Morgunblaðið - 16.11.1980, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 16.11.1980, Blaðsíða 27
MNKASTR/K— Guðmundur Frí- mannsson endur- kjörinn formað- ur Varðar FUS GUÐMUNDUR Heiðar Fri- mannsson menntaskólakennari var endurkjörinn formaður Varð- ar, félags ungra sjálfstæð- ismanna á Akureyri, á aðalfundi félansins, sem haldinn var ný- lega. Önnur í stjórn voru kjörin þau Bjarni Árnason, Halldór Péturs- son, Lárus Blöndal, Guðlaug Sig- urðardóttir, Páll Svavarsson og Torfi Dan Sævarsson. í kjördæmisráð Sjálfstæðis- flokksins í Norðurlandskjördæmi eystra voru kjörnir eftirtaldir: Björn Jósef Arnviðarson, Sigurður J. Sigurðsson, Erlingur Oskarsson, Guðmundur H. Frímannsson og Páll Svavarsson. Takmarkað- ar birgðir af flugvéla- bensini VEGNA takmarkaðra birgða sem nú eru til i landinu af flugvéla- bensíni hefur verið ákveðið að takmarka sölu þess i næstu viku við atvinnu-, farþega- og sjúkra- flug. Indriði Pálsson forstjóri Skeljungs upplýsti Mbl. um eftir- farandi vegna þessa máls: Hinn 5. nóvember sl. kom olíu- flutningaskipið Yuma með um 930 tonn af flugvélabensíni til lands- ins. Þetta magn var áætlað að myndi nægja fyrir eðlilega notkun hér á landi næstu 6 mánuði a.m.k. Við nákvæma efnagreiningu, sem ávallt er framkvæmd áður en eldsneyti, sem keypt er til lands- ins, er selt til notenda, reyndust allir eðlisþættir eldsneytisins vera innan þeirra marka, sem áskilið er, að því undanskildu, að svoköll- uð „óreikul efni“ reyndust vera lítillega umfram þessi mörk. Að höfðu samráði við seljendur flugvélabensínsins var ákveðið að afgreiða ekki þetta eldsneyti að svo stöddu til notkunar á flugvél- ar. Á mánudagsmorgun nk. mun skip lesta á ný um 900 tonn af flugvélabensíni í Rotterdam. Það er væntanlegt til landsins síðari hluta næstu viku. Vegna mjög takmarkaðra birgða af eldra flugvélabensíni mun sala á því í næstu viku takmörkuð við at- vinnu-, farþega- og sjúkraflug. MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1980 2 7 Sendið okkur pantanir á áramótahöttum og húfum sem fyrst ' I:^UUP- Sími 83464. Mat fjárfestingavalkosta á verðbólgutímum. Stjórnunarfélag íslands efnir til námskeiðs um mat fjárfestingavalkosta á verðbólgutímum í fyrirlestrarsal félagsins að Síðumúla 23 dagana 24.—27. nóvember kl. 15—19 hvern dag. Þar sem fjármagnskostnaður er einn stærsti gjalda- liöur í flestum fyrirtækjum er mikilvægt aö fjármagni sé ekki ráðstafað í vafasamar fjárfestingar. Á námskeiðinu eru kynntar aöferöir sem nota má við aö velja hagkvæmustu fjárfestingu sem í boöi er hverju sinni. Námskeið þetta er einkum ætlað þeim sem annast fjárfestingaákvarðanir. Nauðsynlegt er að þeir þekki undirstöðuatriði bókhalds og rekstrarhagfræði. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Oddur Einars- son, rekstrarhagfræðingur. Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélagsins í síma 82930. A STJÓRNUNARFÉIAGISIANDS ' SÍÐUMÚLA 23 105 REYKJAVÍK SÍMt 82930 Frábær hljómflutningstæki meö tæknilega yfirburöi og hönnun fyrir fagurkera ATH.: Greiösluskilmálar eöa staögreiöslukjör LAUGAVEG 66 SIMI 25999 Útsölustaðir: Karnabær Laugavegi 66 — Karnabær Glæsibæ — Fataval Keflavík Portið Akranesi — Eplið ísafiröi — Álfhóll Siglufirði — Cesar Akureyri — Hornabær Hornafirði—M.M. h/f. Selfossi Eyjabær Vestmannaeyjum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.