Morgunblaðið - 29.10.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 1980
15
Harðnandi afstaða
Austur-Þjóðverja
Borlín. 28. október. — AP.
STJÓRNIN í Austur-Berlín hef-
ur ákveðið. að enginn sérstakur
sumartími verði á næsta ári
þrátt fyrir samkomulag við
Vestur-Þjóðverja um sameÍKÍn
Veður
víða um heim
Akureyri 1 alskýjað
Amsterdam 20 skýjað
Aþena 18 skýjað
Berlin 16 heiðskirt
Brússel 14 heiðskírt
Chicago 6 heiðskírt
Feneyjar 19 léttskýjað
Frankfurt 12 skýjað
Færeyjar vantar
Genf 11 heiöskírt
Helsinki 5 rigning
Jerúsalem 28 heiðskírt
Jóhannesarborg 25 heiðskirt
Kaupmannahöfn 9 rigning
Las Palmas 26 léttskýjað
Lissabon 23 heiðskirt
London 16 rigning
Los Angeles 23 heiðskirt
Madrid 22 heiðskírt
Malaga 22 skýjað
Mallorca 22 skýjað
Miami 26 skýjað
Moskva 2 skýjað
New York 13 skýjað
Osló 4 skýjaö
París 20 heiöskirt
Reykjavík 2 alskýjað
Ríó de Janeiro 40 heiðskirt
Rómaborg 20 heiöskirt
Stokkhólmur 8 skýjaö
Tel Aviv 27 heiðskírt
Tókýó 20 heiöskirt
Vancouver 12 skýjað
Vínarborg 10 heiöskirt
legt kerfi. Þetta er talin enn ein
vísbendinK um harðnandi af-
stöðu Austur-Þjóðverja Ke>?n
Vesturlöndum.
Að sögn austur-þýzku frétta-
stofunnar ADN hefur sú ráðstöf-
un að taka upp sumartíma ekki
haft í för með sér þann sparnað,
sem til var ætlazt, og því hafi
verið ákveðið að leggja hann
niður.
Þótt lengi hafi tíðkazt að hafa
sumartíma í allri Vestur-Evrópu
hafa Vestur-Þjóðverjar haft
sama meðaltíma allt árið, þar
sem þeir vilja að allir Þjóðverjar
búi við sama tímakerfi. Vestur-
Þjóðverjar sögðu, að ólík tíma-
kerfi yllu vandamálum í hinum
tveimur hlutum Berlínar. En í
fyrra samþykktu Austur-Þjóð-
verjar að taka upp sumartíma í
ár.
Talsmaður Bonn-stjórnarinn-
ar, Klaus Bölling, sagði, að málið
yrði borið upp við fulltrúa aust-
ur-þýzku stjórnarinnar. Hann
sagði, að ákvörðun Astur-Þjóð-
verja væri ekki aðeins tæknilegs
eðlis heldur „hápólitískt mál“.
Ýmsir vestur-þýzkir embættis-
menn telja, að Austur-Þjóðverjar
vilji draga úr samskiptum við
vestræn ríki til að koma í veg
fyrir útbreiðslu hugmynda eins
og þeirra, sem urðu kveikja
ólgunnar meðal verkamanna í
Póllandi.
Faðir ber á brott lík sonar síns sem beið bana í loftárás íraka á barnaskóla í Khorramshahr að sögn
irönsku fréttastofunnar.
íraskar þyrluárásir
á gervallri viglínunni
STÓRSKOTAÞYRLUR íraka
gerðu árásir á öllum hlutum
vígstöðvanna í fyrsta skipti í
stríðinu sem hófst fyrir sex vikum
að því er Bagdad-útvarpið til-
kynnti í gær.
Hvorugum aðila varð nokkuð
Larsen og Karpov
gerðu jafntefli
Buenos Aires. 28. okt. — AP.
