Morgunblaðið - 29.10.1980, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 1980
Umræðu um skýrslu samKönguráðherra, varðandi
FluKleiðamál, var fram haldið í Sameinuðu þin>íi í gær.
Umræðan verður lauslega rakin hér á eftir.
Alþýðubandalagið
vill ríkisrekstur
\rni Gunnarsson (A) sasði
vanda Flugleiða drana dám af þeim
vanda, sem ríkti í flugheiminum
öilum, og þá fyrst og fremst á
N-Atlantshafsflunleiðinni. Árni
sanði þetta fluK hafa fært í þjóðar-
húið, á liðnum áratUKum, mikinn
auð, eins o({ samKönKuráðherra
hefði réttileKa komist að orði; og
svo miklir hajjsmunir væru í húfi
fyrir einstaklinjja ok heildina, að
nauðsynleKt væri að koma FIuk-
leiðum til aðstoðar við ríkjandi
aðstæður. Vonandi fá sjónarmið
sam(;ön(furáðherra að ráða í ríkari
mæli ferð í ríkisstjórninni, sa(jði
Friðrik Sophusson:
sem hann sagði sýna, að Alþýðu-
bandalagið hefði séð fyrir það, er
nú væri á daginn komið.
Ólafur Ragnar gagnrýndi for-
ystumenn Flugleiða fyrir að liggja
á upplýsingum og láta í té rangar
upplýsingar, er vörðuðu stöðu og
hag félagsins. Hann endurtók í því
sambandi margt af því, sem hann
hafði sagt í efri deild í fyrradag, og
rakið er á þingsíðu Mbl. í gær. M.a.
upplýsingar tímaritsins Flight um
verðmæti flugvéla, sem hann sagði
ganga þvert á upplýsingar Flug-
leiða um verðmæti flugkosts fé-
lagsins. Annaðhvort skortir upp-
lýsingar frá félaginu, sagði Ólafur,
eða þær eru rangar. Hvar er nú
pólitík Alþýðuflokks um rannsókn-
arnefndir þingsins og rannsóknar-
blaðamennsku, spurði hann.
Þá sagði ÓlRGr að samband
Flugleiða við Seabord World flug-
Ein af vélum Flugleiða. sem byggt hafa loftbru milli eylands
okkar og umheimsins. Framtíð millilandaflugsins heíur verið
umfangsmesta umra-ðuefni á Alþingi undanfarna daga — og
raunar framtíð Flugleiða. í Ijósi breyttra rekstraraðsta-ðna.
Eyland og
umheimur:
Hversvegna
var Flugleiðafrumvarp-
ið lagt fram i efri deild?
Árni, en ekki Alþýðubandalagið,
sem stefnir að því að standa á
rústum Flugleiða og reisa þar
ríkisflugfélag. Menn geta rétt gert
sér í hugarlund í hvers konar
álögur á skattborgara verður
stefnt, ef Alþýðubandalaginu tekst
að koma öllum flugrekstri í hendur
ríkisins.
Árni Gunnarsson sagði stöðu
Flugleiða það alvarlega, að aðeins
skjót viðbrögð ríkisvaldsins kæmu
að gagni. Ef ekki verður hægt að
gera hreint fyrir dyrum gagnvart
viðskiptaaðilum F'lugleiða, varð-
andi skuldir vegna eldsneytis og
samskipta við önnur flugfélög, má
búast við, að millilandaflug okkar
eigi skammt í lyktir sínar. Þess-
vegna er seinagangur sá, sem
Alþýðubandalagið á fyrst og
fremst sök á, alls ekki verjanlegur.
Árni sagðist þó andvígur því að
Atlantshafsflugi í þeirri mynd,
sem verið hefði, yrði haldið áfram.
Olíukostnaður myndi að líkindum
hækka um 25 til 30% á næsta ári.
Fyrrum samstarfsaðilar í Luxem-
borg hygðust sjálfir taka upp þetta
flug á næsta ári, ef aðstæður
leyfðu, og þá með blandað farm- og
farþegaflug. Stór og ríkisst.vrkt
samkeppnisfélög fjölmennari þjóða
hefðu þá samkeppnisaðstöðu, sem
erfitt yrði að mæta. Bjarga þyrfti
öðrum þáttum i starfsemi félags-
ins.
