
verið þær, að vextir hafa hækkað. Verð
á Bandaríkjadollar hefur hækkað um
nær 40% frá upphafi þessarar ríkis-
stjórnar. Og kaupmáttur kauptaxta
verkamanna, sem var 109,5 í janúar sl.
verður væntanlega 98,2 í nóvember.
Kaupmáttarrýrnun um 10% á 10 mán-
uðum.
Alþýðubandalagshetjurnar, sem
heimtuðu samningana í gildi og komust
til valda undir því kjörorði, bera nú
ábyrgð á, að kaupmátturinn er lakari
en fyrir sólstöðusamningana ’77 og
eftir febrúarlögin 1978.
Alþýðubandalagshetjur eins og
Geir Hallgríms-
son formaður
Sjálfstæðis-
flokksins í um-
ræðum um
stefnuræðu:
en Steingrímur Hermannsson mætir
andstöðu Alþýðubandalagsins og legg-
ur málið til hliðar.
Þegar stjórnendur Flugleiða óska
eftir fundi með ráðherrum og tilkynna
þeim í ágústmánuði sl., að ekki sé
annað að gera, en að hætta Atlants-
hafsflugi, koma ráðherrar af fjöllum og
biðja um skýrslu Flugleiða hvað gerzt
hafi frá marz.
Og nú ætlaði Alþýðubandalagið að
láta höggið ríða af og gleypa Flugleiðir,
en gengu þá fram af framsóknar-
mönnum, svo að Steingrímur vaknaði
af blundi.
Alþýðubandalagið sem gagnrýndi
Flugleiðir áður fyrir að halda uppi
N-Atlantshafsflugi verður nú að láta
fjármálaráðherra sinn bjóðast til þess
að greiða 1 Vfe milljarð úr ríkissjóði til
þess að halda þessu flugi áfram.
Ríkisstjórninni hefur farizt allt mál
Flugleiða óhöndulega og ekki er enn
séð hvort því verður bjargað sem
skyldi, jafnvel hvað sem Norður-
Atlantshafsfluginu líður.
Skilning skortir, að samgöngumál
Islendinga við umheiminn er sjálfstæð-
ismál þjóðarinnar eins og sagan sýnir
fyrr og síðar. Skilning skortir á efna-
hagslegum hagsmunum þjóðarinnar al-
mennt og starfsmanna félagsins sér-
staklega af starfsemi Flugleiða. Skiln-
ing skortir á skemmdarverkum Al-
þýðubandalagsins til að ryðja ríkis-
rekstri braut.
í dag: Flugleiðir. Á morgun: Annar
atvinnurekstur. Framsóknarmenn
ugga ekki að sér, meðan þeir telja að
þeir geti komið ár SÍS fyrir borð með
breytingu að ræða, að tekjur barna
leggist ekki við tekjur foreldra, þegar
horfið var að sérsköttun hjóna og
staðgreiðsla skatta er höfð í huga. En í
skattalögum frá 1978 var 5% skattur á
tekjur barna, núverandi stjórn hækk-
aði hann í vor í 7% gegn atkvæðum
sjálfstæðismanna í stjórnarandstöðu.
En þessu til viðbótar lagði núverandi
ríkisstjórn til og fékk samþykkt 3%
útsvar og 1% sjúkratryggingargjald af
tekjum barna, svo að ofsagt er ekkert
af skattagleði núverandi. ríkisstjórnar.
Af 1114% eru 6 'A % á ábyrgð núv.
ríkisstj.
Með tilvísun til þess hve skattar og
gjöld á börn eru há, eru seint álögð og
aðrir beinir skattar hafa reynst hærri
en ráð var fyrir gert, á þessu ári er það
skoðun okkar sjálfstæðismanna að
fella beri þessa skatta niður að þessu
sinni og lækka þá á næsta álagningar-
ári.
Það hefur vissulega verið stefna
Sjálfstæðisflokksins í hálfa öld að reka
ríkissjóð án greiðsluhalla — en það
hefur aldrei verið stefna Sjálfstæðis-
flokksins og er ekki í dag, að ná þeim
árangri með skattaofsóknum á hendur
borgurum þessa lands. Þvert á móti
hefur það jafnan verið afstaða Sjálf-
stæðisflokksins að það ætti að reka
ríkissjóð án greiðsluhalla með hóflegri
skattlagningu en aðhaldi og sparnaði í
rekstri og fjárfestingum.
Fjárlagafrumvarpið, sem nú hefur
séð dagsins ljós markar enga stefnu í
Úrræðaleysi stjórn-
arinnar veldur
upplausn og vonleysi
Ragnar Arnalds og Svavar Gestsson
sögðu fjálglega, eftir stjórnarmyndun
að ekki væri grundvöllur fyrir grunn-
kaupshækkunum í væntanlegum kjara-
samningum, og skal því ekki mótmælt,
að svo hafi verið eftir svik þeirra að
setja samningana í gildi, en því til
viðbótar hefur ríkisstjórnin síðan hald-
ið svo á samningamálum að samn-
ingaviðræðum hefur hvað eftir annað
verið stefnt í hnút.
