Morgunblaðið - 29.10.1980, Page 32
ORunoio
LITTÆKI
100.000 Kr. staögr afsláttur
eða 300.000 kr. útborgun.
Gildir um öll littæki.
GRUNDIG vagna gæðanna.
AKAI
HLJÓMTÆKI
100.000 kr. staögr. afsláttur
eöa 300.000 kr. útborgun
í flestum samstæöum.
AKAI er hágaaöa merki á góöu verði.
MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 1980
Kyrkislang-
an skiptir um
ham og fast-
ar á meðan
KYRKISLANGAN í Sædýra
safninu sunnan Hafnarfjarðar
fæst enn ekki til að sna“ða mat
þann er henni er borinn: lif-
andi rottur og annað lostæti.
Að sögn starfsmanna safnsins
er nú komin skýrinK á þessu
háttalaifi slonnunnar. o>f mun
huniturdauði ekki vofa yfir
henni í bráð.
Þannig er nefnilega mál með
vexti, að slangan hefur nú
hamskipti, og taka þau fimm
vikur. — Á þeim tíma hafa
eiturslöngur það fyrir sið að
fasta algjörlega, og er þar
komin skýring á meintri mat-
vendni slöngunnar í Sædýra-
safninu sem verið hefur í frétt-
um að undanförnu.
íþróttamaður Reykjavíkur
KJÖR íþróttamanns Reykjavíkur 1980 var kunngjört í hófi í Höfða í
gærkvöldi. Fyrir valinu varð Steinunn Sæmundsdóttir skíða- og
golfkona og sést hún hér taka við hikarnum sem sæmdarheitinu fylgir
úr hendi Úlfars bórðarsonar, formanns íþróttabandalags Reykjavík-
ur. Ljósm. Mhl. Emilía.
Magnús til
Dortmund?
MÖGULEGT er að Magnús Bergs
knattspyrnumaður úr Val gerist
leikmaður með vestur-þýzka félag-
inu Borussia Dortmund, en með því
félagi leikur sem kunnugt er annar
íslendingur. Atli Eðvaldsson.
Atli staðfesti í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi að Magnús
hefði komið á æfingu hjá Borussia
Dortmund og staðið sig svo vel að
þjálfarinn Udi Lattek hefði þegar í
stað sýnt mikinn áhuga á að fá hann
í liðið. í gær var frétt um málið í
dagblaðinu Bild og þar hældi Lattek
Magnúsi á hvert reipi fyrir skot-
hörku og góða skallatækni. Magnús
mun í dag eiga viðræður við forráða-
menn Borussia.
Magnús hefur einnig verið við
æfingar hjá félaginu FC Munster,
sem leikur í 2. deild. Þá hafa þeir
Ragnar Margeirsson ÍBK og Sigurð-
ur Grétarsson Breiðabliki dvalið við
æfingar hjá FC Homborg, sem
einnig leikur í 2. deild og hefur
félagið boðið þeim atvinnusamning.
Eru miklar líkur taldar á því að þeir
gerist atvinnuknattspyrnumenn í
Þýzkalandi, samkvæmt heimildum
Mbl.
Jón Kjartansson um fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar:
Kærðir fyr-
ir ólögleg-
ar veiðar í
reknet
í landhelgisgæzluflugi á mánu-
daginn kum gæzluflugvélin að
tveimur hátum sem voru að
draga reknet á Lónsbug.
Var þetta um klúkkan 15, þrem-
ur klukkustundum eftir að bann
við reknetaveiðum gekk í gildi.
Bátarnir, Otto Wathne NS og
Sigurður Jónsson SF verða kærðir
til • iðkomandi yfirvalda.
Landsfundur Alþýðuflokksins:
Verður kosið um
öll embættin nema
formennskuna?
IIVORKI gjaldkeri né varagjald-
keri Alþýðuflokksins hyggja á
framboð til frekari gjaldkera-
starfa á landsfundi Alþýðuflokks-
ins um helgina. þannig að svo kann
að fara. að kosið verði um öli
emhætti flokksstjórnarinnar. nema
formennskuna. þar sem mjög ólík-
legt er talið að mótframboð komi
gegn Kjartani Jóhannssyni.
