Morgunblaðið - 29.10.1980, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 1980
19
soelueyjar suöur í höfum
Kanaríeyjar ganga undir auknefninu saelueyjar
— og þær rísa svo sannarlega undir því.
Kanaríeyjar eru sá staður, þar sem erill hversdagsins lfður
hvað fljótast úr kroppnum ofan í heitan sandinn á
sólvermdum baðströndunum.
A undanfömum 11 árum hafa þúsundir íslendinga sótt til
,,sælueyja“ endunýjaðan andlegan og líkamlegan þrótt
— og stytt um leið svartasta skammdegið.
Kanaríeyjabæklinginn og allar frekari upplýsingar fáið þið hjá okkur.
FLUGLEIÐIR • URVAL • Samvinnuferdir • ÚTSÝN
Sími 27800. Sími 26900 Z.ð/ICfSý/1 Ílf. Sími 27077 Sími 26611
Brottfarir í vetur:
19. des. - 9. jan. - 30. jan. - 20 feb.
13. mars. - 3. apríl - og 24. apríl.
Verðfrákr. 495.000,-
Hagstæðir greiðsluskilmálar:
Utborgun 1/3 fargjalds og eftirstöðvar
á 4 mánuðum.
Söfnuðu 160 þús. kr. fyrir Afríkusöfnunina
I>ossi tcla'siUni hópur harna á
myndinni er úr Fossvojfsskóla, en
krakkarnir stóóu saman að þvi
um síóustu helgi aó halda hluta-
vcltu til styrktar hjálparstarfi
Rauóa krossins vegna hungurs-
neyðarinnar í Afríku. Hér fer á
eftir fréttafrásögn einnar stúlk-
unnar úr hópnum. Evu Hjarkar:
„Við byrjuðum á að tala um
ástandið í Afríku. Okkur datt í hug
að hjálpa þeim í Afríku. Rauði
krossinn sendi okkur bréf og það
var lesið fyrir hópinn. Við skrifuð-
um bréf og fjölrituðum bréfin og
sendum þau í húsin. Sumir teikn-
uðu auglýsingaspjöld. Sumir fóru
líka í búðir og við fengum rúmlega
700 hluti.
Margir komu á tombóluna hjá
okkur og við skreyttum krukkur og
settum kökur í krukkurnar. Við
söfnuðum 160 þús. krónum."
Kostnaður við félagsmála-
pakkann greiddur af ríkinu
ALLMIKLAR tafir urðu á undir-
ritun kjarasamninganna milli ASÍ
og VSt í fyrrakvöld. Samningarnir
voru undirritaðir um miðnætti.
þótt aðilar væru boðaðir til sátta-
semjara klukkan 18 til undirritun-
ar samninga. I>ennan sama dag
kom fram yfirlýsing rikisstjórnar-
innar um félagsleg atriði. félags-
málapakkinn svonefndi og olli birt-
ing hans m.a. þessum töfum i
hartnær 6 klukkustundir.
Eftir að „pakkinn" hafði verið
lagður fram, vildu aðilar fá skýr-
ingar á ýmsum atriðum hans, m.a.
vildu vinnuveitendur fá við því svör,
hver yrði látinn borga kostnaðinn
við framkvæmd hans. Kom sendi-
nefnd þriggja fulltrúa ríkisstjórnar-
innar í húsakynni sáttasemjara-
embættisins og ræddi bæði við
fulltrúa VSÍ og ASÍ um félagsmála-
pakkann. Fulltrúarnir voru Þórður
Friðjónsson, hagfræðingur forsæt-
isráðuneytisins, Þröstur Ólafsson,
aðstoðarmaður fjármálaráðherra og
Halldór Ásgrímsson, alþingismaður
og varaformaður Framsóknar-
flokksins.
Samkvæmt heimildum, sem
Morgunblaðið hefur aflað sér, lof-
uðu fulltrúar ríkisstjórnarinnar
fulitrúum vinnuveitenda því, að
atvinnuvegirnir myndu á engan hátt
gjalda félagsmálapakkans, heldur
myndi kostnaður af framkvæmd
hans einungis greiddur af ríkinu.
Óskilatöskur
í Lödu-Sport?
UNGUR menntaskólanemi varð í
gær fyrir því óláni, að setja tvær
töskur inn í bifreið, er hann hélt
vera bifreið foreldra sinna. Svo
reyndist þ<> ekki vera. heldur var
hifreiðin sömu gerðar, og eru
töskurnar því týndar.
Bifreiðin sem hér um ræðir, er
gulbrún að lit, af gerðinni Lada-
Sport. Stóð hún í stæði við
Tryggvagötu í Reykjavík um
klukkan 15 í gær. Hélt pilturinn
bifreiðina vera í eigu fjölskyldu
sinnar, og setti því tvær töskur í
aftursæti hennar, skólatösku og
Hummel-íþróttatösku.
Ökumaður eða eigendur bifreið-
arinnar eru vinsamlega beðnir að
hringja í síma 71672, eða að hafa
samband við miðborgarstöð lög-
reglunnar, en töskumissirinn er
mjög tilfinnanlegur fyrir hinn
unga mann sem skiljanlegt er.