Fyrst eru gerðir samningar við
opinbera starfsmenn, sem orkar út af
fyrir sig tvímælis. Opinberir starfs-
menn eru í þjónustu allra annarra
landsmanna og laun þeirra eru eðlilega
greidd með almennri skattheimtu. Aðr-
ir iandsmenn eiga hins vegar að miða
kjör sín við afkomu atvinnuveganna og
því er rétt að almennir kjarasamningar
gangi á undan og opinberum starfs-
mönnum síðan tryggð eigi lakari kjör.
En nú hrósar rikisstjórnin sér af
hóflegum samningum við BSRB, sem er
rétt að því leyti að BSRB-menn fengu
ekki mikið í sinn hlut í bráð. Ragnar
Arnalds eykur annars vegar lífeyris-
réttindi opinberra starfsmanna, sem
getur orðið ríkissjóði dýrt þegar fram
líða stundir og eykur bilið á milli
lífeyrisréttinda opinberra starfsmanna
og annarra launþega, sem var of mikið
fyrir. Hins vegar krefst Ragnar Arn-
alds að vísitölugólf sé sett í samninga
opinberra starfsmanna, eftir að þeir
voru um garð gengnir, sem skiptir þá
litlu sem engu máli, en skapar atvinnu-
vegunum útgjaldaaukningu, sem Ragn-
ar Arnalds sjálfur segir þá ekki geta
staðið undir.
Hvorttveggja þetta hefur tafið al-
menna kjarasamninga, auk þess sem
pantað bréf Svavars Gestssonar félags-
málaráðherra um atvinnuleyfi útlend-
inga, sem vinnuveitendur létu hann éta
ofan í sig og draga til baka, og
misheppnuð misnotkun framsóknar- og
alþýðubandalagsmanna á samvinnu- og
verkalýðshreyfingunni í sumar hefur
orðið til þess, að enn eru ekki komnir á
samningar 10 mánuðum eftir að al-
mennir kjarasamningar gengu úr gildi.
Vinnuveitendur bera fyrir sig orð
Svavars og Ragnars, að ekki sé grund-
völlur grunnkaupshækkana, og ganga
þannig erinda ríkisstjórnarinnar en
hinir eitt sinn kokhraustu verkalýðs-
foringjar Alþýðubandalagsins vita ekki
sitt rjúkandi ráð, sjálfum sér sundur-
þykkir. Það er því á ábyrgð ríkisstjórn-
arinnar og Alþýðubandalagsforystunn-
ar, að ekki hafa tekizt samningar á
almennum vinnumarkaði.
Nú er sagt að hinir hóflegu samning-
ar BSRB, að mati ríkisstjórnarinnar,
séu grundvöllur að tillögu sáttanefnd-
ar, en hún mun eins og kunnugt er leiða
til um 11% hækkunar launakostnaðar.
Samkvæmt spá er gert ráð fyrir
11—12% hækkun verðbótavisitölu 1.
desember. Þannig má búast við 20—
25% launakostnaðarhækkunum og ef
ekki á að hýrudraga sjómenn sömu
hækkunar fiskverðs um áramót.
Útgerð og frysting eru rekin með
tapi áður en til þessara kostnaðar-
hækkana kemur. Ljóst er því að fyrir
höndum er stórfelldasta „gengissig í
einu stökki", svo notað sé orðalag
Tómasar Árnasonar.
Fyrsta marz hækkar svo vísitalan
um 20% og álíka á 3ja mánaða fresti
næsta ár, ef ekkert er að gert. Það
skyldi þó ekki vera, að við eigum eftir
að sjá leiftursókn eða ný febrúarlög. Á
þessu stigi má bara ekkert segja af því
m.a. að þing ASI verður haldið seinna í
þessum mánuði og kommúnistar vilja
halda völdum þar, til að misnota
verkalýðssamtökin áfram í flokkspóli-
tískum tilgangi.
★
Tilgangur Alþýðubandalagsins er að
koma frjálsum atvinnurekstri á kné.
Verðbólgan vinnur sitt verk og eyðir
eigin fé fyrirtækja, niðurtalningarað-
ferðin átti að sjá svo um, að fyrirtækin
fengju ekki kostnaðarhækkanir uppi
bornar, atvinnuvegirnir safna þannig
skuldum og eru háðir fyrirgreiðslu
opinberra stofnana. Einn slæman veð-
urdag er komið að óskastund sósíalista,
fyrirtækjum er neitað um frekari
fyrirgreiðslu og þá getur ríkið yfirtekið
reksturinn.