DANSKI stórmeistarinn, Bent
Larsen. og heimsmeistarinn Ana-
toly Karpov. gerðu jafntefli í 24
leikjum i áttundu umferð Clarin-
skákmótsins, sem fram fór i dag.
Karpov þurfti að vinna þessa
skák til þess að eiga verulega
möguleika á að vinna mótið en
Kosningar
á Jamaica
Ocho Rios. Jamaica. 28. október. — AP.
MICIIAEL Manley, íorsætisráð-
herra Jamaica, spáði því í dag á
lokastigi kosningabaráttunar á
eynni. að flokkur hans. þjóðlegi
alþýðuflokkurinn, (PNP) færi
með sigur af hólmi og óánægðir
fullrúar hins frjálsa framtaks
mundu taka þátt í tilraunum
hans til að reisa við bágborinn
efnahag landsins.
Nokkrir leiðtogar kaupsýslu-
manna sögðu seinna, að eina vonin
um efnahagsbata á Jamaica væri
sú, að Verkamannaflokkur Jam-
aica sigraði í kosningunum í dag.
Manley keppir að því að stjórna
landinu þriðja kjörtímabilið í röð
og sagði á blaðamannafundi að
flokkur sinn væri fylgjandi „lýð-
ræðislegum sósíalisma“. Hann
vísaði á bug sem „vitleysu" ásök-
unum andstæðinga, um að PNP sé
að snúast á sveif með kommún-
isma og vinstri sinnar séu við
völd.
Báðir aðilar segja, að þetta
verði mikilvægustu kosningarnar
siðan Jamaica fékk sjálfstæði frá
Bretum 1962. Morð og líkamsárás-
ir hafa sett svip sinn á kosninga-
baráttuna. Rúmlega 400 pólitísk
morð hafa verið framin á árinu,
þar af átta um helgina.
Aðalkosningamálið er efnahag-
ur landsins. Verðbólga er 30%,
þriðjungur vinnufærra manna er
atvinnulaus og erlendur gjaldeyrir
er af svo skornum skammti, að
aðeins lífsnauðsynjar eru fluttar
til landsins.
Larsen er nú efstur með 7 vinn-
inga.
Yfir þúsund manns komu til að
fylgjast með skákinni, en henni
lauk eftir tæpar tvær klukkustund-
ir og átti hvor leikmaður þá aðeins
eftir tvo hróka, biskup og þrjú peð á
kóngsvæng. Hafði Larsen þá aðeins
notað 20 mínútur af umhugsunar-
tíma sínum en Karpov 85 mínútur.
Staða Larsens styrktist enn í
þessari umferð því helsti keppi-
nautur hans, Timman, tapaði óvænt
fyrir hinum sjötuga Najdorf frá
Argentínu. Ljubojevic sigraði
Panno í 25 leikjum og Svíinn
Anderson gerði jafntefli við Balas-
hov frá Sovétríkjunum. Aðrar skák-
ir fóru í bið.
Staðan á mótinu er því þessi:
Larsen er með 7 vinninga, Ljuboj-
evic 5, Kavalek og Najdorf með
fjóra og biðskák, Hort 3Ví> og
biðskák, Quinteros með 2'k og tvær
biðskákir, Panno, Friðrik og Giar-
delli eru með 2'k og biðskák,
Balashov með 2 og Browne 1 'k.
ágengt við Abadan, en íranar sögðu
að her íraka hefði sótt til staðar 24
km suðaustan við borgina og stækkað
yfirráðasvæði sitt við ósa Shatt al
Arab.
Irakar höfðu áður tilkynnt, að
þyrlurnar hefðu grandað skrið-
drekum, brynvörðum liðflutninga-
bílum, stórskotaliði og ratsjárstöð.
