Morgunblaðið - 23.11.1980, Blaðsíða 13
52
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1980
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1980
53
Ekta íslandsfar, smíðað sérstaklega í Paímpol til fiskveiða við ísland. Fyrstu skúturnar voru of
veikbyggðar og Paimpolarar þróuöu eigin skip, til að þola vond veður og ná fljótt upp hraða
með seglabúnaði, sem varð víðfrægur.
Lífið um borð var ekkert sældarbrauð. þröngum loftlausum káetum, sem
lyktuðu af tóbaki, blautum ullarplöggm, salti og slori gátu sjómennirnir
hallað ser í þröngar skápakojur.
Lítla fallega kirkjan í Perros. Anddyrið er þakiö minningarskjöldum um
horfna sjómenn á íslandsmiðum í þessu litla þorpi. Og í kirkjunni er
steindur gluggi um sjóhrakta menn á jaka við ísland.
Konur biðu á höfðanum, þar sem sá til hafs
I — X Z Koir l/Amnct i l/unrti v/iA hino mil/ln huorn f\/r i r cin o ointal nn norAi v/i A Hunnrnar Kioi lAcv/nlam ir fatnaAiir ■/ ~ . ...'. . /
I sex mánuði
norður í höfum
Þaö var fagurt ágústkvöld að við
komum akandi á bílaleigubíl eftir
noröurströnd Bretagne, tvær ís-
lenzkar förukonur, fengum okkur
ódýrt herbergi hjá hrjúfri hótel-
stýru niöri við höfnina í Paimpol.
Héldum síöan í kvöldgöngu fram á
bryggjurnar, þar sem viö gáfum
okkur á tal við gamlan sjómann.
Gamli bærinn í Paimpol, sem
Pierre Loti gerði frægan í frönsk-
um bókmenntum meö sögu sinni
um fiskimennina viö ísland,
.Pecheur d’lslande“, liggur í boga
upp af höfninni. En lifnaðarhættir
hafa mikiö breytzt frá tíma skútu-
aldar. Fiskiveiöar á fjarlægum miö-
um hafa vikiö fyrir róörum á
grunnmið og siglingum skemmti-
báta, skelfiskurinn er nú oröinn
tekjulind í Paimpol, eins og flestum
bæjum þarna á ströndinni. Þar er
þó skútuklúbburinn Glenon og
siglingaskóli, sem sóttur er allt áriö
af siglingamönnum í Frakklandi,
Bretlandi, írlandi og eyjunum á
Ermarsundi. Áratuga reynsla
Paimpolara í meðferö seglbúnaöar
og viöureign viö hafiö gerir þá
færa um aö miöla öörum af
þekkingu sinni og sérfræöinga um
sigiingar. Morguninn eftir er ein-
mitt veriö aö skipta um áhafnir á
seglbátum skólans, sem eru 3—4
metra langar skútur og mikiö um
ungmenni aö drífa sig á sjó eöa
koma aö landi í klúbbhúsinu.
í sama húsi viö höfnina er líka
sjóminjasafnið til húsa, þar sem
strax er hægt aö heyja sér fróöleik
um íslandssiglingarnar. Þær skipa
þar veglegastan sess. Blómatími
bæjarins fór saman viö þessar
siglingar, sem stóöu frá 1852 til
1935. Fyrsta íslandsfarið er þar
taliö skútan Occasion, sem lagði
úr heimahöfn 1852. Flestir sjó-
mennirnir voru frá nágrannaþorp-
inu Ploubazlanec. Fimmtán fóru og
13 komu aftur, stendur þar. Bar-
átta þeirra viö hafiö stóö í 5
mánuöi og 24 daga. Áriö eftir,
1853, fórst skútan meö manni og
mús. Enginn kom aftur þaö ár.
íslandssiglingar áttu sér þó
nokkurn aðdraganda. Elstu heim-
ildir um íslandssiglingu af þessum
slóðum er aö finna á korti frá 1514
í klaustri í nágrannaþorpinu Kere-
ly. Þar er þess getið aö sjómenn
frá Paimpol og Bréhal hafi veitt
þorsk viö ísland. Vitaö er aö skip
frá Ermarsundshöfnum voru farin
aö sækja þorsk á fjarlæg miö á 17.
