Morgunblaðið - 29.10.1980, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 1980
Enn eru allmörg
félög eftir með
lausa samninga
ENN er eftir aó Ijúka samninnum viO allmorx fól<>x. sem staúiú hafa utan
hcildarkjarasamniniíanna. sem undirritaúir voru í fyrrakvóld. í jja'r stóðu
yfir hjá sáttasemjara sáttafundir með prenturum. hokurum ok þjónum.
f>au félö(í, sem eftir er að semja
við eru Rafiðnaðarsambami Islands
(>H öl! aðildarfélöK |>ess, Samhand
íslenzkra hankamanna <>g aðildarfé-
lön þess, liókatierðarfélönin þrjú, Hið
íslenzka prentarafélan, Grafiska
sveinafélanið ou Bókbindarafélaíi ís-
lands, Farmanna- oji fiskimanna-
samband íslands o(i aðildarfélön
þess, Félan framreiðslumanna, Bak-
arasveinaféiau íslands, Félan leið-
sö(iumanna, Félad íslenzkra hljóm-
listarmanna, Múraraféla)! Reykja-
víkur, Múrarasamband íslands od
aðildarfélod þess, Veddfóðrarafélad
Reykjavíkur, Sveinafélad pípuladn-
indarmanna, Málarafélad Reykja-
víkur, Mjólkurfræðindafélad ís-
lands, Verkalýðsféladið Randæindur
(>d þar með starfshóparnir við
Hrauneyjarfoss, starfsfólk ríkis-
verksmiðjanna od Blaðamannafélad
Islands.
Meðal þeirra félada, sem að ofan
eru talin er Randa>indur, sem boðað
hafði verkfall hinn 29. október
næstkomandi od var því allt útlit
fyrir að vinna félli niður við virkjun-
arframkvæmdirnar við Hrauneyj-
arfoss þann dad- Við undirritun
samninda í fyrrakvöld dendust for-
ystumenn Randæinds inn á að bera
undir fulltrúaráð féladsins afboðun
verkfalls, ef tryddt yrði, að viðræður
hefðust við féladið hið fvrsta. Mun
sáttasemjari ríkisins hafa heitið því
að boða til viðræðufundar mjöd
bráðleda. Fulltrúaráð féladsins af-
lýsti því verkfallinu í gær í trausti
þess, að viðræður við féladið færu í
ííaptí-
I d*r bárust skrifstofu Vinnuveit-
endasambands íslands allmardar af-
boðanir verkfalla hinn 29. október,
en stjórnir stéttarféladanna er nú
umhverfis allt land með féladsfundi
um þessar mundir, þar sem nýderðir
kjarasamnindar eru teknir fyrir.
Háhyrningurinn
hress og kátur'
95
.46
„HÁIIYRNINGURINN er hress on
kátur. syndir um alla laudina. en
etur ekkert ennþá“ södðu starfs-
menn Sa’dýrasafnsins sunnan við
llafnarfjörð í samtali við Mordun-
hlaðið í daT er spurst var fyrir um
líðan háhyrnindsins sem þar er nú.
— Hann var sem kunnudt er
fandaður fyrir suð-austurlandi
fyrir heldi.
Að södn starfsmanna Sædýra-
safnsins fást dýrin yfirleitt ekki til
að taka við mat fyrst eftir að þau
koma, en fyrr en þau gera það er
ekki unnt að selja þau úr landi. Þau
dýr sem veiðast kunna í haust mun
bandaríski umboðsmaðurinn Brian
Hunt sem kaupir dýrin, selja, en
hann hefur ekki defið upp hvert þau
síðan fara. Líklega verður það þó á
söfn i Bandaríkjunum.
Pétur Thorsteinsson sendiherra tók i gær á móti formanni
drænlensku landsstjórnarinnar og atvinnumálaráðherra hennar,
við komu þeirra hingað til lands i stutta heimsókn. Talið frá
vinstri: Pétur. Johansen og Motzfeldt. l.joNm: Kmilía Bj. Bjömsd.
Grænlenskir ráða-
menn í heimsókn
GRÆNLENSKIR ráðamenn
komu hingað til lands i gær, i
kynnisferð <>d til viðræðna við
íslenska aðila. Þeir sem komu
eru Lars F.mil Johansen atvinnu-
málaráðherra Grænlands. og
Jonathan Motzfeldt formaður
drænlensku landsstjórnarinnar
eða forsætisráðherra hennar.
Pétur Thorsteinsson sendiherra
tók á móti þeim, en hér á landi
munu Grænlendindar dvelja til
föstudags.
í ferð sinni, sem er kynnis- og
kurteisisheimsókn, að nokkru
leyti til að endurgjalda heim-
sóknir Péturs Thorsteinssonar til
Grænlands, munu þeir hitta fjöl-
marga íslenska ráðamenn og
frammámenn í íslenskum
atvinnumálum.
