Morgunblaðið - 13.11.1980, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 13.11.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1980 5 Haust á ÞinKvöllum. vatnslitamynd máluö um 1955. Afmæliskort Ásgrímssafns. Nýtt jólakort frá Ásgrímssafni JÓLAKORT Ásgrímssafns á þessu ári er prentaö eftir vatnslitamynd- inni Ilaust á lúngvöllum, sem Ás- grímur Jónsson málaði þrem árum fyrir andlát sitt. Nú eru 20 ár síðan safnið var opnað og er kortið gefið út í tilefni afmælisins og þess getið á kortinu. Sjálfsagt þótti að velja mynd frá þeim stað sem var Ásgrími óþrjót- andi viðfangsefni og þjóðinni allri kær. Eiríkur Smith listmálari valdi myndina til prentunar, en Grafík hf. sá um prentun. Hefur Eiríkur Smith verið ráðunautur Ásgrímssafns frá fyrstu tíð í sambandi við val á myndum til kortagerðar. Þetta kort er í sömu stærð og hin fyrri listaverkakort safnsins, með íslenzkum, dönskum og enskum texta á bakhlið, ásamt ljósmynd af list- amanninum við vinnu. Eins og undanfarin ár hefst sala jólakortanna snemma, til hægðar- auka fyrir þá sem langt þurfa að senda jóla- og nýárskveðju, en þessar litlu eftirprentanir af verkum Ás- gríms Jónssonar má telja góða land- kynningu og jólagjöf, en margir láta innramma þær. Ennþá eru fáanleg hin ýmsu kort, sem safnið hefur látið prenta undanfarin ár. Listaverkakortin eru aðeins til sölu í Ásgrímssafni, Bergstaðastræti 74, á opnunardögum, og í verzlun Ramma- gerðarinnar í Hafnarstræti 17. Þessa viku er safnið opið alla daga frá kl. 2—6, vegna afmælis- sýningarinnar, sem opnuð var 9. þ.m. Eftir næstu helgi er opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 1.30—4. (Frá Ásgrímssafni) Stórgjöf til Hallgrímskirkju MARÍNÓ Arason. Lindargotu 21. Itvk., afhenti mér í dag pcninga- gjöf til Hallgrimskirkju i Rcykja- vík. kr. 1.000.000. til minningar um f<)stursystur sína. Fríðu (Frið- scmd Ingihjörgu) Aradóttur, scm söng lcngi í kirkjukór Ilallgrims- kirkju. Gjöf þcssi var þcgar til- kynnt form. sóknarncfndar. Hcr- manni Þorstcinssyni. scgir m.a. i frétt frá biskupi Islands. Marínó lét þess getið, að hann ætti rúmfjöl eftir fósturmóður sína, sem hann vildi einnig afhenda Hallgrímskirkju til varðveislu. Ég tók einnig við þeirri gjöf. Rúmfjöl þessa hefur Ríkarður Jónsson skorið. Nafn eigandans er skorið til vinstri, skammstafað, GMB, þ.e. Guðríður Magnea Berg- mann. Hún átti heima á Lindar- götu 9B, eins og húsið var númerað þá. Maður hennar var Ari Antons- son, verkstjóri hjá Kol & Salt. Versið á fjölinni er: „Vertu yfir og alt um kring“ o.s.frv. Ártalið 1925 til hægri. „Ósk gefanda er að fjölin verði varðveitt innan veggja Hallgríms- kirkju og smekklega fyrirkomið á hentugum stað, segir að lokum í fréttinni." Frumvarp til stjórnskipunarlaga: Afturvirkni skatta útilokuð MATTIIÍAS Á. Mathicscn og Gcir Hallgrimsson. þingmcnn Sjálfsta'ð- isflokks. hafa flutt frumvarp til stjórnskipunarlaga, scm fclur það i sér, ef samþykkt vcrður, að hvorki vcrður ha'gt að sctja íþyngjandi rcglur um skatta á tekjur cða cignir liðins árs né afturvirkar íþyngjandi rcglur um hrcytta cða nýja skattstofna. I frumvarpinu er lagt til að nýrri málsgrein verði bætt við 77. grein stjórnarskrárinnar, sem feli fram- angreind efnisatriði í sér. Flutn- ingsmenn segja í greinargerð að með þessari breytingu sé stefnt að auknu réttaröryggi á sviði skattamála og skorður settar við því, að afturvirk og íþyngjandi ákvæði séu sett um skatta á eignir og tekjur, enda geti slík afturvirkni valdið skattþegum verulegum erfiðleikum, ekki sízt þegar gerðar hafi verið ráðstafanir um fjármál fram í tímann í rétt- mætu trausti þess, að skattlagning verði í