Morgunblaðið - 13.11.1980, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.11.1980, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1980 Peninga- markaðurinn f GENGISSKRANING Nr. 217. — 12. nóvember 1980 Eining Kl. 12.00 Kaup Sala 1 Bandaríkjadollar 565,50 566,80 1 Sterlingspund 1352,10 1355,20 1 Kanadadollar 478,35 479,45 100 Danakar krónur 9681,95 9704,25 100 Norskar krónur 11275,05 11300,95 100 Saanakar krónur 13168,00 13198,30 100 Finnak mörk 15031,85 15066,45 100 Franakir frankar 12837,70 12867,20 100 Belg. frankar 1847,50 1851,70 100 Sviaan. frankar 32997,80 33073,70 100 Gyllini 27378,40 27441,30 100 V.-þýzk mörk 29700,60 29768,90 100 Lírur 62,66 62,80 100 Auaturr. Sch. 4196,70 4206,30 100 Eacudoa 1090,65 1093,15 100 Peaetar 746,50 748,20 100 Yen 265,93 266,54 1 írsktpund 1109,55 1112,05 SDR (aérstök dráttarr) 10/11 720,04 721,70 / r. A GENGISSKRÁNING FERPAMANNAGJALDEYRIS 12. nóvember 1980. Eining Kl. 12.00 Kaup Sala 1 Bandaríkjadollar 622,05 623,48 1 Sterlingspund 1487,31 1490,72 1 Kanadadollar 526,19 527,40 100 Danskar krónur 10650,15 10674,68 100 Norakar krónur 12402,56 12431,05 100 Saenskar krónur 14484,80 14518,13 100 Finnak mörk 16535,04 16573,10 100 Fransk ir frankar 14121/47 14153,92 100 Beig. frankar 2032,25 2036,87 100 Sviasn. frankar 36297,58 36381,07 100 Gyflini 30116,24 30185,43 100 V.-pýtfc mörk 32670,66 32745,79 100 Lírur 68,93 69,08 100 Auaturr. Sch. 4616,37 4626,93 100 Eacudo* 1199,72 1202,47 100 Paaatar 821,15 823,02 100 Yen 292,57 293,19 1 Irakt pund 1220,51 1223,26 V V Vextir: INNLÁNSVEXTIR:. (ársvextir) 1. Almennar sparisjóðsbækur....35,0% 2.6 mán. sparisjóösbækur .......36,0% 3.12 mán. og 10 ára sparisjóösb.37,5% 4. Vaxtaaukareikningar, 3 mán...40,5% 5. Vaxtaaukareikningar, 12 mán..46,0% 6. Ávísana-og hlaupareikningur..19,0% 7. Vísitölubundnir sparifjárreikn. 1,0% ÚTLÁNSVEXTIR: (ársvextir) 1. Víxlar, forvextir ...........34,0% 2. Hlaupareikningar.............36,0% 3. Lán vegna útflutningsafurða.. 8,5% 4. Önnur endursefjanleg afuröalán ... 29,0% 5. Lán með ríkisábyrgö .........37,0% 6. Almenn skuldabréf............38,0% 7. Vaxtaaukalán.................45,0% 8. Vísitölubundin skuldabréf ... 2,5% 9. Vanskilavextir á mán.........4,75% Þess ber aö geta, aö lán vegna útflutningsafuröa eru verötryggö miöaö viö gengi Bandaríkjadollars. Lífeyrissjódslán: Lífeyrissjóöur starfsmanna ríkis- ins: Lánsupphæö er nú 6,5 milljónir króna og er lániö vísitölubundiö meö lánskjaravísitölu, en ársvextir eu 2%. Lánstími er allt aö 25 ár, en getur veriö skemmri, óski lántakandi þess, og eins ef eign sú, sem veö er í er lítilfjörleg, þá getur sjóöurinn stytt lánstímann. Lífeyrissjóöur verzlunarmanna: Lánsupphæö er nú eftir 3ja ára aðild aö Irfeyrissjóönum 4.320.000 krónur, en fyrir hvern ársfjóröung umfram 3 ár bætast viö lániö 360 þúsund krónur, unz sjóösfélagi hefur náö 5 ára aðild aö sjóönum. Á tímabilinu frá 5 til 10 ára sjóösaöild bætast viö höfuöstól leyfilegrar lánsupphæöar 180 þúsund krónur á hverjum árs- fjóröungi, en eftir 10 ára sjóösaöild er lánsupphæöin oröin 10.800.000 krónur. Eftir 10 ára aöild bætast viö 90 þúsund krónur fyrir hvern árs- fjóröung sem líður. Því er í raun ekkert hámarkslán í sjóönum. Höfuöstóll lánsins er tryggöur meö byggingavísitölu, en lánsupphæöin ber 2% ársvexti. Lánstíminn er 10 til 25 ár aö vali lántakanda. Lánekjaravíeitala var hinn 1. nóvember síöastliöinn 191 stig og er þá miðaö viö 100 1. júní'79. Byggingavíaitala var hinn 1. október síöastliöinn 539 stig og er þá miðaö viö 100 í október 1975. Handhafaskuldabréf í fasteigna- viöskiptum. Algengustu ársvextir eru nú 18—20%. Fimmtudagsleikritiö kl. 20.40: Smáúlfaldi