Dæmi um þetta eru Flugleiðir, þótt
erfiðleikar þeirra eigi ekki eingöngu rót
sína að rekja til verðbólguþróunar
innanlands heldur og aukinnar er-
lendrar samkeppni og eldsneytis-
kostnaðar.
En andvaraleysi samgönguráðherra
og ríkisstjórnar hefur verið með ein-
dæmum.
Samgönguráðherra fjallar um
vandamálið með starfsbróður sínum í
Luxemborg í marz og lofar að ríkis-
stjórn íslands beiti sér fyrir ákveðnum
ráðstöfunum eins og ríkisstjórn Lux-
emborgar. Ríkisstjórn Luxemborgar
efnir sinn hluta samkomulagsins strax,
ýmiss konar opinberri fyrirgreiðslu úr
valdastólum sínum, en auðvitað eru
SIS ætluð sömu örlög og öðrum at-
vinnurekstri — að verða ríkisrekinn.
Þá er sósíalisma austantjaldsríkjanna
komið á að vilja Alþýðubandalagsins
með þeim skorti, skömmtunum og
mannréttindaskerðingum, sem alkunna
er.
★
Eina, sem ríkisstjórnin gumar af, er
afkoma ríkissjóðs, en aðalskýringin eru
auknar skattaálögur. Auk þess hafa
fjárfestingarútgjöld verið færð úr fjár-
lögum í lánsfjáráætlun, greiðslur hafa
verið dregnar við fyrirtæki og stofnan-
ir, sem aftur hafa orðið að leita til
bankanna og fjárlög voru ekki afgreidd
fyrr en í apríl, svo að afkoma ríkissjóðs
er þeim mun betri.
Það er ekkert afrek, nema síður sé að
reka ríkissjóð án greiðsluhalla með
þeim aðferðum, sem núverandi ríkis-
stjórn notar. Ríkisstjórnin afgreiðir
greiðsluhallalaus fjárlög með því að
fara ránshendi um vasa skattborgara í
þessu landi. Um leið og hún tryggir
greiðslujöfnuð hjá ríkinu með því að
seilast sífellt dýpra ofan í vasa skatt-
borgaranna, skapar hún greiðsluhalla
hjá skattborgaranum. Þetta veit hvert
mannsbarn í landinu. Þetta veit hver
fjölskylda.
Svonefndir barnaskattar hafa komið
til umræðu og forsætisráðherra kennt
ríkisstjórn minni um og okkur Matthí-
asi Á. Mathiesen sérstaklega. Hann sat
í þessari ríkisstjórn og gerði enga
athugasemd. Hér er um eðlilega kerfis-
baráttu við verðbólgu, heldur skrifar
öll útgjöld og skatta sjálfkrafa upp í
samræmi við hana og jafnvel gott
betur. Að vísu eru ætlaðir 12 milljarðar
króna til efnahagsráðstafana, en af
þeim er búið að ráðstafa 3—4 milljörð-
um króna í félagsmálapakka og afgang-
urinn nægir ekki til að standa undir
2% lækkun framfærsluvísitölu með
auknum niðurgreiðslum sem eru ær og
kýr efnahagsráðstafana vinstri
stjórna.
★
í peningamálum á að koma á fullri
verðtryggingu innlána en lækka vexti
útlána. Þeirri spurningu er hins vegar
látið ósvarað hver eigi að borga mis-
muninn. Á að greiða niður vexti, úr
ríkissjóði eða með aukinni seðlaprent-
un eða erlendum lántökum, þegar við
nálgumst óðfluga að greiðslubyrði er-
lendra lána verði 20% af gjaldeyris-
tekjum okkar? Ríkisstjórnin ætlar að
framlengja aðlögunartíma Ólafslaga til
að samræma vexti og verðtryggingu.
Það bendir til að vaxtahækkun sé í
aðsigi. En þrátt fyrir allt er nú jafnvel
meira bil á milli vaxta og verðbólgu en
áður og úr sparifjármyndun hlýtur að
draga og lánastofnanir hafa minna fé
til útlána.
Vörn ríkisstjórnarinnar vegna þess
efnahagsöngþveitis, sem ríkir í landinu
er nú aðallega sú, að viðskiptabankarn-
ir hafi ekki staðið við sitt. Þetta er ekki
aðeins haldlaus vörn heldur lítilmann-
leg vegna þess að með þessu er verið að
reyna að koma ábyrgðinni af verkleysi
ríkisstjórnarinnar yfir á aðra. Ástæðan
fyrir skuldasöfnun viðskiptabankanna
við Seðlabankann er auðvitað sú að
rekstraraðstaða atvinnuveganna og af-
koma einstaklinga fer síversnandi.
