Morgunblaðið - 13.11.1980, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1980
Sveit Samvinnuferða. Talið frá vinstri: Guðmundur Páll. Björn.
borKeir, Sverrir ok Heljfi.
Bridgemót í Borgarnesi í febrúar:
Um 2 milljónir
kr. í verðlaun
í FEBRÚAR á næsta ári mun ferðaskrifstofan Samvinnuferðir-
Landsýn efna til bridgemóts í Borgarnesi í samráði við Hótel
Borgarnes. Mótið mun standa yfir eina helgi og verða veitt vegleg
verðlaun eða í kring um 2 milljónir króna. Munu fyrstu verðlaun vera
a.m.k. ein milljón. Mót þetta verður opið fyrir alla spilara og verður
þátttökugjaldi stillt i hóf.
Samvinnuferðir-Landsýn hafa
ákveðið að reyna að styðja við
bakið á íslenskum bridgespilurum
á ýmsa vegu. Munu þeir hafa í
hyggju að leita uppi bridgemót
erlendis og skipuleggja helgar-
ferðir á mjög lágu verði. Þetta
kom fram á blaðamannafundi sem
þeir héldu nýlega. Kom þar m.a.
fram að um miðjan þennan mánuð
verður haldið mót í Miinchen.
Þangað fara tveir spilarar, Þórar-
inn Sigþórsson og Ásmundur
Pálsson, og mun far þeirra og
uppihald kosta sem næst 600
þúsund krónum en ef tekst að ná
saman 10 spilara hóp til ferðar-
innar þá lækkar fargjaldið um
hvorki meira né minna en um 400
þúsund kr. fyrir manninn.
í fyrra fóru 4 spilarar á vegum
Samvinnuferða til Júgóslavíu
fyrir lágt verð og kom þar berlega
fram að íslenzkir bridgespilarar
eru fyllilega samkeppnishæfir er-
lendum spilurum. Spiluðu þeir í
tveimur keppnum og urðu í öðru
sæti í þeim báðum.
Ef tilraun Samvinnuferða tekst
má búast við því að í vetur geti
spilarar komist á helgarmót er-
lendis fyrir lágt verð, þ.e.a.s. ef
næg þátttaka fæst.
í vetur munu Samvinnuferðir-
Landsýn styrkja eina sveit á
keppnum vetrarins og mun hún
keppa með nafni Samvinnuferða. í
henni eru Þorgeir Eyjólfsson,
Björn Eysteinsson, Sverrir Ár-
mannsson, Guðmundur Páll Arn-
arsson og Helgi Jóhannsson.
o
INNLENT
Til sölu
Leifsgata
4ra herbergja íbúð á hæð i 4ra
íbúöa húsi. Laus um áramót.
Góður staður í borginni.
Hrafnhólar
3ja herbergja íbúð á 5. hæð í
húsi við Hrafnhóla. Góöar inn-
réttingar. Lagt fyrir þvottavél á
baöi.
Barmahlíö
Stór og björt 3ja herbergja
kjallaraíbúð ofarlega viö
Barmahlíö. íbúðin er öll ný-
standsett. Tvöfalt gler. Dan-
foss-hitakerfi. Laus strax.
Árnl Stelðnsson. hrl.
Suðurgótu 4 Sími 14314
Kvöldsími: 34231
Hef í
einkasölu:
Sörlaskjól — Vesturbær
Góð 3ja herb. íbúð í kjallara.
íbúðin er rúmgóð 90 ferm. Lítið
niðurgrafin. Samþykkt. Sér inn-
gangur. íbúðin er rétt við Æg-
issíöuna. Laus 1. des.
Baldursgata
3ja herb. íbúð á 3. hæð ásamt 2
íbúðarherb. og eldhúsi í kjall-
ara. Húsnæðið er á mjög góð-
um staö. Laus strax.
Hraunbær
Vönduð 3ja herb. íbúö á 1. hæð
með aukaherb. og snyrtingu í
kjallara. Laus strax.
Ásgaröur
Raöhús í Fossvogshverfi. Um
er að ræða góða eign. Laus
strax.
Súðarvogur
Iðnaöarhúsnæði við Súðarvog.
Hafsteinn Hafsteinsson hrl.
Suðurlandsbraut 6.
Sími 81335.
FLÓKAGÖTU 1
SÍMI24647
Grettisgata
2ja herb. kjallaraíbúð í steinhúsi
(jarðhæð).
