Morgunblaðið - 29.10.1980, Qupperneq 17
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 1980
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 1980
17
ilfaKgtlltlllftfrft
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guömundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiúsla: Skeifunni 19, sími 83033.
Áskriftargjald 5.500.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 280
kr. eintakiö.
Stórorðasmiðir
og þögnin
Yfirlýst markmið Alþýðubandalagsins með þátttöku í ríkis-
stjórn Gunnars Thoroddsens var að tryggja kaupmátt launa.
A fyrstu níu mánuðum þessa árs er kaupmáttur kauptaxta
rúmlega 5% minni en að meðaltali allt árið 1979. Lítihvon er til
þess, að nýgerðir kjarasamningar auki kaupmáttinn svo þessu
nemi, hins vegar munu þeir að óbreyttu auka verðbólguna.
Fjármálaráðherra Alþýðubandalagsins Ragnar Arnalds kom í
veg fyrir raunhæfa kjarabót með því að þverneita öllum
viðræðum um lækkun skatta. Hann má ekki sjá af einni krónu úr
ríkissjóði í þessu skyni, þótt frá áramótum til ágústloka í ár hafi
tekjur ríkissjóðs aukist um tæplega 61% miðað við sama tíma
1979 og gjöld ekki „nema“ um nær 50%.
Ríkisstjórnin hefur setið í níu mánuði af þeim tíu, sem
kjaraviðræður hafa staðið. Hún hefur þó ekkert gert til að flýta
fyrir gerð kjarasamninganna, þótt Alþýðubandalagið hafi sagt,
að með ríkisstjórnarsetu sinni yrði það samningsgerðin auðunnin.
Þvert á móti hafa aðgerðir ríkisstjórnarinnar og þó einkum
félagsmálaráðherra Alþýðubandalagsins, Svavars Gestssonar,
tafið fyrir kjaraviðræðunum. Má þar minna á sérviðræður SÍS og
ASI, sem ráðherrarnir stjórnuðu, og ótímabærar bréfaskriftir
Svavars Gestssonar. Þrátt fyrir yfirlýsta andstöðu við hækkun
grunnkaups gerði Ragnar Arnalds kjarasamning við BSRB, sem
talinn er jafngilda allt að 11% grunnkaupshækkun. Þessi
samningur hlaut að ráða niðurstöðunni í samningum ASÍ og VSÍ.
í kjölfar hans er spáð allt að 90% verðbólgu í nóvember 1981, sem
gengur þvert á yfirlýst markmið ríkisstjórnarinnar og fjárlaga-
frumvarp Ragnars Arnalds.
í desember 1978 sögðu Alþýðubandalagsráðherrarnir, sem þá
stóðu fyrir 8% skerðingu verðbóta á laun þvert ofan í yfirlýsta
stefnu- sína, að þessi kauplækkun væri bætt með „félagsmála-
pakka“. Við lyktir nýgerðra samninga gumar félagsmálaráðherra
Svavar Gestsson mjög af „pakkanum“ frá sér og ríkisstjórninni,
þótt hann hafi ekki enn verið metinn til fjár, enda erfitt. Þegar
betur er að gáð, kemur nefnilega í ljós, að „pakkinn“ er lítið annað
en skrautlegar umbúðir.
Upptalning á fyrirhuguðum félagslegum aðgerðum er fátækleg,
þar sem ekki er tekið á brýnustu kröfu verkalýðshreyfingarinnar
um leiðréttingu á misréttinu í lífeyrismálum. í samanburði við
það meginmál telst annað léttmeti. Raunar vekur furðu, hvað
tíundað er í þessum tólf liða loforðalista. Ýmislegt var ákveðið
áður en samningar tókust eins og 5% hækkun tekjutryggingar á
næsta ári. Annað er gert að meiru en efni standa til eins og 1100
milljón króna framlag úr ríkissjóði til byggingar dagvistunar-
heimila, sem þýðir í raun 300 milljón króna hækkun frá
fjárlagafrumvarpi. Kaflinn um orlofsheimili virðist miða að því,
að þessi hús verði byggð á allt öðrum forsendum en allar aðrar
byggingar í landinu, hvaða tilgangi sem það á að þjóna hjá
aðilum, senj segjast vinna samkvæmt jafnréttishugsjón. Og
þannig mætti áfram telja ýmislegt smælki, sem flýtur með
sjálfsögðum réttlætismálum eins og fæðingarorlofi og breyting-
um á eftirlaunaaldri sjómanna, sem Alþingi tekur ákvörðun um
en ekki ríkisstjórnin.
Morgunblaðið sýndi fram á það á sunnudaginn, að ríkisstjórnin
stefnir að skerðingu verðbóta á laun á næsta ári, ef marka má
þjóðhagsáætlun og fjárlagafrumvarpið. Flestir hefðu búist við
því, að yfirlýsingaglaðir ráðherrar Alþýðubandalagsins og
Þjóðviljinn hefðu áhuga á að tala tæpitungulaust um þetta mál
opinberlega. Félagsmálaráðherra Svavar Gestsson bregst hins
vegar þannig við, að hann neitar að hlusta á spurningar
blaðamanns Morgunblaðsins um málið. Miðað við lítið gildi
yfirlýstra markmiða kommúnista hljóta menn að álykta sem svo,
að þeir vilji það, sem þeir þegja yfir.
Alþýðubandalagið hefur á marga lund leitt verkalýðshreyfing-
una á villigötur með blekkingum sínum, hálfsannleik og beinum
ósannindum. Víst er, að kjör manna verða ekki bætt með slíkum
aðferðum, hins vegar virðast þær duga ótrúlega vel til að komast
í pólitískar áhrifastöður. Launþegar verða að átta sig á því, hve
miklu tjóni þessir stórorðasmiðir valda þeim. Um síðustu helgi
sýndu sjómenn hug sinn til þeirra í verki, þegar þeir felldu flesta
skjólstæðinga Alþýðubandalagsins úr stjórn Sjómannasambands
íslands.
Hvaö segja þeir um niður-
skurðinn á loðnuveiðunum
Óskar Vigfússon:
„Gefur manni til-
efni til að tortryggja
fiskifræðingana“
SAMKVÆMT ákvörðun sjávar-
útvegsráðherra hefur kvóti
loðnuflotans verið minnkaður
um 30%, sem þýðir verulegt
tekjutap sjómanna. Mbl. leitaði í
gær álits Óskars Vigfússonar,
formanns Sjómannasambands ís-
lands á þessari ákvörðun og
rannsóknum fiskifræðinga, ug
fer umsögn hans hér á eftir.
„Þær rannsóknir, sem íslenskir
og norskir fiskifræðingar stóðu að
í sumar, gáfu tiiefni til rúmlega
600 þúsund tonna veiði, og þess
vegna koma þessi tíðindi nú eins
og þruma úr heiðskíru lofti. Þetta
gefur manni tilefni til að tor-
tryggja, ekki aðeins þessar niður-
stöður, heldur niðurstöður fiski-
fræðinga yfirleitt.
Þegar svo miklir hagsmunir eru
í húfi fyrir sjómenn og reyndar
alla landsmenn, þá eiga svona
vinnubrögð ekki að eiga sér stað.
Þeir sem hagnast jú á þessu eru
Norðmenn, sem nú hafa veitt sinn
kvóta allan og nú verðum við að
taka á okkur minni veiði en ekki
þeir!
Við tókum það fram á fundi með
ráðherra, ekki aðeins Sjómanna-
sambandsmenn heldur og full-
trúar Farmanna- og fiskimanna-
sambandsins og LÍU, að krefjast
þess af ráðherra, að frekari rann-
sóknir færu nú þegar fram til
þess að ganga úr skugga um
réttmæti þessarar niðurstöðu
fiskifræðinganna. Við tökum því
ekki þegjandi, að vera hálfgerðir
leiksoppar í þessum málum, svo
miklir hagsmunir eru í veði fyrir
okkar umbjóðendur og þjóðina
alla,“ sagði formaður Sjómanna-
sambands íslands.
Hjálmar Vilhjálmsson
fiskifræðingur
Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðmgur:
„Ilefði viljað að kvótinn
yrði takmarkaður meira“
SVO SEM við var að búast hafa
niðurstöður mælinga fiskifra’ðinga
á stærð íslenzka loðnustofnsins
sætt nokkurri gagnrýni. Morgun-
blaðið ræddi í gær við Hjálmar
Vilhjálmsson og var hann meðal
annars spurður hvort fiskifræð-
ingar væru sáttir við þá ákvörðun
sjávarútvegsráðherra að skera
kvóta loðnuskipa niður um 30%,
hvort það væri nóg ef í Ijós kemur
að niðurstöður mælinganna stand-
ast fulikomlega.
„Ég hefði viljað að kvótinn yrði
takmarkaður meira en nú hefur
verið ákveðið," sagði Hjálmar Vil-
hjálmsson. „Af ýmsum tæknilegum
ástæðum skilst mér þó að einfaldast
sé að stoppa við þessa hlutfallstölu.
Ef okkar mæling reynist rétt í
hvívetna verða innan við 100 þúsund
tonn eftir af hrygningarstofninum
þegar íslendingar verða búnir að
veiða þau 70% af upphaflegum
kvóta, sem nú er talað um. Við
teljum lágmark að 300 þúsund tonn
af loðnu fái að hrygna næsta vor.“
— Því hefur verið hreyft, að ekki
sé gagn í því að fara til stofnstærð-
armælinga í janúar eins og Haf-
rannsóknastofnunin ráðgerir. í því
sambandi benda menn á, að norskir
fiskifræðingar hafa haldið því fram
að ekki þýði að mæla stærð loðnu-
stofnsins á þeim tíma því loðnan sé
þá komin í torfur. Er þetta rétt?
„Þessu vísa ég beinustu leið heini
til föðurhúsanna. Norðmenn sögðu
þetta í fyrra og þá miðuðu þeir við
aðstæður í Barentshafinu. Nú vita
þeir betur og segja þveröfugt. Ég
veit ekki betur, en þeir séu sammála
okkur um að langbezt sé að mæla
þetta á okkar svæði í janúar.
Ástæðan fyrir því, að við erum að
brasa við þetta svona snemma er sú,
að þegar kemur fram í janúar
óttumst við að búið verði að taka of
mikið af loðnunni og ganga of nærri
hrygningarstofninum."
— Skipstjórnarmenn hafa rætt
um nauðsyn þess að senda 2—3
loðnuskip til rannsókna fljótlega og
ályktun þessa efnis var samþykkt á
þingi Sjómannasambandsins. Yrði
slíkt til bóta?
„Okkar svar við þessu er ósköp
einfalt. Það er ekki hægt að taka
hvorki eitt, tvö né þrjú loðnuskip og
senda þau til rannsókna. Til þess er
tækjakostur þeirra ekki gerður og
þessi hugmynd er því óframkvæm-
anleg."
—Þá hefur verið gagnrýnt að þið
voruð ekki nema 11 daga við þessar
rannsóknir og þar af aðeins 2 daga á
norðursvæðinu. Á því svæði telja
einhverjir skipstjórar að meira sé af
loðnu heldur en þau 85 þúsund tonn,
sem þið funduð.
„Það er rétt, að við vorum ekki
nema 11 daga við þessar berg-
málsmælingar, þ.e. frá því að við
byrjuðum á nyrzta svæðinu og þar
til við enduðum. Þetta svæði er ekki
ótakmarkað, þennan tíma var blíðu-
veður og það er hægt að komast yfir
mikið svæði á þessum tíma þegar
skilyrði eru góð.
Þegar við mældum á nyrzta svæð-
inu var veiði í fullum gangi þar, en
ég get hins vegar fullyrt að þar var
lítið af loðnu. Enda brá svo við
skömmu eftir að við mældum, að
loðnan breytti hegðan sinni og
enginn fékk neitt. Þá skildist mér á
skipstjórum, sem leituðu þarna, að
sáralítið hefði verið að finna á þessu
svæði og þannig er algjörlega
óraunhæft frá mínum bæjardyrum
séð að gera ráð fyrir miklu af loðnu
þar. Hvort tonnatalan er endilega
85 þúsund eða kannski í grennd við
100 þúsund er ekki mergur þessa
máls.
Það svæði, sem ekki var undir ís
var ailt kannað mjög vel. Eini
verulegi skekkjuvaldurinn, sem ég
get látið mér detta í hug gæti verið
af völdum íss á grænlenzka land-
grunninu. Hins vegar var það sam-
dóma álit okkar fiskifræðinganna,
að þegar á heildina væri litið væru
ekki líkur til að svo mikið væri
undir ísnum, að það skipti sköpum,“
sagði Hjálmar Vilhjálmsson að lok-
um.
Þá spurði Morgunblaðið Jakob
Jakobsson, fiskifræðing, að því í
gær hvort til greina kæmi að fresta
fyrirhuguðum viðgerðum á hafrann-
sóknaskipinu Bjarna Sæmundssyni
til næsta árs og senda skipið á ný til
mælinga á loðnustofninum. „Mér
finnst lítið vit í því og ekki nauðsyn,
Ef slíkt yrði gert kæmi það niður á
rannsóknum næsta árs, en þetta er
þó til athugunar," sagði Jakob
Jakobsson.