veld- ur miklu umróti Á dagskrá hljóðvarps kl. 20.40 er leikritið „Úlfaldinn" eftir Agnar Þórðarson. Leikstjóri er Klemenz Jónsson, en Steindór Hjörleifsson, Sigríður Þorvalds- dóttir og Ragnheiður Steindórs- dóttir fara með aðalhlutverkin. Flutningur leiksins tekur tæpa klukkustund. Tæknimaður: Sig- urður Ingólfsson. Hjónin Júila og Hans eru að koma heim úr sólarlandaferð. Meðal þess sem þau hafa með- ferðis er ljómandi vel gerður minjagripur, smáúlfaidi frá Marokkó. En hann á eftir að valda meira umróti en þau hjónin gat órað fyrir. Agnar Þórðarson fæddist árið 1917. Hann lauk stúdentsprófi 1937 og varð cand.mag. í íslensk- um fræðum við Háskóla Islands 1945. Framhaldsnám í Englandi 1947—48 og í Bandaríkjunum 1960—61. Agnar hefur verið bókavörður við Landsbókasafnið frá 1951. Fyrsta útvarpsleikrit hans var „Förin til Brasilíu" 1953, en síðan hefur hann skrif- að fjölda leikrita, bæði fyrir leiksvið, útvarp og sjónvarp, og auk þess skáldsögur og smásög- ur. Kvöldstund kl. 23.00: Flúrsöngkona og baritónar - og gömul upptaka með Axel Schiötz og Elsu Sigfúss Á dagskrá hljóðvarps kl. 23.00 er þátturinn Kvöldstund í umsjá Sveins Einarssonar. — Ég er með eintóman söng i þessum þætti, er með fimm söngvara sem ég er að kynna. Þar á meðal er tékknesk flúr- söngkona, Edida Gruberova, ein skærasta stjarnan við Vínar- óperuna um þessar mundir og hefur sungið víða um lönd. Svo er ég með tvo norræna söngvara: Ingvar Wixell, sem ég hef verið með áður en komst ekki yfir að kynna rækilega, og er með meiri háttar baritónum í heiminum núna. Hann hefur aðsetur í Berlín en syngur út um allt, mikið í Metropolitan-óperunni til dæmis. Hinn er Axel Schiötz, sem er danskur, faðir Birgitte Grimstad vísnasöngkonu. Hann var talsvert mikið leikinn hér í útvarpi fyrr á árum. Hann er orðinn roskinn og er prófessor í Kaupmannahöfn. Það er dálítið gaman að einu af þeim verkum sem ég spila með honum, af því að hann syngur þar með Elsu Sigfúss, í gamalli kantötu. Ég hélt að sú upptaka væri ekki til og býst við að mjög fáir Islend- ingar hafi heyrt hana. Jón Sigurgeirsson i rafstöðinni heima á Granastöðum. Hann hefur að heita má rafvætt heilan sveitarhluta. Ljósm. Krcyr. Hljóövarp kl. 22.35: Hugvitsmaður í Köldukinn Á dagskrá hljóðvarps kl. 22.35 er þátturinn Hugvitsmaður í Köldukinn. Erlingur Davíðsson rithöfundur á Akureyri fjallar um Jón Sigurgeirsson í Árteigi. — Jón hefur smíðað mikinn fjölda af túrbínum í rafstöðvar, sagði Erlingur Davíðsson — og þá stærstu smíðaði hann í nýju rafstöðina á Húsafelli. Hann hefur ekki gengið í neinn skóla, nema héraðsskólann á Laugum, og þessa raffræði sína hefur hann lært af sjálfum sér, á bókum og með því að fikra sig áfram. Hann er ákaflega mikill hagleiksmaður og er eini maður- inn á Islandi sem hefur smíðað gangráða eða öðru nafni spennu- stilla í rafstöðvar. Það hefur vakið undrun erlendra raffræð- inga og verkfræðinga, að sveita- maður uppi á íslandi, sem ekki hefur verið við skóla kenndur, skuli hafa smíðað þetta bara heima hjá sér. Og hann hefur smíðað mest af sínum verkfær- um líka. Jón var öllum stundum í bæjarlæknum heima hjá sér í æsku sinni og hætti ekki fyrren hann gat látið lækinn snúa strokknum á bænum. Svo var farið að byggja íbúðarhús á staðnum nokkrum árum seinna og þá gat hann tengt litla steypuhrærivél við lækinn. Þetta þótti nú dálítið merkilegt, en það var nú ekki mikil trú á uppá- tækjum drengsins. Þetta gat hann þó gert og þá var nú farið að hugsa um, að hann hefði nú kannski einhverja náttúru til handverks og það hefur nú reynst þannig. Jón býr í Árteigi, þar sem hann rekur stórt vélaverkstæði. Hann virkjaði náttúrlega bæj- arlækinn og reisti stóra rafstöð. Hafa öll fimm heimilin þarna ljós og hita úr og völdundurinn sjálfur rafmagn til starfsemi sinnar. Það er geysilega gaman að koma þarna, opnast alveg nýr heimur. Útvarp ReyKjavik FIM44TUDKGUR 13. nóvember. MORGUNINN 7.00 Veðurfrcgnir. Fréttir. 