Morgunblaðið - 25.10.1980, Síða 27

Morgunblaðið - 25.10.1980, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1980 27 Tólfta þingi Sjómannasam- bands íslands var fram haldið í gær. Fyrir hádegi voru fundir í nefndum þingsins, en eftir há- degi var þingfundur í Lindarbæ. Þar talaði m.a. Hannes Hafstein um slysavarnarmál og tilkynn- ingarskylduna. En aðalmál þingsins kjara- og atvinnumálin verða að líkindum útkljáð á þinginu í dag. í gær voru lífeyrismál sjó- manna afgreidd og sagði Jón Kr. Olsen, formaður nefndarinnar sem fjallaði um lífeyrismálin, að í tillögum Sjómannasambands- ins væri ítrekað að starfsaldur sjómanna yrði allverulega stytt- ur frá því sem núgildandi lífeyr- ismálalög gera ráð fyrir. „Einnig krefjumst við þess, sagði Jón „að sjómenn sitji við sama borð og aðrar stéttir í þessum efnum, og til þess að svo megi verða, þarf ríkisvaldið að koma þar inní. Til samanburðar má nefna að sjó- maður hefur, eftir tíu ára aðild að Lífeyrissjóði sjómanna, u.þ.b. 50% lægri ellilífeyri heldur en almennt gerist í landi. Allt slíkt misrétti er tekið fyrir í tillögunum," sagði Jón Kr. Ölsen. Tólfta þing Sjómanna- sambandsins: Frá Sjómannaþingi íslands 1980. Misréttíð verðvtr ekki liðið En hvernig er hljóðið í hinum almenna þingfulltrúa. Mbl. tók nokkra þeirra tali. Mál þjóðar- innar allrar „Við erum auðvitað ekki ánægðir með olíugjaldið," sagði Héðinn Valdimarsson, annar fulltrúi Sjómannafélags ísa- fjarðar. „Olíuhækkanir eru ekk- ert einkamál sjómanna, saman- ber bændurna. Öll þjóðin greiðir niður fyrir þá. Nú, í sambandi Héðinn Valdimarsson við fiskverðið, þá er náttúrulega augljóst mál, að það á að fylgja almennum kauphækkunum í landi, því ekki fáum við að njóta góðs af því, þegar fiskur hækkar á mörkuðum erlendis. Þá er allt sett í sjóði, en þegar illa gengur þá á að ganga á okkur! Ef við fáum ekki að njóta góðs af velgengni á erlendum mörk- uðum, þá er auðvitað fráleitt að við einir stöndum undir því, þegar illa gengur. Það kom fram í ræðu sjávar- útvegsráðherra hér á þinginu, að uppi séu hugmyndir um að fara að senda flotann með afla lands- fjórðunga á milli. Ef eitthvað slíkt verður ofaná, þá getur Steingrímur leyst okkur af þegar við förum í frí. Það er ljóst að slíkar aðgerðir rekast mjög á frí sjómanna, auk þess sem olíu- kostnaður yrði náttúrulega gíf- urlegur. Það væri nær, að gera sér grein fyrir ástandinu, þegar leyfin fyrir aukningu flotans eru gefin í staðinn fyrir að sigla svo landshorna á milli með fiskinn." Hringlandinn í Steingrími Þá bar að hinn fulltrúa ísfirð- inganna, Rúnar Grímsson. „Sjó- menn eru reiðubúnir að axla byrðar, svo framarlega sem aðr- ir gera það líka,“ sagði hann. „Það mætti benda sjávarútvegs- og samgönguráðherra á það, að hann gæti leyst vanda Flugleiða með því að leggja sérstakan Grétar Zophaniasson skatt á starfsfólkið. Kjartan Jóhannsson var okkur erfiður, en Steingrímur slær öll met með hringlandahætti sínum. Eins og Héðinn kom inná, þá eru sjómenn almennt óhressir með aukninguna í flotanum, því þýðir ekkert annað en fleiri daga í þorskveiðibanni. Jú, okkur sjó- mönnunum sýnist nú meiri þorskur í sjónum heldur en fiskifræðingarnir halda. Og það skyldi nú aldrei vera, að þeir væru eins vitlausir þar og í loðnunni, þegar þeir gáfu yfir- lýsingar um 1,5 milljón tonna loðnuveiði og nokkrum vikum síðar sögðu þeir ekki ráðlegt að veiða meira en 600 þúsund tonn!, sagði Rúnar Grímsson frá ísa- firði. Olíugjaldiö bein kauplækkun Grétar Zophaníasson vara- fulltrúi Verkalýðs- og sjómanna- félagsins Bjarma á Stokkseyri. „Við erum ákaflega óhressir með hvað lítið hefur gengið í