Morgunblaðið - 25.10.1980, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1980
47
Norðurlandameistaramótið í handknattleik:
íslenska liðið hafði yfirburði
og sigraði með 17 marka mun
Frá Guðmundi Guðjónssyni hlaðamanni Morxunhlaðsins í Ilamar i Noreifi:
ÍSLENDINGAR voru ekki í vandræðum með að
gersigra Finna á Norðurlandamótinu í Hamar í
gærkvöldi. Lokatölur urðu 29—12, eftir að staðan í
hálfleik hafði verið 13—7. Með þessum stóra sigri tókst
að nokkru leyti að má út minni hins slæma tapleiks
gegn Svíum í fyrsta leik mótsins. Hafa íslendingar þar
með hlotið tvö stig og eiga því góða möguleika á
verðlaunasæti ef vel gengur í næstu leikjum í mótinu.
íslenska liðið náði
góðri forystu
Islenska liðið lék mjög vel í
byrjun leiksins og hreinlega braut
finnska liðið alveg niður. Eftir 12
mínútna leikkafla var staðan orð-
in 5—0, og á 19. mínútu var staðan
orðin 10—2. Allan þennan tíma
var vörn íslenska liðsins mjög vel
spiluð og Ólafur varði allt sem á
markið kom. Þá var sóknarleikur-
inn hraður og vel spilaður. Var nú
allt annað að sjá til liðsins en í
fyrsta leiknum gen Svíum. Loka-
tölur hálfleiksins urðu svo 13—7.
Finnar voru kaf-
sigldir i síðari
hálfleiknum
Finnar sóttu nokkuð í sig veðrið
í byrjun síðari hálfleiks, en þá
skipti Hilmar nokkuö ört inná og
reyndi ýmsar leikaðferðir. Þegar
40 mínútur voru liðnar af leiknum
var staðan 16—10. Þá kom besti
kafli íslenska liðsins og finnska
liðið var gjörsamlega kafsiglt.
Vörnin var svo sterk að Finnar
Hornamaðurinn
Bjarni Guðmundsson
átti góðan leik og
skoraði 4 mörk i
Ieiknum gegn Finn-
ísland — Finnland
29:12
komu varla skoti í gegn og ef svo
var varði Ólafur. Islensku leik-
mennirnir náðu hverju hraða-
upplaupinu af öðru og breyttu
stöðunni úr 16—10 í 27—11. Með
þessum stórgóða leikkafla innsigl-
aði íslenska landsliðið einhvern
þann stærsta sigur sem unnist
hefur á erlendri grund í landsleik
í handknattleik. Síðustu sjö mín-
úturnar áttu svo íslensku leik-
mennirnir fjögur skot í stangirnar
og nokkur góð tækifæri fóru
forgörðum. Finnar náðu aðeins að
skora eitt mark. Stórsigur, 17
marka sigur var í höfn.
Liðin:
Allir leikmenn íslenska lands-
liðsins áttu góðan leik. Þeir Ólafur
H. Jónsson og Björgvin Björg-
vinsson þó bestan. Þá var hinn
ungi og efnilegi Alfreð Gíslason
góður. Ólafur H. var kletturinn í
vörn liðsins og átti fjölmargar
sendingar þvert yfir völlinn þegar
íslenska liðið var í hraðaupp-
hlaupum. Línuspil og hornaspil
var gott og vonandi verður áfram-
hald á svo góðum leik hjá íslenska
liðinu hér á mótinu. Báðir mark-
ICWmhII*;
ólafur H. Jónsson sem lék sinn 122 landsleik gegn Finnum var
langbesti maður liðsins. Barðist eins og ljón alian ieikinn i vörn og
sókn. Hér er illa brotið á ólafi þar sem hann er í góðu færi á linunni.
verðirnir léku vel. Sérílagi þó
Ólafur Ben.
Finnska liðið er ungt að árum
og greinilega frekar reynslulaust
lið. Þeir reyndu aldrei að minnka
hraðann í leiknum og misstu því
alveg tökin á spili sínu. Besti
maður liðsins var Jan Runberg og
jafnframt var hann markahæstur
með 6 mörk. Hann leikur með
sænska liðinu Karlskrona. Mörk
íslands: Alfreð Gíslason 6, 3v.,
Þorbergur Aðalsteinsson 5,
Björgvin Björgvinsson 5, Bjarni
Guðmundsson 4, Ólafur H. Jóns-
son 3, Viggó Sigurðsson 3, Ólafur
Jónsson 2, og Steindór Gunnars-
son 1.
—GG.
M
Reiknum með sigri
- segir þjálfari Dana
áá
LEIF Mikkelsen, landsliðsþjálfari Dana:
íslendingar eru ávallt erfiðir mótherjar en okkur hefur gengið vel
gegn þeim í síðustu leikjum og erum því bjartsýnir á sigur. Reyndar
reiknum við með sigri í leiknum. Erfitt að segja til um getu islenzka
iiðsins eftir tvo fyrstu leikina því ég er viss um það að liðið hefur ekki
sýnt sitt rétta andlit gegn Svium og Finnarnir voru of slakir
mótherjar til þess að dæma islenzka liðið eftir leiknum við þá.
Leikið gegn Dönum og
Færeyingum í dag
-
ÞRÍU leikir eru á dagskrá á
Norðurlandameistaramótinu i
handknattleik í dag. Fyrsti leik-
urinn fer fram kl. 8.00 á milli
íslands og Danmerkur. síðan
leika Svíar og Færeyingar og
loks Norðmenn og Finnar. Allir
þessir leikir fara fram fyrir
hádegi en eftir hádegi ieika
íslendingar gegn Færeyingum.
Svíar gegn Finnum og Norðmenn
gegn Dönum. Liðin þurfa þvi að
leika tvo ieiki i dag.
Á morgun sunnudag leika iiðin
svo siðustu leiki sína. Færey-
ingar mæta Finnum. Sviar mæta
Dönum og verður það liklega
úrslitaieikur mótsins. Þá leika
tslendingar við Norðmenn og
koma liðin til með að berjast um
bronsverðlaunin í mótinu ef að
likum lætur.
r
hand-
knatt-
Leiknum lýst
kl. 8.30
ÞAÐ er ekki á hverjum degi
sem útvarpshiustendur
vakna við iþróttalýsingar.
En i dag lýsir Hermann
Gunnarsson iþróttafrétta-
maður útvarpsins leik ts-
lendinga og Dana ki. 8.30
fyrir hádegi. Þá vakti það
megna óánægju hjá mörgum
hversu seint lýsing hans á
leik Svía og tslendinga fór
fram. Henni hefði vel mátt
koma fyrir fyrr f dag-
skránni. Leiknum var lýst
kl. 23.15.
Fyrsti sigur
gegn Finnum
Handknattleikur er ekki
mikið iðkaður i Finnlandi
og iþróttin ekki mjög hátt
skrifuð þar. t mörg undan-
farin ár hafa Finnar ekki
tekið þátt í NM-mótinu i
handknattleik og þvi hafa
íslendingar og Finnar að-
eins leikið þrjá landsleiki.
Sigurinn i gær var fyrsti
sigur tslands því að fyrstu
tveir leikirnir enduðu með
jafntefii. Þrír ieikir tvö jafn-
tefli og einn sigur.
Viggó lék sinn
60 landsleik
MARGIR ieikmenn í ís-
lenska landsliðinu i hand-
knattieik eru orðnir gífur-
lega leikreyndir og í leikn-
um í gær á móti Finnum iék
Viggó Sigurðsson sinn 60
landsleik og Kristján Sig-
mundsson sinn 40 landsleik.
Sá sem leikið hefur flesta
landsleikina er Ólafur H.
Jónsson eða 122 ails. Leiki
óiaíur markvörður alla leik-
ina f mótinu nær hann sín-
um 100 landsleik i leiknum
gegn Færeyjum á sunnudag.