Árni sagði það brigðir á þeim
stjórnvaldafyrirheitum, sem gefin
hefðu verið, er sameining flugfé-
laganna var knúin fram, að veita
Iscargo samkeppnisflug á leiðinni
Holland-ísland. Sameining flugfé-
laganna á sumri til væri og e.t.v.
upphafið að þeim innanhússvanda,
sem búið hefði um sig innan
Flugleiða.
Við getum deilt um þetta mál í
hið óendanlega, sagði Árni, en við
skulum gæta að því, að sú hjálp,
sem veita á, þarf að koma í tæka
tíð, ef að gagni á að verða. Okkur er
treyst til þess að leggja okkar af
mörkum til að tryggja nauðsyn-
legar flugsamgöngur innanlands og
við umheiminn.
Við sjáum
hættuna fyrir
Ólafur Ragnar Grimsson (Abl)
sagði að ofstæki í garð Alþýðu-
bandalagsins að bera það sök í
Flugleiðamálum. Talsmenn þess
hefðu þvert á móti bent á hættuna
sem nú er komin á daginn, þegar
fyrir tveimur árum. Rangt væri að
Alþýðubandalagið stefndi að því að
koma öllum flugrekstri undir ríkið.
Síðan las Ólafur Ragnar kafla úr
ræðum sínum fyrir tveimur árum,
Alþýðubandalagið vill ríkisrekstur á rústum
Flugleiða, sagði Árni Gunnarsson
fram ákveðna aðstoð í því sam-
bandi, sem kæmi fram í frumvarpi,
sem lagt hefði verið fram í efri
deild. En af hverju velur fjármála-
ráðherra að leggja málið fram í
efri deild en ekki neðri deild? Nú er
það vitað að formaður þeirrar
þingnefndar, sem fær málið til
meðferðar í efri deild, Ólafur
Ragnar Grímsson, er ekki líkleg-
asti maðurinn til að hraða af-
greiðslu málsins, ef skoðuð er
afstaða hans til Flugleiða fyrr og
síðar. Hversvegna lagði fjármála-
ráðherra þá ekki málið fram í neðri
deild? (Hér kallaði ÓlRGr fram í:
Það eru miklu gáfaðri menn í efri
deild). Ég efa það ekki, sagði
FrSop, að það er skoðun ákveðins
þingmanns í efri deild á sjálfum
sér. En fjármálaráðherra valdi af
einhverjum ástæðum torfæruleið
fyrir frumvarpið.
ÓIRGr hefur nú þegar talað í
þrjár klukkustundir samtals um
þetta mál, væntanlega til að flýta
fyrir afgreiðslu þess. En hann
hefur ekki einu orði sagt, hvern veg
hann vill koma Flugleiðum til
aðstoðar. Hann hefur heldur ekki
talað út um það, hver sé afstaða
hans til þess stjórnarfrumvarps,
sem fram er koihið. Það hafa
Alþýðubandalagsþingmenn yfir-
leitt ekki gert.
FrSóp sagði Evrópuflugið hafa
skilað ágóða. Það væri hinsvegar
Atlantshafsflugið sem væri orsök
skuldasöfnunar Flugleiða og þeirr-
ar fjárhagsstöðu, sem fyrirtækið
væri komið í. Þá vék Fr.Sóp. að
eignastöðu félagsins, m.a. upplýs-
ingum endurskoðenda, sem eftir-
litsmenn núverandi ríkisstjórnar
hefðu kvatt til, sem hann taldi
sýna, að staðhæfingar ÓlRGr hér
að lútandi væru ekki á traustum
grunni byggðar.
FrSóp sagði sjálfstæðismenn
fylgjandi því, að veita Flugleiðum
þá fyrirgreiðslu til eins árs, sem
stjórnarfrumvarpið fæli í sér.
