Morgunblaðið - 29.10.1980, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 1980
13
hárgreiðslu fyrir keppnina. Þang-
að komu svo bílar úr fornbíla-
klúbbnum og við vorum sóttar.
Hver ók í eigin bíl til Hollywood.
Þenar þangað kom var allt skín-
andi bjart, ljósadýrðin gífurleK og
Lúðrasveit Reykjavíkur lék. Herr-
ar tóku á móti okkur og mér leið
eins og drottningu þegar ég gekk
inn í Hollywood. Það var sérstök
tilfinning að ganga inn í Holly-
wood í allri þessari ljósadýrð.
Við gengum síðan í salinn og að
borðum okkar. Síðan vorum við
kynntar og þá færðum við Ólafi
Laufdal skjal frá okkur stelpun-
um.
Síðan voru skemmtiatriði og um
ellefuleytið vorum við kallaðar
upp á svið. Nafn sigurvegarans
var í lokuðu umslagi og Magnús
Kristjánsson, sem tilkynnti úrslit-
in tók sér góðan tíma til að opna
það. Ég var ósköp róleg, hugsaði
með mér: hann ætlar að verða
lengi að þessu. Þá var nafn mitt
lesið, það var stórkostlegt og ég
táraðist. Sjálfsagt af því ég varð
klökk."
Valgerður verður tvílug í næsta
mánuði og hún stundar nám í
Flensborg. „Ég er á viðskiptabraut
og reikna með að ljúka stúdents-
prófi eftir tvö ár. Eftir það er ég
alveg ákveðin hvað ég tek mér
fyrir hendur. Nei, mig langar ekki
í tískusýningarstörf. Eg á ekki von
á því að þetta breyti neinu um
framtíðina. Læt bara hlutina ráð-
ast.“ Hver eru helstu tómstunda-
mál er sígild spurning og Valgerð-
ur svaraði: „Ég reikna með að fara
á skíði þegar snjórinn kemur.
Þegar ég var yngri þá fór ég mikið
á skíði en hef gert minna af því nú
í seinni tíð. Þá hef ég gaman að
kvikmyndum og eins fer ég oft í
Hollywood, að sjálfsögðu."
Valgerður
Gunnarsdottir.
— unKÍrú
IIollyw(H)d.
Keppendurnir
frá vinstri eru:
Unndís Ólafsdútt-
ir. Bryndís Stef-
ánsdóttir. Heið-
rún Ólafsdóttir.
Asta Sóllilja Freys-
dóttir og Bjórk
Eiríksdóttir.
Ljósmynd Mhl. AS.
„Hef verið að
reyna nýja
bílinn í dag“
„ÉG HEF verið að reyna nýja
bílinn í dag,“ sagði Valgerður
Gunnarsdóttir, sem á mánu-
dagskvöldið var krýnd ungfrú
Hoílywood með pompi og pragt.
Valgerður fékk þar bíl í verð-
laun — Mitsubishi Colt. glæsi-
legan bíl — og óhætt er að
fuilyrða að aldrei á íslandi hafi
verið glæsilegri verðlaun en
einmitt í fegurðarsamkeppn-
inni á mánudaginn. sem Ilolly-
wood og timaritið Samúel stóðu
fyrir.
Það var fráfarandi ungfrú
Hollywood, Auður Elísabet Guð-
mundsdóttir, sem krýndi Valgerði.
Alls tóku sex stúlkur þátt í
keppninni, auk Valgerðar voru það
Ásta Sóllilja Freysdóttir, sem
varð önnur, Unndís Ólafsdóttir,
Bryndís Stefánsdóttir, Heiðrún
Ólafsdóttir og Björk Eiríksdóttir.
Ásta Sóllijja hlaut titilinn „sól-
arstúlka Úrvals" og í verðlaun
hlaut hún þriggja vikna ferð til
Ibiza. Hinar stúlkurnar fjórar
hlutu allar vikuferð til Ibiza með
ferðaskrifstofunni Úrval. Glæsileg
verðlaun, sem samtals nema um 9
milljónum króna.
