Morgunblaðið - 13.11.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1980
15
hratt og telur nú um 150 nemend-
ur og við hann starfa 14 kennarar.
I hinu nýja húsnæði eru 9
kennslustofur svo og góður salur
fyrir samæfingar og hljómleika
(ca. 120 manns) ennfremur rúm-
góð aðstaða fyrir kennara.
Bókasafn Seltjarnarness hefur
um árabil búið við þröngt hús-
næði, sem hefur háð þessu mest
notaða bókasafni landsins mjög.
Bókasafnið mun 1982 flytja starf-
semi sína í nýtt húsnæði við
Melabraut, sem nú er liðlega
fokhelt. Hið nýja húsnæði er um
500m' að stærð og mun verða
vandað mjög til innréttinga þann-
ig að þær falli að því hlutverki,
sem bókasöfnum er ætlað í nú-
tímasamfélagi.
Hafin er bygging sundlaugar,
sem er lokaáfangi íþrótta- og
félagsmiðstöðvar Seltjarnarness.
Á þessu ári verður steyptur kjall-
ari búningsklefa og gólfplötur alls
mannvirkisins, 1981 er áætlað að
ljúka allri uppsteypu og laugin
síðan tekin í notkun 1982.
íþróttasvæði bæjarins er til
"bráðabirgða við Melabraut én
framtíðaríþróttasvæði verður
staðsett sunnan Valhúsaskóla við
Suðurströnd. Unnið er að hönnun
svæðisins í vetur og hafin verður
vinna við völlinn á næsta ári.
Áætlað er að íþróttasvæðið verði
tilbúið til notkunar í árslok 1982
og tengist það að hluta frágangi
lóða við Valhúsaskóla og sund-
laug.
Framkvaimdir við miðba' Sel-
tjarnarness ganga vel og er fram-
kvæmdin óðum að taka á sig
fastar skorður. Reynt verður að
gera miðbæjarsvæðið þannig úr
garði, að þar verði eitthvað við
sem flestra hæfi og fólki líði vel á
svæðinu. Hin eiginlega uppbygg-
ing viðskiptahluta miðbæjar mun
hefjast í vetur og verður þá hafist
handa við markaðshús og banka-
hús, sem svo eru nefnd, þótt þau
hýsi margskonar starfsemi aðra.
Síðari tvö húsin í miðbæ eru á
áætlun 1982—1983. Miðbæjartorg
verður yfirbyggt en við það skap-
ast ótal möguleikar á fjölbreyttu
torglífi.
Rétt er að geta hér fram-
kvæmdar, sem hafin verður í
byrjun næsta árs og lokið fyrir
árslok, en það er dagheimili og
leikskóli við Suðurströnd. Húsið
verður um 400m2 einingahús frá
Trésmiðju Sigurðar Gumundsson-
ar, Selfossi, og verður væntanlega
fokhelt í maí nk. og mun í
framtíðinni hýsa um 70 börn á
dagheimili og leikskóladeildum.
Ekki hefur verið ákveðið með
nýtingu hiuna leikskóla bæjarins,
Fögrubrekku (60 börn) og Litlu-
brekku (10 börn), en óæskileg
afskipti stjórnvalda af daggjöld-
um gera rekstur þeirra lítt eftir-
sóknarverðan.
Gatnagerð. Varanleg gatnagerð
fylgir fast eftir byggðum götum og
hefur í ár verið lokið við allar
götur sem unnt er vegna bygg-
ingaframkvæmda. Lokið var við
lagningu malbiks á Suðurströnd
að Heilsugæslustöð og verður lok-
ið við götuna á næsta ári og
hringnum lokað við Bakkavör.
Ilitaveita. Stefnt er að borun í
vetur á 2000—3000 metra holu við
B.vgggarða til þess að tryggja
rekstraröryggi veitunnar. Undan-
farin ár hafa tvær holur verið
virkjaðar en aðrar tvær hafa ekki
gefið nægilegt vatnsmagn til þess
að þótt hafi borga sig að virkja
þær. Álag er nú orðið það mikið á
kaldasta tíma ársins, að hver hola
um sig gefur ekki nægilegt vatn til
þess að hægt sé að halda fullum
þrýstingi á efstu hús í bænum.
Stjórn veitunnar hefur því ákveðið
að láta bora í vetur eina holu til
þess að tryggja rekstraröryggi allt
árið. Reiknað er með að hækka
þurfi afnotagjöld veitunnar nokk-
uð, enda er hún nú samkv. plögg-
um iðnaðarráðuneytins sú ódýr-
asta í þéttbýli.
íbúöir aldraöra eru
næst á myndinni, þá
heilsugæzlustööin og
íþróttahúsiö.
Séö inn í
kennslu-
álmu nýja
tónlistar-
skólans.
Bókasafniö flytur úr 80
m2 kjallara í 500m2 sér-
hannaö bókasafnshús.
BÖKASAFN
Patrick Gervasoni:
Opið bréf
til dómsmála-
ráðherra
Morgunblaðinu hefur borist
þýðing á opnu bréfi Patrick
Gervasonis til Friðjóns Þórðar-
sonar dómsmálaráðherra. og fer
bréfið hér á eftir:
Herra ráðherra! Ég leyfi mér að
skrifa yður opið bréf, í von um
skilning og að ráðuneyti yðar
svari beiðni minni um hæli á
íslandi.
Tilgangur bréfsins er að fá svar
við eftirfarandi:
a) Er brottvísun mín frá Islandi
ennþá ákveðin 2. desember, eða
hefur henni verið aflétt?
b) Ef þér úrskurðið að ég eigi
ekki rétt á að búa hér og starfa,
eigi ekki tilkall til þeirra persónu-
skilríkja sem frönsk stjórnvöld
neita mér um, til að gera mér
ókleift að lifa löglega í útlegð —
þá þætti mér betra að vita það
strax.
Þar sem ég hef áður orðið fyrir
dapurlegri reynslu af starfs-
mönnum yðar, kysi ég heldur að
hún endurtæki sig ekki, þannig að
2. desember yrði ég afhentur
lögreglu útlendingaeftirlitsins og
færður út á flugvöll án þess að
hafa haft svo mikið sem tækifæri
til að pakka.
Þótt ég eigi viðbrögðum stórs
hluta íslensku þjóðarinnar að
þakka tímabundið frelsi mitt, þá
hljótið þér að fallast á, að það er
bæði erfitt og ógnvekjandi að lifa
og starfa án þess að vita hvort í
næstu framtíð bíður m^nns fang-
elsi eða frelsi.
Herra ráðherra, hver er ákvörð-
un yðar: fangelsi eða frelsi? Ég
fullvissa yður um að ég er reiðu-
búinn að beygja mig fyrir ákvörð-
un yðar, en uni ekki lengur
stöðugu óöryggi og ótta. Síðan 8.
maí 1980 bíð ég svars frá yður.
Biðin er að verða óbærileg og ég
væri yður þakklátur ef þér gerðuð
mér kunnuga ákvörðun yðar.
Reykjavík. 11. nóvember 1980.
Patriek Gervasoni.
Sovézk korn-
uppskera
minni en
áætlað var?
WashinKton. 11. nóvcmher. — AP.
BANDARfSKA landbúnaðar-
ráðuneytið hefur verulega dregið
úr fyrri ágizkunum sinum á
kornuppskeru Sovétmanna í ár.
Spáir ráðuneytið því að uppsker-
an verði 185 milljónir smálesta í
ár, en í síðasta mánuði spáði
ráðuneytið þvi. að uppskeran
yrði 205 milljónir smálesta.
Sovetmenn höfðu gert sér vonir
um að uppskeran í ár yrði a.m.k.
230 milljónir smálesta og ef síð-
asta spá bandarískra landbúnað-
arráðuneytisins reynist á rökum
reist, vantar þá 54 milljónir smá-
lesta upp á að svo verði.
„Þeir eru í miklum vandræð-
um,“ sagði Howard Hjort, helzti
sérfræðingur bandarískra stjórn-
valda í landbúnaðarmálum í dag.
„Biðraðirnar verða lengri, en í
fyrra og sovézkir þegnar eiga eftir
að verða órólegri og órólegri vegna
ástandsins, og þeir munu fyllast
gremju í garð stjórnvalda," bætti
hann við. í fyrra nam kornupp-
skera Sovétmanna aðeins 179
milljónum smálesta vegna þurrka.