Morgunblaðið - 13.11.1980, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1980
21
Sjötta helgarmótið:
I>rír efstir í
N eskaupstað
SJÖTTA helKarskákmótið var
háð á Neskaupstað nú um helg-
ina. Þátttakendur voru að vísu
með færra móti, enda 20 talsins,
en enRU að síður var það í alla
staði mjöK vel heppnað. Svo sem
kunnugt er. átti mótið að fara
fram einni viku áður. en þá gat
ekkert orðið úr því vegna fárviðr-
isins, sem Kekk yfir Austurland.
Sú frestun varð til þess, að
þátttakendum fækkaði um helm-
inK, enda skiIjanleKt að crfitt
hafi verið fyrir marKa að Kera
aftur nauðsvnleKar ráðstafanir
til þess að Keta verið með, svo
sem að fá frí úr vinnu o.s.frv.
Fæstir af okkar sterkustu
skákmönnum létu sík þó vanta,
að stórmeisturunum undanskild-
um, ok keppnin var bæði hörð ok
tvísýn. Aldrei var nokkur kepp-
enda einn í efsta sæti, enda fór
svo að lokum, að þrír urðu efstir
og jafnir, þeir Margeir Péturs-
son, Sævar Bjarnason og Jón L.
Árnason, sem hlutu allir fimm
vinninga af sex mögulegum. Mar-
geir var síðan úrskurðaður sigur-
vegari á stigum (þ.e. samanlagð-
ur vinningafjöldi andstæðing-
anna), hann hlaut I8V2 stig, síðan
kom Sævar með 17'/2 og þá Jón
með 17 stig.
Hálfum vinningi á eftir þessum
þremur komu síðan þeir Ásgeir
Þór Árnason, Helgi Ólafsson og
Benóný Benediktsson. Helgi leiddi
lengst af mótið, vann fjórar
fyrstu, en óvænt tap í síðustu
umferð fyrir Sævari þýddi hrap
niður í fimmta sæti, því Ásgeir
var honum hærri á stigum.
Árangur Benónýs var mjög
ánægjulegur og hann lætur engan
bilbug á sér finna, þótt hann hafi
þrjá vetur um sextugt. Benóný
byrjaði illa í sumar á mótinu í
Keflavík, en á Akureyri stóð hann
sig með mikilli prýði og nú var
hann aðeins hársbreidd frá verð-
Iaunasæti.
Röð annarra þátttakenda varð
þessi: 7.-9. Hilmar Karlsson, Jó-
hann Hjartarson og Jónas H.
Jónsson 4 v. 10,—11. Benedikt
Jónasson og Sturla Pétursson 3'/2
v. 12.—14. ðli Valdimarsson, Við-
ar Jónsson og Páll Baldursson 3 v.
15.—18. Eiríkur Karlsson, Ingi-
mundur Sigurmundsson og feð-
garnir Þorvaldur Logason og Logi
Kristjánsson U'/fe v. Þeir Ingi-
mundur og Þorvaldur háðu harða
baráttu um unglingaverðlaunin,
sem eru þátttaka á námskeiði í
skák á Kirkjubæjarklaustri næsta
sumar. Samkvæmt stigaútreikn-
ingi reyndist Þorvaldur hlut-
skarpari. 19.—21. Jón B. Lorange,
Friðþjófur M. Karlsson og Ólöf
Þráinsdóttir, sem hlaut kvenna-
Fengu ekki
að funda
Managua. 11. núv. — AP.
YFIRVÖLD í Nicaragua komu í
veK fyrir að nokkuð Kadi orðið af
útifundi hreyfinKar hófsamra
demókrata í borginni Nandaime
á sunnudaK, en húist var við að
um fiO.OOO manns kæmu til fund-
arins, að söKn áreiðanleKra heim-
ilda.
Leiðtogi samtakanna er fyrrver-
andi meðlimur í fimm manna
junta-ráði er fór með völd í
landinu, en ein af ástæðum þess að
hann sagði sig úr ráðinu, var að
honum fannst frelsishreyfing
Sandinista, er hrakti Somoza ein-
ræðisherra frá völdum í júlí 1979,
hefði of mikil völd í raun.
Einn fimmmenninganna í
junta-ráðinu sagði í dag, að fund-
urinn hefði verið bannaður „af
öryggisástæðum."
eftir MARGEIR
PÉTURSSON
verðlaunin, 2 vinningar. 22.-24.
Helgi Hansson, Úlfhéðinn Sigur-
mundsson og Kristján Halldórs-
son l'/2 v. 25. Grétar Guðmunds-
son 1 v. 26. Eysteinn Kristinsson 0
v.
Aðstæður á Neskaupstað voru
allar hinar bestu. Á föstudag og
sunnudag var teflt í Egilsbúð, þar
sem helmingur aðkomumannanna
bjó, en á laugardaginn í gagn-
fræðaskólanum.
Mótinu var síðan slitið á sunnu-
dagskvöldið með kvöldverði í Eg-
ilsbúð, þar sem þeir Kristinn
Jóhannsson, forseti bæjarstjórnar
Neskaupstaðar, og Jóhann Þórir
Jónsson, ritstjóri Skákblaðsins og
frumkvöðull helgarmótanna, af-
hentu verðlaunin og heiðruðu
fimm viðstadda fyrir mikil og
óeigingjörn störf í þágu skáklist-
arinnar, þá Karl Marteinsson,
Eirík Karlsson og Karl Hjelm,
fyrir störf sín fyrir Taflfélag
Neskaupstaðar í fortíð og nútíð og
auk þess þá Sturlu Pétursson og
Ola Valdimarsson, sem er reyndar
gamall Norðfirðingur, en þeir
stóðu að útgáfu Skákblaðsins á
stríðsárunum.