MORGUNBLAÐIÐ ræddi við nokkra skip-
stjóra vegna ákvörðunar sjávarútvegsráðu-
neytisins, að loðnuskipum skuli ekki heimilt að
veiða nema sem nemur 70% af áður ákveðnum
kvóta þar til annað verður ákveðið. Þessi
ákvörðun ráðuneytisins er tekin i framhaldi af
leiðangri íslenzkra og norskra fiskifræðinga til
mælinga á íslenzka loðnustofninum. í stað 660
þúsund tonna er íslenzkum loðnuskipum
heimilt að veiða aðeins 460 þúsund tonn. Þá er
fyrirhugað að mæla loðnustofninn að nýju í
janúar. Svör nokkurra skipstjóra fara hér á
eftir:
Nokkurra daga
leiðangur gef ur
ekki endilega
rétta mynd
af ástandi
loðnustofnsins
„Það er að sjálfsögðu rétt að
fara að öllu með gát. Það er
fremur lítið af stórri loðnu en ég
held að nokkurra daga leiðangur
gefi ekki endilega rétta mynd af
ástandi loðnustofnsins," sagði
Eggert Þorfinnsson, skipstjóri á
Óla Óskars RE. „Það er nú svo að
einn daginn getur verið góð veiði
á svæði, þegar loðnan myndar
torfur við sérstök skilyrði en að
nokkrum dögum liðnum er síðan
engin veiði. Það sem ég er að
segja er, að það verður að kanna
málið betur — rannsaka ástand
loðnustofnsins mun betur áður
en jafn afdrifaríkar ákvarðanir
eru teknar. Við hér á miðunum
vonum að ástand stofnsins verði
endurmetið sem fyrst og það gert
á raunhæfan hátt,“ sagði Eggert
ennfremur.
Engum dylst
að minna er
af loðnu
„Engum dylst að það er minna
af loðnu en verið hefur, en ég vil
gagnrýna vinnubrögð í þessu
máli,“ sagði Örn Erlingsson, á
Erni KE. „í sjálfu sér get ég ekki
dæmt um fræðileg vinnubrögð en
það segir sig sjálft, að skreppa út
á miðin í nokkra daga til rann-
sókna getur varla talist nægilegt.
Ég met ekki sjálfur hvort niður-
stöðurnar eru réttar eða rangar
en handahófskennd vinnubrögð
hafa leitt til stórtjóns. Skip frá
EBE-ríkjum veiddu í ágúst góða
og feita loðnu á meðan íslenzk
skip biðu í höfn — mun betri
loðnu en nú fæst. I upphafi
vertíðar var kvótinn settur við
660 þúsund tonn og nú hefur
þessi kvóti verið minnkaður um
30%. Það er ekki hægt að reka
útgerð við svona aðstæður og
greiða mönnum laun. Þessi mál
hefðu átt að athugast fyrr — það
Bjarni Bjarnason
á Súlunni.
„ Að skreppa út á miðin til rannsókna í
nokkra dagageturvarlatalist nægilegt“
var nægur tími til stefnu. Það að
fara í tvær hálfsmánaðar rann-
sóknarreisur á ári er allt of lítið.
Þetta kalla ég handahófskennd
vinnubrögð.
Það er agalegt að fá þetta á sig
nú, og ég ítreka að það er brýnt
að fylgjast betur með ástandi
loðnustofnsins en verið hefur,
svo skipin séu ekki stöðvuð þegar
verst lætur," sagði Örn ennfrem-
ur.
Meira norður
í hafi en 81
þúsund tonn
„Það er minna af loðnu hér en
verið hefur — það dylst ekki. Það
hafa verið nefndar tölur í þessu
sambandi. Að stofninn hér fyrir
vestan sé 572 þúsund tonn og 81
þúsund tonn norður í hafi. Það er
meira norður í hafi en 81 þúsund
tonn — sú tala stenst ekki,“ sagði
Bjarni Bjarnason, skipstjóri á
Súlunni EA.
„Það þarf að rannsaka ástand
stofnsins betur en gert hefur
verið og það er of seint að gera
það í janúar. Ég tel að meira
magn sé norður af landinu — það
er mikil víðátta. Það er stórt
atriði að sjávarlífið þar hefur
verið ólíkt því sem var fyrir 2—3
árum. Hiti hefur verið norður
fyrir Kolbeinsey — og það forð-
ast loðnan. Er ekki hugsanlegt,
að loðnan leiti undir ísinn við
Grænland? Hún hefur oft falið
sig þar — hún gerði það í fyrra
og kom síðan á miðin. Það sem ég
legg áherzlu á er að ástand
stofnsins verði rannsakað betur
— mér finnst það gagnrýnisvert,
að svo skuli ekki hafa verið gert,
vegna þess hve mikið er í húfi.
