Morgunblaðið - 29.10.1980, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 1980
Fulltrúar þriggja stórra sjómannaiélaga
féllu við stjórnarkjör á Sjómannaþingi
í lok Sjómannasamhandsþinns-
ins sa«ói Oskar VÍBfússon formaft-
ur Sjómannasamhandsins. aft það
Kæti orðið erfitt að ná «óðri
samstoðu innan samhandsins þeg-
ar fulltrúar AkurnesinKa. Grind-
víkinga ok VestmannaeyinKa ættu
ckki fulltrúa í aðalstjórn sam-
handsins. en þeir voru allir felldir
úr stjórninni við stjórnarkjör.
Mbl. bað Óskar Vigfússon að
skýra nánar við hvað hann ætti.
„Ég lít ekki á starf innan Sjó-
mannasambandsins með augum
stjórnmálamannsins," sagði Óskar
Vigfússon. „Það er tvennt ólíkt, því
þetta eru hagsmunasamtök sem
eiga að efla einingu sjómannastétt-
arinnar og það verður ekki gert
með þessum hætti, að fella fulltrúa
þessara byggðarlaga úr stjórninni,
það er á hreinu. Þarna standa utan
stjórnarinnar stór félög sjómanna,
sem hafa átt sæti í stjórn Sjó-
mannasambandsins meira og
minna frá því það var stofnað. Það
að fulltrúar þessara félaga falla nú
úr stjórn sambandsins hlýtur að
hafa neikvæð áhrif á eininguna
innan stéttarinnar."
Mbl. sncri sér líka til Péturs
Sigurðssonar, alþingismanns og
þingforseta síðasta Sjómannasam-
handsþings og bað um álit hans.
Leiðréttingar af
Sjómannaþingi
í FRÁSÖGN af Sjómannasam-
bandsþingi í gær var Guðmundur
M. Jónsson ýmist nefndur fráfar-
andi varaformaður eða varaforseti
Sambandsins og í myndatexta
„fráfarandi formaður", en eins og
sést af samhenginu er Guðmundur
fráfarandi varaformaður Sjó-
mannasambandsins og ekkert
annað. Og í myndatexta var Sig-
finnur Karlsson skrifaður Sig-
mundur! Mbl. biður velvirðingar á
þessum mistökum.
Hefur neikvæÖ áhrif
á^eininguna. segir
Óskar Vigfússon.
Hujísanavilla
hjá Óskari, segir
Pétur Sijíurðsson
Sigfinnur Karlsson
um stjórnarkjörið:
„Harma að póli-
tíkin skuli hafa
orðið ofaná ...“
„Ég tel að þessi kosningaúrslit
hér á Sjómannasambandsþing-
inu, marki leið að því. sem muni
gerast á Alþýðusamhandsþing-
inu nú í nóvember.“ sagði Sig-
finnur Karlsson i spjalli við Mbl.
þegar úrslit voru Ijós í stjórnar-
kjöri á Sjómannasambandsþingi
sl. sunnudag.
„Það er sem sé álit mitt að þessi
kosning til stjórnar Sjómanna-
sambandsins, sýni pólitískt hvað
muni gerast í framtíðinni ef menn
ugga ekki að sér.
Ég harma að pólitík skuli hafa
orðið ofaná í þessum kosningum
en ekki hagsmunir sjómanna, þó
ég dragi ekki í efa hæfni einstakra
fulltrúa. Ég mun vinna að því að
annar andi ríki á ASÍ- þinginu nú
í nóvember," sagði Sigfinnur
Karlsson.
Óskar Vigfússon:
„Málefnalegt þing“
Mbl. spurði óskar Vigfússon,
formann Sjómannasambandsins
um tólfta þing samhandsins,
sem haldið var um helgina.
„Þingið var að minni hyggju
mjög málefnalegt," sagði Oskar.
„Þar voru tekin fyrir þau helstu
mál sem sjómenn varða þessa
dagana, olíugjaldið og kjaramálin
og gerðar ítarlegar tillögur um
öryggis- og tryggingamál. Ég vil
þakka þingfulltrúum fyrir góða
frammistöðu, þeir lögðu sig fram
um að vinna skynsamlegar tillög-
ur um þessi efni.“
Nú sagðir þú, Óskar, þcgar þú
varst fyrst kosinn forseti Sjó-
mannasambandsins, að helsta
verkefnið væri að efla samtaka-
mátt sjómanna. Ilefur það tekist
þessi fjögur ár sem þú hefur
gegnt formannsstöðu?
