Morgunblaðið - 13.11.1980, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 13.11.1980, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1980 Satúrnus — séður frá Voyajfer 1 þann 18. október siftastliðinn þegar geimfarift var i liðlega 30 milljóna kilómetra fjarlægð frá reikistjörnunni. Voyager 1 í nálægð Titans Pasadena. Kaliforníu. 12. nóvrmber — AP. BANDARÍSKA jfeimfarið Voy- a«er 1 fór framhjá tunnli Sat- úrnusar — Titan. í aðeins 4 þúsund kilómetra fjarla'jjð skömmu fyrir fi i morgun. Hraði jceimfarsins var þá lið- lejfa 80 þúsund kílómetrar á klukkustund ok það hafði farið taplcna l.fi milljarða kilómetra leið til að taka myndirnar af stærsta tunuli Satúrnusar. „Þetta jferðist allt svo hratt — eftir allan þennan tima sem við höfum beðið. óskuðum við þess nú. að geta hant á tímanum." sajcði Esker Davis. aðstoðar- framkvæmdastjóri ferðar Voya- «er 1. Voyager 1 hefur nú verið í 3 ár á leið sinni til Satúrnusar og það voru spenntir vísindamenn sem tóku við upplýsingum. Vegna mikils skýjaþykknis yfir Titan sást ekki í yfirborð tunglsins en vísindamenn unnu kappsamlega að því að taka við upplýsingum frá geimfarinu. Þegar Voyager 1 fór framhjá Titan var geimfarið í aðeins 19 kílómetra fjarlægð frá „Nautsauganu", þeim stað sem vísindamenn höfðu áætlað að geimfarið yrði eftir 1,6 millj- arða km ferð. Voyager 1 stefnir nú í átt að sjálfri reikistjörnunni — og verður á morgun, fimmtu- dag, í 124 þúsund kílómetra fjarlægð frá reikistjörnunni. Að lokinni ferð sinni til Sat- úrnusar heldur Voyager 1 út í „endalausan himingeiminn" í „endalausa ferð“. Fari þó svo, að Voyager verði á vegi einhverra geimvera, þá er um borð gull- plata með kveðju frá jörðu. Hljómplatan nefnist „Hljóð jarðar" og á henni eru hljóð fjölmargra dýrategunda, rokk- músík, svo og þjóðlagamúsík auk kveðju frá Jimmy Carter. Þar stendur m.a. „Með kveðju frá ... lítilli, fjarlægri reikistjörnu". „Neyðarleg uppá- koma“ Reiulfs Steens Frá Jan Erik l.arué. fréttaritara Mhl. t 6sló. 12. nóvc*mlH*r. REIULF Steen, formaður norska Verkamannaflokksins og við- skiptaráðherra Noregs, hefur sætt harðri gangrýni af tals- mönnum borgaraflokkanna og í blöðum fyrir að hafa verið við- staddur hersýningu á Rauða torginu í Moskvu í tilefni afmælis byltingarinnar á sama tima og sendiherrar allra Atlantshafs- bandalagsríkjanna utan Tyrk- lands, voru fjarverandi til að mótmæla innrás Sovétmanna í Afganistan. Norðmenn sendu bæði sendiherra sinn svo og viðskiptaráðherra til hersýn- ingarinnar. Til stóð að Reiulf Steen færi heim til Noregs daginn fyrir byltingarafmælið — 7. nóvember. Hann hafði þá skrifað undir nýjan 10 ára viðskiptasamning ríkjanna — það er 6. nóvember. Eftir að hafa fengið boð sovéskra stjórn- valda um að vera viðstaddur hersýninguna ákvað hann að lengja dvöl sína í Sovétríkjunum. „Það hefðu verið heldur kaldar kveðjur til Sovétmanna hefði ég neitað," sagði