samn- ingamálunum, tíu mánuðir núna síðan samningar urðu lausir. Nei, það getur enginn verið ánægður með olíugjaldið. Sjó- menn eiga ekki einir að bera baggann, þegar vandi skapast í sjávarútvegnum. Allir lands- menn njóta góðs af störfum okkar og þess vegna er það mál allra landsmanna ef illa gengur. Nú, svo byggir þetta olíugjald ekki á eyðslu skipanna, heldur Hákon Jónas Hákonarson aflaverðmæti! Olíugjaldið þýðir beina kauplækkun hjá sjómönn- um, því fiskverðið heldur ekkert í við verðbæturnar í landi. Þetta þarf allt saman að stokka upp. Eitt vildi ég nefna, að lokum, sem þarf nauðsynlega að breyta, það er í sambandi við okkur á minni skuttogurunum. Okkur er ævinlega haldið launalausum þegar skipin fara t.d. í botri- hreinsun eða málningu. Við lent- um til dæmis í því nú í sumar, að eftir siglingu fór togarinn í slipp úti og í vikutíma þurftum við að bíða eftir honum kauplausir!" Fleiri helgarfrí Kjörin eru eins léleg og þau geta verið,“ sagði Hákon Jónas Hákonarson einn fulltrúi Sjó- mannafélags Reykjavíkur á þinginu, og sagðist vera báta- sjómaður og tala fyrir þeirra hönd. „Margar góðar tillögur hafa komið fram hér á þinginu, svo sem í öryggis- og trygg- ingarmálum. Helgarfríin á bát- unum hafa verið misnotuð og hef ég lagt fram tillögur um það efni hér á þinginu. Eg legg til að helgarfríin verði bundin í samn- ingum frá 15. maí til áramóta aðra hverja helgi, og líka að það verði tveggja daga stopp ein- hverja virka daga á vetrarvertíð. Eg held það sé sterk samstaða um þessa tillögu. Það er mikil samstaða hér á þinginu um öryggis- og tryggingarmál sjó- rnanna." Kolbeinn Friðbjarnarson Sættum okkur ekki við þetta misrétti Kolbeinn Friðbjarnarson, full- trúi Sjómannadeildar verkalýðs- félagsins Vöku á Siglufirði, sagði m.a.: „Það er ljóst að fiskverðs- ákvörðunin síðasta fullnægir ekki kröfum sjómanna um að fiskverð hækki til samræmis við verðbætur á laun í landi. Að auki kemur svo stórfelld hækkun á olíugjaldi. Það er á hreinu, að sjómenn sætta sig ekki við þetta misrétti. Sjómenn eru ennþá með lausa samninga, utan Vestfirðinga og þessar staðreyndir verða auðvit- að efst í huga þegar þingið gengur frá kröfum Sjómanna- sambandsins. Ég hef sérstaklega veitt því athygli, að hér á þinginu er ekki ágreiningur, hvorki um markmið né leiðir. Þótt ekki hafi verið gengið frá öllum ályktunum þingsins, held ég megi segja, að algjör málefnaleg samstaða ríki á þinginu. Mér finnst ég hafa haft mikið gagn af því að sitja þetta þing, sem ber mjög svip- mót sitt af því hversu margir starfandi sjómenn sitja það. Ég er fulltrúi félags, sem telur margar ólíkar starfsstéttir og í þess konar félögum vilja málefni fámennari deildanna sitja á hak- anum, og tel ég mig nú hafa öðlast betri yfirsýn um málefni sjómanna en ég áður hafði," Marteinn B. Sigurðsson sagði Kolbeinn Friðbjarnarson frá Siglufirði. Góð samstaða Marteinn B. Sigurðsson full- trúi Vélstjórafélags Suðurnesja hafði þetta að segja: „Við erum auðvitað ekki ánægðir með kjör- in. Sjómenn eru langt á eftir öðrum með laun sín. Og meira að segja ráðherrann viðurkenndi hér í ræðu að olíugjaldið væri óréttlátt, þó auðvitað sé ekki von á breytingu í bráðina. Það er erfitt fyrir sjómenn að bregðast við þessu, en það verður rætt á þinginu í dag hvernig að því skuli staðið. Öryggismálin og atvinnumálin eru ævinlega í brennidepli, og margt athyglis- vert hefur komið fram. Þingið er mjög málefnalegt og góð sam- staða meðal þingfulltrúa. Ég vænti alls góðs af tillögum þessa þings, sagði Marteinn B. Sig- urðsson frá Keflavík. - J.F.Á. /

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.