öld, höföu aöstööu á Nýfundna-
landi og sóttu jafnvel á miðin viö
ísland. Á sama tíma voru sjómenn
á Bretagne þátttakendur í síldveiö-
um og eltu síldina sífellt noröar,
allt noröur undir ísland, þar sem
þeir komust í kynni við hina miklu
þorskgengd þar.
Staöfestingu á því aö franskir
sjómenn af þessum slóöum fisk-
uöu við ísland fyrir 1852 rákumst
viö sjálfar á í litla þorpinu Perras,
rétt noröan viö Paimpol. Lítil
pullfalleg kirkja vakti athygli okkar.
I anddyrinu gaf aö líta marga
minningarskildi, þar sem mátti lesa
um þá sem horfið höföu á ís-
landsmiðum úr þorpinu því — þ.e.
á blómatíma fiskveiöanna. Stund-
um ráöa af aldri aö þar heföu farist
ungur sonur og faðir, eöa af
nöfnum, að horfið heföu 3—4 úr
sömu fjölskyldunni. í sjálfri kirkj-
unni er steindur gluggi, sem sýnir
menn á ísjaka og á honum áletrun:
17. júni 1841 kl. 7 sökk „Le
Havre“. 33 björguöust upp á tvo
ísjaka. Mennirnir 66 veittu því
athygli aö í hvert skipti sem þeir
báöu til Heilagrar Maríu frá Perras,
tóku báöir jakarnir stefnu á land.
37 klukkustundum síöar voru þeir
allir hólpnir." Guösmóöirin sú er
verndarvættur þorpsbúa í Perras
og kirkjuglugginn þakkir frá þeim.
í fyrstu þurftu fiskimennirnir
auövitaö aö kynnast þessum fjar-
lægu miðum, sem þorskurinn
gengur á viö ísland. En þaö varö
fljótt aö venju aö flotinn legöi upp
aö heiman í febrúarlok. Þótt vetr-
arveöur væru váleg í Noröurhöf-
um, var mikil veiöivon aö vetrinum.
Skúturnar veiddu fyrst fyrir norðan
og vestan. í maímánuöi komu svo
fiskflutningaskipin, færöu skútun-
um póst aö heiman og læknishjálp
og tóku fiskinn til aö koma honum
óskemmdum á markaö. Síðan var
haldiö áfram veiöum, nú mest viö
austur- og suðurströndina. Bátur-
inn hlaöinn og haldiö heim í
ágústlok. Þannig fóru allir karl-
menn frá 14 ára aldri í burtu, því
enga aöra vinnu var að hafa
heima, og sumir sáu aldrei sumar-
iö eöa hinn mikla og fagra gróöur
heima í Bretagne upp frá því — aö
minnsta kosti ekki fyrr en á
elliárum. Entust þeir svo lengi,
fengu þeir svolítil eftirlaun.
Við Ekknakrossinn
Á meðan biöu konurnar heima
meö börnin og tóröu á því sem
þær gátu ræktaö og kýrin gaf.
Sumir fiskimennirnir, þeir bestu,
gátu e.t.v. samiö um ofurlítiö meiri
fyrirframgreiöslu en fyrir sjófatn-
aöi. Og ef fiskiflutningaskipiö kom
meö góöar fréttir af veiöi tiltekins
skips, þegar þaö kom af miöunum
í maí, gátu konurnar fengiö svolítiö
útborgaö strax. Annars ekki. í bók
Yves Le Roux segir frá því hvernig
hann 14 ára gamall fór í fyrsta
skipti meö fööur sínum til aO semja
viö útgeröarmanninn, sem kallaöi
hvern fyrir sig á eintal og geröi viö
hann sérsamning. Hann var einka-
mál milli þeirra tveggja. Ég spuröi
hann hvers vegna sjómennirnir
heföu ekki fremur sótt á nálægari
og hættuminni miö og hann sagði:
„Þorskurinn, manneskja. Þaö var
eini fiskurinn sem seijanlegur var á
mörkuöum Evrópu og engra kosta
völ. Fátæktin á þessum tíma var
óskapleg.“
Áöur en flotinn hélt af staö, eöa
um miðjan febrúar, var í Paimpol
kveöjuhátíö íslandsfaranna „Par-
don des Islandais", sem allir tóku
þátt í. Dýrlingurinn úr kirkjunni,
Heilög María sjófarendanna, var
borin ásamt krossinum á undan
mikilli skrúögöngu niöur á höfn,
þar sem prestar sungu messu og
blessuöu skúturnar. Fólu þær og
sjómennina guöi á vald. Á mynd-
um má sjá sjómennina standa
berhöföaöa meö konum sínum og
börnum. Allir sungu sönginn, sem
byrjar svo: „Les Pecheurs d’ls-
lande et les Terreneuve...“
„Verndaöu þá þar. Ef þeir farast,
geföu þeim þá Paradís. En láttu þá
samt flesta koma aftur." Kanónu-
skot kváöu viö og skipsbjöllur
glumdu. Þetta var hátíöisdagur
bæjarins og dansaö og sungiö á
torginu. Þennan dag var tækifæri
og síöustu forvöö fyrir unga fólkiö
aö hittast og bindast, svo sem
fram kemur í sögu Lotis. En sagan
sú þykir lýsa á raunsæjan hátt
lífinu í þessum fiskibæ, fólkinu þar
og íslandsförunum. Og hún viröist
mjög lifandi í hugum Paimpolara
og raunar Frakka allra.
