Morgunblaðið - 29.10.1980, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 1980
23
Minning:
Gunnar Sveinn
Hallgrímsson
Fæddur 14. nóvember 1947.
Dáinn 17. október 1980.
I dag verður minningarathöfn
míns kæra mágs og vinar Gunnars
Sveins Hallgrímssonar sem nú er
horfinn okkur svo sviplega yfir
móðuna miklu í blóma lífsins.
Þó erfitt sé að sætta sig við
tilhugsunina um að Gunnars njóti
ekki lengur við, langar mig að
minnast þess góða drengs með
nokkrum orðum.
Gunnar var fæddur Reykvíking-
ur, sonur hjónanna Hallgríms
Magnússonar múrarameistara frá
Múlakoti í Lundarreykjadal og
konu hans Björnýar Hall úr Garð-
inum.
Gunnar lauk gagnfræðaprófi
frá Vesturbæjaskólanum 1964 en
hóf síðan múraranám hjá föður
sínum og lauk sveinsprófi frá
Iðnskólanum 1968 og síðan prófi
frá meistaraskólanum í Reykjavík
1972.
Arið 1969 kvæntist Gunnar
Margréti Eiríksdóttur og áttu þau
tvær dætur saman, Önnu Mar-
gréti f. 21.9.70 og Dagbjörtu Erlu
f. 13.8.72. Enda þótt leiðir þeirra
Gunnars og Margrétar skildu,
voru þau ávallt góðir vinir og létu
velferð barnanna ráða gerðum
sínum.
Gunnar vann mikið með föður
sínum í múrverki, voru þeir mjög
samrýndir og stofnuðu saman
múrverktakafyrirtæki sem þeir
ráku í nokkur ár. Gunnar var
afburða laginn múrari og ein-
kenndust verk hans af vandvirkni
og smekkvísi, bera því vitni fjöl-
margir mannabústaðir sem hann
vann við.
Gunnar var einstaklega lund-
góður maður, mannblendinn og
hafði til að bera mikinn lífsþrótt,
þannig að hvar sem hann kom
saman með öðrum mönnum var
hann miðpunktur í sínum hópi.
Fráfall Gunnars er mikill miss-
ir ungum dætrum hans og fjöl-
skyldu. Verður sæti hans í hugum
þeirra sem hann þekktu seint
fyllt. Ég færi ástvinum hans
hlýjar samúðarkveðjur og bið
þeim guðs blessunar.
Sæþór L. Jónsson
Mig langar að minnast ástkærs
frænda míns, Gunnars Sveins
Hallgrímssonar, er lést af slysför-
um 17. október sl.
Gunnar var fæddur 14. nóvem-
ber 1947 og uppalinn í Reykjavík.
Foreldrar hans eru þau mætu
hjón Björný Hall og Hallgrímur
Magnússon. Gunnar var fæddur
tvíburi og hinn hét Þorleifur Þór
en dó 6 mánaða. Gunnar ólst upp í
stórum systkinahópi og unnu hon-
um bæði systkini og allir sem
kynntust honum, hans framkomu
og glaðværð stóðst enginn.
Arið 1965 kynntist hann Mar-
gréti Eiríksdóttur og gengu þau í
hjónaband í desember 1969. Þau
eignuðust Önnu Margréti f. 21.
september 1970 og síðan Dagbjört
Erlu f. 13. ágúst 1972.
Gunnar var fágætur maður,
aldrei hef ég þekkt metnaðarlaus-
ari mann sjálfum sér til handa en
t
Elsku sonur okkar og bróöir
HAFSTEINN RAGNARSSON,
varö bráökvaddur á heimili sínu laugardaginn 25.10.1980.
Ragnar Gíslason,
Kristín Kristjánsdóttir og systkini.
t
Minningarathöfn um móöur mína og tengdamóður,
STEINUNNI SIGURDARDOTTUR,
Laugalæk 1,
veröur fimmtudaginn 30. október í Laugarneskirkju kl. 15.00.
Jaröaö verður aö Hofi í Öræfum, laugardaginn 1. nóvember kl.
14.00.
Sigrún Þorsteinsdóttir,
Viggó Jósefsson.
t
Minningar- og kveöjuathöfn um móöur mína,
GUÐRÚNU GUDMUNDSDOTTUR,
fer fram í Fossvogskirkju fimmtudaginn 30. október kl. 13.30.
Útför hennar veröur gerö frá Seyöisfjaröarkirkju laugardaginn 1.
nóvember og hefst kl. 13.30.
Fyrir hönd systkina minna,
Hólmfríður Gísladóttir.
t
Innilegt þakklæti til allra þeirra fjær og nær er sýndu okkur samúö
og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur,
tengdafööur, afa og bróður,
GÍSLA M. GÍSLASONAR,
stórkaupmanns,
Höfðavegi 20, Vestmannaeyjum.
Guðrún V. Sveinbjarnardóttir,
Haraldur Gíslason, ólöf Óskarsdóttir,
Rannveig Gisladóttir, Hjörtur Hermannsson,
Kristin Gísladóttir, Gunnlaugur Ólafsson,
Helga Gísladóttir, Geir Sigurlásson,
og barnabörn,
Bertha Gísladóttir.
Helga Ingibjörg
Briem — Minning
engum var meiri fögnuður af
velferð annarra, hann var í senn
hreinskiptinn og réttsýnn. Þykir
mér sem öll samsætin muni gerast
dauflegri er hann er horfinn og
svo mun öllum þykja er þekktu
hann. Það má segja að þetta
nútíma kapphlaup sem alla ætlar
að sliga hafi ekki passað honum.
Lífsgleði hans var svo mikil að
þetta hversdagslega strit og amst-
ur var honum mjög erfitt.
Gunnar elskaði dætur sínar ofar
öllu og það veit guð að þar misstu
þær mjög mikið.
Margrét og Gunnar slitu sam-
vistum i byrjun árs 1977 og sömdu
þannig um sín börn að saman
skyldu þær vera og hjá honum yfir
skólatímann. Erla systir Gunnars
hefur reynst dætrum bróður síns
sem besta móðir og hennar heimili
sem þeirra heimili. Guð blessi
hana. Aður en Gunnar lést var
henn enn sami glaðværi og góði
drengurinn og bjartsýnn á fram-
tíðina.
Allt lýtur tímans rás í lífi
manna, en. misjafnan sjó siglir
hver og einn og með ólíku hugar-
fari.
Arna Björný Arnardóttir
Nú er hann vinur okkar farinn
yfir móðuna miklu. Við stöndum
eftir höggdofa.
Ungur maður í blóma lífs síns
hrifinn burtu frá ungum dætrum
sínum. En við verðum að trúa að
þetta eigi sinn tilgang. Gunnar
var fæddur 14. nóvember 1947 og
var því tæplega 33 ára gamall.
Foreldrar hans eru hjónin Hall-
grímur Magnússon múrarameist-
ari og Björný Hall. Hann var alinn
upp í stórum systkinahópi. Gunn-
ar var tvíburi, bróðir hans lést
nokkurra mánaða gamall. Þau eru
fimm systkinin sem horfa á eftir
góðum bróður sínum. Hann fetaði
í fótspor föður síns og lærði
múraraiðn. Þeir feðgar störfuðu
mikið saman.
Leiðir okkar mættust fyrst þeg-
ar hann kynntist konu sinni árið
1965. Við höfum því þekkt hann í
15 ár. Þau kynni okkar voru á
allan hátt mjög ánægjuleg. Hann
var góður félagi, léttur í lund og
hrókur alls fagnaðar. Hann giftist
árið 1969 Margréti Eiríksdóttur og
þau eignuðust dæturnar Önnu
Margréti sem nú er 10 ára og
Dagbjört Erlu sem er 8 ára. Nú
eiga þær um sárt að binda.
Gunnar var einstakur faðir. Svo
þolinmóður og natinn að orð fór
af. Leiðir þeirra Margrétar skildu
árið 1977. En dæturnar voru
látnar finna eins lítið fyrir skiln-
aðinum sem verða mátti. Það ætti
að vera mörgum fyrirmynd sem
skilja að skiptum, einingin um
börnin. Þær voru ekki skildar að.
Þær dvöldu því saman jafnt hjá
föður sínum með móður.
Við hjónin áttum því láni að
fagna að umgangast Gunnar bæði
með dætrunum og án þeirra.
Alltaf var hann í léttu skapi,
hvernig sem á stóð. Börnin okkar
munu sakna hans. Hann hafði
alltaf tíma fyrir börn. „Já vina
mín,“ var algengt orðalag er hann
svaraði dætrum sínum.
Guð lýsi honum leiðina, Guð
varðveiti dætur hans og þerri tár
þeirra. Við biðjum líka fyrir for-
eldrum hans, systkinum og öðrum
vandamönnum.
Far þú í friði — friður Guðs þig
blessi.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Sigurbjörg Eiríksdóttir,
Gunnar Sigfússon.
I dag þegar kveðjubæn og minn-
ingarorð verða flutt við líkkistu
Helgu Ingibjargar Briem í Dóm-
kirkjunni í Reykjavík fylgja þakk-
arorð eftirlifandi bróður, ættingja
vina og fjölmargra fyrrverandi
starfsfélaga fyrir samfylgd lið-
inna ára.
Helga Ingibjörg Briem fæddist í
Borgarnesi 7. marz 1898 og varð
lífsferill hennar rösk 82 ár, er hún
andaðist 18. október síðastliðinn í
sjúkrahúsi hér í borg. Móðir
hennar var Sigríður Eggertsdóttir
Briem. Hennar faðir var Eggert
Briem sýslumaður Skagfirðinga,
síðast með aðsetur að höfuðbólinu
Reynistað.
