Morgunblaðið - 25.10.1980, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1980
33
Þeir, sem leið eiga um erlend-
ar stórborgir, finna oft fagrar
kirkjur opnar, jafnvel á virkum
dögum.
Sé litið inn sjá þeir fólk, einn
eða fleiri, sem krjúpa til bæna,
spenntum greipum og luktum
augum.
Slíka sjón og áhrif hennar í
hljóðri þögn helgidómsins má
einmitt orða með andvarpi
skáldsins:
„Eitthvað himneskt og hlýtt
kom við hjartað í mér.“
Allt er svo hljótt í dul og svala
rökkurs í þessum helgidómum
við altari Guðs.
Altarið er öndvegi. Það er
stallur eða borð, skreytt blóm-
um, ljósum eða listaverkum
snillinga.
Sögur herma, að Grikkir og
Israel hafi verið meðal hinna
fyrstu þjóða, sem reistu ölturu,
og voru þau þá hugsuð sem
áþreifanleg hásæti eða borð
Guðs — kraftuppspretta al-
heims.
Altus þýðir æðri, upphækkað-
ur. Og Aþenumenn höfðu að
jafnaði níu ölturu í musterum
sínum.
Var hvert þeirra um sig helg-
að sérstökum guðdómi, sem
veita skyldi eða veitt gæti upp-
fyllingu bæna um eitthvert sér-
stakt efni. En svo datt einhverj-
um spekingnum í hug, að vel
gæti verið til einhver Guð, sem
þeir ekki þekktu, máttugur, fag-
ur og góður. Þeir reistu því eitt
altarið enn hinum óþekkta Guði
til vegsemdar og þjónustu.
Það var þetta, sem gæti verið
hollt veganesti í huga út í
hversdagsleika hverfulla daga.
Margir koma vafalaust í kirkj-
ur og musteri veraldar með
dulda, falda, en heita þrá eftir
einhverjum krafti, sem annað
hvort uppeldi eða aðstæður hafa
aldrei opinberað þeim til þekk-
ingar né áhrifa.
Sem betur fer eru margir líkt
og ósjálfrátt í leit að slíku altari,
eiga það óafvitandi í helgustu
fylgsnum hugar og hjarta. Geta
einmitt þar og þannig eignazt
helgustu opinberum guðsandans
á hljóðu augnabliki, opinberun,
sem nútíma menntun og menn-
ing er svo undarlega fátæk af í
allri sinni tæknidýrkun og
hlutatilbeiðslu, jafnvel mann-
dýrkun.
Eitt er víst, alls staðar er
vonað, leitað og þráð, en oft er
erfitt um opinberun og bæn-
heyrslu.
Þess vegna liggja einmitt spor
margra að musterisdyrum, ein-
mitt til að finna þar altari, sem
samsvari altari hins ósýnilega
Guðs í eigin barmi. En erfitt er
að finna. Ekkert orð né nafn,
engin mynd yfir altarinu. Þann-
ig er einmitt með fjölda ungs
fólks í dag. Þetta gáfaða fólk er
oft mótað og alið upp án allrar
Vofur
á
vetrar-
kvöldi
nútímans
bænrækni og trúrækni, sem oft
varð eini auður í örbirgð liðinna
tíma.
Margur á eigi að síður „góðan
trúarneista", sem orðið gæti, ef
að væri hlúð, hamingjubrunnur
við altari hins óþekkta Guðs í
eigin vitund.
En enginn hefur vísað veginn,
nema kannske í öfuga átt til
múgsefjunar og manndýrkunar.
Þar eru mörg ölturu öðrum
guðum reist og helguð, meðan
enn er allt í vafa með mynd hins
óþekkta Guðs í eigin sál.
Þar verður einmitt að mótast
bjartasta ljósið bak við krossinn,
æðstu fyrirmynd og helgasta
takmark mannssálar ofar öllu
hinu áþreifanlega, sem af hönd-
um er gjört.
Stundum getur orðið ævilöng
leið og leit við altari hins
óþekkta Guðs. En oft getur eitt
augnablik helgað af himinsins
náð, kannske með því að líta inn
í kirkju, opnað fyrir kraftinum,
sem bíður eftir að birtast og
njóta sín og opna himin hinnar
æðstu sælu, fegurðar og sann-
leika. En það er krafturinn frá
kærleika Krists sem þar er um
að ræða.
Vanti altarið, sem á hann að
yfirskrift í vitund manns, verða
ölturu annarra guða svo ótrú-
lega umkomulaus og einskis
virði. En nái ljósið þaðan að
njóta sín, veitir það öllum öðrum
ölturum og hásætum í musterum
mannkyns hið sanna himingildi.
Til er sálmur á islenzku, einn
af perlum okkar aldafornu
tungu, sem vísar þeim leið, sem
krýpur að þessu altari hins
ósýnilega Guðs á þennan hátt:
„Ef þér finnst þú ver» vcikur
viljakraft þinn hcfta hond.
Kriptu þá hans ha-Kri hond.
bú munt finna. aA afl þér cykur,
scAra maxn um tauKar lcikur
krafturinn frá hans kærlcikshond."
(G.G.)
Sannarlega er að baki þessum
fögru, fleygu orðum sami djúpi,
hljóði friðurinn, þögn eilífðar-
ómsins, sem fyllir musterin
miklu um öll heimsins lönd, sem
minnzt var á í upphafi þessara
orða.
Þar krýpur ferðamaður af
fjarlægum ströndum, kominn af
breiðstrætum borgarglaumsins,
hinum óþekkta en æðsta Guði í
sínu eigin hjarta, finnur hann
þar undir sýnilegu altari með
ljómandi ljósum og angandi
blómum.
