Morgunblaðið - 13.11.1980, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1980
27
VEIOISVÆÐI KOLMUNNANS
GRÆNLAND
Jan Mayen
Júli
i
meira heldur en kaupendur geta
greitt.
Rússar hafa selt Norðmönn-
um slægðan og frystan kol-
munna á um 150 krónur kílóið.
Það verð getum við alls ekki
keppt við, frystikostnaðurinn
einn sér er t.d. 40—50 krónur á
kíló.
Rússar einir veiða
eina milljón tonna
Færeyingurinn Hjalti af Ják-
upsstovu sagði frá því á fundin-
um um helgina, að á síðasta ári
hefðu veiðst yfir milljón tonn af
kolmunna og voru Rússarnir
stórtækastir í veiðunum. Án
þess að hafa örugga vissu fyrir
því sagðist hann telja, að Rússar
einir væru búnir að veiða yfir
milljón tonn í ár. Hann sagði, að
áraskipti væru að því hversu
austarlega kolmunninn færi á
göngu sinni norðureftir á sumr-
in. Ef hann gengi vestan við
Færeyjar kæmi hann upp að
austurströnd íslands, en ef hann
gengi hins vegar austan við
Færeyjar færi kolmunninn í
Norska hafið mitt á milli ís-
lands og Noregs í átt til Jan
Mayen. Síðastliðin tvö ár hefði
kolmunninn gengið austan Fær-
eyja, en ástæðulaust væri að
ætla annað, en að það gæti
breytzt aftur, jafnvel þegar á
næsta ári.
Rússarnir hafa veitt gífurlega
mikið af kolmunna í Norska
hafinu og þeir hafa verið á
þessum slóðum frá íslenzku 200
mílna mörkunum úti af Langa-
nesi og austur og norðaustur
þaðan síðan í júni. Eftir því,
sem við höfum frétt slægja þeir
kolmunnann og hausa um borð.
Vinnan fer að langmestu leyti
fram í höndunum og þeir nota
svokallaðan karfaskurð á kol-
munnann. Kolmunninn er fryst-
ur um borð og verksmiðjur f
skipunum vinna síðan úrgang-
inn, þannig að ekkert fer til
spillis. Eitthvað mun líka um
það, að kolmunninn sé bút-
ungssaltaður til útvötnunar og
reykingar. Eina, sem við vitum
um að Rússar hafi selt af
kolmunna á heimsmarkaði, er
það lítilræði, sem Norðmenn
hafa keypt.
Eitt það ánægjulegasta, sem
fram kom á fundinum eru kaup
Færeyinga á 4.000 lesta frönsk-
um verksmiðjutogara. Þetta er 5
ára gamalt skip, sem breyta á til
veiða og vinnslu kolmunna. Um
borð verða fjórar flökunarlínur
og reikna Færeyingarnir með að
geta unnið úr 100 tonnum á dag.
Færeyingar hafa veitt eitthvað
af kolmunna á suðurgöngu á
svæðinu milli Islands og Fær-
eyja mánuðina janúar—marz,
síðan geta þeir veitt við Bret-
land og Færeyjar fram í júní og
frá þeim tíma og fram undir
áramót hafa Rússar verið að
veiðum í Norska hafinu, þannig
að þetta skip ætti að hafa nóg
verkefni.
Við höfum óskað eftir því að
fá að fylgjast nákvæmlega með
hvernig Færeyingum gengur og
teljum okkur geta notað okkur
þeirra reynslu. Landstöð á Aust-
urlandi gæti hugsanlega komið í
stað slíks verksmiðjuskips hjá
okkur, en það mál er einmitt nú
til umræðu á Alþingi.
Kolmunnaveiðin
hefur þegar
_______náð hámarki_________
Rannsóknaverkefninu, eins og
það var upphaflega sett upp, er í
rauninni lokið. Það var mál
manna á lokafundinum, að
veiðitækni, flutningur og
geymsla væri komið í viðunandi
horf og vinnsluvélar og tækni
væru til staðar til að framleiða
frambærilegar afurðir. Hins
vegar er það ljóst að fjárhags-
legur grundvöllur er í það
minnsta mjög vafasamur og enn
vantar nokkuð á, að vinnslan
geti borgað það sem skipin
þurfa að fá.
Hér á íslandi höfum við ekki
enn séð þann hráefnisskort, sem
nágrannaþjóðir okkar búa við.