7.10 Bæn. 7.15 Leikfimi. 7.25 Morgunpósturinn. 8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr). Dagskrá. Tónleikar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: Guðmundur Magnússon les söguna „Vini vorsins" eftir Stefán Jónsson (4). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn- ingar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. 10.25 „Porgy og Bess“ Ella Fitzgerald og Louis Arm- strong syngja lög úr óperu eftir George Gershwin; Russ- ell Garcia og hljómsveit hans leika. 10.45 Verzlun og viðskipti. Umsjón: Ingvi Hrafn Jóns- son. 11.00 Tónlistarrabb Atla Heim- is Sveinssonar. Endurt. þátt- ur frá 8. þ.m. um tónlist eftir Áskel Másson. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Fimmtudagssyrpa — Páll Þorsteinsson og Þorgeir1 Ástvaldsson. SÍÐPEGIP 15.50 Tilkynningar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Siðdegistónleikar. Anton Dikoff og Ríkis- hljómsveitin i Sofia leika Píanókonsert nr. 2 eftir Béla Bartók; Dimitur Manoloff stj./ Sinfóníuhljómsveit Lundúna leikur Sinfóniu nr. 2 eftir William Walton; André Previn stj. 17.20 Útvarpssaga harnanna: „Krakkarnir við Kastaníu- götu“ eftir Philip Newth. Heimir Pálsson lcs þýðingu sina (3). 17.40 Litli harnatiminn. Heiðdis Norðfjörð stjórnar barnatima frá Akureyri. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. KVÖLPIP 19.35 Daglegt mál. Þórhallur Guttormsson flyt- ur þáttinn. 19.40 Á vettvangi. 20.05 Einsöngur i útvarpssal: Guðmundur Jónssyn syngur lög eftir Ilandel. Hannikain- en, Rangström, Böhm og Tsjaíkovský; Agnes Löve leikur á pianó. 20.40 Leikrit: „Úlfaldinn“ eftir Agnar Þórðarson. Leikstjóri: Klemenz Jónsson. Persónur og leikendur: Hans bankastarfsmaður/ Steindór Hjörleifsson. Júllia, kona hans/ Sigriður Þor- valdsdóttir. Dúa, dóttir þeirra/ Ragnheiður Stein- dórsdóttir. Amman/ Herdís Þorvaldsdóttir. Friða, ná- grannakona/ Margrét Ólafs- dóttir. Sófi/ Bessi Bjarna- son. Aðrir leikendur: Harald G. Haraldsson, Sigurður Sig- urjónsson, Gisli Alfreðsson, Guðmundur Pálsson og Árni Tryggvason. 21.40 Frá tónleikum Sinfóniu- hljómsveitar íslands og Tónlistarskólans i Reykjavik i Háskólabiói 1. marz sl. Stjórnandi: Páll P. Pálsson. Einleikari: Jónas Sen. a. „Rússlan og Lúdmilla“, forleikur eftir Michael Glinka. b. Píanókonsert nr. 1 í Es- dúr eftir Franz Liszt. c. Rúmensk rapsódia nr. 1 eftir Georges Enescu. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.35 Hugvitsmaður i Köldu- kinn. Erlingur Davíðsson rithöf- undur á Akureyri flytur þátt um Jón Sigurgeirsson í Ár- teigi. 23.00 Kvöldstund með Sveini Einarssyni. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. FÖSTÚDAGÚR 14. nóvcmber 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Á döfinni Stutt kynning á þvi, sem er á döfinni i landinu í lista- og útgáfustarfsemi. 20.50 Prúðu leikararnir Gestur I þessum þætti er Linda Carter. Þýðandi Þrándur Thoroddsen. 21.25 Fréttaspegill Þáttur um innlend og er- lend málcfni á líðandi stund. Umsjónarmenn Bogi Ág- ústsson og Guðjón Einars- son. 22.40 Viridiana s/h Spænsk-mexikönsk bió- mynd frá árinu 1961. Leikstjóri Luis Bunuel. Aðalhlutverk Silvla Pinal og Fernando Rey. í þessari kunnu da'misögu Bunuels stofnar Viridiana kristilegt heimili fyrir betl- ara og umrenninga og þar verða átök góðra afla og illra. Þýðandi Sonja Diego. 00.05 Dagskrárlok

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.