Það var mikið um dýrðir í
Hollywood. Fjöldi gesta og
skemmtiatriði glæsileg. Þannig
lék Lúðrasveit Reykjavíkur bæði
utanhúss og innan og Haukur
Morthens, Rut Reginalds og Bald-
ur Brjánsson komu fram. Sér-
staklega var gerður góður rómur
að söng Hauks og sýndi hann að
lengi lifir í gömlum glæðum. Þá
var snyrtivörukynning, tískusýn-
ing, öllum var boðið upp á dubonn-
et-kokteil og SS-pylsur.
„Þetta var ævintýri líkast,"
sagði Valgerður í samtali við Mbl.
og hélt áfram. „Við stelpurnar
hittumst hjá Brósa, sem sá um
ValgerAur Gunnarsdóttir — brosmild i nýja Coltinum sínum.
Ljósmynd Mbl. Kristján.
Rætt við Valgerði Gunnarsdóttur. sem á mánudagskvöldið var krýnd ungfrú Hollyw(H)d og í verðlaun hlaut hún nýjan Mitsubishi Colt
ÞEIR HIÁ PHIUPS GERA MEIRA EN AD HANNA NÝ KERFI.
ÞEIRKOMA AFSTAÐBYLTINGUM!
Nýtt myndsegulband
Philips hefur nú fullhannað nýtt
myndsegulbandskerfi, sem margir
álíta vera gjörbyltingu á þessu sviði.
Philips 2000 er kerfí, sem býður upp á
kosti, sem aðrir hafa ekki:
- Myndkassettu, sem spila má báðu-
megin, með
- 8 klukkustunda sýningar/upptöku-
tima
Upphitaðir upptökuhausar, sem •
aðeins þekkjast á stærstu tækjum í
upptökusölum (studiotækjum) vama
sliti á segulbandinu, auk þess, sem
svonefndir fljótandi hausar gera
stillingu þeirra óþarfa. Þannig er hægt
að taka upp á eitt tæki og sýna á örðum
án truflana.
Philips vann stríðið
Þegar Philips hljóðkassettan kom
á markaðinn fyrir tæplega tuttugu
árum, voru fáir sem spáðu henni bjartri
framtíð. Margir töldu Philips hafa gert
regin-mistök með gerð litillar hljóð-
kassettu, sem þyrfti að snúa við og
spila báðum megin. Reyndin varð
önnur. Philips hljóðkassettan er einráð
á markaðinum. Aílir hinir tóku hana í
notkun.
Nú hefur Philips sett mynd-
kassettu á markaðinn. Hún er byggð á
sömu grundvallarhugmynd og
reynslu, sem fengist hefur með hljóð-
kassettunni. Árangurinn er líka
frábær.
Sextán daga upptökutimi
Einn af höfuðkostum nýja Philips
myndsegulbandskerfisins er upp-
tökutíminn. Philips 2000 með nýju
8 klst. myndkasettunni, gefur kost á ,
innstillingu á 5 mismunandi
sjónvarpsþætti á 16 daga timabili.
Nýja kassettan hefur pláss fyrir
átta klukkustundir af efni, 4 klst. á
hvorri hlið. Þannig getur þú komið
fyrir t.d. fjórum 2ja klst. kvikmyndum
á einni spólu eða fjórum knattspyrnu
leikjum og einni bíómynd. -
Þeir hjá Philips gera meira en að
hanna ný myndsegulbandskerfi. Þeir
koma af stað byltingum. Þess vegna
hafa margir af þekktustu framleiðend-
um myndsegulbanda, eins og t.d. B og
O, ITT, Pye, Luxor og Grundig gert
samninga við Philips um notkun þessa
nýja kerfis í sinni eigin framleiðslu.
Sjálfvirkursnuórari
Ein af skemmtilegustu nýjung-
unum á Philips 2020 myndsegulbands-
tækinu er efnisleitari, sem við köllum
„sjálfvirka snuðrarann“. Þettaertakki
sem þú notar þegar þú þarft að finna
myndefni á myndkassettunni í hasti.
Sjálfvirki snuðrarinn finnur réttan
stað á spólunni á met-tíma. Snuðrar-
inn er tengdur sérstöku tölvuminni,
sem gerir þér kleift að finna réttan stað
á spólunni á andartaki eða svo. Philips
kann svo sannarlega tökin átækninni.
Hafnarstræti 3 — Sætúni 8.