Á sjóminjasafninu í Paimpol má
sjá mynd af systkinunum Stóra-
Yann og systur hans, sem Loti
haföi í bók sinni aö fyrirmynd
sjómannsins Stóra-Yanns og
Gawd, sem náöu loks saman og
giftu sig sex dögum fyrir brottför
hans á íslandsmiö, þaöan hann
aldrei átti afturkvæmt. En á gamla
torginu í bænum er enn frægt
hornhúsið, þar sem Pierre Loti bjó
og lét Gawd eiga heima.
Þaö var jafnan mikiö um aö vera
í bænum og viö höfnina í Paimpol
dagana frá kveöjuhátíöinni og þar
til skúturnar sigldu út í flota undir
dökkum seglum sínum. Vagnar
fluttu niöur á bryggjur salt, brauð
og haröa kexið fyrrnefnda, sem
bleyta þurfti í vökva, grænmetis-
tunnur og kartöflupoka, vatn og 25
tunnur af rauövíni og eplavíni, sem
enn er þjóöardrykkur Bretagne-
búa, ein tunna á mann. Menn voru
aö búa sig undir sex mánaöa
útivist. Þar viö bættust kol og viöur
til eldunar, og loks komu sjómenn-
irnir meö koffortin sin, „Coffre
d’lslandais", sem sýnishorn er af á
safninu, tréskóna sína og hálm-
dýnurnar. Nauösynlegur fatnaöur
til íslandsfararinnar var olíuklæöi,
buxur, sjóhattur og þykka bláa
mussan „Veruse”. Vindþétt og
vatnsþétt, lík yfirhöfnunum, sem
áður fyrr voru hér hlýjar skjólflíkur.
Sjófatageröir veittu mörgum
vinnu dagana þá. Og skósmiðirnir
smíöuöu tréklossa meö leöurhlíf-
um upp á hné að framan og
bundna þar upp. Þessir sérstöku
Paimpolaskór voru gjarnan teknir
vel stórir, svo aö hægt væri aö
vera í tvennum ullarsokkum í þeim.
Sjómennirnir lögöu mikiö upp úr
því aö skórnir væru óaöfinnanlegir
og vönduöu valið, svo aö ekki
kæmi fyrir aö þeir hlytu skaöa af
lekum skóm í íslenzkum vetrar-
veðrum.
Loks sigldi seglskipaflotinn út
milli eyja og skerja. Konurnar
höföu gengiö margra kílómetra
leið út á höföann til aö sjá sem
lengst til skipanna. Bestu útsýnis-
staöirnir voru taldir í Barbe, Guil-
ben Kerroc’h, Pors Even og Trin-
ité. Og á þessum sama staö tóku
íslandsekkjurnar, sem svo voru
kallaöar af því þær áttu menn sína
á íslandsmiðum, svo aftur aö bíöa
í lok ágúst, þegar von var á
skipunum.
Viö stöndum nú þarna á höföan-
um í Pors Even viö ekknakrossinn,
„Croix de Veuves", þar sem kon-
urnar stóöu og biöu dag eftir dag,
horfandi til hafs. Fyrsta segl bar
viö sjóndeildarhring. Þegar þaö
kom nær og skipið fór hjá höföan-
um inn í fjöröinn, mátti þekkja
skipið. Konunum fækkaöi á útsýn-
isstaönum. í angist beiö á hverju
ári hópur kvenna dag eftir dag,
fram í september, eftir skipunum,
sem aldrei komu.