Því er ekki enn sama knýjandi
nauðsynin hjá okkur að finna
leiðir til að auka verkefni þó svo
að að því geti komið fyrr en
varir. Verkefni skortir til dæmis
nú þegar fyrir stóran loðnuflota
talsverðan hluta ársins, en flest-
ir vinnsluaðilar virðast enn hafa
nóg fyrir sig. Alþjóða hafrann-
sóknaráðið hefur mælt með því,
að kolmunnaveiðin fari ekki yfir
milljón tonn á ári, en ljóst er, að
því hámarki er þegar náð. Von-
andi byrjum við að veiða kol-
munna áður en farið verður að
skammta úr þessum stofni eins
og öðrum," sagði Björn Dag-
bjartsson að lokum.
—áij
Ósannindum og dylgjum um
Lýsi og mjöl hf. svarað
HRAFN G. Johnsen. varaformaður
heilhrÍKðismálaráðs Iiafnarfjarðar
vildi koma eftirfarandi á framfæri
ve^na skrifa um menKun við Lýsi ok
mjol.
Á forsiðu Þjóðviljans í K*r, 12.
nóvember, mátti lesa rætna ok
heinlínis ósanna frásoKn af fundi
heilbrÍKðisráðs Ifafnarfjarðar varð-
andi menKun hjá Lýsi ok mjol hf.
Þar er dylKjað um að fulitrúar
Sjálfstæðisflokksins ok óháðra séu
mótfallnir menKunarvornum hjá
Lýsi og mjöl hf. Hvort þessi frétt
kemur frá fulltrúa Alþýðuhanda-
laKs eða áheyrnarfulltrúa verka-
lýðsins á nefndum fundi skal ósaKt.
en þeirra heitasta ósk er lokun
fyrirta“kisins.
Staðreyndir málsins eru, að full-
trúar Sjálfstæðisflokks ok óháðra
hafa barizt af oddi ok eKK fyrir
útrýminKU menKunar hjá Lýsi ok
mjöl hf. með öllum tiltækum ráðum,
sem ekki verða tíunduð hér, enda
kunn fulltrúa AlþýðuhandalaKsins.
I umræddu tilviki eru staðreyndir
þessar: íjl. laugardaK slitnaði raf-
strengur að fyrirtækinu, þannig að
hreinsitæki urðu óstarfhæf, og
megnan óþef lagði frá verksmiðj-
unni. Þegar í stað var hafizt handa,
Dægurlagatext-
ar og gúanórokk
OPINN umræðufundur verður á
vegum Félags bókmenntafræðinema
í Háskóla Islands um dægurlaga-
texta, gúanórokk o.fl. fimmtudaginn
13. nóvember kl. 20.30 í stofu 301
Árnagarði.
Frummælendur verða þau Árni
Björnsson, Eysteinn Þorvaldsson og
Silja Aðalsteinsdóttir. Almennar
umræður verða á eftir.
Vilja fá meira
af fiski héðan
til Fleetwood
SENDINEFNIl frá Fleetwood var á
ferð hérlendis fyrir skÖmmu og átti
þá m.a. viðræður við forystumenn
LIÚ um auknar siglingar íslenzkra
skipa þangað. Að sögn Kristjáns
Ragnarssonar buðust fulltrúarnir
frá Fleetwood til að lækka tilkostnað
íslenzkra skipa í Fleetwood um allt
að 25%. Átti þetta tilboð að standa
nóvember, janúar og febrúar, en LÍÚ
vildi að tilboðið stæði einnig fyrir
desembermánuð. Þá vildi LÍÚ fá
tryggingu fyrir því að í Fleetwood
fáist eins hátt verð fyrir fiskinn og
fengist hefur í Grimsby og Hull.
að ósk heilbrigðisfulltrúa, að finna
skemmdina og viðgerð hafin er hún
fannst. Aðfaranótt mánudags stífl-
uðust svokallaðir „cyklónar“, sem
orsakaði, að mikið magn af mjöli
barst út um reykháf verksmiðjunnar
í næsta nágrenni. Á mánudag fyrir-
skipaði heilbrigðisfulltrúi, stöðvun
vinnslu þar til lagfæring hefði farið
fram á rafstreng. Auk þess fór
heilbrigðisfulltrúi fram á lögreglu-
rannsókn.
