Morgunblaðið - 13.11.1980, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 13.11.1980, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1980 41 félk í fréttum Leyst úr fjötrum + FYRIR skömmu frelsuðu löfíreglumenn í borginni Napó- lí suður á Ítalíu, þriggja og hálfs árs gamalt stúlkubarn, sem hafði verið hlekkjað ofan í rúm sitt með keðju. Barnið hafði iegið þarna í nokkra daga og ekki fengið neitt að borða. Lögreglan handtók móður stúikunnar og stjúpföður. Ná- grannar heyrðu ópin í litlu stúlkunni og hringdu á lögregl- una, sem síðan frelsaði hana. Stúlkan, sem heitir Angela de Falco, faðmaði lögreglumenn- ina að sér, þegar þeir leystu hana úr prísundinni. Lögregl- an sagði, að móðir Angelu hefði átt hana með ónefndum manni, sem sæti nú í fangelsi. Kenning lögreglunnar er sú, að stjúpfaðir barnsins, Raffaele Muolo, hafi ekki getað sætt sig við það, að kona hans hafi átt barn með öðrum manni. + Ensku sýningarstúlkurnar Stefanie Marrian (til vinstri) og Monica Teams sýna á þessari mynd breytinguna, sem orðið hefur á tízkunni síðustu 100 ár. Stefanie er klædd að hætti Victoríutíma- bilsins" svokallaða með öllum sínum krúsídúllum og tilheyrandi undirfatnaði. Monica er hins vegar klædd samkvæmt nýjustu tízku, í gallabuxum og stungnum jakka. Þetta mun vera „Vortízkan ’81 frá Wrangler". Þá vitiði það. Tízkan breytist Gigtar- sjúklingnum sleppt + Fyrir skömmu var leikarinn frægi James Coburn stöðvaður af tollþjónum á Heathrow-flugvellin- um í London, vegna þess að þeir fundu hylki með hvítu dufti í fórum hans. Þessi frægi „töffari" þurfti að bíða í 2 klukkustundir á meðan tollþjónar rannsökuðu inni- hald hylkjanna. Hinn 52ja ára gamli Coburn var í London til að hitta unnustu sína, hina frægu söngkonu og lagasmið Lysney de Paul, sem beið spennt meðan rannsóknin fór fram. Fögnuður þeirra beggja var mikill þegar Coburn var loks leyft að fara í gegn. Aðspurður um málið sagði leikarinn frægi: „Þeir höfðu áhuga á lyfjunum mínum. Ég þjáist af liðagigt og hef verið að reyna að vinna bug á henni með hjálp ýmissa jurta. Og reyndar hefur árangurinn verið góður.“ Coburn vinnur nú við gerð nýrr- ar myndar „The Looker“ í Holly- wood en skrapp sisona til London til að heilsa upp á kærustuna, sem vann þar við upptökur. Sni/rti nÖruA' un n ing Á morgun kynnum viö hinar vinsælu Margret Astor snyrtivörur fyrir alla aldurshópa. Einnig nýr ilmur fyrir herra. TOPPTÍSKAN Aðalstræti 9 Hljóm- sveitin V Fiimfi O á Hótel Borg Rokkhljómleikar alla fimmtudaga. í kvöld kemur fram klukkan 9—1 ný rokkhljóm- sveit sem nefnist Fimm. Dísa hitar upp meö nýjum (eldfimum) rokkplötum. 18 ára aldurátakmark. ^HLIÐAR€ND[ Brautarholti 22. Borðapantanir í síma 11090. Stutt á næstu skemmtistaði. -22.30. Þci/> er stccö itrinrr Missið ekki af tískusýn- ingunni hjá Módel 79. í kvöldsýna þær kjóla frá versluninni Lotus Vel heppnuð kvöldstund hefst á Hlíðarenda. Allar veitingar. EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Al'GLYSINGA- SÍMINN EK: 22480

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.