Á hverju ári voru þeir margir
sjómennirnir, sem ekki komu aftur.
1906 sigldu til dæmis 54 skútur á
íslandsmiö, og þrjár komu ekki
aftur. Þó haföi ástandiö veriö verra
árin á undan, t.d. 1901 og 1905.
Sagnir eru á íslandi um aö 13—14
skútur hafi horfiö í vetrarveöri á
íslandsmiöum 1873, þar á meöal
skútur frá Paimpol. í safninu í
Paimpol er m.a. mynd af skútu aö
farast við grýtta strönd íslands. Og
lýst áhrifum óveöranna viö ísland á
Paimpol og fiskiskúturnar þaöan.
Jean Kerlev hefur oröaö þaö svo,
aö íslandssiglingunum hafi fylgt
ómannlegar fórnir angistar, þján-
inga, tára og sorga. Og annar
höfundur segir, aö þeim hafi „fylgt
velgengni fárra í 83 ár, og 83ja ára
sorgir fyrir fjölskyldur mannanna,
sem hurfu í hafið og aðstandendur
horfnu seglskipanna. Trygginga-
gjald skipanna voru menn“. Skútur
voru oft margar, 1895 sigldu ekki
færri en 80 skútur, yfir 200 tonn, á
íslandsmið.
Kirkjugarðurinn
geymir nöfnin
Á leiö okkar út á höföann með
Ekknakrossinum, ökum viö gegn-
um hvert þorpiö af ööru með
litlum, fallegum, steinhlöönum
húsum frá tíma íslandssiglinganna
og þröngum götum. Hvarvetna eru
kirkjur, enda íbúar kaþólskir og vel
trúaðir. í kirkjugarðinum í Plou-
bazlanec er minningaveggur um
horfna sjómenn. Maöur gengur
framhjá honum og les hvern
skjöldinn á fætur öörum: 1905
ferst Marie Louise meö 27
mönnum, Mouette meö 27
mönnum, Pierre Loti meö 27
mönnum, Sirene, Provence og
Morgane meö svipaöri áhöfn.
Þarna stendur „í minningu um Le
Gros-bræöurna þrjá, sem hurfu
viö ísland um borö í Dessais
1898". Og þarna: „Alain Ferlicat,
horfinn í hafiö viö ísland af Paim-
polaise 1907, 19 ára aö aldri". Og
hér: „í minningu um Jacques
Kerbiguet, 48 ára og son hans
Jean, 17 ára, horfnir í hafiö viö
ísland 1912 um borð í La Franca-
ise“. „Til minningar um Guillaume
Flour, sem kallaöur var Stóri Yann,
vinur Pierres Loti, skipstjóri á bát
frá Pors Even. Horfinn í hafiö
1899“. Maöur gengur áfram og les:
„Til minningar um sjómennina,
sem hurfu viö íslandsstrendur um
borö í skútunum: Occation, 15
menn, 1853. Mere Eve, 17 menn,
St. Joseph, 6 menn, Justin, 8
menn, 1859. Bonne Merc, 14
menn, Pampolaise, 18 menn,
Adolphe, 15 menn, 1863. Priez
pour eux. — Biöjið fyrir þeim.“
Þetta er mikil blóötaka í litlum
bæ. Á næsta skyldi má sjá, að
horfiö hafa í hafið viö ísland á
árinu 1867 17 menn af Mathilde,
11 menn af Pensel, 16 menn af
Charles og 16 menn af Delivasp.
Áriö eftir, 1868, eru horfnir 22
sjómenn með Charles, 18 af Esth-
er og 22 af Therese. Og þannig
gengur maöur áfram í sólskininu í
ókunnum kirkjugaröi, og líður verr
eftir því sem á lesturinn líöur —
finnst maöur hálfgert bera ábyrgö
á þessu voöalega landi, íslandi, og
því sem hafiö í kringum þaö hefur
endur fyrir löngu gert þessu fólki á
fjarlægri strönd.
