Morgunblaðið - 29.10.1980, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 1980
31
r
r
Að loknu
Þessi myndsjá er frá lokaathöfn
Noröurlandamótsins i hand-
knattleik. en þvi lauk formlejta
með leik íslands og Noreifs um
þriðja sætið á mótinu. Á mynd-
inni hér að ofan má sjá öll liðin
saman komin á hallargólfinu i
KonKsvinKe. Öil liðin þ.e.a.s.
nema sænska liðið. en leikmenn
þess voru ekki ánægöir með tap
sitt i úrslitaleiknum K<‘un Dönum
ok létu ekki sjá sig fyrir vikið. Á
myndinni er verið að afhenda
dönsku leikmönnunum verð-
launapeninKa. Lengst til hægri
eru Færeyinsar. en úr þeirra
hópi var kjörinn besti leikmaður
mótsins. Það var Ilanus Joensen
og kom val hans skemmtilejia á
óvart. Var hann vel að titlinum
kominn. fslensku piltarnir eru í
hvítu yfirhöfnunum á miðri
mynd.
Lengst til vinstri er Viggó
Sigurðsson í góðum félagskap
tveggja Islendinga sem létu mikið
NM-móti
til sín taka á áhorfendapöllunum.
Viggó var manna bestur í liði
íslands gegn Noregi, skoraði 7
mörk úr átta skotum.
Loks er hér til vinstri mynd frá
verðlaunaafhendingu til handa ís-
lenska liðinu, en leikmenn þess
fengu verðlaunagripi fyrir að
hafna í þriðja sætinu. Á myndinni
má þekkja frá hægri, Gunnar
Lúðvíksson, Steindór Gunnarsson,
sem lék sinn 50 landsleik í ferð-
inni, Bjarna Guðmundsson,
Björgvin Björgvinsson og Alfreð
Gíslason. Myndirnar tók Baldur
Svavarsson.
Leikir í kvöld
Á íslandsmótinu i handknatt-
leik mætast í kvöld FH og
Haukar i Ilafnarfirði. í úrvals-
deildinni i körfu eigast við KR og
Ármann i Hagaskólanum. Báðir
leikirnir hefjast klukkan 20.00.
Á NÝLOKNU Norðurlanda-
móti i handknattieik, lék ólaf-
ur Benediktsson sinn hundrað-
asta landsleik fyrir ísland og
sýndi fram á að hann hefur
aldrei verið betri en einmitt nú.
Með þessum áfanga varð Ólafur
fimmti íslendingurinn sem nær
þessu markmiði. Hinir eru Geir
Ilallsteinsson. Viðar Símonar-
son, Björgvin Björgvinsson og
Ólafur H. Jónsson. en tveir
siðast nefndu léku með landslið-
inu í Noregi. Áfanganum náði
Ólafur er hann var annar
Óli Ben um 100. leikinn:
„Vildi ekki leika“
tveggja markvarða Islands
gcgn Færeyjum í næst siðasta
lcik mótsins. Kom hann aðeins
inn á i lokin. en Island vann
33-11.
„Mér fannst blómaleikurinn
frekar ómerkilegur og úr því
sem komið var vildi ég alls ekki
fara inn undir lok leiksins. Ef ég
hefði mátt ráða, hefði ég kosið
að hvíla þann leik og eiga
blómaleikinn inni þar til í leikn-
um gegn Noregi“ sagði Ólafur í
samtali við Mbl eftir leikinn
gegn Noregi, þar sem hann varði
stórkostiega. „Ég hef aldrei æft
meira á ferli mínum en nú og þó
ég segi sjálfur frá, finnst mér ég
aldrei hafi verið yfirvegaðri og
ákveðnari. Meðan ég er inni í
myndinni hjá landsliðsþjálfar-
anum mun ég gefa kost á mér í
landsliðið" bætti Ólafur við og
samkvæmt því má fastlega bú-
ast við því að Ólafur fari langt
yfir tíu tugi landsleikja, því
hann kom vart inn á á NM án
þess að verja eins og berserkur.
Var það raunar einn af björtustu
þáttum landsliðsins í Noregi,
hversu vel markverðirnir allir
stóðu sig, Ólafur, Kristján Sig-
mundsson og Pétur Hjálmars-
son.