Steen í samtali við blaðamenn þegar hann varði þá ákvörðun sína að vera viðstaddur hersýninguna. En allir eru ekki sammála. — „Neyðarleg uppá- koma“ sögðu margir og vitnuðu til mótmæla Norðmanna við innrás Sovétmanna í Afganistan. Knut Frydenlund, utanríkisráð- herra sagði á fundi með frétta- mönnum vegna þessa máls, að bæði sendiherrann og Steen hefðu óskað fyrirmæla frá ráðuneytinu hvort æskilegt væri að þeir yrðu viðstaddir. Svarið var jákvætt — „það er mikilvægt að halda tengsl- um,“ sagði Knut Frydenlund. Al- mennt er talið, að ferð Frydenlund til Moskvu í desember nætkom- andi hafi stuðlað að þeirri ákvörð- un utanríkisráðuneytisins að láta Reiulf Steen vera viðstaddan her- sýninguna. Fréttir í stuttu máli Kekkonen í Sovétríkjunum Frá Harry Granbrrx. fréttaritara Mhl. I Finnlandi. 12. nóveinlwr. URHO Kekkonen, forseti Finn- lands er nú í opinberri heimsókn i Sovétríkjunum. Hann fór til Sov- étríkjanna með mikið lið sérfræð- inga og framámanna í finnsku efnahagslífi. Viðræður snúast um samvinnu landanna á sviði iðnaðar og verzlunar. Kekkonen ræddi við Leonid Brezhnev, forseta Sovét- ríkjanna. Til umræðu er Iangtímasamn- ingur ríkjanna á sviði verzlunar og iðnaðar. Rammasamningur sem gilda mun til 1995. Ráðherraskipti i Finnlandi Frá Harry Granherx. fréttaritara Mbl. i Finnlandi 12. núvrmhrr. TVEIR af ráðherrum í finnsku ríkisstjórninni munu brátt láta af störfum. Það eru þeir Arvo Aalto, atvinnumálaráðherra sem mun á ný taka við formennsku í kommún- istaflokki Finnlands og Kalevi Kivistö menntamálaráðherra sem einnig tekur upp störf fyrir flokk sinn. Rauðu herdeildirnar enn á íerðinni Milanó. 12. nóvembrr. AP. IÐNJÖFUR á ítaliu var skotinn til bana í Mílanó á Ítalíu í dag af hermdarverkamönnum Rauðu her- deildanna. Það var Renato Briano, framkvæmdastjóri hjá Ercole Marelli — einu helsta rafmagns- fyrirtæki Ítalíu. Hann var skotinn í höfuðið af stuttu færi af ungum manni, sem komst undan. Dollarinn stöðugri l.undúnum. 12. nóvember. — AP. DOLLARINN var stöðugri á pen- ingamörkuðum víðs vegar um heim í dag eftir mikla dollarasölu í byrjun vikunnar. Gullverð var 614 dollarar hver únsa. Dollari hækk- aði í verði eftir kjör Ronalds Reagans sem forseta Bandaríkj- anna. Færeyjar: Ellefsen hefur við- ræður upp úr helgi Frá JoKvan Ar«e, íréttaritara Mbl. í Færeyjum 12. november. Stjórnarmyndunarvið- ræður í Færeyjum eítir kosningarnar til lögþings Færeyja haía ekki hafist enn. Búist er við viðræðum flokkanna uppúr helginni, þegar endurtalningu at- kvæða er lokið. Pauli Ellefsen, formaður Sam- bandsflokksins, sagði að Sam- bandsflokkurinn hygðist ræða stjórnarmyndun við alla flokkana á þingi utan Þjóðveldisflokkinn. Sambandsflokkurinn mun fyrst taka upp viðræður við Jafnaðar- flokkinn, næst stærsta flokk Fær- eyja. Síðan Fólkaflokkinn, þá Sjálfstýrisflokkinn og loks Fram- fara og fiskimannaflokkinn. Almennt eru taldar