Þennan tíma á síðan að nýta vel,
m.a. til að móta flugmálastefnu, er
þjónar alþjóðahagsmunum, og ger-
ir okkur kleift að nýta þá menntun,
þekkingu og hæfni, sem flugfólk
okkar býr yfir. Þá spurðist FrSóp
fyrir um, hvort viðræður utanríkis-
ráðherra — á ríkisstjórnargrund-
velli — við Bandaríkjamenn um
hugsanlegan farmflutning Flug-
leiða frá Bandaríkjunum til varn-
arliðsins hér, væru með vitund og
vilja Alþýðubandalagsins, og hvað
út úr þeim viðræðum hefði komið.
Samanburður Ólafs
Ragnars rangur
Árni Gunnarsson (A) vék að
samanburði Ólafs Ragnars á mati
tiltekinna flugvéla, annarsvegar í
tímaritinu Flight, hinsvegar hjá
Flugleiðum. Sagði Árni að Ólafur
Ragnar bæri ekki saman sambæri-
legar vélar eöa tölur. í fyrra
tilfellinu væri talað um B-727-200.
í því tilfelli væri vél Flugleiða búin
öðrum og fullkomnari tækjum, en
samanburðarvélin, m.a. tölvustýri-
tækjum, sem gerði verðmæti henn-
ar mun meira. í síðara tilfellinu,
um Fokkervélar, væri Flugleiðavél-
in stærri, kraftmeiri og betur búin
tækjuum. Hér væri því verið að
bera saman ósambærilega hluti af
annarlegum ástæðum.
Þá sagði Árni að Ólafur Ragnar
vildi „frjálsa samkeppni" um
áhættuflugið, sem verulegt tap
væri á, en ríkisítök á svökölluðu
„grundvallarflugi", sem skilaði
hagnaði. En þar komi og fram
ósamræmi því Iscargo hefði verið
veitt samkeppnisflug á Evrópuleið.
Árni endurtók að hann væri
andvígur stuðningi við Atlants-
hafsflugið, sem fælist í því að
greiða niður fargjöld fyrir útlend-
inga. Hann skoraði hinsvegar á
forsætisráðherra og samgönguráð-
herra að sjá svo um, að aðstoðin við
Flugleiðir kæmi í tæka tíð, þrátt
fyrir þversumhátt Alþýðubanda-
lagsins í málinu. Of margir ættu of
mikið í húfi til þess að þversum-
hátturinn mætti ráða gangi mála.
Beiðni kom frá
Flugleiðum
Steingrímur Ilermannsson.
samgönguráðherra, ber af sér sak-
ir varðandi flugleyfi Iscargo til
Hollands. Iscargo hefði flogið í
mörg ár á þessari leið fragtflug og
arðsemi þess flugs mætti auka með
blönduðu farm- og farþegaflugi.
Fugleiðir hefðu hinsvegar ekki nýtt
þessa leið um langt árabil. Hann
ber og sakir af stjórnarliðum, þess
efnis, að afgreiðsla á málum Flug-
leiða gengi of seint. Landsbankinn
hefði dregizt á að hlaupa undir
bagga með Flugleiðum, ef ríkis-
ábyrgð myndi fást. Stjórnarfrum-
varp um þessa ábyrgð og stuðning-
ur stjórnarandstöðu við það felur
það í si r, að slík ábyrgð muni fást.
Þá mótmælti ráðherra því, að
ríkisstjórnin hefði að fyrra bragði
óskað þess, að Atlantshafsfluginu
yrði haldið áfram. Það voru Flug-
leiðir sem fóru fram á aðstoð á
fundi 23. marz sl. sem Örn Johnsen,
stjórnarformaður þeirra sat, sagði
ráðherra.
Ólafur Ragnar tók aftur til máls.
Hann leiðrétti fyrri tölur um verð-
mæti flugvéla. Ennfremur GarAar
Sigurðsson (ABL), fyrrum flug-
ráðsmaður, sem sagði m.a., að hann
væri andvígur þeirri stefnubreyt-
ingu, sem fælist í farþegaieyfi
Iscargo, og gengi á það, sem
ákveðið var með sameiningu Loft-
leiða og Flugfélags íslands.
félagið væri skuggamál, sem e.t.v.
fengist aldrei upplýst.
ÓIRGr sagði, að ef réttar væru
upplýsingar Árna Gunnarssonar
um hugsanlegt Atlantshafsflug
Flugleiða í Luxemborg, væri sú
aðstoð, sem nú væri ráðgerð við
Atlantshafsflug F'lugleiða „bara
grín“.
