Morgunblaðið - 29.10.1980, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 1980
5
FÆRÐ er nú víðast hvar góð um
landið. að minnsta kosti ef miðað
er við árstíma, en fyrsti nóvem-
ber er sem kunnugt er á laugar-
daicinn. Hjá veKaeftirliti Vega-
íferðar ríkisins fékk blaðamaður
Morjíunblaðsins í jfa'r þær upp-
lýsinjfar. að nú væri greiðfært
um allt Vesturland ok Suðurland.
um Eyjafjörð oj? Uinjfeyjarsýslur.
víðast um Austfirði ojf að jfóð
færð væri miðað við árstíma á
Vestfjörðum.
Þorskafjarðarheiði var opnuð í
fyrradag, einnig leiðin vestur til
Patreksfjarðar, stórir bílar kom-
ast um Breiðdalsheiði og færð er
tekin að þyngjast á Eyrarfjalli í
Djúpi milli Mjóafjarðar og ísa-
fjarðar.
Þá er það af færð að frétta að
aðeins er orðið fært fyrir stærri
bíla norður í Árneshrepp, og
Lágheiði milli Siglufjarðar og
Ólafsfjarðar er ófær. Hún verður
ekki rudd, og gæti því allt eins
orðið ófær til vors, enda unnt að
komast milli staðanna eftir öðrum
leiðum. Ur Mývatnssveit norður í
Hólsfjöll hefur færi þyngst og er
nú aðeins fært stórum bílum.
Hólssandur og Axarfjarðarheiði
eru ófær, en aðrir vegir á Norð-
austurlandi eru færir nema ofan í
Vopnafjörð.
Möðrudalsöræfi eru aðeins fær
stórum bifreiðum, til Borgarfjarð-
ar eystri er aðeins fært stærri
bílum og sama er að segja um
Breiðdalsheiði. Nú er verið að
ryðja Oddsskarð.
Víða er nokkur snjór á vegum
þar sem fært er, og dálítil hálka,
en færðin verður þó að teljast góð
miðað við árstíma, sem fyrn.segir.
Hinar fjölhæfu
scheppach
- segir m.a. í fréttaskeyti frá
Pálma Hlöðverssyni til R.K.I.
„ÁSTANDIÐ er sagt skárra en það
var fyri 3—fi mánuðum þá dóu tíu
börn á dag. en „aðeins" eitt barn
annað hvorn dag að meðaltali
núna.“ sagði Pálmi Illijðversson
m.a. í fréttaskeyti til Rauða kross
Islands. sem barst i gærmorgun.
En Pálmi er staddur við hjálpar-
störf á vegum RKÍ í norðurhluta
Karamoja-héraðs i Uganda.
Fara hér á eftir nokkrir punktar
úr fréttaskeytinu frá Pálma: „I
Namalu komum við á sjúkrahús,
sem Frakkar reka þar. Þar voru
nokkur börn hræðilega farin af
hungri, nánast beinagrindur. Það
þúsund manns, og að fæðu þurfi
fyrir 50—60 þúsund. Núna er
skammturinn um eitt kílógramm á
viku á mann, sem er varla einn
þriðji af fullum skammti. Það eru
því 60—100 tonn á viku, sem þarf að
koma hingað og það reglulega.
Þessar tölur gæta hæglega hækkað,
ef auka þarf matarskammtinn."
Ofangreint hefur Pálmi ritað 12.
og 13. október, en 17. október segir
hann: „Hjólin eru farin að snúast
hraðar hér í Kaabong. í dag komu
30 tonn af mat og var honum dreift
til hinna ýmsu þorpa í grenndinni.
Það eru því næg verkefni."
Kvenfélagasamband
segir „Tomma og
Jenna“ stríð á hendur
47.AÐALFUNDUR Sambands
breiðfirskra kvenna, haldinn að
Staðarfelli 12. júlí 1980, skorar á
forráðamenn sjónvarps, að endur-
skoða efnisval svo áhrifamikils
fjölmiðils, ekki hvað síst með
tilliti til barna og unglinga. Fund-
urinn vekur athygli á að sjónvarp
virðist vera orðinn áhrifamikill
uppeldisaðili við hlið foreldra og
efnisval þarf því að vanda með það
í huga.