Sem kunnugt er bjóða Magnús H.
Magnússon og Vilmundur Gylfason
sig fram til varaformannsembættis-
ins og Kristín Guðmundsdóttir er
frambjóðandi þeirra, sem vilja þá
breytingu, að auk varaformanns,
sem yrði staðgengill formannsins,
verði einnig kosinn varaformaður.
sem verði oddviti flokksstarfsins.
Nái sú breyting ekki fram að ganga,
mun Kristín bjóða sig fram til
ritarastarfs gegn Karli Steinari
Guðnasyni.
Eyjólfur Sigurðsson hyggst ekki
gefa kost á sér sem gjaldkeri áfram
og samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Mbl. hefur aflað sér, hefur
Ágúst Einarsson fyrrverandi al-
þingismaður verið nefndur sem
hugsanlegur frambjóðandi í það
embætti. Þá hyggst Guðrún H.
Jónsdóttir, varagjaldkeri, ekki held-
ur gefa kost á sér til áframhaldandi
starfs, en ekki er enn Ijóst, hver eða
hverjir verða þar í framboði. Þá
stefna stuðningsmenn Kristínar
Guðmundsdóttur að því, að Helga
Möller gefi kost á sér til embaettis
vararitara flokksins.
Áform um kjaraskerð-
ingu rædd á samráðsfundi
Gott ef hægt yrði að ræða tillögur ríkisstjórnarinnar á ASÍ-þingi
„ÉG mun að sjálfsögðu heita mér
fyrir því að spurzt verði fyrir um
þau kjaraskerðingaráform, sem
rætt hefur verið um í hlöðum á
samráðsfundum verkalýðshreyf-
ingarinnar með stjórnvöldum,“
sagði Jón Kjartansson, formaður
Verkalýðsfélags Vestmannaeyja í
samtali við Morgunhlaðið í gær.
Jón kvaðst annars ekki hafa heyrt
um þessi áform, nema úr Morgun-
blaðinu.
„Að sjálfsögðu varðar það verka-
lýðshreyfinguna miklu í hverju
þessar aðgerðir eru fólgnar," sagði
Jón og hann kvað það gæti orðið
gott, ef unnt yrði að ræða tillögur
ríkisstjórnarinnar á ASÍ-þingi. Þar
kvað hann alla jafna mikið rætt um
kjaramál. Hins vegar kvað hann
ASI-þing ekki hafa haft þann trún-
að stjórnvalda, að hann teldi þau
þess fýsandi að þar yrði rætt það
brall og það fikt við kjör fólks, sem
Landaði tvíveg-
is sama daginn
Eskifirrti. 28. október.
ENN ER g(>ð síldveiði hér í
Reyðarfirðinum og hefur svo
verið síðan fyrir helgi. í dag eru
það þó bara nótaskipin, sem fá að
veiða. þar sem reknetaflotinn
hætti í gær.
Það var saltað hér um alla
helgina á öllum stöðvunum. Nú er
verið að salta úr Akurey, sem kom
með 5—600 tunnur í gær, en nú
hættir hún veiðum eins og önnur
reknetaskip. Nótaskipin eru að
veiðum í dag við Grímuna, sem svo
heitir, en það er nes sunnanvert í
miðjum Reyðarfirði. Sumir hafa
reyndar kastað alveg inni í botni á
Reyðarfirðinum.
Kristinn ÓF kom hingað inn í
morgun með 20 tonn og hélt út
aftur um ellefuleytið. Ekki leið á
löngu þar til Eggert Gíslason,
skipstjóri á Kristni, var á ný
kominn með bát sinn að bryggju,
því um klukkan 14 var hann
kominn að með um 50 tonn, sem
nægir til að fylla kvóta skipsins.