YFIR BRÚ
Teheran-útvarpið sagði, að á
Abadan-Khorramshahr-vígstöðv-
unum við suðurenda víglínunnar
hefði liðsafli íraka frá Khorramshar
reynt að sækja yfir brúna á ánni
Karun suðaustanmegin við hafnar-
borgina og sækja til Abadan, sem er
16 km í suðaustri, en byltingarverðir
hefðu hrundið árásinni.
íranar sögðu í tilkynningu, að
þotur þeirra hefðu ráðizt á skrið-
drekasveitir og stórskotaliðssveitir
íraka nálægt Khosrowabad, 2 km
suðaustur af Abadan, íranmegin
Shatt al Arab.
Hluti íraska liðsaflans, sem um-
lukti Abadan úr austri í síðustu viku
og lokaði síðustu aðflutningsleiðun-
um, virðist halda áfram að sækja
niður eftir Shatt al Arab og mun vera
aðeins 24 km frá Persaflóa.
AÐGERÐIR í LOFTI
Annars bárust aðallega fréttir af
aðgerðum í lofti. írakar sögðu, að
MIG-þotur þeirra hefðu ráðizt á
bifreiðageymslu í Dezful, aðalbæki-
stöð iranska hersins í héraðinu Khuz-
estan, og á höfnina í Bandar Mashur
fyrir austan Abadan. Flugvélarnar
munu hafa hæft hafnarmannvirki.
Jafnframt sprengdu hersveitir íraka
olíuleiðslu frá borginni Degloran í
Vestur-íran í loft upp.
Teheran-útvarpið sagði, að þotur og
stórskotalið íraka hefðu haldið uppi
árásum á Ahwaz, höfuðstað Khuzest-
ans, 120 km fyrir norðan Abadan, og
eyðilagt stjórnarbyggingu. Útvarpið
sagði, að ein MIG-þota íraka hefði
verið skotin niður, en aðrar flugvélar
þeirra, sem reyndu að sprengja upp
olíuútskipunarhöfnina á Kharg-evju,
240 km suðaustur af Abadan, hefðu
verið reknar á flótta. íranar sögðu
líka frá loftbardögum yfir vígstöðv-
unum og kváðust hafa grandað tveim-
ur flugvélum, en misst eina sjálfir.
Heimildir í Amman herma, að
Hussein Jórdaníukonungur hafi farið
til Bagdad til viðræðna við Saddam
Hussein forseta. Sjö manna nefnd
óháðra ríkja kemur til fundar í New
York í dag til að skipuleggja sátta-
tilraunir. Maðurinn, sem mun hafa
skipulagt byltingu hersins i Tyrk-
landi, Haydar Saltik hershöfðingi,
bauðst til að miðla málum í deilunni í
dag.
Uppreisn í fang-
elsi á Sardiníu
Þetta geróist 29. október
1977 — Hollenzka auðmanninum
Maurits Caransa rænt.
1972 — Palestínskir skæruliðar
ræna þýzkri flugvél og fá sleppt
mönnum sem voru teknir fyrir
morðin á Ólympíuleikunum í
Múnchen.
1962 — Bandaríkjamenn aflétta
hafnbanninu á Kúbu.
1961 — Sýrland segir sig úr
Arabíska sambandslýðveldinu.
1957 — Fulgenico Batista nemur
stjórnarskrá Kúbu úr gildi.
1956 — ísraelskt herlið gerir
innrás í Sinai-skaga.
1929 — Verðhrunið mikla í Wall
Street og heimskreppan mikla
hefst.
1923 — Tyrkland lýst lýðveldi.
1889 — Stofnskrá Brezka Suður-
Afríkufélagsins samþykkt.
1888 — Samningurinn um Súez-
skurð undirritaður í Konstantín-
ópel.
1618 — Sir Walter Raleigh tekinn
af lífi í Lundúnum, ákærður fyrir
landráð.
1567 — Samsæri Húgenotta í
Meaux leiðir til annars trúar-
stríðsins í Frakklandi.
1268 — Konradin, síðasti Hohen-
staufer, hálshögg\-inn í Napoli.
