Morgunblaðið - 13.11.1980, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1980
UmHORP
Umsjón:
Gústaf Níelsson
Atök um framkvæmdastjora
og frétt Morgunblaösins
Vesna ummæla Júns
MaKnússonar, formanns
SUS, i MorKunblaðinu 11.
nóvember þess efnis að
Hannes Hólmsteinn Gissur-
arson hafi ekki treyst sér til
að icæta hlutleysis í starfi
framkva-mdastjóra SUS, cn
um það sótti Ilannes. ásamt
mörgum öðrum ok var hafn-
að, hefur hann óskað eftir,
að bréf hans til SUS-stjórnar
verði birt.
„Mér hefur verið sagt svo
frá skýrslu Jóns Orms Hall-
dórssonar á fundi stjórnar
SUS um viðræður við mig
vegna umsóknar minnar um
starf framkvæmdastjóra
SUS, að ég tel nauðsynlegt að
bæta við skýrsluna nokkrum
orðum. Ég treysti að sjálf-
sögðu sannsögli Jóns Orms
eins og allir aðrir, en vera
má, að hann misminni um
eitt og annað.
Jón Ormur spurði mig,
hvort ég hygðist gæta „hlut-
leysis" í starfi, ef ég yrði
ráðinn. Ég spurði: Hlutleysis
við hvað? Og við hverja?
Forsenda þessarar spurn-
ingar er sú, að tvær (eða
fleiri) fylkingar berjist innan
SUS, með öðrum orðum, að
SUS sé klofið — þrátt fyrir
forystu Jóns Magnússonar,
því að Jón Magnússon hefur
hvað eftir annað sagt, að það
beri ekki vitni um trausta
forystu Sjálfstæðisflokksins,
að Sjálfstæðismenn séu
sundraðir. Og það hlýtur eins
að eiga við um SUS og sjálfan
flokkinn, að sundrung sé til
marks um veika og umdeilda
forystu (að minnsta kosti
langvarandi sundrung). Þessi
spurning Jóns Orms, sem er
þannig ásökun á Jón Magn-
ússon, kom mér mjög á óvart,
Hannes skrifar bréf
Gunnars betur en aðrir
stjórnarmenn SUS, skildi
þetta svar mitt þannig, og ég
trúi því ekki að óreyndu um
Kjartan Gunnarsson
Hannes H. Gissurarson
Gústaf Níelsson
því ég hélt, að Jón Ormur og
Jón formaður væru góðir
vinir.
Ég svaraði þessari spurn-
ingu Jóns Orms svo, að ég
hygðist í þessu starfi fara að
dæmi dr. Gunnars Thorodd-
sens, núverandi forsætisráð-
herra og yfirmanns Jóns
Orms, að taka sannfæringu
mína fram yfir einhverjar
vinnureglur. Þetta sagði
hann á frægum flokksráðs-
fundi í febrúar sl. Þetta má
að sjálfsögðu ekki skilja
þannig — nema menn efist
um heillindi dr. Gunnars —
að ég hyggist verða hinn
versti framkvæmdastjóri,
hlutdrægur og undirförull.
Ég var mjög undrandi, þegar
ég heyrði, að Jón Ormur, sem
ætti að þekkja vinnubrögð dr.
Jón Orm, að hann vegi svo að
yfirmanni sínum.
Enn eru undrunarefnin
ekki öll talin. Ég varð mjög
hissa, þegar ég heyrði, að
forysta SUS hefði á áður-
nefndum fundi sínum frestað
ráðningu framkvæmdastjóra
og að einhverjir úr henni
hefðu efazt um, að ég gæti
orðið framkvæmdastjóri, því
að ég væri ekki hollur henni.
Mér hafði skilizt, að forysta
SUS hefði gagnrýnt formann
flokksins sjálfs — í fimm-
dálka forsíðufréttum — fyrir
að fresta um of ráðningu
framkvæmdastjóra og að
hafna manni í starfið, því að
hann væri ekki hollur sér —
hvort sem sú gagnrýni á við
rök að styðjast eða ekki.
Ég vona, að SUS-forystan
slái ekki að þessu sinni á
útrétta sáttahönd."
Athugasemdir
ritstjóra Umhorfs
Þetta bréf Hannesar, sem
lagt var fyrir SUS-stjórnar-
fund 8. nóv., er vitaskuld eins
og hvert annað grín og útúr-
snúningur, enda höfðu menn
það á orðspori í lok fundar-
ins, að bréfið hefði lífgað
mjög upp á fundinn og virkja
ætti starfskrafta Hannesar,
ekki sem framkvæmdastjóra,
heldur SUS-stjórn til
skemmtunar.
Það er mesta firra hjá
Hannesi að verið sé að slá á
útrétta „sáttahönd" hans.