Svohljóðandi greinargerð fylgir
þessari tillögu:
Það er skoðun fundarins að stór
hluti sjónvarpsefnis sé ýmist rýr
að gæðum eða jafnvel skaðlegur
börnum og unglingum. Má í því
sambandi benda á ýmsa teikni-
myndaþætti sem oft eru sýndir
eftir fréttir. í fljótu bragði virðast
þessir þættir saklaust skemmti-
efni fyrir börn, en oft fjalla þeir í
raun um ofbeldi frá upphafi til
enda.
Sjónvarpið sýnir mikinn fjölda
kvikmynda sem eru vægast sagt
lélegar að gæðum að mati flestra,
þar með taldir sérfróðir menn um
slík efni. Oft er helsta umfjöllun-
arefni þessara mynda ofbeldi í
einhverri mynd.
Fundurinn bendir á að fræðslu-
möguleikar sjónvarps eru nánast
Addi en ekki Addo
í FRÉTT Mbl. í fyrri viku um
lögbannskröfu þýzka íþróttavöru-
fyrirtækisins Ádidas var rangt
farið með vörumerkið, sem óskað
var lögbanns á. Það heitir Addi en
ekki Addo, eins og stóð í fréttinni.
Þess má geta að Adidas framleiðir
vörur undir vörumerkinu Adi og
Adi Star. Lögbann hefur verið
heimilað gegn 10 milljón króna
tryggingu.
ekkert nýttir. Til er fjöldi erlendra
fræðsluþátta, sem sjónvarpið gæti
ýmist sýnt eða haft til fyrirmynd-
ar við gerð íslenskra þátta.
F.h. S.B.K.
Raghildur Hafliðadóttir.
(Fréttatilkynning)
Samanstendur af 5“ þ)
afréttara og hjólsög m
ha. mótor.
Skapafbtin
manninn?
Það er nú kannske heldur mikið sagt.
Hins vegar breyta Terra fötin honum verulega.
Terra fötin eru í tískusniðum. Þau fást
með eða án vestis og ef óskað er, fóðruðum
buxum. Stærðirnar eru 50 og ef engin þeirra
passar, saumum við fötin sérstaklega.
H
SNORRABRAUT 56 - SiMI 13505
var grátlejft að horfa á þessi litlu
grey.
Góð færð miðað við árstima
„Nú deyr „aðeins“ eitt
barn annan hvorn dag“
trésmíöavélar fyrir verkstæði og heimavinnu
„Það var grátlegt að horfa á þessi
litlu grey,“ segir m.a. í frétta-
skeyti frá Pálma Hlöðverssyni,
sem er við hjálparstörf á vegum
RKÍ í Uganda.
Það var vel tekið á móti mér hér í
Kaabong. Hér er kaþólsk trúboðs-
stöð með á milli 12 til 16 manns að
jafnaði við hjálparstörf, fólk af
ýmsu þjóðerni. Eg sef í „unipot"-
kofa, strákofa með blikki, og fæ mat
og baðaðstöðu annars staðar. Þeir í
trúboðsstöðinni hafa til þessa séð
um matvæladreifinguna en nú vilja
þeir að ég taki alfarið við því starfi.
Hér er sjúkrahús og elliheimili. Það
var voðaleg sjón að sjá fólkið þar og
börnin. Það er sjón sem ég gleymi
aldrei. Eflaust á ég eftir að sjá
margt svipað á næstu vikum.
Ástandið er þó sagt skárra en það
var fyrir 3—6 mánuðum, þá dóu tíu
börn á dag, en „aðeins" eitt barn
annan hvorn dag að meðaltali núna.
Hér vantar illilega vörubíl til að
flytja mat til hinna ýmsu þorpa.
Bensín er einnig af skornum
skammti og matarsendingar koma
óreglulega. Þetta þarf að komast í
lag og svo þarf að byggja hér
skemmu til að geyma í matvæli.
í þessu héraði er áætlað að búi 80