Morgunblaðið - 29.11.1980, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980
11
Starfsstúlkur í efnajferð fyrirtækisins hér á árunum áður.
• '**<* **»' •*** #»♦-« >**
*W——
CZaztu
tmr <Dosárykíiir -m
á áJslanái
iiomn «*r * *
,£anifas“.
nXvor* 0*gna *r*t „Sanita*"-gaadrgíáiir foiiari »n a$riv $i-&&rtfK£ir T
<&egna pass, að „Saniias“ sóti-
fírainsar vatnið!
?
*Xv*r* tm Irtffétá þvi, #£ «
£&*£+$ A\M}ag«r$im ?
tfíjf þt>t iA#£is&Á*ir •Su-im
xm*6riru*4r
•*$
Auelvsinn frá Sanitas á árinn 1Q1S
starfsemi enn þann dag í dag.
Miklar breytingar voru gerðar á
húsinu og það innréttað í sam-
ræmi við kröfur nútíma gos-
drykkjaverksmiðju. Jafnframt
voru settar upp nýjar og full-
komnar gosdrykkjavélar, en þær
voru keyptar frá Danmörku.
Breytingum þessum og uppsetn-
ingu nýju vélanna var lokið á
miðju ári 1959 og hófst þá fram-
leiðsla fyrirtækisins í þessu nýja
húsi. Nýja verksmiðjuhúsið var
mjög rúmgott á þessum tíma,
enda allt að þrisvar sinnum
stærra en fyrra húsnæði, sem þá
var selt Sjómannafélagi Reykja-
víkur og Verkamannafélaginu
Dagsbrún.
Eins og ég sagði áður, er
starfsemi fyrirtækisins enn í
þessu sama húsnæði við Köllun-
arklettsveg, en það er í dag alltof
lítið fyrir starfsemina og við því
farnir að líta í kringum okkur
eftir nýju húsnæði undir starf-
semina. í því sambandi kemur
bæði til greina nýbygging eða
eldra húsnæði, sem gæti hentað
okkur. Reyndar má skjóta því hér
inn í, að á árinu 1976 var byggt við
húsnæðið hér og keyptar inn nýjar
vélar," sagði Ragnar.
Sanitas og Sana
sameinast
Nú sameinuðust verksmiðjurn-
ar Sanitas og Sana á Akureyri
ekki alls fyrir löngu og síðan urðu
á fyrirtækinu eigendaskipti og í
kjölfar þess skipti á stjórnendum,
er ekki svo? — „Það er alveg rétt,
að Sanitas og Sana sameinuðust
fyrir tveimur árum, til mikils
hagræðis fyrir bæði fyrirtækin,
sérstaklega hvað varðar flutninga
og dreifingu. Við getum með því
móti veitt mun betri þjónustu
bæði hér fyrir sunnan og á
Norðurlandi. Síðan var það á
síðasta ári, að eigendaskipti urðu
á fyrirtækinu og það sameinaðist
Polaris hf. Var það gert sérstak-
lega til þess að styrkja fjárhags-
legan grundvöll fyrirtækisins, en
hann hafði verið frekar slakur
nokkur undanfarin ár. Á þessu ári
munum við svo komast á réttan
kjöl að nýju. Það getum við
þakkað stóraukinni sölu um allt
land, sérstaklega hefur Pepsi náð
góðri fótfestu fyrir norðan.
Reyndar má segja, að mikil sölu-
aukning hafi orðið á allri okkar
framleiðslu á undanförnum mán-
uðum. Það sem er kannski
ánægjulegast við þá þróun er að
markaðurinn í heild sinni hefur á
þessum sama tíma dregizt nokkuð
saman," sagði Ragnar ennfremur.
Diet Pepsi
Þið hafið bryddað upp á ýmsum
nýjungum undanfarna mánuði og
eruð reyndar að þessa dagana,
hverjar eru þær helztu? „Það má
kannski byrja á því að nefna Diet
Pepsið, eða sykurlausa Pepsið,
sem við settum á markað á sl. ári.
Salan á því hefur verið mjög góð.