Um starf framkvæmdastjóra
SUS sóttu fjölmargir hæfir
og duglegir menn, svo engin
ástæða er fyrir Morgunblaðið
og Hannes sjálfan, að láta
líta svo út að honum hafi
verið hafnað á annarlegum
forsendum. Málið snerist ein-
vörðungu um það að velja
einn úr hópi margra umsækj-
enda, umsækjenda, sem eru
síst lakari að andlegu atgervi
en Hannes Gissurarson.
Hannes má þó eiga það að
hann er með afbrigðum iðinn,
— en engan veginn ómiss-
andi.
Það er í hæsta máta sér-
kennileg blaðamennska hjá
Morgunblaðinu, að gefa
Hannesi lausan tauminn til
að túlka eigin viðhorf til
forystu SUS og skrumskæla
staðreyndir mála að vild,
meðan mikilvægum atriðum,
sem formaður SUS, Jón
Magnússon, minntist á við
fréttamann, , er sleppt.
Fréttamaður virðist ekki sjá
ástæðu til að geta þess, að
eftir að formaður nefndar
þeirrar, sem falið var að
ræða við umsækjendur, hafði
gert tillögu um Einar Gunnar
Einarsson í starf fram-
kvæmdastjóra SUS, bar
framkvæmdastjóri Sjálf-
stæðisflokksins Kjartan
Gunnarsson, upp tillögu um
Hannes, en Kjartan situr
SUS-stjónarfundi með mál-
frelsi og tillögurétt. Var því
gengið til atkvæða um þá tvo
og fékk Einar Gunnar öll
atkvæði fundarmanna, en
Hannes ekkert. Þótti sumum
stjórnarmanna SUS óeðlilegt
að framkvæmdastjóri flokks-
ins væri á þennan hátt að
reyna að hlutast til um innra
starf ungliðahreyfingarinn-
ar. Þessar staðreyndir þykja
e.t.v. ekki fréttnæmar á síð-
um Morgunblaðsins.
Eitt atriði í þessu maka-
lausa eintali Hannesar H.
Gissurarsonar um Samband
ungra sjálfstæðismanna og
forystumenn þess, sem birt-
ist í títtnefndri frétt Morgun-
blaðsins, langar mig að
minnast lítillega á. Það fjall-
ar um það að menn í stjórn
SUS hafi reynt að fella Ingu
Jónu Þórðardóttur og Skafta
Harðarson úr stjórn Varð-
bergs á síðasta aðalfundi
félagsins, „þó að vit væri haft
fyrir þeim á fundinum sjálf-
um“. Taldi Hannes þetta vera
til marks um það að menn
vildu frekar sundrung en
sættir.
Það er rétt að nokkrir
stjórnarmenn í SUS eru og
hafa verið óánægðir með eitt
og annað í starfi Varðbergs
og töldu rétt að skipt væri
um nokkra stjórnarmenn.
Vildu þeir láta reyna á það
með kosningum, hvort breyt-
ingar gætu orðið. Kosningar
fóru ekki fram, þar sem
forystumenn SUS gengu
fram í því að ná samkomu-
lagi. En grundvallarspurn-
ingin er hins vegar sú, hvort
óeðlilegt sé, að kosningar fari
fram um menn í stjórn Varð-
bergs. Og skýtur það ekki
svolítið skökku við, þegar
reynt er að hindra kosningar
i samtökum, sem þó kenna
sig við lýðræði.
G.N.
Ný kjördæmaskipan og
breytt kosningalöggjöf
Drög aö tillögum
stefnumörkunar-
nefndar SUS
Eftirfarandi tillogur voru
flestar lagðar fyrir stefnu-
mörkunarnefnd SUS 3. nóv.
og hlutu þar nokkra umfjöll-
un. Jóni Ormi Halldórssyni
var falið að fullvinna þær og
hafa þær tekið nokkrum
breytinKum. en nefndin var
samþykk mcginefni þeirra.
Frá einum nefndarmanna
kom þó fram sú veigamikla
tillaKa til breytingar. að
Kevkjavík vrði sklþt f þrjú
kjorda'mi. \ð oðru leyti eru
tilbigurnar þessaft
I Þingfnonnum í verði.
fjölgað úr 60 í 70.
2. Þingmenn sitji allir í
einni deild.
3. Kjördæmin verði 9 í
stað 8.
4. I kjördæmin verði kosn-
ir 63 þingmenn en 7 uppbót-
arsætum úthlutað.
5. Við úthlutun uppbótar-
sæta komi aðeins til greina
þeir flokkar, sem náð hafa
þingsæti i kjördæmi.
6. Uppbótarsætum verði
úthlutað til jöfnunar milli
flokka og við úthlutun þeirra
ráði atkvæðamagn alfarið.
7. Flokkur getur hlotið
fleiri en einn uppbótarmann í
sama kjördæmi hagi at-
kvæðastyrkur málum svo.
8. Skipting þingsæta milli
kjördæma, svo og landamörk
kjördæma, verði ákveðin í
kosningalöggjöf en ekki í
stjórnarskrá.