samræmi við þágildandi löggjöf. í lok greinargerðar sinnar segja flutningsmenn orðrétt: „Eins og getið er hér að framan var þegar Ijóst eftir setningu bráða- birgðalaganna í september 1978, þar sem ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar beitti afturvirkri skattheimtu, að leitað yrði úrskurðar dómstóla um lögmæti þeirrar lagasetningar. Fyrir skömmu var kveðinn upp dómur í Hæstarétti í einu slíku máli og er sá domur athyglisverður fyrir margra hluta sakir. Ágreiningur varð í Hæstarétti um úrlausn þessa máls. Þríklofnaði dómurinn og minnsti meiri hluti dómsins, þrír hæstaréttardómarar, taldi að ekki væri, eins og í forsend- um dómsins segir, „alveg næg ástæða til að telja þetta varða ógildi lagaákvæða þeirra sem hér skipta máli“, þótt áður hafi verið tekið fram, að „slík vinnubrögð af löggjaf- arvaldsins hálfu verði að teljast mjög varhugaverð". Það er ljóst mál af niðurstöðu þessa dóms, að meiri óvissa ríkir í þessum málum nú en áður. Er því ástæða til að undirstrika nauðsyn þess, að Alþingi móti réttarreglur, sem taki af öll tvímæli í þessum efnum, og skorður verði settar við afturvirkni íþyngjandi skatta- ákvæða. Með því er skapað nauðsyn- legt öryggi á sviði skattamála." Ný skáldsaga eftir Guðberg Bergs- son komin út MÁL OG Menning hefur gefið út nýja skáldsögu eftir Guðberg Bergsson, Söguna af Ara Fróða- syni og Hugborgu konu hans. í forlagsumsögn um bókina seg- Þetta er saga af nokkrum fram- sæknum nútíma Islendingum sem lenda í ýmsum ævintýrum en bjargast úr hverjum háska með þjóðlegu hugviti og hreysti. Ari Fróðason, sem er aðalpersóna bók- arinnar, er fyrst og fremst athafnamaður. Það er athöfnin sjálf sem honum er hugleikin, niðurstaðan skiptir hann minna máli. Bókin er að' ýmsu leyti í stíl skálkabókmennta, það er lýst ferð hans gegnum þjóðfélagið sem hefst á leikvelli og lýkur í laxveiði- ferð. Langt er síðan Guðbergur Bergsson skipaði sér í röð allra fremstu rithöfunda þjóðarinnar, og verk hans hafa notið mikillar hylli. Þessi bók er nýr sproti á þeim meiði. Persónurnar hafa ekki birst áður í bókum Guðbergs og stíllinn er nýr. Spurning er hvort skáldgáfa hans nýtur sín ekki einmitt best í þeirn ærsla- og fjarstæðustíl sem á bókinni er. Sagan af Ara Fróðasyni og Hugborgu konu hans er 137 bls. og prentuð í Hólum. Gylfi Gíslason gerði kápuna og naut við það aðstoðar barna í Myndlistarskól- anum í Reykjavík. (Fréttatilky nning) Guðbcrgur Bcrgsson. FÍM-salurinn seldur og tekið upp samstarf við Listasafn alþýðu? FÉLAG íslcnzkra myndlistar- manna hcfur boðað til almenns (élagsfundar nk. laugardag. þar scm á að ra“ða þá hugmynd. að sclja F’ÍM-salinn við Laugarnes- vcg og jafnvcl ganga til samstarfs við Listasafn alþýðu. scm hefur yfir að ráða góðum sýningarsal. Sigrún Guðjónsdóttir, formaður FIM, sagði í samtali við Mbl., að rekstur salarins hefði gengið frek- ar illa og væri því helst kennt um, að hann væri illa staðsettur til að sinna hlutverki sínu svo og því, að sýningarsölum hefur fjölgað mjög undanfarin misseri og samkeppnin því aukizt. Hún sagði ennfremur, að málið væri á algjöru byrjunarstigi og því ekkert hægt að fullyrða um l.vktir þess. í fyrsta |agi væri óvíst hvort félagsmenn yfirleitt samþykktu að selja salinn svo og væri óvíst hvort menn væru tilbúnir að ganga til samstarfs við Listasafn alþýðu. Veturinn með Hai&Oe, 'jt * •'»** oj!:? #* Stevie Wonder hefur sent frá sér nýja plötu „Hoter than July“ sem inniheldur m.a. eitt vinsælasta lag þessa árs „Masterblaster“. FALKIN N Suðurlandsbraut 8 — sími 84670. Laugavegi24 — sími18670. Austurveri — sími 33360.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.