Morgunblaðið - 13.11.1980, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1980
47
• Björifvin Björiívinsson skorar ulæsiloiía í landsleiknum fræua gegn Frökkum í Laugardalshöll um árift.
bá vann ísiand frækinn 13 marka sigur. Björgvin er einn af leikreyndustu landsliðsmönnum íslands og
hann verftur enn í eldlínunni á föstudaginn. er ísland mætir heimsmeisturum Vestur-Þjóðverja. Siðast er
þýska liðift sótti Island heim, reið það ekki feitum hesti heim á ný, tapaði tvívegis, 14 — 18 og 8—10. Verður
síftari leikurinn einkum lengi i minnum hafður.
Tekst að sigra
heimsmeistarana ?
Aston Villa með
fimm stiga forystu
Urslit leikja í ensku knatt-
spyrnunni < í gærkvöldi urðu
þessi:
1. DEILD:
Leicester City — Everton 0 — 1
Leeds — Middlesbrough 2—1
Man. Utd. — Wolverhampt. 0—0
Norwich — Aston Villa 1—3
Sunderland — Man. City 2—0
Tottenham — Crystal P. 4 — 2
2. DEILD:
Cardiff — Wrexham 1—0
Chelsea — Derhy County 1—3
3. DEILD:
Chestcr — Plymouth 1—0
Exeter City — Oxford 1 — 1
Reading — Gillingham 0—1
SKOSKI DEILDARBIKARINN:
Dundee llnited — Celtic 1 — 1
Aston Villa hefur nú fimm
stiga forystu í 1. deild. Villa var
undir í hálflcik gegn Norwich
1—0. en siðustu 28 mínútur
leiksins skoraði liðið 3 mörk.
Táningurinn Gary Shaw skoraði
fyrsta markið og ba'tti skömmu
siðar öðru marki við. og varnar-
maðurinn Allan Evans innsiglaði
sigur liðsins. Shaw hcfur nú
skorað 12 mörk í 1. dcild. Og
Aston Villa hefur 27 stig eftir 17
leiki. Liverpool er í öðru sa'ti með
22 stig eftir 16 leiki. Garth
Crooks skoraði „hat trick“ þrjú
mörk gegn C. Palace, Steve
Archibald skoraði fjórða markið.
Hilaire og Ian Walsh skoruðu
fyrir Palace. Kevin Hird skoraði
bæði mörk Leeds, sem náði sér á
strik eftir sla'ma útreið gegn
Arsenal er liðið tapaði 5—0.
Kevin Arnott og John Cooke
skoruðu mörk Sunderland gegn
Man City.
Eftirtaldir leikir fóru
síðan fram í fyrrakvöld:
1. deild:
Birmingham — N. Forest 2-0
Brighton — Ipswich 1-0
Liverpool — Coventry 2-1
Southampton — Arsenal 3-1
2. deild:
Bristol Rov. — QPR 1-2
Cambridge — Orient 1-0
N. County — Newcastle 0—0
Oldham — Blackburn 1—0
Sheffield W. — Bolton 2—0
Shrewsbury — Swansea 2—0
Watford — Luton 0—1
West Hain — Bristol C. 5—0
Víða óvænt úrslit, einkum þó í
Brighton og Birmingham. Mick
Robinson skoraði sigurmark
botnliðsins Brighton gegn Ipswich
og Frank Worthington skoraði
bæði mörk Birmingham gegn For-
est. David Johnson skoraði bæði
mörk Liverpool gegn Coventry og
þeir Steve Moran, Dave Watson og
Nick Holmes skoruðu fyrir South-
ampton, eftir að Graham Rix
hafði náð forystunni fyrir Arsen-
al.
Jafntefli
ÍSRAEL og Svíþjóð gerðu marka-
laust jafntefli í Tel Aviv í ga*r-
kvöldi. Landslið þjóðanna í
knattspyrnu mættust í riðla-
keppni heimsmeistarakeppninn-
ar. Lið ísrael skoraði mark rétt
fyrir leikslok en markið var
da*mt af vegna þess að dómarinn
taldi leikmanninn hafa hrotið á
varnarmanni Svía. Nú eru írland
og ísrael efst í riðlinum með 3
stig. En Svíþjóð og Portúgal eru
með 1 stig.
Cibona í
undanúrslit
KÖRFUKNATTLEIKSLIÐIÐ Ci-
bona Zagreb sem mætti Val í
Evrópukcppni bikarhafa í körfu-
knattlcik sigraði í ga'rkvöldi lið
Kloster Neuburg frá Austurríki
84—75. Cibona er þar með komið
i undanúrslit keppninnar, þar
sem liðið sigraði í fyrri leik
liðanna með 10 stigum. Austur-
ríska liðið tefldi fram þremur
Bandarikjamönnum og allt kom
fyrir ekki. Leikið var í Zagreb.
ÍSLAND á sigurmöRuleika
þrátt fyrir að heimsmeist-
arar séu á ferðinni. Vest-
ur-Þjúðverjar eiga bezta
lið í heimi.
Hápunktur íþróttaviðburða
hérlendis á þessu ári verða tví-
mælalaust tveir landsleikir í
handknattleik við heimsmeistara
Vestur-Þjóðverja, sem fram fara í
Laugardalshöll, föstudaginn 14.
nóvember og sunnudaginn 16. nóv-
ember. Verður þetta jafnframt
góð prófraun á landslið okkai sem
undirbýr sig nú af miklum krafti
undir B-heimsmeistarakeppnina í
handknattleik sem fram fer í
Frakklandi í febrúar á næsta ári.