Þeir munu til dæmis ræða við
starfsmenn Landsvirkjunar og
Orkustofnunar um orkumál, þeir
munu ræða við aðila í landbúnaði
og sjávarútvegi, kynna sér
menntamálaráðuneytið og eiga
viðræður við fulltrúa Verslunar-
ráðs Islands. Þá munu þeir skoða
raforkuver, snæða kvöldverð í
boði Óiafs Jóhannessonar utan-
ríkisráðherra og sitja boð sendi-
herra Dana á íslandi í danska
sendiráðinu.
Héðan halda Grænlendingarn-
ir sem fyrr segir á föstudag, og
fara þá til Kaupmannahafnar.
Hingað komu þeir í gær frá
Grænlandi, með þotu frá SAS-
flugfélaginu.
Lagafrumvarp Halldórs Blöndal:
Byrjað að nið-
ursjóða saltfisk
fyrir Spánverja
FYRIR nokkru var undirritaður
samningur við Spánverja um
kaup á niðursoðnum saltfiski
héðan. Er hér um frumsamning
að ræða, en er eigi að síður upp á
nokkra tugi milljóna. Reiknað er
með að frekari samningar verði
gerðir við þessa kaupendur að
því er Heimir Ilannesson sagði í
samtali við Mbl.
Framleiðsla er þegar byrjuð í
einni verksmiðju og er saltfisk-
urinn unnin í sérstakar neyt-
endaumbúðir, þannig að spænsk-
ar húsmæður þurfa ekki annað
en setja þennan hátíðamat
þeirra beint á pönnuna. Saltfisk-
urinn er settur í ýmiss konar
sósur og má í því sambandi
nefna sinneps- og tómatsósu.
Þegar reynsla verður komin á þá
frumframleiðslu, sem nú er
hafin, verður tekin ákvörðun um
framhaldið og þá m.a. hvar þessi
vara verður framleidd.
Meira saltað á
Fáskrúðsfirði,
en í f jölda ára
Fáskrúðsfirði, 28. október.
NÚ ÞEGAR síldarsöltun úr rekneta-
bátum er lokið, en hér var saltað úr
siðasta bátnum í dag, er heildarsölt-
un hjá Pólarsíld 22.500 tunnur. Auk
þess hefur fyrirtækið fryst 100 tonn.
Á seinni síldarárunum hefur ekki
verið saltað í annan eins tunnufjölda
og í haust hér á Fáskrúðsfirði. Söltun
er þó engan veginn lokið hér, því
Pólarsíld á eftir að fá síld úr fimm
nótabátum, en mikill hörgull er á
tunnum. Unnið er af fullum krafti við
að koma síldinni í hús, en ekki vannst
tími til þess að setja hana inn meðan
törnin stóð sem hæst. — Albert.
Barnaskattar verði afnumdir
80 milljónir
hafa safnast
80 MILLJ. kr. hafa nú safnast á
vegum Rauða kross íslands til
hjálpar bágstóddum á hörmungar-
sva'ðunum í Austur-Afríku.
Þó er enn ekki lokið talningu
þeirra peninga sem söfnuðust á
höfuðborgarsvæðinu sl. miðvikudag,
en á Akureyri söfnuðust um 7,2
millj., á Ólafsfirði 1,8 millj. kr., í
Vestmannaeyjum um 3 millj., á
Patreksfirði 0,8 millj., á Dalvík um
2,6 millj. og á Siglufirði um 1,5 millj.
kr.
í gær afhentu starfsmenn Álvers-
ins í Straumsvík Rauða kross deild-
inni í Garðabæ 1,4 millj. kr.
IIALLDÓR Blöndal hefur ásamt
tveimur öðrum þingmönnum Sjálf-
stæðisflokksins, lagt fram á Al-
þingi frumvarp til laga um niður-
fellingu á opinberum gjnldum
harna á árinu 1980. Segir i frum-
varpi llalldórs. að „álagður tekju-
skattur, útsvar. sjúkratrygginga-
gjald og kirkjugarðsgjald á börn,
sem voru innan 16 ára aldurs á
tekjuárinu 1979, falla niður á
skattaárinu 1980 og koma til endur-
greiðslu. þar sem þau hafa verið
greidd.“
í greinargerð með frumvarpinu
segir meðal annars á þessa leið:
Með sérsköttun hjóna hefur sú
breyting verið gerð, að tekjur barna,
sem eru innan 16 ára aldurs á
tekjuárinu, eru nú skattlagðar sér-
staklega og þeim sendur álagningar-
seðill, að þessu sinni þegar komið
var undir árslok. I sumum tilvikum
er hér um verulegar fjárhæðir að
tefla og raunar nær alltaf tilfinnan-
legar, ef litið er til greiðslugetu
viðkomandi ungmennis, sem ekki
átti von á þessari haustglaðningu.