9. Núverandi kjördæmi
haldist óbreytt, hvað landa-
merkjum viðvíkur, nema
Reykjaneskjördæmi, sem
skipt verði í tvennt, Suður-
nesjakjördæmi, sem nái að
Hafnarfirði og Reykjanes-
kjördæmi, sem nái yfir þétt-
býlissvæðið umhverfis
Reykjavík og Kjósarsýslu.
Skipting þingsæta milli
kjördæma ýrði eft irfarandi:
Fyrir úthlutun Eftir úthlutun
uppbótasaúa upphótasæta
(miðað víð
síðustu kosningar)
Reykjavík 17,3317 23,2452
Reykjanes 8, 2737 9, 2432
Norðurl. e. 7, 2189 7, 2189
Suðurland 6, 1960 6, 1960
Vesturland5, 1736 5,1736
Austurlandð, 1536 5, 1536
Suðurnes 5, 1523 5, 1523
Norðurl. v. 5,1312 5,1312
Vestfirðir 5,1230 5,1230
Rökstuðningur með
tillögunum
1. Flestum eða öllum mun
það ljóst, að ekki verður
lengur búið við það ósam-
ræmi, sem nú gildir, hvað
varðar fjölda kjósenda að
baki hverjum þingmanni.
Munurinn er allt að fjórfald-
ur. Núgildandi kjördæma-
skipan var spor í rétta átt,
hvað þetta varðar á sínum
tíma. En síðan hún var lög-
leidd, hefur átt sér stað
mismikil fjölgun kjósenda í
einstökum kjördæmum.
Þannig hefur kjósendum á
Reykjanesi fjölgað um 143%
á tólf árum, en um 8% á
Vestfjörðum og 13'Æ á Norð-
urlandi vestra. Ekki virðist
grundvöllur fyrir því að
fækka kjördæmakosnum
þipgmönnum í neinu kjör-
dæmi og virðist því fjölgun
þeirra í heild, ásamt breyt-
ingum á úthlutun uppbóta-
sæta vera eina færa leiðin til
að draga verulega úr þessum
mun. Þannig má benda á, að
til þess að fullur jöfnuður
næðist, þyrfti að fækka þing-
mönnum Vestfjarða í 2—3 og
sömuleiðis þingmönnum
Norðurlands vestra. Sú leið,
sem farin er í framangreind-
um tillögum tryggir alls ekki
fullan jöfnuð atkvæðisréttar,
en er byggð á því sjónarmiði,
að ungir sjálfstæðismenn eigi
Kinar G. Kinarsson
Stcfán II. SteíánHHon
Vnders Hansi*n
Nýr framkvæmdastjóri SUS
Á fundi stjórnar SUS 8. nóv. sl. var Einar Gunnar
Einarsson ráðinn framkva'mdastjóri Sambands ungra
sjálfstæðismanna. Mun hann jafnframt taka við ritstjórn
Stefnis.
Um leið og stjórn SUS býður Einar velkominn til starfa,
þakkar hún Stefáni Stefánssyni fv. framkvæmdastjóra og
Anders Ilansen fv. ritstjóra Stefnis vel unnin störf I þágu
Samtaka ungra sjálfstæðismanna.
að reyna að sameinast um
tillögur, sem eru mögulegar,
hvað varðar framkvæmd og
nauðsynlegar málamiðlanir,
en ekki halda til streitu
stefnu, sem er fyrirfram
vonlaus til árangurs.
2. Reynsla annarra þjóða
sýnir, að unnt er að tryggja
eðlilega meðferð þingmála
með einni málstofu í stað
tveggja.
3. Eðlilegt virðist vera að
skipta Reykjaneskjördæmi
upp, með tilliti til mismun-
andi atvinnuhátta innan
þessa stóra kjördæmis, sem í
reynd skiptir því í tvennt.
4. Með jöfnun milli at-
kvæðastyrks og þingmanna-
tölu í huga virðist eðlilegt að
halda kerfi uppbótasæta, þó
þeim sé fækkað nokkuð sam-
kvæmt tillögunum.
5. Til þess að hamla gegn
fjölgun flokka á þingi virðist
þessi regla ekki óeðlileg.
6. Til frekari jöfnunar
milli landshluta er lagt til, að
lilutfallsreglan verði afnum-
in, en hún hefur stuðlað að
l'rekara ójafnvægi til þessa.
7. Hér á það sama við og
um lið 6.
8. Ekki er óeðlilegt að
reikna með mishraðri fjölgun
kjósenda í einstökum kjör-
dæmum. Stjórnarskrárbreyt-
ing þarfnast tveggja Alþing-
iskosninga með stuttu milli-
bili og er því erfið í fram-
kvæmd, en kosningalögum
má breyta án þess að til
þingrofs komi.
9. Sjá lið 3.
Þessar tillögur verða vænt-
anlega lagðar fyrir næsta
Sambandsráðsfund, mef
smávægilegum breytingum.