En fólkinu þarna finnst þaö líka
eiga mikiö sameiginlegt meö ís-
lendingum. Borgarstjórinn, Jean le
Meur, telur ekki eftir sér aö koma
og hitta okkur, þótt hann sé í
sumarleyfi, þegar gamli Tonton
Yves hringir í hann og segist vera
meö gesti frá íslandi. Hann hefur
mikinn áhuga á aö ná meiri
tengslum milli Paimpol og íslenzks
bæjar. í Paimpol minnir margt á
En Mémoire de
Vincent GAULTIER
Disparu en mer d'lslande
ábord de kTSAINTE ANNE"
1895
Atain FERLICOT
ésparu en Islande
| a bor d de laPaimpolaisé
1907 19ans.
JeanLouis FERLICOT
iusillier/marin
ans
mjiiiíi
Ekknakrossinn stendur á
höföa úti við sjóinn. Þar biöu
konurnar, þegar þær fór aö
lengja eftir skútunum af ís-
landsmiðum. Sumar stóöu
þar dag eftir dag og aldrei
birtust seglin á skípum
manna þeirra. Ljósm. E. Pá.
þetta ísland. Þar er í gamla
bænum Gata íslandsfaranna, „Rue
des Islandais". Og viö þá götu má
sjá búö meö gömlum myndum frá
fslandstímanum, „Les Photos
Anciennes du temps d’lslande”.
Þær eru í glugganum í búöinni,
sem er lokuð. En þegar ég fer í
bókabúö til aö leita aö bók um
þessa tíma, býöst bóksalinn til aö
finna handa mér myndir. Er ég
kem þar seinna um daginn, hefur
hann raunar grafiö upp heilmikið
af gömlum póstkortum frá þessum
tíma og má ekki heyra þaö nefnt
aö íslendingur borgi fyrir þau.
En víkjum aftur aö sjómönnun-
um, sem seint í febrúar á ári hverju
sigldu í flota frá Paimpol áleiöis til
íslands, fullir eftirvæntingar. Enda
ætluöu þeir sér aö koma ríkari til
baka, svo sem segir í gamla
brottfararsöngnum þeirra: „Þegar
viö komum aftur, verðum viö
orönir ríkir. Og á næsta vetri
eigum viö meira smjör á brauöiö
okkar. Og færri áhyggjur í kollin-
um.“ Aö vísu viröist mörgum þeirra
hafa veriö þungt í huga. Stóri Yann
hans Lotis.,vildi ekki kvænast, af
því aö hann haföi hugboö um, aö
brúðurin, sem faömaöi hann, yröi
Rán á íslandsmiöum. Og Tonton
Yves leit á þaö sem dauöadóm,
þegar hann var ungur drengur
sendur á íslandsmiö.
Dugguflotinn frá Paimpol sigldi
meö Irlandsströndum noröur í
vetrarveörin, þar sem sjómennirnir
uröu aö veiöa úti á úfnu hafi, án
þess aö hafa skjól af landinu, því
ekki máttu þeir veiöa í landhelgi.
Fljótlega kom í Ijós, aö þessar litlu
ófullkomnu duggur voru alls ófær-
ar um að standast þessi veöur, og
seglabúnaöur ófullnægjandi, þar
sem óveðrin skella svo skyndilega
á. Hinir miklu skipsskaöar uröu
til þess, aö framkvæmdamenn í
skipasmíðum tóku aö bæta og
þróa duggurnar svo aö þær gætu
betur staöist slög þessa úfna hafs.
Skipin yröu aö vera mjög sterk-
byggö og fljót að ná upp hraða.
Um 1860 tók Louis Laboureur sér
fyrir hendur aö smíöa í skipa-
smíðastööinni, sem hann erföi eftir
fööur sinn, skip, sem væri bæöi
sterkara og hraðskreiöara en fiski-
duggurnar fram aö þeim tíma. Og
fyrsta fiskiskipið meö „pallsegli og
rúllusegli", smíöaö 1866, var fyrir-
rennari íslandsskútanna frá Paim-
pol, sem þóttu svo stórkostlegir
farkostir á þeim tíma. Þær urðu
ríkjandi eftir 1880. Ekki hætti ég
mér, sakir vanhæfni, til aö lýsa
þessum merkilegu íslandsförum
Laboureurs, en duggurnar þóttu
fallegar og rennilegar, 35—37 m á
lengd, 7,50 m á breidd og ristu
3—4 metra. Seglabúnaöurinn, níu
segl, 595 ferm. aö flatarmáli. Eftir
1875 var seglabúnaöurinn bættur,
svo að hægt var aö hagræöa
seglum án þess aö þurfa aö senda
menn upp í mastur. í því þótti
mikið öryggi á íslandsmiöum, þar
sem „hvassviðri ríkir tímunum
saman“. Rými þurfti aö vera gott í
íslandsförunum til aö geta geymt
sem mestan afla, enda tóku lest-
arnar þriöjung skipsins.