“Það hefur orðið nokkur árang-
ur í réttindabaráttu sjómanna
þennan tíma og gildi sjómanna-
starfsins hefur verið komið á
framfæri við þjóðina. En þetta er
mál sem hver og einn verður að
meta fyrir sig.“
Hvað er nú framundan í
kjaramálum sjómanna?
„Strax og nýkjörin stjórn Sjó-
mannasambandsins kemur sam-
an, verður kosin samninganefnd
og kjarakröfur sjómanna kynntar
okkar viðsemjendum."
Eru þær kröfur fullmótaðar?
„Þær eru að miklu leyti mótað-
ar, já. Ég held það sé ekki rétt á
þessu augnabliki að gera grein
fyrir þeim kröfum, en reyndar
felur kjaramálaályktun Sjó-
mannaþings nokkuð í sér kröf-
urnar," sagði Óskar Vigfússort,
formaður Sjómannasambands ís-
lands.
Sjómannaþing um olíugjaldið:
Sameiginlegt átak lands-
manna allra leysi vandann
Tólfta þing Sjómannasam-
bands íslands ítrekar fyrri
afstóðu sjómannasamtak-
anna um að þann vanda. sem
hækkun olíuverðs skapar út-
gerðinni i landinu. beri að
leysa með sameiginleKU
átaki landsmanna allra. En
það eigi ekki að velta honum
yfir á sjómenn eina, svo sem
Kert er ráð fyrir í frumvarpi
til laga um breytingar á
lögum um tímabundið olíu-
gjald, sem nú liggur fyrir
Alþingi.
Þingið telur að Alþingi eigi
að mæta þessum vanda m.a.
með því að fella niður þau
innflutningsgjöld sem nú eru
á olíuvörum og leggur áherslu
á að við næstu ákvörðun
fiskverðs, verði þessi mál
komin í það horf sem sjomenn
geta við unað.
Með hliðsjón af framan-
sögðu leggur 12. þing SSÍ til
að umrætt frumvarp verði
fellt.
MYNDAMÓT HF.
PRENTMYNDAGERÐ
AÐALSTRÆTI • - SlMAR: 17152-17355
„Þetta sem Óskar Vigfússon
sagði í lok þingsins, er að sjálf-
sögðu hugsanavilla," sagði Pétur.
„í 13 manna sambandsstjórn er
útilokað að 23 félög geti öll átt sinn
fulltrúa innan sambandsstjórnar-
innar, ef taka á tillit bæði til
landshluta og stærðar félaganna.
Þeir sem nú fóru úr stjórninni
höfðu setið þar um langt árabil og
það sem gerðist er það, að það
komu fulltrúar frá öðrum félögum
og öðrum landshlutum, sem ekki
höfðu áður átt sæti í stjórninni.
Þarna voru nokkrir menn sem
uppstillingarnefnd var sammála
um að yrðu kjörnir og þeir voru að
sjálfsögðu kjörnir með þorra at-
kvæða vegna þess að þeir hafa
starfað vel og lengi fyrir sjómenn
og verið í fararbroddi, þótt sumir
þeirra séu áhrifamenn í pólitík og
hafi beitt sér óspart innan laun-
þegahreyfingarinnar sem slíkir. Og
fulltrúar þessara félaga, sem Óskar
Vigfússon nefndi, eru með sam-
þykki alls þingsins í varastjórn og
þess vegna koma þeir oft inn í
stjórnina, því þeir starfandi sjó-
menn sem kosnir voru í stjórnina
verða meira og minna ekki til
staðar þegar þarf að kalla saman
sambandsstjórn, sagði Pétur Sig-
urðsson.
Frá þingi Sjómannasambandsins.
Rannsókn mín hefur leitt í ljós
að QUIK fæst í lítilli dós,
stærri dós og ennþá stærri dós.
Með súkkulaði
kveðju •
Bewu
Súkkulaðisérfræðingur