Það mun líka vera svo, að þessir
álögðu skattar lenda jafnaðarlega á
foreldrunum með einum eða öðrum
hætti. Voru þeir þó þrautpíndir
áður, en ráðstöfunarfé síminnkandi
eins og forsvarsmenn heimilanna
hafa fengið að kenna á. Fróðlegt
væri t.a.m. að fá uppgefið hjá
fræðsluyfirvöldum, hversu hár inn-
kaupareikningur 16 ára unglings
hefur verið á þessum haustdögum
eftir að upp hefur verið talið allt það
sem honum hefur þegar verið gert að
kosta til vegna skólahaldsins í vetur.
Það hlýtur að vera álitamál, hvort
rétt sé að skattleggja vinnutekjur
barna innan 16 ára aldurs. Ýmsir
eru þeirrar skoðunar, að hið opin-
Sigfinnur Karlsson form. Alþýðusambands Austurlands:
„Stjórnin hefur ekkert
gert fyrir verkalýðinn64
Er algerlega mótfallinn henni
MBL. leitaði til Sigfinn.s Karls-
sonar, formanns alþýðusam
bands Austurlands. og spurði
hann álits á nýgerðum kjara-
samningum. Ilann hafði þetta
að segja:
„Þjóðhagslega þurfum við að
vera ánægðir með þessa samn-
inga, því slæmir samningar eru
betri en engir samningar. En
þegar ég horfi yfir mína braut,
viðurkenni ég, að ég hef aldrei
stigið erfiðara skref heldur en að
skrifa undir þennan samning. Þó
ég hafi gert það mótj sannfær-
ingu minni, vona ég samt að
samningurinn verði landsbyggð-
inni til heilla.
Margir halda að ég sé dyggur
stuðningsmaður þessarar stjorn-
ar, en það er ekki rétt, ég var
það og er algerlega mótfallinn
henni orðið. Þessi ríkisstjórn
hefur ekkert gert fyrir verkalýð-
inn, og svo kórónar hún allt með
því að leggja meira að segja
skatt á 14 ára börn,“ sagði
Sigfinnur Karlsson í Neskaup-
stað.
Sigfinnur Karlsson.
bera eigi að minna á sig með hóflegri
skattlagningu, ekki í tekjuöflunar-
skyni, heldur til að barnið fái
tilfinningu fyrir skyldum sínum við
þjóðfélagið, — að enginn geti aðeins
verið þiggjandi, heldur verði menn
líka að leggja eitthvað af mörkum.
Forsenda þess, að þessu markmiði
verði náð, er augljóslega að um
staðgreiðslu verði að ræða, en skatt-
arnir komi ekki eftir á eins og
„þjófur úr heiðskíru lofti", eins og
einu sinni var sagt. Það má ekki
gleymast í þessu sambandi, að börn-
um innan 16 ára aldurs er bannað að
stofna til fjárskuldbindinga. Eftirá-
greiddum skatti svipar að því leyti
til þeirra, að viðbúið er að fénu hafi
verið eytt þegar kemur að skulda-
dögum.
Fyrsti flutningsmaður frumvarps-
ins er sem fyrr segir Halldór Blön-
dal, en meðflutningsmenn eru þeir
Pétur Sigurðsson og Matthías
Bjarnason.
Lézt af völd-
um brunasára
I GÆR lézt 48 ára gamall maöur
á gjörgæzludeild Landspítalans
af völdum brunasára, sem hann
hlaut i vinnuslysi á Keflavikur-
flugvelli 6. október sl. Maðurinn
hét Kristmundur Sæmundsson til
heimilis að Kópavogsbraut 106,
Kópavogi. Hann lætur eftir sig
eiginkonu og 4 dætur.
Slysið varð þegar unnið var við
gangsetningu á benzínvél á véla-
verkstæði, sem tilheyrir varnar-
liðinu. Þegar benzíni var hellt á
vélina kviknaði skyndilega í því og
skvettist benzín yfir þrjá menn,
sem voru við vélina. Kristmundur
heitinn, sem var vélstjóri að
mennt var ekki að vinna við vélina
heldur átti leið þarna framhjá í
þann mund er slysið varð. Kom
mest af benzíninu á hann svo
hann skaðbrenndist. Hann var
þegar fluttur á gjörgæzludeild
Landspítalans en brunasárin voru
svo mikil að hann lézt af völdum
þeirra rúmum þremur vikum eftir
slysið.
Kristmundur Sæmundsson.
UtfórStefáns Jóhanns í dag
ÚTFÖR Stefáns Jóhanns Stef-
ánssonar fyrrum forsætisráð-
herra og formanns Alþýðu-
flokksins verður gerð í dag,
klukkan 13.30 frá Dómkirkjunni
í Reykjavík. Útvarpað verður frá
athöfninni, en jarðarförin er
gerð á vegum ríkisins.