Morgunblaðið - 13.11.1980, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1980
3
Valdatafl í Valhöll komin út:
Fjallar um átök í Sjálf-
stæðisf lokknum á liðn-
um árum og áratugum
vakið hafa þjóðarathygli, en
tilefni þess að við tókum að
skrifa bókina er stjórnarmyndun
Gunnars Thoroddsens í vetur,
sögðu höfundarnir Anders Han-
sen og Hreinn Loftsson. — Við
höfum gert okkur far um að
skrifa hlutlaust um aðdraganda
stjórnarmyndunarinnar, en
átökin í Sjálfstæðisflokknum,
sem leiddu til myndunar ríkis-
stjórnar Gunnars Thoroddsens,
verða ekki skýrð né skilin án
þess að rifjaðir séu upp margir
viðburðir síðustu fimm áratuga
og er því stiklað á stóru í sögu
flokksins allt frá stofnun árið
1929. Við teljum okkur ekki
draga fjöður yfir neitt eða leyna
neinu, en hér kemur ýmislegt
fram, sem ekki hefur birst áður.
Ekki kváðust höfundar kom-
ast að niðurstöðu í bók sinni, en
láta lesendum það eftir að dæma
um sekt eða sakleysi manna.
Þeir hafa báðir starfað í Sjálf-
BÓKAÚTGÁFAN Örn og Ör-
lygur hefur gefið út hókina
Valdatafl í Valhöll eftir blaða
mennina Anders Hansen og
Hrein Loftsson. Fjallar hún um
„átök i Sjálfstæðisflokknum á
liðnum árum og áratugum og
hvernig menn hafa þar skipst i
fylkingar. Sagt er frá tog-
streitu þeirra Gunnars Thor-
oddsens og Geirs Ilallgrimsson-
ar, sem náði suðumarki við
stjórnarmyndun hins fyrr-
nefnda í febrúar á þessu ári“,
segir m.a. í frétt forlagsins.
— Bókin er tvímælalaust
tímamótabók bæði í íslenskri
bókaútgáfu og íslenskri blaða-
mennsku. Ekki hefur áður verið
skrifað á þennan hátt um sam-
tímaviðburði, kunnur atburður
er hér rakinn fram á mitt sumar,
sögðu þeir Örlygur Hálfdánar-
son og Steinar J. Lúðvíksson er — Tilgangur bókarinnar er sá
þeir kynntu bókina fyrir frétta- ~einn að segja frá atburðum er
mönnum. gerst hafa á síðustu árum og
Höfundar Valdatafls í Valhöll ásamt útgefanda frá vinstri: Hreinn
Loftsson. Örlygur Ilálfdánarson og Anders Hansen. i.j<wm. Kmíha.
stæðisflokknum og töldu að það
hefði gefið þeim innsýn og tæki-
færi til að nálgast betur en ella
efni bókarinnar. Hafa þeir rætt
við nærri sjötíu manns er tengst
hafa málum með einum eða
öðrum hætti, þeir hafa haft
aðgang að gömlum og nýjum
fundargerðum stjórnmálaflokka
og fyrirtækja, jafnframt því sem
þeim hefur verið leyft að sjá
sendibréf og dagbækur manna
bæði lífs og látinna.
Valdatafl í Valhöll skiptist í
sex aðalkafla og fjölmarga und-
irkafla. Margar ljósmyndir eru í
bókinni og hafa sumar ekki birst
áður. Þá inniheldur bókin skrá
yfir þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins frá upphafi, ráðherra
og ráðuneyti frá 1904—1980 og
nafnaskrá. Bókin er sett, brotin
um og filmuunninn í Prent-
smiðjunni Hólum og bundin hjá
Arnarfelli. Kápumynd hefur
Sigurþór Jakobsson hannað.
Margir og tíð-
ir fundir hjá
sáttasemjara
ríkisins
ALLMIKILL erill var í húsakynn-
um sáttasemjara ríkisins í ga*rdag
og voru þar fjölmargir aðilar á
fundum. í gærmorgun snemma
voru á fundum farmenn og full-
trúar Verkalýðsfélagsins Rang-
æings. Þá voru flugfreyjur á fundi
og bifreiðastjórar af Suðurlandi
og úr Borgarfirði. Einnig voru
áadlunarhifreiðastjórar úr Sleipni
á fundi...
Hljómlistarmenn voru á fundi og
samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hafa þeir og viðsemjendur
þeirra mjög nálgast hvorir aðra og
má jafnvel búast við því að sam-
komulag geti orðið einhvern næstu
daga. Þá hafa vélstjórar hjá Hita-
veitu Suðurnesja aflýst boðuðu
verkfalli 17. nóvember og munu
þeir eiga samleið með starfs-
mönnum ríkisverksmiðjusamn-
inganna, Áburðarverksmiðju og
Sementsverksmiðju, þegar samn-
ingar nást þar.
Samninganefnd Rafiðnaðarsam-
bands Islands var í gær á fundum
með viðsemjendum sínum og hafði
Mbl. þær spurnir af gangi mála, að
tilboð væru farin að ganga á milli
aðila. Þá voru prentiðnaðarfélögin
þrjú á fundum með Félagi íslenzka
prentiðnaðarins og buðu vinnuveit-
endur þar 8% kauphækkun, en það
er hreyfing úr um það bil 4%, er
upp úr slitnaði fyrir helgina. Þó
munu vinnuveitendur þá hafa viðr-
að við bókagerðarmenn, hvort 6%
hækkun kæmi til greina sem við-
ræðugrundvöllur.
Allmargir sáttafundir eru boðað-
ir hjá sáttasemjara í dag, þ. á m. er
fundur með samninganefnd
Blaðamannafélags íslands, sem
hefst klukkan 14.
Yiðey seldi
i Grimsby
ÞAU FISKISKIP, sem landað hafa í
Bretlandi í þessari viku hafa yfir-
leitt fengið lægra verð fyrir afla
sinn, en fengizt hefur undanfarið.
Viðey seldi 171,3 tonn í Grimsby í
gær fyrir 117,7 milljónir, meðalverð
686 krónur. Fiskurinn fór í 2. flokk
að mati umboðsmanna.