Morgunblaðið - 29.10.1980, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 1980
HÖGNI HREKKVÍSI
í \ ' z \
*l
',) 4" c/ ' 4
Jli\ 'í tV p
í
i, pú K/oÐlC þéft fi'Xi UM fV12OfJ .. "
• -c--{ v./
' ' , I •pvt 1
Þér er óhætt að ræsa. þjónn!
Vertu snöKKur, séra minn!
Dýraverndunarfélög
eru fá og fámenn
Jórunn Sörensen, formaður
Sambands dýraverndunarfélaga
íslands skrifar:
„Kæra Indíana Albertsdóttir.
Þakka þér fyrir skrif þín í
Velvakanda Morgunblaðsins 25.
okt. sl. og áhuga þinn á dýra-
verndunarmálum.
Það er von að þér þyki fara
lítið fyrir opinberri umræðu um
dýraverndunarmál, það þykir
mér líka. Þær eru ekki háværar
raddirnar til verndar dýrunum.
Almenningur er mjög afskipta-
laus — það sýnir hve fá dýra-
verndunarfélög eru í landinu og
hafa fáa meðlimi.
• SædýrasafniÖ fær
6 millj., dýra-
verndunarfé-
lög 300 þús.
Stjórn Sambands dýra-
verndunarfélaga íslands hefur í
mörg undanfarin ár reynt að fá
aðbúnað dýranna í Sædýrasafn-
inu bættan en safninu lokað að
öðrum kosti. Þetta safn fær háa
styrki af almannafé — 6 milljón-
ir á síðustu fjárlögum. Að auki
fær Sædýrasafnið styrki frá
ýmsum bæjar- og sveitarfélög-
um, svo að þú sérð að rekstur
þess kostar hinn almenna skatt-
borgara líka nokkurn pening.
En um leið vil ég upplýsa þig
um framlag ríkisvaldsins til þess
að halda uppi dýraverndunar-
starfsemi um land allt. Sú upp-
hæð er einungis kr. 300.000-
Hvar er
Dýravernd-
unarfélagið?
Indiana Albertsdóttir skrifar:
„Það er tvennt sem mig langar til
að vekja máls á. Hið fyrra er
varðandi kyrkislonguna sem ný-
komin er í Sædýrasafnið. Skýrt
hefir verið frá aö þeir láti lifandi
smádýr og kjúklinga inn í búrið til
hennar sem fæðu. Og ef hún skyldi
nú taka viö sér og fara að éta: á þá
að bjóða bornum og fullorðnum sem
koma í safnið upp á þá skemmtun
að horfa á hana rífa í sig þessi litlu
og varnarlausu dýr — lifandi? Hvar
er Dýraverndunarfélag Islands’
Spvr ég. Hvað gerir það til verndar
málleysingjunum?
Blessuð rjúpan
Og svo er það blessuð rjúpan, sem
skotglaðir sportveiðimenn elta nú
og skjóta og limlesta þessa mánuði
sem hún er ekki friöuð. Hvers
vegna er ekki bannað að nota
haglabyssur við fuglaveiðar?
Eg skora á Dýraverndunarfélag
íslands að láU þessi mál til sín
taka, ef það vill vera eitthvað meira
en nafniö tómt.“
• Lengi aÖ murka
lífið úr
„mat“ sínum
Stjórn SDÍ hefur orðið að
grípa til ýmissa ráða vegna
dýranna í Sædýrasafninu. I
fyrra voru ábyrgðarmenn safns-
ins kærðir til Rannsóknarlög-
reglu ríkisins fyrir ýmis lögbrot.
Árangurinn af þeirri kæru var
sá að saksóknari ríkisins úr-
skurðaði að veita skyldi Sædýra-
safninu áminningu.
Nú hefur stjórn SDÍ kært
aftur vegna þess að uglan í
safninu er fóðruð á lifandi
hænsnfuglum. Að sögn sjónar-
Votta er hún lengi að murka lífið
úr „mat“ sínum.
í sambandi við skrif þín um
haglabyssur er rétt að taka fram
að Island er aðili að alþjóðasam-
þykkt um bann við notkun marg-
skota, sjálfvirkra haglabyssa.
Þessi samþykkt hefur hingað til
verið virt að vettugi á Islandi.
Nú er ákvæði um bann við sölu
og notkun þessara vopna komið
inn í frumvarp að nýjum fugla-
friðunarlögum sem liggur fyrir
Alþingi — fyrir tilstilli fulltrúa
okkar í fuglafriðunarnefnd. Ekki
fékkst þó samþykkt tafarlaust
bann, heldur skal leyfa 10 ára
aðlögunartíma.
Að lokum vil ég benda þér á
síma SDÍ sem er 50137 milli kl. 9
og 12 fyrir hádegi, ef þú hefur
áhuga á að fræðast eitthvað
meira varðandi starfsemi Dýra-
verndunarsambandsins.
Með bestu kveðju."
„Til
einkavinar
míns“
Eftirfarandi vísa ort í orðastað
Kjartans Jóhannssonar, var
gripin á lofti í herbúðum Al-
þýðuflokksins fyrir skömmu:
Ekki ber ég á hann sök
ört þótt fyigi týnum.
Ýti bara ofan í vök
einkavini mínum.
Leiðrétting
í PISTLI Róberts Sigmundssunar í Velvakanda-dálkum á laugar
dag, EINS OG STÓR FJÖLSKYLDA, þar sem höfundur lýsir
góðum starfsanda á Borgarspítalaniim, var rangt farið með
föðurnafn eins læknisins, Óiafs Bjarnasonar, sem sagður var
Björnsson. Velvakandi biður hlutaðeigandi afsökunar á þessum
mistökum.