Á heilbrigðismálaráðsfundi voru
svo málin rædd og gerði varaformað-
ur ráðsins, sem jafnframt er fulltrúi
Sjálfstæðisflokks, eftirfarandi bók-
un: „Með tilvísun til fundargerðar
heilbrigðismálaráðs þann 25. marz sl.
um málefni Lýsi og mjöl hf., leggur
ráðið til, að endanleg ákvörðun
varðandi lokun fyrirtækisins verði
frestað til næsta fundar þann 25.
nóvember nk. Fram að þeim fundi
heimilar ráðið heilbrigðisfulltrúa að
stöðva rekstur fyrirtækisins fyrir-
varalaust, ef sambærilegt ástand
skapast og átti sér stað 8—10 þ.m.“
Þessi bókun var samþykkt. Af
ofangreindu sézt, að óhapp átti sér
stað, en allt var gert til að takmarka
afleiðingar. Fyrirtækinu meira að
segja lokað. Bókunin er afdráttarlaus
og veitir fulltrúum tíma til að kynna
sér málið og móta tillögur sínar.
Fullyrðingum Þjóðviljans og heim-
ildarmanna hans er því vísað til
föðurhúsanna. Fulltrúi Alþýðu-
bandalagsins og áheyrnarfulltrúa
Hlífar skal á það bent, að málefná-
legar lyktir þessa máls eru farsælli,
en pólitískar upphrópanir.
INNLENT
Meira saltað af
Suðurlandssíld
en nokkru sinni
SÖLTUN Suðurlandssíldar er nú
orðin meiri en nokkru sinni fyrr
og fer söltun upp í gerða samn-
inKa senn að ljúka. Afskipun á
síld er nú hafin og fór fyrsti
farmurinn til Finnlands i fyrra-
kvöld. Samkvæmt söltunarskýrzl-
um Sildarútvegsnefndar var búið
að salta i 211.430 tunnur á
mánudagskvöld og skiptist sölt-
unin sem hér segir eftir fram-
leiðsluhöfnum:
Sóltunarstaðir Ilrildarsóltun Þar af flök
Siglufjörður 20 tnr. —
Grenivík 126 tnr. —
Dalvík 1.328tnr. —
Húsavík 1.602 tnr. —
Raufarhöfn 54 tnr. —
Vopnafjörður
Seyðisfjörður
Neskaupstaður
Eskifjörður
Reyðarfjörður
Fáskrúðsfjörður
Breiðdalsvík
Djúpivogur
Höfn
Vestmannaeyjar
Þorlákshöfn
Grindavik
Sandgerði
Keflavík
Reykjavík
Hafnarfjörður
Akranes
Hellissandur
Rif
10.592 tnr
4.365 tnr
35.456 tnr
7.246 tnr
22.999 tnr
3.833 tnr
6.184 tnr
43.434 tnr
18.287 tnr
21.108 tnr
20.719 tnr
925 tnr
5.691 tnr
578 tnr
26 tnr
5.229 tnr
96 tnr
257 tnr
(128)
(571)
(26)
Samtals 211.430 tnr. (725)
Til fróðleiks og samanburðar fer hér
á eftir yfirlit um heildarsoltun Suður-
landssildar síðustu 5 árin:
1979 190.546 tnr. (þar af flök 22.147 tnr.)
1978 194.417 tnr. (þar af flök 11.910 tnr.)
1977 ' 152.086 tnr. (þar af flök 0 tnr.)
1976 124.013 tnr. (þar af flök 0 tnr.)
1975 94.407 tnr. (þar af flök 0 tnr.)
Afskipun Suðurlandssíldar er nú
hafin og fer fyrsti farmur til Finnlands
í kvöld.
ROSENTHAL
SÖLUDEILD frá Rosenthal-verzluninni i Reykja-
vík hefur verið opnuð í Listhúsinu á Akureyri.
bar verður til sölu úrval gjafavöru úr Rosenthal-
postulíni á ýmsu verði, en vörurnar koma frá
Selb i Vestur-Þýzkalandi. Eigendur verslunarinn-
Á AKUREYRI
ar eru hjónin Arndis Björnsdóttir og Otto
Schopka, en verslunarstjóri verður Sólveig
Adamsdóttir.
Á myndinni hér að ofan eru Otto Schopka.
Arndts Björnsdóttir og Sólveig Adamsdóttir.