Þá settum við nýjar umbúðir á
markaðinn fyrir líters Pepsi, sem
hefur náð miklum vinsældum. Nú
í siðasta mánuði settum við á
markaðinn Sanitas Pilsner og
salan á honum hefur verið svo
mikil, að við höfum með engu móti
getað annað eftirspurninni. Við
vonumst þó til að geta annað
henni í næsta eða þarnæsta mán-
uði. í síðustu viku settum við svo
Ginger Ale á markað og í þeirri
næstu munum við setja Sódavatn
á markaðinn. Það . er reyndar
okkar stefna, að vera með sem
allra fjölbreyttasta línu. í dag
framleiðum við eins og áður sagði
alls 12 tegundir af gosdrykkjum
og öli, hér í Sanitas og hjá Sana á
Akureyri. Varðandi Sanitas Pilsn-
erinn, þá er hann fyrst og fremst
hugsaður sem samkeppni við er-
lenda ölið, og hann hefur t.d. ekki
dregið úr sölu á Thule að neinu
marki. Það eru einfaldlega nýir
kaupendur, sem koma þarna inn í
dæmið," sagði Ragnar.
Sulta, saft ok djús
Hvernig er hinum þætti fram-
leiðslunnar, þ.e. sultu-, saft- og
djúsgerð, háttað? — „Það má
reyndar segja, að sá þáttur fram-
leiðslunnar fari fram með mjög
hefðbundnum hætti. Hefur reynd;
ar lítið breytzt undanfarin ár. í
því sambandi má geta þess, að við
erum þegar farnir að huga að
ýmsum endurbótum þar á, með
aukna framleiðni og hagkvæmni í
huga,“ sagði Ragnar.
Áð síðustu Ragnar, hvernig líst
þér á framtíðina? „Mér líst ágæt-
lega á framtíðina, enda höfum við
verið í stöðugri sókn allt þetta ár á
öllum vígstöðvum, enda getum við
boðið upp á mjög gott úrval
gosdrykkja og öls í dag. Þar við
bætist svo, að við höfum á að
skipa mjög góðu starfsfólki," sagði
Ragnar að síðustu.
Hjá Sanitas og Sana starfa í
dag liðlega 80 manns, þar af
tæplega 60 manns hér í Reykjavík
rúmlega þriðjungur þess starfsliðs
vinnur beint að framleiðslu, um
þriðjungur að dreifingu og loks
starfar tæplega þriðjungur starfs-
liðsins, að stjórnun og sölumálum
á vegum fyrirtækisins. Eftir að
eigendaskipti urðu á fyrirtækjun-
um og þau sameinuðust Pólaris hf,
heita þau Pólaris hf. — Sanitas
verksmiðjan og Pólaris hf. —
Sana-verksmiðjan, og stærsti eig-
andinn og stjórnarformaður er
Páll G. Jónsson.
Aðeins
þaðbesta
„lceland Review kemur alltaf eins og langþráður gestur
f rá IslandÍ. (Úr bréfi frá lesanda ritsinserlendis.)
Sendu vinum þínum í útlöndum gjafaáskrift - og fáðu
heilan árgang í kaupbæti.
Gjöf, sem berst aftur og aftur - löngu eftir að allar hinar
eru gleymdar, og segir meirafrá landi og þjóð en margra
ára bréfaskriftir.
Iceland Revlew
Hverfisgötu 54, sími 27622,101 Reykjavík.
0 Nýrri áskrift 1981 fylgirallur
árgangur 1980 í kaupbæti, ef
óskað er. Gefandi greiðir .
aðeins sendingarkostnað.
O Útgáfan sendir viðtakanda
jólakveðju í nafni gefanda,
honum að kostnaðarlausu.
O Fyrirhöfnin erengin og
kostnaðurinn lítill. Hvert nýtt
hefti af lceland Review styrkir
tengslin.
□ Undirritaður kaupir_______gjafaáskrift(ir) að lceland Review 1981
og greiðir áskriftargjald kr. 9.900 að viðbættum sendingarkostnaði
kr. 2.800 pr. áskrift. Samt. kr. 12.700.
□ Árgangur 1980 verði sendur ókeypis til viðtakanda(-enda) gegn
greiðslu sendingarkostnaðar, kr. 2.500 pr. áskrift.
Nafn áskrifanda
Sími Heimilisfang
Nafn móttakanda
Heimilisf.
Nöfn annarra mottakenda fylgja með á öðru blaði. Sendið til
lceland Review, pósthólf 93, Reykjavik, eða hringið í síma 27622.
—sb.