Þegar ríkisstjórnin neitar að horfast í
augu við staðreyndir og taka á vanda-
málum atvinnuveganna eiga þeir um
tvennt að velja, loka eða safna skuld-
um. Þegar forráðamenn atvinnufyrir-
tækja koma til bankastjóra og leggja
vandamál sín fyrir þá eiga þeir um
tvennt að velja, lána eða taka í raun
ákvörðun um lokun fyrirtækjanna.
Erfið staða viðskiptabankanna er því
afleiðing af verkleysi ríkisstjórnarinn-
ar.
Afleiðingar stjórnarferils ríkis-
stjórnarinnar eru vaxandi verðbólga,
aukin ríkisumsvif og skattaálögur,
versnandi afkoma einstaklinga, heim-
ila og fyrirtækja, upplausn og vonleysi
samfara úrræðaleysi stjórnvalda.
Herra forseti.
Hér verður að brjóta blað.
Fyrsta skilyrðið til þess að unnt sé að
vinna á verðbólgunni er að draga úr
ríkisumsvifum og skattaálögum, svo að
svigrúm skapist til að bæta kjör hinna
lægst launuðu og framtak, hugvit og
dugnaður einstaklinga fái notið sín til
að auka þjóðarframleiðsluna.
Þjóðarframleiðslan á mann stendur
nú nær í stað eða minnkar þrjú ár í röð.
Skapa verður almenn skilyrði fyrir
atvinnuvegina alla, sjávarútveg, land-
búnað, iðnað, verzlun og þjónustu, svo
að þeir sem þær atvinnugreinar stunda
megi um frjálst höfuð strjúka.
Um leið verður að hefja nýja sókn í
orkumálum og orkufrekum iðnaði. Hin
dauða hönd Alþýðubandalagsins verð-
ur að víkja. Iðnaðarráðherra lagði
niður stóriðjunefnd haustið 1978 og
óskaði eftir því við Landsvirkjun að
Hrauneyjafossvirkjun yrði frestað um
eitt ár.
Ég hef áður sagt það og ítreka það
enn:
Hér þarf gerbreytta stefnu í orku-
málum. Við þurfum að kanna alla
möguleika á orkufrekum iðnaði hér á
landi, til þess að vera sjálfir í stakk
búnir til að semja við erlenda aðila og
tengja einn möguleika við annan, njóta
hámarks arðs og gæta vel umhverfis og
vistkerfis okkar.
Lágmark er, að eitt fyrirtæki í
orkufrekum iðnaði og ein stórvirkjun
séu í framkvæmd á hverju 3—5 ára
tímabili til aldamóta. Við eigum að
ganga til samstarfs við erlenda aðila og
nýta fjármagn þeirra með opnum huga
og mati hverju sinni og stefna að því að
íslendingar eignist fyrirtækin síðan
smám saman.
Við sjálfstæðismenn höfum þegar
flutt tillögu um stefnumótun í stóriðju-
málum og viljum að þingkjörin stór-
iðjunefnd vinni að nýrri sókn í orku-
frekum iðnaði og væntum þess að till.
fái góðar undirtektir.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins
munu og flytja þingsályktunartillögu
um samgöngumál, áætlun um lagningu
varanlegs slitlags á hringveginn kring-
um landið og helztu tengivegi til sveita
og sjávar. Fátt mundi breyta landi
okkar til hins betra en slíkt átak og
verða heilbrigðri byggðastefnu meira
til framdráttar.
Hér gefst ekki tími til að rekja
frekar mál sjálfstæðismanna á þessu
þingi. Við munum gera grein fyrir þeim
jafnóðum og þau koma fram.
Málefnalegur ágreiningur er meðal
okkar sjálfstæðismanna um afstöðuna
til þessarar ríkisstjórnar. Yfirgnæf-
andi meirihluti þingmanna Sjálfstæð-
isflokksins, miðstjórnar og flokksráðs
er í stjórnarandstöðu. Þrátt fyrir
þennan ágreining, þá vænti ég þegar
þessu stjórnarsamstarfi ljúki, megi
allir sjálfstæðismenn taka höndum
saman, trúir hugsjónum sínum og
stefnu.
Það er því bæði þjóðarnauðsyn og
flokksnauðsyn að þessi ríkisstjórn fari
frá hið fyrsta, því að hún ræður ekki
við vandann, innan hennar er engin
samstaða um úrræði frekar en í öðrum
vinstri stjórnum.
Sjálfstæðisflokkurinn mun koma
sterkari en nokkru sinni áður úr
þessari raun og gegna hlutverki sínu
sem kjölfesta íslenzks þjóðfélags sjálf-
um sér samkvæmur fyrir og eftir
kosningar og leiða þjóðina út úr þeim
vítahring sem nú þrengir að okkur
öllum og stofnar framtíð okkar í voða.
Ég þakka áheyrnina.