Morgunblaðið - 29.10.1980, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 1980
25
fólk í
fréttum
Forseta-
íþrótt (?)
+ Hann Ronald litli Rea-
gan er alltíður gestur á
þessari síðu, um þessar mund-
ir, en minna mæðir á ekta-
kvinnu hans Nancy. Þessi
fréttamynd var tekin fyrir
skömmu um borð í einkaflug-
vél forsetaefnisins, sem
hann flcngist í landshorna
á milli í kosningabaráttunni
fyrir forsetakosningarnar. A
myndinni er frú Nancy að
leika nokkurs konar „app-
elsínu-keiluspil". Hún fann
upp á þessari íþrótt fyrir
skömmu, svona til að drepa
tímann. Lætur hún appel-
sínur bruna eftir gangi
flugvélarinnar. Ef Nancy er
ekki með á kosningaferða-
lögunum, sem Ronald Rea-
gan fer í þotunni, þá ku hann
sjálfur leika þessa nýju íþrótt
um borð í flugvélinni.
517 gramma barn!
+ Þetta reifabarn í fangi móður sinnar er
minnsta barn, sem fæðst hefur í Japan til þessa.
Barnið sem er stúlkubarn vóg 517 grömm er hún
fæddist, í janúarmánuði sl. Tvíburasystir hennar dó.
Tvíburarnir fæddust fyrir tímann og var litla 517
gramma stúlkan, sem nú hefur hlotið nafnið Haruka
Suzuki, strax sett í hitakassa. Þar var hún samfleytt í
181 dag, en þá var hún talin úr allri hættu, fékk að
fara heim og tekur nú daglegum framförum.
„Gömlu mennirnir“
+ Það hefur oft verið sagt að Sovétríkin séu „ríki
gömlu mannanna". Þá er átt við að ráðamenn séu
allir vel við aldur. Þessi mynd, sem var tekin við
atkvæðagreiðslu í Æðstaráðinu fyrir skömmu,
virðist líka staðfesta þessi ummæli. Allir eiga
þessir menn sæti í „Politburoi“ (Stjórnmálaráð-
inu). Fyrir þá sem áhuga hafa skulu kapparnir upp
taldir. í fremstu röð frá vinstri til hægri: Andrei P.
Kirilenko ritari „flokksins" og aðal aðstoðarmaður
Brezhnevs, Mikhail A. Suslov hugmyndafræðingur
og þá sjálfur Leonid I. Brezhnev forseti. I röðinni í
miðju frá vinstri til hægri eru: Viktor V. Grishin,
formaður kommúnistaflokks Moskvuborgar, Arvid
V. Pelshe formaður framkvæmdanefndar flokksins
og Nikolai A. Tikhonov aðstoðarforsætisráðherra.
í efstu röð frá vinstri Dmitri F. Ustinov (þó varla
skyldur Pétri) varnarmálaráðherra, Yuri V. And-
ropov yfirmaður KGB leyniþjónustunnar og And-
rei A. Gromyko utanríkismálaráðherra.
Þessar vinkonur eiga heima í Breiðholtinu. Þær héldu nýlega
hlutaveltu að Hálsaseli 56 og söfnuðust 7.500 krónur sem þær hafa
afhent Rauða krossi Islands í Afríkuhjálpina. Þær heita talið frá
vinstri. Rakel Þóra Finnbogadóttir, Ásdís Margrét Finnbogadóttir og
Laufey Stefánsdóttir.
Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra bárust nýlega 12.000 krónur frá
þessum strákum, sem héldu hlutaveltu að Bakkaseli 34, Breiðholts-
hverfi. Þeir heita talið frá vinstri: Guðmundur Jóhannsson, Sigurður
Jóhannsson, Magnús Þór Jóhannsson og Hallgrímur Sveinn
Sveinsson.
Þessir strákar heita Arnar Jónsson, Rögnvaldur Jónsson og Bjarni
Árnason og eiga heima í Breiðholti. Þeir félagar héldu nýlega
hlutaveltu og söfnuðu 13 þúsund krónum, vegna Afríkusöfnunar
RKÍ. Hlutaveltan var haldin að Kríuhólum 6.
Þessar skólatelpur efndu til hlutaveltu til ágóða fyrir Afríkuh.iálp
Rauða krossins. Þær söfnuðu rúmlega 18.400 krónum. Þær heita
Guðrún Ásgeirsdóttir, Helga Finnsdóttir og Kolbrún Pálsdóttir.
•j. -
Þrír krakkar, einn vantar á myndina, efndu til hlutaveltu fyrir
Afríkuhjálp Rauða krossins. Á myndinni eru þær Hafdís Ingadóttir
og Sigrún Jóna Sigurðardóttir. Þann sem vantar er Jón Helgi
Sigurðsson. — Krakkarnir söfnuðu alls 20.000 krónum.
!
«
Þær Guðbjörg Dögg Emilsdóttir og Theódóra Emilsdóttir efndu . |
hlutaveltu til ágóða fyrir Afríkusöfnun Rauða krossins og söfnuðn |
þær rúmlega 7.000 krónum. j