Morgunblaðið - 13.11.1980, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 13.11.1980, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1980 DAGS HRÍÐAR SPOR „Maðurinn er seztur" „Gulli klif jaður asni þjóðfélagsins“ Dr. Valgarð Etfilsson Brynja Benediktsdóttir leikstjóri. SÍKUrjón Jóhannsson Nýtt íslenzkt ádeilu- og skopleikrít eftir dr; Valgarð Egilsson í gærkvöldi frumsýndi Þjóðleikhúsið á Litla sviðinu nýtt íslenzkt leikrit eftir dr. Valgarð Egilsson lækni. Ber verkið heitið Dags hríðar spor og er heitið fengið úr síðustu Ijóðlínu síðasta Ijóðsins sem Þormóður kolbrún- arskáld kvað áður en hann andaðist af sárum þeim, sem hann hlaut í orrahríð dagsins, en frá Þormóði segir sem kunnugt er í Fóstbræðrasögu. Við litum inn á æfingu á leikritinu í síðustu viku og fylgdumst með leiknum og ræddum við nokkra aðstandendur sýningarinnar. Atburðarás leiksins gerist á einum degi, nánar tiltekið 1. desember árið 1980 á 62 ára afmælisdegi þjóðarinnar. Sviðið í upphafi er heimili ísalds ráðuneytisstjóra í Iðnvæðiráðuneytinu og eiginkonu hans, prófessors Þjóð- laugar. Á heimilinu eru einnig Hlérún, gömul kona og aldraður faðir ísalds, Örvaldur, að ógleymdum einkasyni þeirra hjóna, Lilla, sem heitir fullu nafni Jón Þjóðólfur. Örvaldur er orðinn gamall, veikur og sljór og staglast sífellt á spurningunni um hvernig veðrið sé. Hlérún gamla, sem hjúkrar Örvaldi og snýst í kringum annað heimilisfólk hugsar oft til gömlu góðu dagana og heim í sveitina sína. „Þar laug fólk hvorki né hefndi sín.“ Hlérún heyrir einnig raddir og hún hlustar eftir giljunum. Mikið er um að vera þennan dag hjá þeim hjónum ísaldi og Þjóðlaugu. ísaldur er, ásamt ráðherra iðnvæði- mála, að ganga frá stórum virkjunarsamningi við Anion Arbeit og þennan sama dag á að skipa Þjóðlaugu sem prófessor við nýjadeild Háskólans, framfararmenningar- þjóðfélagsfræðideild. Skipunin á að fara fram við hátíðiega athöfn í hátíðarsal skólans. Höfuðleiðt«>íi Sonurinn Lilli verður stúdent í vor, aðeins 16 ára gamall og við morgunverðarborðið þylja foreldrar hans yfir honum framtíðarsýnir sínar um hann: „Lilli á að vera athafnamaður og reka stóra verksmiðju. Lilli á að verða leiðtogi þjóðarinnar. Leiðtogar vinna með höfðinu. — Niðurstaðan: Lilii verður höfuðleiðtogi." Lilli leitar á tíðum til Hlérúnar eftir uppfræðslu um lífið í gamla daga og hann spyr: „Af hverju á ég að leggja alla strákana og sigra fólkið?" í mörgu er að snúast, Mr. Goldmaker forstjóri Anion Arbeit kemur á heimilið til að ganga frá samningnum stóra og ísaldur ásamt ráðherra iðnvæðimála ræðir við hann um „sameiginleg hagsmunamál" landsins og fyrirtækisins. Anion Arbeit tekur að sér að virkja allar jökulsár á landinu og mun þá að sögn reyna verulega á fallþunga íslenzku þjóðarinnar — en landbúnaðurinn er búinn að syngja sitt síðasta, eins og allir vita, enda má flytja slíkar vörur til landsins í niðursuðudósum — og bændur fá þá eitthvað að gera við virkjanirnar. Frá sukki til saurlífis Margt gesta verður við athöfnina í eftirmiðdaginn og líta nokkrir þeirra við á heimilinu um morguninn, þar á meðal fulltrúi ungmennahreyfingarinnar og dr. Stefnir, lektor í heimspekilegri þjóðfelagsfræði við Háskólann. Dr. Stefnir hefur ákveðnar skoðanir og byggir á ákveðnum kenningum, s.s. „Maðurinn er seztur" — „Mannleg hugsun býr undir súð“ og í kenningunni „Gulli klifjaður asni þjóðfélagsins" rekur hann þróunarferilinn frá sukki til saurlífis og sannprófar að framfarir séu í reynd afturför. Ólánsmaður nokkur kemur við sögu í leiknum og verða örlög hans tengd „framförum" vísindanna. Stórkostlegt vísindalegt afrek er einnig unnið í nafni frelsis og friðar og á hátíðinni í hátíðarsalnum er afrekið afhjúpað og kemur þar við sögu Mapi, en honum er ætlað það framtíðarhlutverk að „skrúfa í verksmiðju", og Mapi skrúfar og skrúfar. Þá eru viðstaddir hátíðina fulltrúar hinna ýmsu stétta þjóðfélagsins og auðvitað æðstu mektarmenn þjóðfélags- ins, s.s. ráðherra iðnvæðimála, Biskupinn yfir Islandi o.fl. Biskup biður Guð að blessa viðskiptasamning voran við Anion Arbeit og hann kemur að þeirri skoðun sinni „að maður sé manns gaman og konan mannsins gagn og gaman". I lokaþætti leiksins fáum við að fylgjast með stórkostlegri tilraun á sviði vísindanna og víst er að prófessorinn í lífs- og sálarfræði fær þá ósk sína uppfyllta að sjá nafn sitt á prenti í erlendu vísindatíma- riti, ef tilraunin heppnast. Söguþráðurinn verður ekki rakinn nánar hér en í lok æfingarinnar ræddum við við Herdísi Þorvaldsdóttur, sem leikur eitt aðalhlutverkið, prófessor Þjóðlaugu. Við spurðum hana álits á Þjóðlaugu. „This is a theatre" „Hún er framagjörn menntakona, sem ásamt manni sínum, Isaldi ráðuneytisstjóra og formanni iðnvæðimála, svífst einskis til að ná því takmarki sem þau keppa að. Það sem gerir gæfumuninn að það er gaman að leika hana, þrátt fyrir hversu ógeðug hún er, er skopskyn höfundar, sem þrátt fyrir snarpa ádeilu er alveg einstakt. Við höfum haft mikla ánægju af að vinna þetta einstæða verk. Brynja og Erlingur eru sérlega hug- myndaríkir leikstjórar og þau, ásamt Sigurjóni Jó- hannssyni sem sér um svið og gervi, hafa gefið sýningunni sérstæðan blæ, sem ég vona að fleirum en okkur finnist skemmtilegur. Ég held að segja mætti um þessa sýningu eins og Bretinn segir: „This is a theatre". „Huijsa ekkert um þa<V* Við spurðum höfundinn, dr. Valgarð Egilsson, hvort verkið væri umfram annað snörp ádeila á íslenzkt þjóðfélag. „Þó verkið sé staðsett á Islandi gæti það gerst hvar sem er í heiminum — óttinn við tortímingu mannkyns gengur í gegnum söguþráðinn." Þá sagði Valgarð að tengingin við fortíðina væri hugsuð sem virðing fyrir sögu okkar. — Hver er Mapi? „Mapi, hann er sú vera, sem ég vil ekki láta verða að veruleika“ — Hverjar heldur þú að verði undirtektir? „Hugsa ekkert um það“. Brynja Benediktsdóttir er leikstjóri ásamt Erlingi Gíslasyni og sagði hún að leikritið væri sett upp með það fyrir augum að áhorfendur gripu og meltu boðskap verksins. í verkinu væri vísindamáli komið til skila á skiljanlegu tungumáli og varað væri við þeim hættum sem almenningi stafar af því, þegar aðilar, sem vinna með pólitíkusum, fara að miða vísindin við efnishyggj- una. Verkið mjöK fyndið — Erfið uppfærsla? „Það var mikil vinna við frum- vinnsluna. Við hófum æfingar strax í maí og þó það séu margir ókostir við litla sviðið þá eru einnig margir kostir. Eins og þú sérð eru notaðir þrír salir í uppfærslu verksins. — Hver heldur þú að viðbrögðin verði? „Ég vona að þau verði sterk. Við hofum reynt að skapa ákveðinn sjálfstæðan leikstíl og ekki fengið neitt annars staðar frá. Verkið er mjög fyndið og skapar áreiðanlega þarfa samfélagsumræðu." Sigurjón Jóhannsson gerði leikmyndir og búninga. Leikgrímur og gervi eru mjög afgerandi og búningar eiga að undirstrika gervin. Þá sagði Sigurjón: „Það er skemmtilegt hér niðri og kringumstæðurnar hljóta ætíð að setja svip á verkið. Viðfangsefnið er áhugavert og skemmtilegt." Aðrir leikarar fyrir utan Herdísi Þorvaldsdóttur eru: Rúrik Haraldsson, sem leikur ísald, Árni Blandon leikur Lilla og einnig hálfmennið Mapa. Guðbjörg Þorbjarnar- dóttir leikur Hlérúnu, Júlíus Brjánsson Orvald, Helgi Skúlason leikur Stein Una, kennara að vestan, Sigurður Sigurjónsson dr. Stefni, Þórir Steingrímsson ráðherra iðnvæðimála, Benedikt Árnason leikur biskup, Leifur Hauksson leikur fangann, Helga Bachmann konu, sem ef til vill er ekki jarðnesk, og þó. Flosi Ólafsson bregður sér í gervi forstjóra Anion Arbeit og Erlingur Gíslason leikur prófessor í lífs- og sálarfræði. Guðjón Ingi Sigurðsson leikur bónda og Grétar Hjaltason leikur umsjónarmann. Lýsingu annast Ingvar Björnsson. Jórunn Viðar hefur samið tónlist fyrir sýninguna og flytur hún hana sjálf af segulbandi ásamt þeim Gunnari Kvaran selióleikara og Kristjáni Þ. Stephensen óbóleikara. F.P. Ráðherra iðnvæðimála og Þjoðlaug prófessor ræða vandamálið með hann dr. Stefni og komast að þeirri niðurstöðu að losna þurfi við manninn. — bórir Steingrímsson og Herdís Þorvaldsdóttir. Lilli og Hlérún líta um ðxl til fortíðarinnar. Árni Blandon og Guðbjörg Þorbjarnardóttir. Skálað og látið klingja í glösum — tilefnið samningur um virkjun jökulsár landsins. Ráðuneytisstjórann t.v. leikur Rúrik Haraldsson, ráðherrann Þórir Stein- grímsson. I.jiism. Emilía.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.