Mbl spurði ólaf um minni-
stæðan leik á ferlinum. „Það er
eiginlega enginn sérstakur leik-
ur, nema ef til vill leikurinn
gegn Dönum í keppninni nú og
þá fyrir þær sakir, að aldrei áður
hef ég leikið landsleik klukkan
níu að morgni" svaraði Ólaf-
ur...
— g«.
„Verðum að nýta tímann
fram að B-keppninni vel“
- segir Hilmar Björnsson að loknu NM-móti
Að loknu Norðurlandamóti í handknattleik er eðlilegt að staldrað
sé við og lagt mat á frammistöðu íslands i keppninni, ekki sist þar
sem B-keppnin er á næstu grösum. Eftir að íslendingar höfðu sigrað
Norðmenn 20—15 í siðasta leiknum og tryggt sér þar með þriðja sætið
í keppninni, lagði Mbl nokkrar fyrirspurnir til Hilmars Björnssonar
landsliðsþjálfara. Var Hilmar fyrst spurður hvort hann væri sáttur
við hvernig leikar fóru.
„Eg er náttúrulega ekki sáttur
við leikinn gegn Svíum, en hann
sýndi mér þó svart á hvítu hvað
þurfti helst að lagfæra við leik
íslenska liðsins og í næstu leikjum
gekk bærilega að lagfæra þá þætti
þó að langt sé frá því að um
fínpússun hafi verið að ræða,“
svaraði Hilmar.
En hvað þarf að lagfæra?
Varnarleikurinn er enn of
gloppóttur þó að hann hafi batnað
mikið, þá þarf að fínpússa sókn-
arleikkerfin og bæta nýtinguna í
hraðaupphlaupum. Oft voru leik-
menn komnir á auðan sjó en létu
síðan verja frá sér. Þá þurfum við
að nýta betur hornaspilið."
Hvar stendur ísland nú gagn-
vart Norðurlandaþjóðunum?
„Þessi lörttí sem við vorum að
leika gegn eru mjög misjafnlega á
vegi stödd í undirbúningi sínum.
Danirnir eru í góðri þjálfun og
komu á mótið beint úr mjög
sterkri fjögurra landa keppni þar
sem þeir stóðu sig mjög vel.
Svíarnir eru með hávaxið og þungt
lið og eru erfiðir þó ekki væri
nema fyrir þær sakir einar. Eins
og er erum við heldur á eftir
þessum löndum tveimur, en hvort
við náum þeim fer eftir því
hvernig við nýtum tímann fram að
B-keppninni. Norðmennirnir eru
of litlir að líkamsburðum til að
standa sig verulega og þeir hrein-
lega sprungu gegn okkur í síðasta
leiknum."
Hver var besti leikur íslands í
ferðinni að þínu mati?
„Fyrri hálfleikurinn gegn Dön-
um var það besta sem við sýndum
í keppninni og afleitt að geta ekki
fylgt þeim leikkafla eftir. Leikur-
inn gegn Norðmönnum var þokka-
legur af okkar hálfu. Ég átti von á
Norðmönnum sterkari, eða að
minnsta kosti grimmari, en eins
og ég sagði áður þá hreinlega
höfðu þeir hvorki líkamlegt þrek
eða líkamsburði til að standa í
okkur að þessu sinni.“
Hvaða leikmenn komu að þinu
mati best frá keppninni?
„Það er frekar erfitt að gera upp
á milli leikmanna, þó vil ég segja
að Alfreð Gíslason og Sigurður
Sveinsson komu mjög vel frá
keppninni og Páll Ólafsson kom
skemmtilega á óvart. Annars vil
ég ekki gera upp á milli manna.“
Loks. Er þetta hópurinn sem á
að byggja á fyrir B-keppnina?
„Ég breytti landsliðshópnum
hans Jóhanns Inga nokkuð og varð
því að byrja að nokkru leyti upp á
nýtt með undirbúning fyrir
B-keppnina. Það er varla hægt að
ætlast til að úr verði liðsheild
strax í byrjun, en ég tel að
kjarninn sé góður og á þessum
kjarna beri að byggja liðið sem
keppir í Frakklandi í febrúar.“