Athugasemd frá Guð-
rúnu Helgadóttur
Á fundi borgarstjórnar 16.10. var
til afgreiðslu svohljóðandi tillaga
sem ég lagði fram:
„Um nokkurt skeið hefur nokkr-
um matstofum í borginni, sem fylgt
hafa gefnum reglum um aðbúnað og
framreiðslu, verið leyft að selja létt
vín með mat. Hefur þessi háttur
gefist vel og mælst vel fyrir. Nú
hefur ein þessara matstofa farið
fram á að fá að selja sterka drykki,
þ.e. koníak og viský, á þeim forsend-
um að margir kjósi að drekka þessar
tegundir að máltíð lokinni.
Borgarstjórn telur ekki ástæðu til
að rýmka leyfisveitingar þeirra
veitingastaða, sem fengið hafa leyfi
til sölu léttra vína, eða annarra
sambærilegra veitingastaða fram-
vegis."
Tillögunni var vísað frá.
Frásögn Morgunblaðsins af með-
ferð málsins var á þann veg, að ekki
verður við unað. Fyrirsögn fréttar-
innar var álit Elínar Pálmadóttur á
tillögunni: „Ein allsherjar hringa-
vitleysa“. Um það geta menn deilt,
en persónulegt skítkast I stjórnmál-
um læt ég öðrum eftir. Ég geri ekki
kröfu til þess, að störf mín í þágu
borgarbúa verði í hávegum höfð í
Morgunblaðinu, en einhver takmörk
hljóta að finnast fyrir rangfærslum
blaðsins á þeim.
Þess skal getið til gamans og sem
dæmi um val frétta, að á þessum
sama fundi borgarstjórnar var sam-
þykkt tillaga sem ég talaði fyrir um
300 milljóna framlag borgarsjóðs til
verndaðs vinnustaðar, sem Öryrkja-
bandalag íslands er að hefja fram-
kvæmdir á. Með ágætri viðbótartil-
lögu Alberts Guðmundssonar var
tillagan samþykkt samhljóða. Þetta
þykja fréttamönnum Morgunblað-
sins minni fréttir en yfirlýsingar
Elínar Pálmadóttur um, að tillaga
mín um takmörkun vínveitingaleyfa
sé „ein allsherjar hringavitleysa".
Ég tel sjálfsagt að borgarbúar fái að
sjá þær tillögur, sem Morgunblaðið
afgreiðir þessum orðum, svo að þeir
geti sjálfir tekið afstöðu með þeim
eða móti.
Meiri sanngirniskröfu get ég víst
ekki gert til Morgunblaðsins.
Reykjavík 28.10. 1980
Guðrún Ilelgadóttir
borgarfulltrúi.
Aths. ritstj.:
Þessi athugasemd Guðrúnar
Helgadóttur, borgarfulltrua Al-
þýðubandalagsins, er furðuleg. Hún
sakar Morgunblaðið um „rangfærsl-
ur“ og segir að frásögn Morgun-
blaðsins af þessu máli sé á þann veg,
að „ekkí verði við unað“. Eina
efnislega athugasemd Guðrúnar
Helgadóttur er sú, að í fyrirsögn á
frétt Morgunblaðsins eru sett um-
mæli Elínar Pálmadóttur, vara-
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins!
Guðrún Helgadóttir ræður ekki
fyrirsögnum í Morgunblaðinu og
getur ekki gert nokkra kröfu til þess
að fyrirsögn sé fremur valin úr
hennar ummælum en annarra borg-
arfulltrúa. Hún getur verið ósam-
mála þeirri skoðun Elínar Pálma-
dóttur að tillaga hennar sé „ein
allsherjar hringavitleysa", en þótt
hún sé því ósammála getur hún ekki
haldið því fram, að þessi skoðun
varaborgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins sé „rangfærsla" á stað-
reyndum.
Guðrún Helgadóttir segir, að ekki
sé hægt að una við meðferð Morgun-
blaðsins á þessu máli. Morgunblaðið
ver 25 línum til þess að skýra frá
sjónarmiðum Guðrúnar Helgadótt-
ur. Hún gerir enga athugasemd við
þá frásögn. Morgunblaðið ver 12
línum til þess að skýra frá sjónar-
miðum Björgvins Guðmundssonar.
Hins vegar ver Morgunblaðið aðeins
15 línum til þess að skýra frá
skoðunum Davíðs Oddssonar, borg-
arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, og 8
línum til þess að skýra frá sjónar-
miðum Elínar Pálmadóttur. Morg-
unblaðið veitir Guðrúnu Helgadótt-
ur einni meira rými en tveimur
fulltrúum Sjálfstæðisflokksins! Það
fer nú að verða álitamál hver getur
ekki unað við hvað.
Guðrún Helgadóttir kvartar und-
an því, að Morgunblaðið meti ekki
mikils aðra tillögu, sem hún hafi
flutt og verið samþykkt með viðbót-
artillögu frá Albert Guðmundssyni.
Frétt um þessa samþykkt birtist í
Morgunblaðinu hinn 17. október á
bls. 12.
Athugasemdin almennt vekur
hins vegar spurningar um það,
hvort ekki sé völ á skýrari hugsun í
meirihluta borgarstjórnar Reykja-
víkur en þeirri, sem fram kemur í
þessari athugasemd Guðrúnar
Helgadóttur.