Afmæli. Edmund Halley, enskur
stjörnufræðingur (1656—1742) —
James Boswell, skozkur rithöf-
undur (1740-1795).
Andlát. 1911 Joseph Pulitzer,
blaðaútgefandi.
Innlent. 1838 Dómur Landsyfir-
réttar í tvíkvænisniáli Sigurðar
Breiðfjörð — 1956 Tiilaga Jóns
Hjaltalíns um lækningar í kláða-
málinu — 1904 d. síra Arnljótur
Ólafsson 1907 Verkamannasam-
band íslands stofnað — 1919
„Alþýðublaðið" hefur göngu sína
— 1941 Ritstjórar „Nýs dagblaðs“
og „Þjóðviljans" dæmdir í varð-
hald — 1%4 Fyrsta umræða
danska þingsins um handritalögin
- 1965 d. Níels Dungal - 1884 f.
Sigurjón Á. ólafsson — 1898 f. sr.
Sigurður Einarsson.
Orð dagsins. Sönn vinátta er eins
og góð heilsa. Við kunnum sjaldan
að meta hana fyrr en hún er
glötuð. — C.C. Colton, enskur
prestur og rithöfundur (ca.
1780-1851).
Nuoro. Sardiniu. 28. októbcr. — AP.
UM 50 pólitiskir fangar gerðu
uppreisn undir forystu tveggja af
leiðtogum Rauðu herdeildanna í
rammgerðu fangelsi i bænum
Nuoro á Sardiníu í gær og myrtu
tvo fanga. sem þeir töldu njósn-
ara.
Fangarnir lögðu undir sig hina
pólitísku deild fangelsisins og
kröfðust þess að þeir yrðu fluttir í
ýmis fangelsi á meginlandi Ítalíu.
Uppreisninni lauk að tíu tímum
liðnum, þegar yfirvöld féllust á
kröfur fanganna.
Leiðtogar uppreisnarinnar voru
Valerio Morucci og Roberto Ogni-
bene úr Rauðu herdeildunum, sem
voru handteknir vegna gruns um
þátttöku í ráninu og morðinu á
Aldo Moro forsætisráðherra 1978.
Yfirvöld segja, að fundist hafi lík
tveggja glæpamanna, sem hafi ver-
ið myrtir í klefum sínum. Annar
þeirra var kyrktur, en hinn skorinn
á háls. Uppreisnarmenn myrtu þá
af því að þeir töldu þá uppljóstrara
lögreglunnar að sögn yfirvalda.
Fangarnir kröfðust þess einnig,
að fangelsið á Asinara-eyju, norð-
austur af Sardiníu, yrði lagt niður.
Asinara er talin Djöflaeyja eða
Alcatraz Ítalíu, og þar eru margir
hryðjuverkamenn úr Rauðu her-
deildunum í haldi.
Sovétmenn
styðja Eþíópíu
efnahagslega
Moskva. 28. okt. — AP.
BRESHNEV. forseti Sovétríkj-
anna. fullvissaði i dag lciðtoga
Eþíópíu. Mengistu Meriam. um
að Sovétmenn myndu halda
áfram efnahagsaðstoð sinni við
Eþtópíu. Breshnev sagði, að
aðstoðin fæli í sér þjálfun inn-
lends vinnuafls auk hjálpar á
sviði visinda. menningar- og
heilhrigðismála. Tveggja daga
fundi leiðtoganna i Moskvu er
nú lokið.
Vestrænir fréttaskýrendur
telja að Meriam hafi falast eftir
frekari hernaðaraðstoð frá Sov-
étmönnum, en í yfirlýsingu
Breshnevs var ekki minnst á
hermál. Sovétmenn hafa veitt
Eþíópíumönnum verulega hern-
aðaraðstoð á undanförnum ár-
um, en samband ríkjanna hefur
verið náið síðan Haile Selassie
var steypt af stóli 1974.