Skipasmíöarnar sköpuöu meö
tímanum mikla atvinnu í Paimpol,
svo og framieiösla seglabúnaöar
og varö upphafiö aö blómlegum
iönaöi, sem stuölaöi ekki síöur aö
uppgangi staöarins en fiskveiðarn-
ar. 1895 var komin þar önnur stór
skipasmíöastöö, enda þurfti tals-
vert til aö halda viö 80 skipa flota,
sem týndi svo hratt tölunni sem
duggurnar á íslandsmiöum. Þegar
mest var voru skip smíðuð og
viögerö á ekki færri en 10 stööum
í Paimpol. Seglasaumararnir unnu
úr heimaofnum striga og hvert skip
þurfti tvöfaldan seglabúnaö. Svo
eftirsótt uröu þessi sterku segl,
sem ætluö voru til íslandssiglinga,
aö brátt gátu þeir ekki annaö
eftirspurn hvaöan æva aö. Þegar
seglskipin voru aö syngja sitt
síöasta og íslandssiglingar á fall-
anda fæti — eftir fyrra stríö var
fiskiskipafloti Paimpolara kominn
niöur í 15 skip — þá var án
árangurs reynt aö setja vélar í
duggurnar. Þær stóöust ekki leng-
ur samkeppnina.
Við færið í 12—18 tíma
Líf sjómannanna frá Bretagne
var ekkert sældarlíf um borð í
þessum skipum. Þegar komiö var
upp aö ströndinni og fiskimið
fundin, raöaöi allur mannskap-
yrinn sér meöfram boröstokknum,
hlémegin, þar meö taldir skipstjóri
og stýrimaöur. Þar stóöu þeir svo
lengi sem fisk var aö fá og hreyföu
meö hægri hendi útréttri þetta 120
m langa færi meö 2—3 kg lóöi á
endanum. Iðulega án hvíldar í
12—18 tíma, og á eftir var tekið til
viö aö verka fiskinn. Þaö var
óskapleg þrekraun aö standa
svona og stíga ölduna aö sögn
Yves gamla. Og kannski ein
ástæöan fyrir því hve títt þaö kom
fyrir að menn tók út og þeir
drukknuöu án þess aö félagar
þeirra gætu nokkuö aö gert. Til aö
jafna svolítiö álagiö, fluttu menn
sig aftur eftir skipinu frá einu færi
til annars, því aö misþæqilegt var
aö standa viö veiöarnar. Á skipinu
voru oft 16—22 menn, sem skipt-
ust í 3 hópa. Stóöu tveir jafn-
an viö færiö, meðan sá þriöji
kastaöi ser út af í koju og svaf.
Þetta var mikiö haröræöi og oft
voru þeir meö bólgna fingur og
skorna af færinu, hendurnar illa
farnar þegar læknirinn loks kom
meö vorskipinu.
Mikið kapp var í sjómönnunum
aö veiöa sem mest því eftir því var
hlutur þeirra. Fiskarnir taldir. Sá
sjómaöur þótti mjög góöur sem
dró 3000 þorska og ágætur sá
sem haföi 1500—2500, en miðl-
ungsmenn þar undir.
Hvíldin var í því fólgin aö kasta
sér út af í þröngri, daunillri káet-
unni. Kojur voru lokrekkjur, eins
og títt var aö hafa í gömlu
húsunum á Bretagne, nánast litlir,
þröngir skápar meö hálmdýnum
og þar köstuöu þeir sér iöulega í
öllum fötunum. Litla kabyssan náöi
sjaldan aö þurrka plöggin, þessi
eina Ijóstýra gaf litla birtu og
loftræsting engin. Loft komst því
aöeins inn, ef rifa var á lúgunni en
iöulega varö hún aö vera lokuð
vegna veðurs. Þarna blandaöist
saman lyktin af blautum fatnaði,
tóbaki, salti, slori og óhreinindum.
Það var því ekki aö furöa þótt
sjómennirnir væru fegnir aö kom-
ast í læk og þvo af sér, ef þeir
undir voriö komust í land einhvers
staöar á Austfjöröum.
Skipstjóri og stýrimaöur höföu
káetu aftast í skútunum. Iðulega
kunnu þeir einir frönsku, enda
skipsbókin á því máli. Hinir töluöu
bretónsku. Þeir voru í einni káetu
frammí. En á milli voru fiskilestarn-
ar og geymslur fyrir varaseglin,
matföng og annan útbúnaö.
Áriö 1911 skrifar blaöamaöur,
sem fór um borö í Jeanne á
kveöjuhátíöinni í Paimpol, þegar
gestir máttu fara um borð: „Ég sá
káetu skipstjórans, sem var hrein
eins og kapella meö kompásnum
og heilagri Maríu úr postulíni hliö
viö hliö. Og ég sá geymsluna, þar
sem öllu ægöi saman, salti, niöur-
suöu, víntunnum, kartöflum . . . Ég
fór fram á, þar sem sjómennirnir
sofa í bekkjum og hvorki sól né
birta nær nokkurn tíma til þeirra.”
Einu fréttirnar, sem þessir sjó-
menn höfðu aö heiman í sex
mánuði, voru bréfin, sem fiskiflutn-
ingaskipiö kom meö í maímánuði.
Sum þessara bréfa eru til í sjó-
minjasafninu. Ein eiginkonan hefur
skrifaö manni sínum á íslandsmiö-
um: „Ég byrja þetta bréf meö sorg
í huga. Ég get ekki lýst fyrir þér
þeim sársauka, sem ég fann,
þegar ég sá fallegu Leopoldine
hverfa undir fullum seglum viö
sjóndeildarhringinn kl. 5. að
morgni. Mér fannst hjarta mitt
slegið sári. Og ég haföi hugboö um
aö ég mundi aldrei sjá þig aftur. ..
Og Yann Neber sendir svarbréf
heim meö skipinu: „Þakka þér
bréfiö þitt, litla Jeanne. Þaö upp-
örvaöi mig. Ég þölva ekki, eins og
svo oft hefur komiö fyrir mig áöur,
þótt stormur blási og hafiö æöi í
kringum okkur, svo aö þorskveiði-
dagarnir veröa færri en teljandi er
á fingrum sér. Þaö hvessti ræki-
lega í síöasta óveöri úti af Riekia-
wick. En meðan stormurinn æddi
yfir höföum okkar, sá ég þig í
huganum vagga litla Yannik."
Síðasti íslands-
farinn 1935
Á fögrum sumardegi í ágúst,
eins og þegar viö stóöum 1980 á
höföanum viö Ekkjukrossinn,
komu þeir aftur sjómennirnir af
íslandsmiöum. Hvert segliö af ööru
bar viö himin úti viö sjóndeildar-
hringinn. Ekki þýöir lengur aö bíöa
þeirra. Þaö er horfin tíö — sem
betur fer er víst óhætt aö segja.
Eftir fyrri heimsstyrjöldina hófust
veiöarnar aftur, þegar sjómennirn-
ir komu úr skotgröfunum. En nú
voru skipin mun færri en áður,
komin niöur í 15 skútur frá Paim-
pol. Vélskipin voru aö koma til
sögunnar og auk þess áttu margir
völ á annarri vinnu í iðnaði. Þegar
svo lög voru sett á íslandi 21. apríl
1922, sem bönnuöu umhleðslu
milli skipa í landhelgi, var þaö
síöasta reiöarslagiö á þessar veiö-
ar. Þá gátu skúturnar litlu ekki
lengur losnaö viö vetrarfarminn,
og útgerðarmennirnir ekki fengiö
hann óskemmdan til sölu á mörk-
uðum Evrópu. Þeir misstu því
áhugann. Og „la grande epoque”
eöa blómatímum Islandsveiöanna
var lokiö, þegar fiskiskútan La
Glycine sneri heim úr síöustu ferö
sinni á íslandsmið á árinu 1935.
Þeim kafla var lokiö í sögu Breton-
anna frá Paimpol — sögu sem
munuð er þar og víöa hér á íslandi,
þar sem Frakkar reistu sjúkrahús
og þar sem margir franskir sjó-
menn hvíla í kirkjugörðum.
í næstu grein verður sagt frá
heimsókn til síöasta íslandssjó-
mannsins í Paimpol, Tonton Yves
Le Roux. _ E.Pá.