litla líkur á, að jafnaðarmenn fari í stjórn með Sambandsflokknum. Atli Dam, formaður flokksins, hefur sagt, að þar sem borgaraflokkarnir hafi hlotið 4000 atkvæðum meira en vinstriflokkarnir, þá sé eðlilegt að Pauli Ellefsen þeir myndi landsstjórn. Það virð- ist því liggja beinast við, að Sambandsflokkurinn, Fólkaflokk- urinn og Sjálfstýrisflokkurinn myndi stjórn — þeir hafa nú 17 af 32 lögþingsmönnum. The Times: Útgáfustöðvun yf irvofandi í marz Lundúnum. 12. nóvember. — AP. VERKALÝÐSLEIÐTOGUM og starfsfólki Lundúnablaðsins The Times var í dag tjáð að útgáfu blaðsins yrði hætt 14. marz nk„ nema nýr eigandi hefði þá tekið við rekstrinum. Stjórn útgáfufyr- irtækisins tilkynnti ennfremur, að starfsmönnum blaðsins, 3.500 talsins, bærust uppsagnarbréf hinn 24. nóvember nk. Óbilgjarnar kaupkröfur og tregða starfsmanna til að taka upp nýjungar í vinnsluháttum hafa um árabil staðið rekstrinum fyrir rifum, en eigandi útgáfufyr- irtækisins, sem auk The Times gefur út The Sunday Times og Veður víða um heim Akureyri -1 snjóél Amsterdam 8 heióskírt Aþena 18 heióskirt Barcelona 15 léttskýjaó Berlín 5 skýjað BrUssel 2 heiöskírt Chicago 6 skýjað Feneyjar 6 súld Frankfurt 2 skýjaó Faareyjar 3 súld Genf 2 rigning Helsinkí -4 heióskírt Jerúaalem 21 heióskírt Jóhannesarborg 23 heíóskirt Kaupmannahöfn 5 skýjað Las Palmas 24 skýjað Lissabon vantar London 8 heiðskírt Los Angeles 20 skýjaó Madríd 14 rigning Malaga 18 skýjað Mallorca 19 mistur Miami 27 rigning Moskva -1 heiðskírt New York 5 skýjað Osló -1 snjókoma Parts 7 heiðskírt Reykjavík 1 léttskýjað Ríó de Janeiro 29 skýjaó Rómaborg 15 skýjað San Fransisco 16 heiðskirt Stokkhólmur 1 skýjaó Tel Aviv 25 heióskírt Tókýó 20 heióskirt Vancouver vantar Vínarborg vantar nokkur sérrit, segir að enn sé of snemmt að segja til um hvort nokkur þeirra kaupenda sem þeg- ar hafa sýnt áhuga treysti sér til að uppfylla þau skilyrði sem sett séu af hálfu seljanda, en þau lúta einkum að því að ekki verði slegið af gæðakröfum sem settar hafa verið við útgáfu þessa virta blaðs frá upphafi. Rainbow Warrior í höf n St. Heiier, Jersey. 12. nóv. — AP. RAINBOW Warrior, skip Græn- friðunga, sigldi í dag í höfn í St. Helier á Jersey-eyju í Ermasundi, eftir þriggja daga siglingu frá Spáni. Eins og kunnugt er slapp skipið úr gæslu á Spáni, þar sem það hafði verið kyrrsett fyrir að reyna að hindra veiðar spænskra hvalveiðiskipa. Bresk yfirvöld hafa ekki haft samband við áhöfnina á Rainbow Warrior. Svar við skilyrð- um Iransstjórnar Beirút, 12. nóv. — AP. ÍRÖNSK yfirvöld tilkynntu í kvöld að þau hefðu fengið í hendur bréf frá Bandaríkjunum, sem hefur að geyma svar Bandaríkjastjórnar við skilyrðum írana fyrir frelsun gísl- anna. Ekkert var þó látið í ljós um hvers eðlis svarið væri, en talsmað- ur íransstjórnar sagði bréfið yrði tekið til umfjöllunar fljótlega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.