Hann sagðist ekki sjá ástæðu til
að svara fyrri ræðu Friðriks Sóph-
ussonar (S), sem hann hefði að vísu
ekki hlustað á, en samkvæmt
endursögn Mbl. hefði hann talað
meira um sig, Ólaf Ragnar, en
málefni Flugleiða.
ÓIRGr sagði stefnu Alþýðu-
bandalagsins í þessu máli fjór-
þætta: „1. að tryggja Islendingum
móguleika á ódýru flugi tii útlanda,
2. að skilja á milli áhættuflugsins
og svokallaðs grundvallarflugs
(Evrópuflugs og innanlandsflugs),
3. að almannavaldið fái meiri ítök í
flugrekstrinum og 4. að starfsfólk
Flugleiða fengi meiri eignarhlut í
félaginu.
Atlantshafsflugið
orsök vandans
Guðmundur Þórarinsson (F)
sagði m.a. að hafa yrði í huga
nokkur meginatriði. í fyrsta lagi að
Flugleiðir hefðu búið við vaxandi
vanda í rekstri á sl. 2 til 3 árum,
vegna breyttra rekstraraðstæðna.
Þetta væri ekki bundið við íslensk-
an flugrekstur, enda færu vélar á
degi hverjum yfir Atlantshafið
með samtals 17.000 auð sæti. í öðru
lagi væru heimatilbúin vandamál,
átök starfshópa innan Flugleiða,
þai sern jafnvel hálaunahópar
hefðu virst reiðubúnir að taka
„fyrirtækið kverkataki". í þriðja
lagi væru uppi efasemdir um rétt-
mæti sumra ákvarðana, sem
stjórnendur hefðu tekið, en auðvelt
væri að vísu að vera vitur eftir á.
Allt þetta, einkum þó olíuhækkun
og breyttar rekstraraðstæður,
hefðu valdið gífurlegum halla á
rekstri félagsins sl. þrjú ár.
Guðmundur sagði, að ef ráðgerð-
ur styrkur frá Luxemborg og Is-
landi dygði til að komast yfir
vandann, væri sjálfsagt að halda
þessu flugi áfram. Hinsvegar væri
ljóst að Flugleiðir væru ekki í
stakk búnar til að búa við áfram-
haldandi hallarekstur.
Guðmundur sagði gagnrýni á
óáreiðanleika í áætlunum Flug-
leiða ekki sanngjarnan í öllum
tilfellum. Erfitt væri að meta
fyrirfram tekjur félagsins, þ.e. eft-
irspurn á flugleið, sem væri háð
svo mikilli óvissu sem Atlantshafs-
flugið. Hann sagði Evrópuflugið
skila verulegum hagnaði, innan-
landsflugið stæði í halla og hann
aftur erfiðri fjárhagsstöðu fyrir-
tækisins. Guðmundur varaði við
því að aðstoðin við Flugleiðir yrðu
dregin um of, þó sjálfgefið væri að
nauðsynlegar upplýsingar væru til
staðar.
Sjálfstæðismenn
samþykkir
Friðrik Sóphusson (S) sagði
rangt hjá Ólafi Ragnari að fyrri
ræða sín hefði einkum fjallað um
persónu hans, þ.e. Ólafs Ragnars.
Hitt væri líklegra að Ólafur Ragn-
ar hefði ekki séð annað í endursögn
Mbl. en það, sem fjallaði um hann
sjálfan.
Friðrik sagði að það hefði verið
að frumkvæði ríkisvaldsins að
Flugleiðir endurskoðuðu afstöðu
sína um að hætta við Atlantshafs-
flugið, en það flug hefði orsakað
núverandi fjárhagsstöðu fyrirtæk-
isins. Ríkisstjórnin hefði boðið
Ragnhildur
á Alþingi
Ragnhildur Helgadóttir,
fyrsti varaþingmaður Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík,
tók í gær sæti Geirs Hall-
grímssonar á Alþingi, sem er
á förum utan í opinberum
erindagjörðum. Þá sitja 8
varaþingmenn á Alþingi.