Morgunblaðið - 13.11.1980, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 13.11.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1980 29 smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Umboðsmaöur Ensk/norskur umboösmaður fyrir prjónavörur óskar eflir að komast í samband viö verk- smiöjur/umboðsmenn sem framleiöa eöa verzla meö prjónavörur úr hreinni íslenzkri ull. Önnur framleiösla kemur einnig fil greina Vinsamlegast skrifiö á ensku eöa norsku til: Olav Otterlei, 1. Marsh Court, Pincott Road, London, SW 19 U.K. Staða fulltrúa á Tæknideild Kópavogskaup- staöar er laus til umsóknar. Laun samkvæmt 14. launaflokki BSRB. Umsóknum skal skila til undirritaðs fyrir 18. nóv. nk. Bæjarverkfrasöingur Kona óskast til aö hugsa um aldraöa konu. Húsnæöi, fæöi og góö laun í boöi. Uppl í síma 25428 eöa 19012 eftir kl. 5. Keflavík Til sölu góöar 3ja herb. íbúöir viö Hátún og Hólabraut. 100 ferm. íbúö viö Hringbraut. Sér inngangur. Laus fljótlega. Fasteignasala Vilhjálms Þór- hallssonar. Vatnsnesvegi 20, sími 1263 og 2890. Keflavík Til sölu gott parhús, ein og hálf hæö. 5 svefnherbergi og bílskúr. Garður Einbýlishús, ekki fullgert en íbúöarhæft. Eigna- og veröbréfasalan, Hringbraut 90. Keflavík. Sími 92-3222. Er stíflað? Fjarlægi sttflur úr vöskum. WC-rörum og baðkerum. Góö tæki, vanir menn. Valur Helgason, s. 77028. Teppasalan sf. er á Hverfisgötu 49. Sími 19692. Sófasett og borðstofusett Til sölu mjög vel meö fariö sófasett, plussáklæöi og borö og pinnastólar frá Vörumarkaöin- um. Uppl. í síma 52557 eftir kl. 6. Til sölu Þrjár innihuröir (Mahogni, ásamt körmum, tilh. járnum og skrám.) Tvöföld vængjahurö úr stofu. ásamt körmum og fl. Stálvaskur (tvöfaldur). eldhúsborö Uppl. í síma 15503, Melabraut 55, Sel- tjarnarnesi. □ St:. St:. 598011137 VII. I.O.O.F. 5 =i62in38vi,=9.o. I.O.O.F. 11 =16211138V2 = Sp. □ Helgafell 598011137 = VI. Freeportklúbburinn Fundur í Bústaöakirkju í kvöld kl. 20.30. Gestur fundarins Tómas Helgason prófessor. Stjórnin. Samhálp Samkoma veröur í Hlaögeröis- koti í kvöld kl. 20.30. Bílferö frá Hverfisgötu 44, kl. 20.00. Allir velkomnir. Samhjálp. AD KFUM Fundur í kvöld kl. 20.30 aö Amtmannsstíg 2b. Skírnin aö skilningi Lúthers, sr. Arngrímur Jónsson. Allir karlmenn vel- komnir. Skíðafélag Reykjavíkur Aöalfundur Skíöafélags Reykja- víkur veröur haldinn miövikud. 20. nóv. kl. 20.00 í Skíöaskálan- um í Hveradölum. Fundarefni: Venjuleg aöalfundarstörf. Eftir fundinn veröa kaffiveitingar. Fé- lagar fjölmenniö. Stjórn Sktöafélags Reykjavíkur. Grensáskirkja Almenn samkoma veröur í safn- aöarheimilinu í kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Halldór S. Gröndal. Filadelfía Almenn samkoam í kvöld kl. 8.30. Ungt fólk talar og syngur. Frá Guöspeki- fólaginu Áskriftarafmi Qanglara ar 39573. í kvöld kl. 21.00 verður Páll Skúlason meö erindi: „Viöhorf til ódauöleika sálarinnar'' (Dögun). Hugleiöing kl. 18.10. Öllum opiö Hjálpræðisherinn Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomn- ir. raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar húsnæöi í boöi Til leigu Hef til leigu iönaöarhúsnæði á jarðhæö meö góðri aðkeyrslu og stórum dyrum í Hafnar- firði. Stærð ca. 450 ferm. sem mætti skipta í minni einingar. Lofthæð 4 metrar. Hentar mjög vel fyrir hvers konar iðnaö og heild- verslun. Tilboð sendist augld. Mbl. fyrir 18. n.k. merkt: „Iðnaðarhúsnæði — 3293“. Bátur til sölu 87 tonna (nýmæling) eikarbátur til sölu. í bátnum er nýleg aðalvél og Ijósavél og er báturinn í mjög góðu ásigkomulagi. Allar upplýsingar gefur Hafsteinn Hafsteinsson hrl., Suöurlandsbraut 6, sími 81335. Fiskiskip Höfum verið beðnir að útvega til kaups nýlegan 105 rúmlesta stálbát fyrir mjög fjársterkan kaupanda. Utborgun við afhendingu gæti orðið kr. 70 milljónir. SKIRASALA- SKIRALEIG A, JÓNAS HARALDSSON, LÖGFR. SIMI 29500 Fréttabréf frá Flateyri: Mjög þrengir að kjör- um verzlunarinnar Flatoyri nóv, 1980. Útgerð og fiskverkun ÞESSAR uniíu stúlkur drifu í því á síðastliðnu sumri að hald hlutaveltu til styrktar íþróttaíélaKÍnu Gretti. Flateyri. Nam áKÓðin af hlutaveltunni 39.400 krónum. Stúlkurnar heita InKÍborK Björní dóttir og Margrét Hrafnsdóttir. Fátt aðkomufólk starfar í fisk- verkun hér um þessar mundir, þrátt fyrir ágætan afla hjá togar- anum. Breyting á verkunaraðferð- um hefur orðið til þess að heima- fólk ræður við vinnslu aflans. Hefur skreiðarverkun aukist veru- lega. I vetur verða tveir línubátar gerðir út héðan. Er annar þeirra á vegum Kaupfélags Önfirðinga, og verkar það afla þess báts. Reynt var að bæta þriðja línubátnum við útgerðina á staðnum, en þar sem ekki tókst að manna bátinn, hvarf hann til rækjuveiða. Togarinn Gyllir hefur aflað 4.300 tonna á árinu. Verzlun Mjög þrengir nú að kjörum verslunar á Flateyri, eins og víðast hvar í dreifbýli. Matvöru- verslun H. Tausen hf. hefur hætt störfum og verslun Kaupfélags Önfirðinga hefur verið rekin með verulegum halla síðustu árin. Hjá Kaupfélaginu var slátrað 5.200 fjár á þessu hausti og er það 1.000 færra en á siðasta ári. Samgöngumál Verulegur áfangi í bættum sam- göngum náðist, þegar vegurinn yfir Vöðin var tekinn í notkun um miðjan spetember. Við það styttist vegurinn vestur yfir um 9 kíló- metra. Vegalengdin milli Flateyrar og Þingeyrar er nú komin niður í 51 km og kemur til með að styttast um helming þegar brúin yfir Dýrafjörð verður byggð. Eru Dýrfirðingar og Önfirðingar mjög áhugasamir um að það verði sem fyrst. Félagsmál Félagslíf er með mesta móti á þessu hausti. Héraðssamband Vestur-Isfirðinga hefur staðið fyrir félagsmálanámskeiði og sóttu það 30 Önfirðingar. Lauk því með kvöldsamkomu þar sem flutt- ar voru 30 ræður. Leikfélag Flat- eyrar æfir nú Saumastofu Kjart- ans Ragnarssonar, sem Ragnheið- ur Steingrímsdóttir leikstýrir. Frumsýning er ráðgerð um miðjan nóvember. Nýstofnaður tónlist- arskóli tekur til starfa 1. nóvem- ber. Skólastjóri hans er ráðinn Ragnar Jónsson. Nærri 60 nem- endur munu stunda nám í skólan- um í vetur. Styrktarsjóður Arn- gríms Jónssonar, fyrrverandi skólastjóra að Núpi, hefur styrkt skólann myndarlega til hljóðfæra- kaupa. Lionsklúbbur Önundarfjarðar hefur hafið vetrarstarf með fund- um og fjáröflun. Hefur hann meðal annars styrkt stofnun tón- listarskólans með einnar milljón- ar króna framlagi og Öldrunar- stofnun Önundarfjarðar með tveim milljónum. Golfklúbbur Önundarfjarðar var stofnaður á síðasta sumri. Hefur hann þegar komið sér upp góðum 9 holu velli á Tannarnesi. Það háir mjög félagsstarfi, hve samkomuhúsið er lítið og lélegt, enda er það nærri 50 ára gamalt. Opinber gjöld ásamt öðrum kostn- aði boða halla á dansleik nái tala gesta ekki að vera 200, en húsið rúmar naumast fleiri en 100. Nýjasta skattheimtan er 60 þús- und króna skattur, sem ætlað er að greiða viðbótarlöggæslu sam- kvæmt ákvæðum reglugerðar. Engin löggæsla er á Flateyri. Frá sveitarstjóra Búningsaðstaða íþróttahúss ásamt sundlaug hefur verið aðal- verkefni sveitarfélagsins í tvö ár. Er nú unnið að múrhúðun hússins og vonast er til, að sundlaugin verði tilbúin til notkunar á næsta vori. Næsti áfangi í byggingu leigu- ibúða er nú tilbúinn til útboðs. Eru það sex íbúðir. Öldrunarstofnun Önundarfjarð- ar hóf störf á miðju siðasta ári og hýsir nú 4 vistmenn. Hafa stofn- uninni borist góðar gjafir og má þar til nefna dánargjafir þeirra Jóns Sveinssonar, Hvilft, og Kol- beins Guðmundssonar og gjöf Hjörleifs Guðmundssonar, Sól- völlum, í minningu um látna eiginkonu hans, Sigrúnu Jónsdótt- ur. Fullmenntaður læknir tekur við starfi héraðslæknis Flateyr- arlæknishéraðs frá 1. nóvember og er hann ráðinn í þrjá mánuði. Nokkurt áhyggjuefni er það mönnum á Flateyri hversu hægt miðar fólksfjölgun á staðnum, þrátt fyrir næga atvinnu og oft mikinn skort á vinnuafli. Hefur íbúafjöldinn verið nánást óbreytt- ur síðustu 15 árin, en hann var 1. desember 1979 448 íbúar. Á 30 árum, 1950—1980, hefur íbúum aðeins fjölgað um 1 prósent á ári að jafnaði. Hreppsnefndin hyggst nú beita sér fyrir ráðstefnu og hefja með henni rannsóknir á málinu. Gunnhildur Flateyri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.