Eínbýlíshús
í austurbænum í Kópavogi. 7
herb. og bílskúr.
2ja herb.
íbúð á 5. hæð við Asparfell.
3ja herb.
íbúð í miöbænum. Laus strax.
Útb. má greiöa á 18. mán.
íbúð óskast
Hef kaupanda að 4ra herb. íbúð
í Laugarásnum eöa Kleppsholti.
Helgi Ólafsson,
löggiltur fasteignasali.
Kvöldsími 21155.
MWBOR6
fasteignasalan ■ Nyja biohusinu Reykjavik
Símar 25590,21682
Jón Rafnar sölustj h. 52844.
Mióvangur
3ja herb. ca. 65 fm. íbúð í
fjölbýlishúsi. Sér þvottahús.
Verð 26—27 millj., útb. 21 millj.
Smyrlahraun
3ja herb. ca. 75 fm. neðri hæö í
tvíbýlishúsi. Allt sér. Verð 30—
31 millj., útb. 21 millj.
Fornhagi
4ra herb. ca. 100 fm. íbúð í
fjölbýlishúsi. 3 svefnherb. eru í
íbúðinni. Frystir í kjallara. Laus
nú þegar. Verð 47 millj., útb. 34
millj.
Strandgata
4ra herb. ca. 120 fm. íbúð í
fjórbýlishúsi. Laus 1. des. Verð
45—46 millj., útb. 32 millj.
Guðmundur Þórðarson hdl.
Allar þrjár
Kárabækurn-
ar komnar
út á dönsku
BARNABÓKIN Kári litli í skólan-
um eftir Stefán Júlíusson kom út á
dönsku í október síðastliðnum.
Nefnist hún á dönskunni: Káre gár
i skolen". Þýðandi bókarinnar er
Þorsteinn Stefánsson, rithöfundur,
og útgefandi Birgitte Hövrings
Biblioteksforlag. Teikningar eru
eftir Halldór Pétursson. Eru þá
allar Kárabækur Stefáns Júlíus-
sonar komnar út á dönsku því að
hinar tvær komu út á árunum 1976
og 1977, Kári litli í sveit, og 1979,
Kári litli og Lappi. Kári litli í
skólanum kom fyrst út fyrir fjörtíu
árum eða árið 1940 og hefur komið
út a.m.k. fimm sinnum síðan. Ný
íslensk útgáfa Kárabókanna er nú í
undirbúningi.
Stefán Júlíusson
EIGNAVER
Suðurlandtbrauf 20,
•ímar 82455 - 82330
Árn» Elnarsson lögfrœólnour
Ólafur Thoroddsen lögfraaóingur
Hofteigur — sérhæð
Vorum aö fó í einkasölu ca.
135 ferm neðri sérhæð við
Hofteig. Eignin er 2 stórar
stofur og 3 svefnherb. Nýtt
gler, ný eldhúsinnrétting, nýtt
baö. Bein sala. Verð ca. 60
millj.
Vesturberg
— gerðishús
Vorum að fá í elnkasölu gerðis-
hús viö Vesturberg. Aðalhæö er
145 ferm. 3 svefnherb. og stór
stofa. Fullbúinn bílskúr. Ekki
alveg fullfrágengin eign. Verð
ca. 85 millj. Skipti æskileg á
góðri eign á Selfossi.
Bollagarðar — raðhús
Húsiö er á tveimur hæðum.
Selst fokhelt. Teikningar og
nánari uppl. á skrifstofu.
Hverageröi — raðhús
á 2 hæðum. Vönduð eign. Selst
rúml. tilb. undir tréverk. Verð
40 millj.
Efstasund — 2ja herb.
Kjallaraíbúö. Verð ca. 21-23
millj.
Fálkagata — 2ja herb.
Kjallaraíbúö. Verð ca. 23 millj.
Hulduland — 3ja herb.
Gullfalleg íbúö á jaröhæð. Laus
nú þegar. Verð 39—40 millj.
Skiþti æskileg á 2ja herb. íbúð.
Þverbrekka — 5 herb.
Glæsileg ibúö á 3. hæö í
lyftuhúsi. Tvennar svalir. Sér
þvottahús og búr. Verð 47 millj.
Noröurbær óskast
Höfum fjársterkan kaupanda aö
2ja herb. íbúö í Noröurbæ
Hafnarfjaröar.