Þá vil ég benda á, að erlend
skip — dönsk og færeysk hafa
Pétur Stefánsson
á Pétri Jónssyni.
verið að veiðum. Og ég hef heyrt
því fleygt, að þeir ætli sér stærri
hlut en hingað til — jafnvel
senda bræðsluskip þegar á næsta
ári. Þetta er ákaflega alvarlegt
mál og verður að taka föstum
tökum. Þá er það slæmt fyrir
okkur Islendinga að geta ekki
vitað fyrirfram um endanlegt
magn eins og nú hefur sannast.
Norðmenn fá sinn fasta kvóta —
við veiðum síðan það sem telst
ráðlegt.
Það er mesta furða, að ekki
skuli vera þyngra hljóðið í
mönnum. Sjómenn eru orðnir
ýmsu vanir og þetta hefur í för
með sér mikið tekjutap — þeir
voru búnir að treysta á kvóta upp
á 660 þúsund tonn. Það er því
brýnt, að þessi mál verði tekin
föstum tökum — rannsaka
ástand stofnsins betur en gert
hefur verið hingað til.
Það þarf að kanna gaumgæfi-
lega hvort ekki megi auka kvóta
á síldinni vegna þessa og bæta
mönnum það þannig upp,“ sagði
Bjarni Bjarnason ennfremur.
Þórarinn Ólafsson á Albert.
Örn Erlingsson
á Erni.
Handahófs-
kennd
vinnubrögð
„Vinnubrögð hafa verið handa-
hófskennd og gagnrýnisverð. Hér
er allt of mikið í húfi til að svo
megi standa að málum. Það þarf
að rannsaka loðnustofninn mun
betur og oftar,“ sagði Pétur
Stefánsson, skipstjóri á Pétri
Jónssyni RE.
„Ég er í sjálfu sér sammála
því, að minna er af loðnu en verið
hefur en ég held að mun meira sé
af loðnu norður af landinu en
fiskifræðingar telja, enda komst
Eggert Þorfinnsson
á óla Óskars.
rannsóknarskipið ekki yfir stór-
an hluta svæðisins vegna íss. Svo
virðist sem ekki sé gert ráð fyrir
að loðna sé undir ísnum en dæmi
eru fyrir að svo hafi verið.
Þá tel ég, að of seint hafi verið
farið af stað til veiða þegar
loðnan var feit og góð, og skip frá
EBE-ríkjum voru við veiðar. Það
er anzi hart að þurfa að sæta
svona vinnubrögðum. Það var
búið að ákveða kvóta, sem síðan
reyndist ekki á rökum reistur að
mati fiskifræðinga.
Framundan? Við tökum þetta
sem heimilt er, síðan veiðum við
þessar síldarpöddur sem eru til
skiptanna. Hvað síðan tekur við
veit enginn — sjálfsagt enn ný
boð og bönn frá ráðuneytinu,“
sagði Pétur ennfremur.
Brjálæði að
senda skip í
janúar — þörf
að senda
skip nú þegar
„Það er slæmt að fá þetta á
sig, en það bendir allt til að
minna sé af loðnu á miðunum.
Hitt er svo, að mér finnst hálf
illa að þessum málum staðið —
það er svo mikið í húfi,“ sagði
Þórarinn Ólafsson á Albert GK.
„Það er ekki nógu vel fylgst
með loðnustofninum. Það getur
svo sem vel verið að einhvers
staðar sé loðna. Um það get ég
ekki spáð — og svo kann einnig
að vera að hún sé ekki til staðar.
Ef til vill kann hún að vera
dreifð fyrir Norðurlandi. Það
væri betur.
Það er því brýn nauðsyn að
senda skip til rannsókna á
ástandi stofnsins. Það er brjál-
æði að gera það í janúar — það
er þörf að senda skip nú þegar.
Raunar þvrfti skip að vera við
leit nú.
Þetta er kjaftshögg en sjálf-
sagt verður að taka þessu eins
og hverju öðru hundsbiti. Ekki
viljum við sjómenn verða til
þess að veiða síðustu loðnuna.
Hvað framundan er nú? Ég
veit svo sem ekki. Ollum þesum
veiðum er nú orðið fjarstýrt úr
Reykjavík. Það er náttúrulega
vetrarvertíðin, svo þessi síld
sem er til skiptanna og auðvitað
er hvorki fugl né fiskur. En
verkefni eru nóg fyrir þessi
skip,“ sagði Þórarinn ennfrem-