Þar finnur hjartað sitt altari,
sinn eilífðarhljóm, hina almátt-
ugu huggunarhönd.
Hvar finnur þú altari þíns
ókunna Guðs? Vonandi ekki sízt
í sóknarkirkjunni þinni, þar sem
þú varst skírður eða fermdur.
Eða þar sem þú kraupst við
altari hins óþekkta á brúðkaups-
degi þínum við hönd ástvinar,
eða þar sem þú felldir saknað-
artár við móður- eða föður-
kveðju.
Eða gæti altari þitt aðeins
verið steinn við götuna eða
rúmstokkinn í svefnhúsi þínu,
ljósið á borði barns þíns eða ljós
í lágum snúð horfinna bernsku-
jóla?
Kannske er altarið, sem veitir
bæn þinni beztan kraft, falleg
minning úr einhverri ferð úr
framandi löndum eða æsku-
byggð.
En eitt er víst, það verður að
helgast altari hins ókunna Guðs
elskunnar í þínu eigin hjarta,
sem einmitt þá verður hinn
æðsti veruleiki lífs þíns.
Ef svo er, þá fagna þú og flyt
ókunnum Guði æðstu leyndar-
dóma, krafti orðs og þagnar,
hljóma og lita, lofgjörð þína og
bæn.
Réttu þar Kristi kærleikans
hönd og lát hann leiða þig í gleði
og hörmum, lýsa þér í vetrar-
myrkrum bæði í lífi og dauða.
Heill sé þér við altari þitt.
En eigir þú enn ekkert altari,
þá leitaðu helgidóms þér til
handa í dýrðarfaðmi lands þins;
í kirkju þinni, sem þá reisi þér
altari hins ókunna, æðsta Guðs,
elskunnar krafti í þínum eigin
barmi.
Árelíus Nielsson
verð á hörpudiski
Ákveðið
Á FUNDI yfirnefndar Verð-
lagsráðs sjávarútvegsins sl.
föstudag var ákveðið eftirfar-
andi lágmarksverð á hörpu-
diski frá 1. október til 31.
desember 1980:
Hörpudiskur í vinnsluhæfu
ástandi:
a) 7 cm á hæð og yfir, hvert kg.
kr. 160.00
b) 6 cm að 7 cm á hæð, hvert kg.
131.00.
Afhendingarskilmálar eru
óbreyttir.
Verðið var ákveðið af odda-
manni nefndarinnar og full-
trúum seljenda gegn atkvæðum
fulltrúa kaupenda. I yfirnefnd-
inni áttu sæti: Bolli Bollason,
sem var oddamaður nefndarinn-
ar, Ágúst Einarsson og Ingólfur
Ingólfsson af hálfu seljenda og
Benedikt Jónsson og Eyjólfur
ísfeld Eyjólfsson af hálfu kaup-
enda.
í anddyri Súlnasalsins voru ýmis snyrtivörufyrírtæki með kynningar-
bása og gáfu flestum ráðleggingar og prufur af vörum sínum.
Fræðsla — kynn-
ing og skemmtun
FÉLAG snyrtifræðinga hélt sitt
árlega fræðslu- og skemmtikvöld
á Hótel Sögu fimmtudaginn 16.
október sl. Var þar boðið upp á
ýmis konar fræðslu og kynningu,
m.a. höfðu nokkur snyrtivörufyr-
irtæki kynningarbása og kynntu
vörur sínar fyrir gestunum og
gáfu prufur.
Skemmtikvöldið hófst á því að
Ásta Hannesdóttir, formaður Fé-
lags snyrtifræðinga flutti ávarp.
Því næst kynnti megrunarklúbb-
urinn Línan starfsemi sína. Komu
þar fram 7 manns sem samtals
höfðu misst 147 kíló gegnum
starfsemi klúbbsins.
Að því loknu flutti Gunnhildur
Gunnarsdóttir snyrtifræðingur
fyrirlestur um umhirðu og snyrt-
ingu húðarinnar yfir vetrarmán-
uðina. Að loknu erindi hennar fór
fram sýning á gull- og silfurmun-
um frá Tímadjásnum og tískusýn-
Mvndir RAX
Ilann var einn þeirra sem kom
fram fyrir hönd Linunnar á
skemmtikvöldinu á Hótel Sögu.
Ekki ber á öðru en hann hafi
misst nokkuð mörg kílóin.
ing. Félagar i Félagi snyrtifræð-
inga sáu um þær sýningar.
Loks fór fram sýning á svoköll-
uðu „fantasy makeup", eða and-
litssnyrtingu þar sem hugmynda-
flugið er látið ráða ferðinni.
I lokin var dregið í happdrætti.
Voru miðar seldir á staðnum en
vinningarnir voru um 80 talsins.
Kynnir á skemmtikvöldinu var
Heiðar Jónsson.
Undir lokin var sýning á hinu
svokallaða „fantasy makup“.
Þessar tvær ungu stúlkur eiga að
tákna dag og nótt.
Námskeiöin er fyrir konur
og karla og standa í:
24 vikur: jan.— júní
20 vikur: ágúat—
dea.
40 vikur: ágúst —
mai.
• Hússtjórnarfræöi
• Fjölskylduráógjöf
• Innanhússarkitektúr
• Valfög t.d. leikfimi,
polstulínsálning. vélrit-
un, danska, reikningur,
tungumál.
Gódir atvinnumöguleikar.
Sandið aftir baaklingi.
HUSHOLDNINGSSKOLE
HOLBERGSVEJ 7 . 4180 SORO
03 63 01 02 • Kirsten Jensen
WYEAR
GEFUR ^RÉTTA GRIPID
HEKLAHF
Líuigavegi 170-172 Sími 21240
Opið í dag
Á
PRISMA