Virðist því ekki hafa orðið mikið
tjón á skipinu er það var næstum
sokkið við bryggju hér á föstu-
dagskvöld.
Þá kom Sæljónið inn síðdegis,
einnig með um 50 tonn. Ævar.
Kristinn ÓF með yfir 100 tonn
af síld við hryggju á Eskifirði á
laugardag, skipstjóri á bátnum
er hin landskunna aflakló Egg-
ert Gislason. (Ljósm. Ævar).
stjórnvöld hefðu áform um. „Ég hef
ekki trú á að ég, lítill karl í
Vestmannaeyjum gæti haft þar
áhrif á,“ sagði Jón Kjartansson.
Jón Kjartansson svaraði spurn-
ingu Morgunblaðsins um það, hvort
hann myndi berjast gegn kjara-
skerðingaráformum ríkisstjórnar-
innar nú með sama hætti og 1978, að
hann hefði alltaf á öllum stigum
undirbúnings Ólafslaga verið á móti
því að sá mælikvarði á verðbólgu
sem vísitalan er, yrði skekktur, sem
sýndi hvaða kaup við ættum að fá
miðað við tímabilið næst á undan.
„Ég mótmælti Ólafslögunum og
varaði forystu ASI og fleiri við því
að þau væru mjög hættulegt for-
dæmi, en á það var ekki hlustað." Þá
sgði Jón að vísitölukerfið væri þrátt
fyrir allt meingallað, t.d. væri ekki
hægt að hækka hitaveitu í Reykja-
vík, vegna þess að það hækki kaup í
Vestmannaeyjum. Vísitölufjölskyld-
an byggi í Reykjavík og það skapaði
því snarvitlaust hagkerfi. „Það er
því Ijóst, að það þarf að skera það
upp,“ sagði Jón, „en eigi að gera það
alfarið á kostnað launafólks, þá er
ég jafnmikið á móti því og lögum
Geirs Hallgrímssonar á sínum tíma.
Ég hef lýst því yfir í þeim flokki,
sem ég er merktur, að skerist
hagsmunir launafólksins á við hags-
muni flokksins, mun ég taka hags-
muni launþeganna fram yfir.“
Þrjár góðar
ísfisksölur
í Bretlandi
ÞRJÚ fiskiskip lönduðu afla sínum í
Bretlandi í gær og fékkst gott verð
fyrir fiskinn, sem af umboðs-
mönnum var allur metinn í 1.
gæðaflokk. Jón Þórðarson BA seldi
49,8 tonn í Grimsby fyrir 49,9
milljónir króna, meðalverð 1.003
krónur á kíló. Guðmundur Kristinn
SU seldi 58,5 tonn í Fleetwood fyrir
48,3 milljónir, meðalverð 826 krón-
ur. Bliki EA seldi 28,9 tonn í Hull
fyrir 27 milljónir, meðalverð 936
krónur.
Flugleiðir:
Tafir við að koma
pílagrímimum heim
ERFIÐLEGA hefur gengið að
koma reglulegu llugi af stað í
siðari lotunni hjá Flugleiðum i
pilagrímafluginu milli Jidda og
Nígeríu. Hala miklar tafir orðið á
fluginu og háir margs konar
skriffinnska og hægagangur
þróun mála og einnig það að
umboðsmenn Flugleiða i Jidda í
Saudi-Arabíu hafa ekki staðið sig
sem skyldi í skipulagningu mála
samkvæmt upplýsingum Baldurs
Mariussonar sem stjórnar fram-
kvæmd flugsins í Afríku, en Mbl.
átti samtal við hann i gær.
„Þetta hefur gengið hálf illa,“
sagði Baldur, „og arabarnir eru
erfiðari en nokkru sinni fyrr. Við
höfum ákveðið að gera nokkrar
breytingar á framkvæmdinni og
vonum að þetta fari að ganga betur
eftir kvöldið í kvöld þannig að við
verðum búnir að koma pílagrímun-
um heim til Nígeríu frá Jidda
samkvæmt áætlun um 8. nóvember.