Faðir Helgu Ingibjargar var
Helgi Eyjólfur Jónsson verzlunar-
stjóri, fyrst í Vestmannaeyjum í 8
ár, síðan kaupmaður í Reykjavík í
5 ár og verzlunarstjóri síðan í
Borgarnesi unz hann fluttist til
Reykjavíkur og var síðustu ár
ævinnar bankaritari í Landsbanka
íslands.
Helga Ingibjörg stundaði nám í
Kvennaskólanum á Blönduósi 1914
til 1917. Hóf síðan verzlunarnám í
Kaupmannahöfn 1919 til 1923.
Réðist hún þá til skrifstofu-
starfa hjá Heildverzlun Garðars
Gíslasonar í Reykjavík og vann
þar til 1930. Þá stundaði hún um
eins árs skeið nám í Heinrich
Pollack’s skóla í Berlín og lagði
stund á þýzk verzlunarbréf. Eftir
það vann hún um skeið í skrifstofu
hjá R. Bostrom í Leith í Skotlandi.
Þann 1. marz 1934 réðist hún í
þjónustu Útvegsbanka íslands og
starfaði í útibúi bankans í Vest-
mannaeyjum til 30. marz 1937.
Sama ár 1. apríl hóf hún störf í
aðalbankanum í Reykjavík og
vann þar allt til þess að hún lét af
störfum af heilsufarsástæðum 1.
október 1958.
I Útvegsbankanum starfaði
Helga Ingibjörg í bréfritunardeild
bankans, enda hafði hún aflað sér
góðrar menntunar og reynslu í
þeirri starfsgrein áður hún kom
til starfa í bankanum.
Helga Ingibjörg var skylduræk-
in og kappsöm við vinnu og gekk
ávallt heilshugar til starfa. Hún
ávann sér með góðri framkomu
traust yfirboðara og starfsfélaga.
Hún tók mikinn og trúverðugan
þátt í félagsstörfum bankamanna
af sönnum áhuga og ósérhlífni.
Helga Ingibjörg var trygg í
vináttu og velhugsandi í garð
þeirra, er hún hafði kynni af og
naut hún þess ríkulega á síðustu
æviárum sínum.
Nágrannar hennar, frú Ingveld-
ur og Steingrímur Thorsteinsson,
reyndust henni tryggðartröll í
síðustu og sárustu veikindum
hennar. Avallt með útréttar hend-
ur til hjálpar og aðstoðar hvenær
sem þörf var.
Með slíkri alúð annaðist Ing-
veldur um velferð Helgu Ingi-
bjargar að hún sat við sóttarsæng
hennar þegar skilnaðarstundin
rann upp.
Af tólf systkinum er einn bróðir
Helgu Ingibjargar á lífi, Páll
Helgason, 76 ára, fyrrum veitinga-
maður í Stykkishólmi. Með þeim
systkinum var ávallt góð og heil-
steypt vinátta.
Eldra starfsfólk Útvegsbanka
Islands á margar bjartar og
hugljúfar minningar frá sam-
starfi við Helgu Ingibjörgu í
bankanum og áframhaldandi
kynnum síðar. Þær minningar
verða ekki afmáðar.
Ég votta eftirlifandi bróður,
ættingjum og vinum Helgu Ingi-
bjargar Briem hluttekningu og
innilega samúð.
Adolf Björnssön.
GLÆSILEGIR - STERKIR - HAGKVÆMIR
Lítum bara á hurðina: Færanleg fyrir
hægri eða vínstri opnun, frauðfyllt og
níðsterk - og í stað fastra hillna og
hólfa, brothættra stoða og loka eru
færanlegar fernu- og flöskuhillur úr
mólmi og laus box fyrir smjör. ost, egg,
álegg og afganga, sem bera má beint
Dönsk gæði með VAREFAKTA, vottorðl
dönsku neytendastofnunarinnar DVN
um rúmmól. einangrunargildi, kæli-
svið, frystigetu, orkunotkun og
aðra eiginleika.
Margar stærðir og litir þeir sömu
og ó VOSS eldavélum og viftum:
hvítt-gulbrúnt-grænt-brúnt.
Einnig hurðarammar fyrir lita- eða
viðarspjöld að eigin vali.
GRAM BÝÐUR EINNIG 10 GERDIR AF
FRYSTISKÁPUM OG FRYSTIKISTUM
JFOniX
HATÚNI 6A • SIMI 24420
WIKA
Allar stæröir og geröir.
SfiiuHfflawuisojio'
Vesturgotu 16 sími 13280
t
Lokaö vegna jarðarfarar
Skrifstofur okkar veröa lokaöar eftir hádegi í dag,
miövikudaginn 29. október vegna minningarathafnar
um
GUNNAR HALLGRÍMSSON,
múrarameistara.
EIGNAVER SF.
MALFLUTNINGS- OG LÖGFRÆÐISTOFA,
SUÐURLANDSBRAUT 20.