Það olli nokkrum vonbrigðum,
að utan Neskaupstaðar, var aðeins
einn þátttakandi af Austurlandi,
Viðar Jónsson frá Stöðvarfirði, en
margir áttu styttri leið að fara til
mótsins en hann.
Sjöunda helgarskákmótið verð-
ur haldið um næstu helgi í Vest-
mannaeyjum, ef veður leyfir og
hefst samkvæmt venju á föstudag-
inn klukkan tvö, þannig að hjá
mörgum verður stutt á milli
stríða. Mótið verður nánar auglýst
í vikunni, en þeim á rheginlandinu,
sem' ætla sér að vera með, skal
bent á að snúa sér til Jóhanns
Þóris í síma 15899.
Fyrir tap sitt í síðustu umferð á
Neskaupstaðarmótinu, hafði Helgi
Ólafsson teflt 46 skákir í röð án
taps, en hann náði langbestum
samanlögðum árangri í fimm
fyrstu mótunum og hlaut fyrir það
einnar milljón króna verðlaun.
Eftir tíunda helgarmótið verður
ný milljón afhent, þannig að í
þeim mótum, sem eftir eru af
næsta hring, verður áreiðanlega
mjög hart barist.
Nú skulum við líta á hvernig
Helgi var að velli lagður:
Hvitt: Sævar Bjarnason
Svart: Helgi ólafsson
Nimzoindversk vörn
1. d4 - Rffi. 2. c4 - efi, 3. Rc3 -
Bb4, 4. Bg5!? (Boris Spassky,
fyrrum heimsmeistari, notaði
þennan leik mikið á yngri árum,
■ en nú er hann talinn fremur
vafasamur.) — hfi, 5. Bh4 — c5, 6.
d5 - Bxc3, 7. hxc3 - dfi. 8. e3 -
e5, 9. f3 (Þessi leikur er framlag
hollenska stórmeistarans Timman
til afbrigðisins.) — e4, 10. f4 —
g5, 11. Bg3 (Hæþnara var 11. fxg5
— Rg4.) — De7.12. h4?! (Betra er
að öllum líkindum 12. Be2 — Hg8,
13. Rh3, en þannig tefldist skák
þeirra Timmans og Smyslovs í
Teeside 1975.) - gl. 13. h5 -
I)d7,14. Bh4 - Rxh5,15. Dc2 -
Df5, lfi. Re2 — Hg8? (Mun betra
var 16. — Rd7, og hvítur hefur
engar teljandi bætur fyrir peðið.)
ALLT f PLATI!,
i« ■ 4
17. Bg5!! (Upphafið á glæsilegri
fléttu. Eftir 17i — hxg5, 18. Hxh5,
hótar hvitur óþyrmilega 19. Rg3.)
— DgG, 18. Hxh5! (Hugmyndin.
Nú er svartur glataður.) — Dxh5,
19. Dxe4+ - Kf8, 20. De7+ -
Kk7. 21. BÍ6+ - Kh7, 22. Rk3 -
Dg6, 23. Bd3! og svartur gafst
upp.
SIGRÚN ELD.JARN
„Allt í plati!“
Ný barnabók eftir
Sigrúnu Eldjárn
ÚT ER komin barnabókin Allt í
plati!, saga og myndir eftir Sig-
rúnu Eldjárn. Þetta er fyrsta bók
Sigrúnar, en hún er kunnur
myndlistarmaður, hefur oft sýnt
myndir sínar og einnig skreytt
allmargar bækur, meðal annars
barnabækur. Allt í plati! er ævin-
týri, sem segir frá tveim börnum
sem heita Eyvindur og Halla. Þau
fara í hugsanaleik, leggja síðan
leið sína niður um gat á götunni
og lenda í ýmsum ævintýrum
neðanjarðar, hitta einkennilegar
skepnur sem kallast krókófílar og
fara í leiðangur með einum þeirra
vítt um borgina og upp í Hall-
grímskirkjuturn.
Allt í plati! er 48 síður, á hverri
síðu teikningar. Oddi prentaði.
Skoðið glæsilega
ARISTON
Meó Ariston gædi og Ariston útlit verdur valió auðvelt á
Ariston þvottavélinni.
Sparnaður: hún tekur inn heitt og kalt vatn, eða ein-
göngu kalt sem gerir mögulegt að leggja í bleyti við-
kvæmt tau við rétt hitastig. Annað for kerfi ffyrir suðu-
þvott, mikil stytting á vinnutíma.
A: Sérstakur sparnaóar-
rofi (tvær vatnshæðir
fyrir3eða5kfló).
B: Vindur á milli skolana.
C: Er meó þrem sápu-
hólfum (þvottaefni
má setja í öll hólfin í
upphafi þvottar ásamt
mýkingarefni).
D: Stöðva má vélina
þótt hún sé í miðju
þvottakerfi með því
aó ýta á valrofann,
hægt er að láta hana
byrja aftur á sama
staó án þess að rugla
kerfið.
þvottavél
E: Sérstakt kerfi fyrir
ullarfatnað.
Ljósmerki kemur
meðan vélin er í gangi
og annað Ijós þegar
hún hitar vatnið.
G: Þvottakerfi eru 15 og
vinduhraði 600 snún-
ingar á mínútu.
H: Barnalæsing er á
hurð og valrofi er líka
með öryggisbúnaði
gagnvart börnum.
RAFIÐJAN H.F.
Kirkjustræti 8 Sími: 19294
Verzlid við fagmenn
Viðgerðar■ og varahluta-
þjónusta Smiðjuvegi 10
Kópavogi Sími: 76611