Einbýlishús óskast
Höfum mjög fjársterkan kaup-
anda aö einbýlishúsí á einni
hæð. Má vera í Garðabæ,
Seltjarnarnesi eða Mosfells-
sveit
ÉSsI
82455
Tímaritið
Stefnir
komið út
TÍMARITII) Stcfnir. fjórða til
(immta toluhlaö 31. árgangs er nú
komió út. og er verið að dreifa því
til áskrifenda. Útgefandi Stefnis
er Samhand ungra sjálfsta-ðis-
manna.
Efni blaðsins er fjölbreytt að
venju, og eru meðal annars í því
greinar eftir eftirtalda: Jón Magn-
ússon formann SUS, Ólaf G. Ein-
arsson formann þingflokks sjálf-
stæðismanna, Styrmi Gunnarsson
ritstjóra, Bessí Jóhannsdóttur cand
mag., Ingu Jónu Þórðardóttur
framkvæmdastjóra fræðsludeildar
Sjálfstæðisflokksins, Davíð
Oddsson borgarfulltrúa, Hannes H.
Gissurarson sagnfræðing, Sighvat
Blöndahl blaðamann og fleiri.
Þá er í ritinu birt minningarræða
séra Þóris Stephensens er hann
flutti við útför Jóhanns Hafstein í
sumar, Stefnisviðtal er við Kjartan
Gunnarsson nýráðinn fram-
kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins,
sjálfstæðismenn svara spurningu
Stefnis, leitað er álits forystu-
manna ungliðahreyfinga stjórn-
málaflokkanna á hlutverki hreyf-
inganna, ritdómar um bækur eru í
blaðinu eftir þá Einar K. Guð-
finnsson og Guðmund H. Frí-
mannsson. Þá eru þættirnir Úr
myndasafni Sjálfstæðisflokksins,
verðlaunakrossgáta og Úr þjóðlíf-
inu á sínum stað, einnig ritstjórn-
argrein og margt fleira.
Aðalefni blaðsins að þessu sinni
er hins vegar herferð sú sem stjórn
Sambands ungra sjáifstæðismanna
hefur hafið undir kjörorðinu
„Stöðvum landflóttann", og eru
birtar ályktanir nýafstaðins Sam-
bandsráðsfundar um þau mál, en
þar er tekið á hinum ýmsu vanda-
málum í þjóðlífinu. Forsíðumynd
ritsins að þessu sinni er eftir
Kristján Einarsson ljósmyndara.
Ritstjóri Stefnis er Anders Han-
sen blaðamaður, en þetta er síðasta
tölublaðið sem hann ritstýrir, þar
sem hann hefur nú látið af störfum
að eigin ósk. Anders hefur verið
ritstjóri Stefnis síðan árið 1977.
Einbýlishús til sölu
Til sölu er einbýlishús aö Brúarflöt 3 í Garöabæ.
Laust strax.
Lögmenn: Garðar Garðarsson,
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson
Símar 92-1723 og 1733, Keflavík.
Einbýlishús
í Hafnarfirði
til sölu. Húsiö er viö Langeyrarveg, hæö og kjallari um
50 fm. aö grunnfleti. Á hæöinni eru 3 herb., eldhús og
baö. í kjallara 2 herb., geymsla og þvottahús. Húsiö
er í fyrsta flokks ástandi, hæöin múrhúöuö aö innan
en aö utan með Lavella-klæðningu. Bílskúr fylgir.
Árni (Junnlaujísson hrl.
Austurgötu 10, Hafnarfiröi.
Sími50764.
Ingólfsstrati 18, Sölustióri Bansdikt Halldórsson
Höfum til sölu úrval af íbúðum í Breiðholtshverfum, ■
2ja, 3ja og 4ra herb. og fokheld einbýlishús, raöhús ■
og parhús.
2 íbúðir — skipti einbýlishús
Höfum kaupanda aö einbýlishúsi á einni hæö m/bílskúr. í skiptum ■
er í boði 4ra herb. neöri sérhæð m/bílskúr og sér 3ja herb. m
kjallaraíbúö í sama húsi í Hlíðunum. Nánari uppl. í skrifstofunni. f
4ra herb. íbúó — skipti 5 herb.
Höfum kaupanda að 4ra herb. íbúð á Háaleitissvæöinu. i skiptum m
er í boöi íbúö m/4 svefnherb. í hverfinu. f
Snotur 3ja herb. jarðhæð í Háaleitishverfi
HJalti Sfeipþðrsson hdl. Gústaf Þór Trvqgvason hdl. 4