Þar verður úr því skorið hvort
íslendingar eru enn í hópi beztu
handknattleiksþjóða heims og fá
Rumenigge
valinn
Spánskir íþróttafréttamenn
hafa valið Karl Heinz
Rummenigge besta knatt-
spyrnumann heimsins fyrir
árið 1980. Rummenigge tek-
ur við veglegum verðlaunum
úr hendi Spánarkonungs
þann 24. nóvember na'st- ,
komandi i tilefninu.
Þróttur
Aðalfundur knattspyrnudeildar
Þróttar verður haldinn á mið-
vikudaginn 19. nóvember og
hefst hann klukkan 21.00. Fund-
arstaður verður félagsheimili
Þróttar.
þátttökurétt til A-heimsmeistara-
keppninnar sem fram fer svo ári
síðar í Vestur-Þýskalar.di. En þar
verður keppt um eftirsóttasta titil
sem unnt er að vinna til í íþrótt
þessari.
Mótherjar íslendinga í lands-
leikjunum sem nú eru framundan
eru ekki af verri endanum. Það er
ekki á hverjum degi sem heims-
meistarar í knattieiksíþrótt sækja
okkur heim. Vestur-Þjóðverjar
hafa nú um langt skeið verið í
langfremstu röð handknattleiks-
þjóða í heiminum. Uppgangur
landsliðs þeirra hófst er Vlado
Stenzel tók við þjálfun landsliðs
þeirra og gerði þá síðan að heims-
meisturum. Það er oft sagt að
þýska liðið hafi til að bera „tækni
Júgóslava", „aga Sovétmanna",
leikskipulag eins og best gerist hjá
Austur-Þjóðverjum og að sjálf-
sögðu hina frægu og margumtöl-
uðu hörku Þjóðverja. Þegar þetta
allt fer saman ætti blandan að
vera góð.
Þá er rétt að benda á að
vestur-þýsk félagslið hafa alltaf
verið í fremstu röð, og nú eiga
Vestur-Þjóðverjar bæði Evrópu-
meistarana og Evrópubikarmeist-
arana. Það sem verður því hér á
boðstólum er toppurinn í heimin-
um í dag, varðandi handknattleik.
Óhætt aö spá líóðum loik
Það er óhætt að spá góðum
leikjum gegn Vestur-Þjóðverjum.
íslenska liðið er í stöðugri sókn, og
í liðinu eru leikmenn sem gjör-
þekkja þýskan handknattleik. Og
rétt er að minna á að síðast er
leikið var hér á landi töpuðu
Þjóðverjar báðum sínum leikjum
en voru þó undir stjórn hins fræga
þjálfara Vlado Stenzels.
Áhorfendur þurfa að
veita stuðninR
Búist er við að aðsókn verði góð
að leikjum helgarinnar enda ekki
á hverjum degi sem heimsmeist-
arar eru á ferðinni. Vonandi veita
áhorfendur íslenska liðinu góðan
stuðning í leikjunum, og H.S.Í.
fjárhagslegan stuðning því ekki
veitir af, þar sem mjög fjárfrek
verkefni eru framundan. Með því
að fjölmenna á leikina sýnir fólk
það í verki að það styður við bakið
á landsliðsmönnum, og það eiga
þeir fyllilega skilið. Þeir leggja
hart að sér við hið veigamikla
verkefni að komast í A-keppnina
sem fram fer í Vestur-Þýskalandi
og þurfa því á stuðningi að halda.
Til þess að ná þeim áfanga
þurfa þeir stuðning áhorfenda og
það veður gert meðal annars með
því að fylla Laugardalshöllina
báða leikdagana og hvetja ís-
lensku landsliðsmennina.
• Phil Boyer (annar f.v.) varð markakóngur í 1. deild á síðasta
keppnistimabili.
„Klúbbur 150“
Ted MacDougall — Blackpool
Bryan Robson — Sunderland
Tony Brown — West Bromwich
Dixie McNeil — Wrexham
Mike Channon — Southampton
Kevin Randall — York
Bob Hatton — Sheffield United
John Toshack — Swansea
Martin Peters — Sheffield United
Bob Latchford — Everton
Bruce Bannister — Hull City
Alan Ball — Blackpool
Peter Lorimer — York
Frank Worthington — Birmingham
Phil Boyer — Southampton
Ken Beamish — Tranmere
Alan Buckley — Walsall
256
228
218
213
188
180
174
172
169
168
168
161
159
155
154
153
150
17 LEIKMENN cnsku knatt-
spyrnunnar hafa skorað 150
mörk eða meira. Mun fleiri hafa
auðvitað náð sama árangri í gegn
um árin. en þessir 17 sem um
ræðir eru enn á fleygiferð á
knattspyrnuvöllum Englands.
Þeir kalla það að vera meðlimir í
„Klúbb 150“ og eru hreiknir af
afreki sínu. Markakóngurinn er
Ted MacDougall. sem viða hefur
stigið niður fæti. m.a. hjá York,
Bournemouth, Manchester Utd,
West Ilam. Norwich, Southamp-
ton og nú siðast Blackpool. Einn
þessara manna. Phil Boyer. varð
markakóngur i 1. deildar keppn-
inni á síðasta keppnistimabili.
Annars er „Klúbbur 150“ skipað-
ur eftirtöldum úrvalskörlum: