Morgunblaðið - 29.11.1980, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980
Sigur yfir
FUippseyjum
ÍSLENDINGAR unnii Filipps-
eyinKa með l'k vinningi KCíjn Vk
í 8. umfcrð Ólympíuskákmótsins
á Möltu í Kær. Er íslenzka sveitin
nú i 12. sæti ok mjakast upp á
við.
Helgi Ólafsson tefldi við Torre á
1. borði. Hann tefldi ónákvæmt í
byrjuninni og varð að gefast upp.
Jón L. Arnason gerði jafntefli við
Mascarinas á 2. borði og á 3. borði
vann Margeir Pétursson Rodri-
guez. Margeir stóð lengi vel höll-
um fæti en náði sér á strik og
vann í peðsendatafli. Jóhann
Hjartarson tefldi af öryggi og
vann Pacis létt. Kvennasveitin
tefldi við Kanada og tapaði 1:2.
Mikil spenna er á toppnum.
Ungverjar eru efstir með 22lk
vinning en öllum á óvart eru
Finnar í 2. sæti með 22 vinninga.
Sovétmenn unnu Englendinga
2'k:llk og hafa 21 'k vinning og
sama vinningafjölda hafa Júgó-
slavar. Tékkar hafa 20'/2 vinning,
Englendingar og Svíar hafa 20
vinninga en síðan koma íslend-
ingar og fleiri með 19 vinninga.
Ákvörðunin um
Gervasoni óbreytt
ÞAÐ ER allt við það sama í máli
Gervasonis, ég veitti honum
þriggja mánaða landvistarleyfi
sem frjálsum manni þrátt fyrir
að hann væri kominn ólöglega
inn í landið og það rennur út 2.
desember og stendur óbreytt,
sagði Friðjón Þórðarson dóms-
málaráðherra i samtali við Mbl. i
gær.
— Hins vegar höfum við notað
þennan tíma til að athuga mál
hans og það hefur t.d. komið í ljós,
að Danir hafa alls ekki hugsað sér
að framselja hann fyrir það brot
hans að vilja ekki gegna herþjón-
ustu, en hins vegar má geta þess,
að hvorki við né Danir þekkjum
feril hans til hlítar. Ég hefi því
fulla ástæðu til að ætla, að Danir
taki honum vel og ég hef heldur
ekki orðið var við hinn minnsta
áhuga hjá stjórnvöldum Frakk-
lands um að fá Gervasoni fram-
seldan. Því má einnig bæta við, að
við höfum upplýsingar um að
hann geti áfrýjað máli sínu í
Frakklandi, en hann hafi ekki
kosið að gera það.
Minna má á mál Kovalenkos
hins sovézka, en þessi mál hafa
nokkuð verið borin saman. Koval-
enko notaði dvalartímann hér til
að koma sér fyrir í öðru landi, en
munur á þessum mönnum var þó
sá að annar kom löglega inn í
landið, en hinn ekki. Spurningunni
um það, hvort veita eigi t.d.
Frökkum, sem ekki vilja gegna
herskyldu, hæli á íslandi er erfitt
að svara, en ég er ekki sérlega
hrifinn af því að gera það og það
yrði þá að vera að vandlega
athuguðu máli, sagði dómsmála-
ráðherra að lokum.
Kristinn Kristjánsson
Barði Þórhallsson
Mennirnir taldir af
MENNIRNIR tveir, sem saknað
var með vélbátnum Trausta ÞH
8 frá Kópaskeri, er fórst á
miðvikudagskvöld i Axarfirði,
eru taldir af. Þeir hétu Kristinn
Kristjánsson skipstjóri, 29 ára.
er lætur eftir sig unnustu og
fjögur börn, og Barði Þórhalls-
son vélstjóri, 37 ára. er lætur
eftir sig eiginkonu og þrjú
börn.
Víðtæk skipuleg leit stóð yfir
að bátnum í allan gærdag.
Flugvél landhelgisgæzlunnar
leitaði úr lofti, björgunarsveitir
SVFÍ gengu fjörur og 13 bátar
frá Kópaskeri og Húsavík leit-
uðu á sjó, án árangurs. Þegar
myrkur skall yfir var skipulegri
leit hætt, og báturinn talinn af.
Trausti ÞH var 20 smálesta
eikarbátur, smíðaður á Akranesi
1972. Heimahöfn hans var fyrst
um sinn í Stykkishólmi, en árið
1975 var báturinn keyptur til
Kópaskers.
Siglingar
með síld
bannaðar
SIGLINGAR íslenzkra skipa
með síld til Danmerkur verða
ekki leyíðar það sem eftir er
vertíðar. Umboðsmaður LÍÍJ í
Danmörku ráðlagði útgerðar-
mönnum i gær að landa ekki
síld fram yfir það sem þegar
hefur verið gert. í framhaldi
af því ákvað Viðskiptaráðu-
neytið að banna siglingar.
Þau sjö skip, sem nú eru 4
leið til Danmerkur með afla,
fá þó að landa enda hafa þau
fengið tilskilin leyfi til þess.
Það er hins vegar útgerðar-
manna þeirra að ákveða hvort
hætt verður við að selja ytra.
Arnarne,s seidi í gærmorgun
121,6 tonn í Hirtshals fyrir
27,3 milljónir króna, meðal-
verð á kíló 217 krónur eða 2,20
krónur danskar. Er þetta
lægsta verð, sem íslenzkt skip
hefur fengið í Danmörku á
vertíðinni.
Mikill samdráttur í byggingariðnaði á Akureyri:
Aðeins byrjað á 46 blokkaríbúðum í ár,
á móti 100 til 120 undanfarin tíu ár
MIKILL samdráttur er nú I
byggingariðnaði á Akureyri, og í
ár var byrjað á mun færri nýjum
ibúðum en undanfarin ár. Þrátt
fyrir það er framboð meira en
eftirspurn á nýju húsnæði og
byggingaverktakar eru með
óseldar íbúðir, sem framkvæmdir
hófust við fyrr á þessu ári. Að
sögn Tryggva Pálssonar fram-
kvæmdastjóra byggingarfyrir-
tækisins Smára hf. á Akureyri
var byrjað á byggingu 46 íbúða í
fjölbýlishúsum á þessu ári, en á
timabilinu 1970 til 1979 kvað
Tryggvi yfirleitt hafa verið byrj-
að á 100 til 120 ibúðum á ári.
Af þeim 46 íbúðum, sem byrjað
var á fyrr á þessu ári, sagði
Tryggvi þegar búið að selja 34 eða
35 íbúðir. Nú sagði hann þrjú
fyrirtæki vinna að byggingu
blokkaríbúða, en þau voru fimm
áður. Tvö hafa því helst úr lestinni
vegna hins mikla samdráttar.
Eitthvað sagði Tryggvi einnig
vera unnið að byggingu á annars
konar húsnæði, svo sem raðhúsa,
en þar yrði einnig vart sömu
erfiðleika.
Eftirspurn eftir notuðu eða
eldra húsnæði kvað Tryggvi á
hinn bóginn vera meiri, og réði
þar mestu, að verð á eldra hús-
næði væri fast, en ekki háð
verðhækkunum vegn i hækkandi
Pétur Sigurðsson:
„Helber lygi“
„ÞESSI fréttaklausa á forsiðu
Þjóðviljans í morgun er helber
lygi frá upphafi tií enda.“ sagði
Pétur Sigurðsson, alþingismað-
ur og fulltrúi Sjómannafélags
Reykjavikur á ASÍ-þingi í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
„Ég hefi aldrei borið fram
neina tillögu um að Geir
Hallgrimssyni yrði boðið á fund
með fulltrúum á ASÍ-þingi, sem
tengdir eru Sjálfstæðisflokkn-
um.“
í „frétt" Þjóðviljans segir, að á
fundi með „áhangendum Sjálf-
stæðisflokksins á Alþýðusam-
bandsþingi“ hafi Pétur kvatt sér
hljóðs og tilkynnt „fundar-
mönnum, að Geir Hallgrímsson,
formaður flokksins, hefði hug á
að hitta fundarmenn og ávarpa
þá — væru þetta skilaboð frá
flokksformanninum". Siðan seg-
ir, að órói hafi færzt yfir salinn
og Pétur verið púaður .niður.
Hið rétta í þessu máli er að
verkalýðsmálaráð Sjálfstæðis-
flokksins bauð fulltrúum á ASÍ-
þingi til hádegisverðar á þriðju-
dag, og var þingmönnum einnig
boðið til þess að hitta fulltrúana,
einkum þá er komnir voru utan
af landi. Sigurður Óskarsson,
formaður verkalýðsmálaráðsins
sagði, í samtali við Morgunblað-
ið í gær, að á fundinum hafi
verið mjög mikil eining og ákv-
eðinn vilji fyrir því að eiga
saman hádegisstund.
Pétur púaður
niður
A þriöjudaginn var haldinn
fundur meft áhangendum
Sjálfstcbisflokksins á Alþýftu-
sambandsþingi
Pétur Sigurftsson tróft þar I
pontu og tilkynnti fundar-
mönnum aft Geir Hallgrlms-
son, formaftur flokksins. heffti
hug á aft hitta fundarmenn og
Opnunartími
verzlana
í desember
BLAÐINU barst í gær eftir-
farandi fréttatilkynning
frá Kaupmannasamtökum
íslands:
I desembermánuði er
heimilt að haga afgreiðslu-
tíma verzlana sem hér segir:
Laugardaginn 6. desember
til kl. 16.00, laugardaginn 13.
desember til kl. 18.00, laug-
ardaginn 20. desember til kl.
22.00, laugardaginn 27. des-
ember til kl. 12.00.
Á Þorláksmessu er heimilt
að hafa opið til kl. 23.00.
Á aðfangadag og gamlárs-
dag er heimilt að hafa opið
til kl. 12.00.
byggingarvísitölu. En vexti og
vísitöluhækkanir sagði hann vera
orðna svo stóran þátt í endanlegu
verðlagi, að fólk réði ekki við kaup
á nýju húsnæði, síst þegar bættist
við versnandi afkoma og minnk-
andi kaupmáttur launa. Tryggvi
sagði, að sér væri ekki kunnugt
um ástandið í þessum málum utan
Akureyrar, en sagðist þó halda að
það væri svipað í öðrum bæjarfé-
lögum úti á landi.
Tveggja herbergja íbúðir í blokk
á Akureyri sagði Tryggvi nú kosta
um 18 milljónir, 3ja herbergja 22
milljónir og 4ra herbergja um 24
milljónir króna. Hér er átt við
íbúðir í byggingu, sem tilbúnar
verða um mitt næsta ár. Á þetta
verð bætist vaxtakostnaður og
vísitöluhækkun. Samsvarandi
íbúðir, þriggja til fimm ára, sagði
Tryggvi kosta um 20 milljónir
króna (2ja hb.), 26 milljónir (3ja
hb.) og 30 milljónir (4ra hb.). —
Þar er hins vegar um að ræða fast
verð, þar sem útborgun, vaxtalaus,
dreifist á eitt ár.
©
INNLENT
Jón Laxdal:
Hlaut bókmennta-
verðlaun i Sviss
Sanitas 75 ára
SANITAS HF. var 75 ára í gær. í
tilefni afmælisins hefur fyrirtæk-
ið verið með kynningar á fram-
leiðsluvörum sínum í verzlunum á
höfuðborgarsvæðinu að undan-
förnu.
Ennfremur verður efnt til svo-
nefnds Pepsi-bíós í Regnboganum
klukkan 13 á sunnudaginn. Þar
verða sýndar teiknimyndir og
pepsi-fróðleikur og á boðstólum
verða ókeypis veitingar og happ-
drættismiðar. Aðgangur er ókeyp-
is.
Sjá nánar um afmæli Sanitas á
bls. 10 og 11.
JÓN LAXDAL leikari var í gær
sæmdur bókmenntaverðlaunum
Zurich-kantónu i Sviss fyrir þýð-
ingar sinar á íslenzkum bók-
menntum, einkum verkum Hall-
dórs Laxness. Ríkisstjóri og
menntamálaráðherra dr. Gilgen
afhenti Jóni Laxdal verðlaunin.
sem eru jafnvirði um einnar
millj. ísl. króna.
— Þessi verðlaun voru mér veitt
fyrir störf mín að þýðingum á
verkum Halldórs Laxness og
kynningu á ýmsum íslenzkum
bókmenntaverkum, en um leið
voru einnig afhent verðlaun fyrir
tónlist og myndlist, sagði Jón
Laxdal í viðtali við Mbl., en hann
er búsettur í Sviss. — Þessi
viðurkenning er mikil hvatning og
viðurkenning fyrir mig, því ég hef
mikinn áhuga á að vinna að
frekari þýðingum íslenzkra bók-
menntaverka og kynna íslenzk
skáld hér úti og finnst mér mikils
virði hversu vel því hefur verið
tekið.
Jón Laxdal kvaðst hafa í nógu
að snúast um þessar mundir, hann
léki m.a. verk sitt Heimssöngvar-
ann, sem er einræða, bæði í Basel
og Zúrich og hann hefði í hyggju
að vinna að samningu tveggja
annarra leikrita auk þýðingar-
starfa sinna.
Jón Laxdal