Morgunblaðið - 29.11.1980, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980
15
Aldur
Reykvíkingar verða stöðugt færri: |
Fæðingar standa
í stað, en öldruð-
um f jölgar hratt
REYKVÍKINGUM fjölgaði um 160
manns á árinu 1979, en hafði áður
fækkað um nálega 1500 manns á
timabilinu 1. des. 1975 til jafn-
lengdar 1978. Þetta er athyglisverð
breyting. en boðar engin þáttaskil,
segir í nýútkominni Arbók Reykja-
vikur frá borgarhagfræðingi.
Breytingin verður rakin beint til
þess, að brottfluttir umfram að-
flutta urðu færri i fyrra en undan-
farin ár. í skýrslunni um mann-
fjölda kemur einnig fram að fólki
fækkar nálega i öllum grónum
hverfum borgarinnar og meðalald-
ur Reykvikinga hækkar jafnt og
þétt. Hann er nú rétt 34 ár.
Ár hvert flytjast fleiri börn úr
borginni en þangað koma í staðinn
og tala fæðinga stendur nánast í
stað, þótt konur sem geta alið börn
hafi ekki fyrr verið jafnmargar í
Reykjavík. Rosknu fólki og öldruð-
um fjölgar ört. Þessi lýsing gefur
það til kynna að á næstu árum dragi
saman með tölum um fjölda lifandi
fæddra barna og fjölda dauðsfalla í
Reykjavík. Við samskonar aðstæður
næði tala Reykvíkinga sennilega
ekki 90 þús. manns árið 1990. Er þá
átt við að samskonar fólksflutn-
ingar yrðu til og frá borginni á
tímabilinu.
1. desember 1979 voru Reykvík-
ingar 83.536 talsins eða 36,84%
landsmanna. Hefur sú hlutfallstala
farið lækkandi á þessum áratug, því
1969 voru Reykvíkingar 40,5%
landsmanna. AUs voru á landinu
1979 226.724 manns. Fjölgaði lands-
mönnum um 1.04% þá, eða um 2340
manns. En Reykvíkingum um
0.19%. Ef allt höfuðborgarsvæðið er
tekið, þ.e. Reykjavík, Mosfellssveit,
Seltjarnarnes, Kópavogur, Garða-
bær, Bessastaðahreppur og Hafnar-
fjörður, þá eru íbúar þar 120.085
manns miðað við að 1. des 1979 og
hlutur höfuðborgarsvæðisins
52,97% landsmanna. Sé tekið allt
Reykjanessvæðið fer hlutfallstalan
upp í 58,91. Konur eru fleiri í
Reykjavík en karlar, þar sem karlar
eru 40.460 talsins en konur 42.905.
Öldruðum fjölgar sífellt í Reykja-
vík í hlutfalli við yngri aldurshópa.
Á sl. ári voru 60 ára og eldri 14.379
talsins eða 17,2% af íbúum. Til
samanburðar má geta þess að fyrir
5 árum 1972 voru þeir ekki nema
14,6% af íbúum. Ef miðað er við
hærra aldursmark eru nú 9. 168
íbúar eldri en 67 ára, þar af 2266
yfir áttrætt. Til samanburðar má
geta þess að áttræðir og eldri eru
ekki nema 396 í nágranna-
sveitarfélgöum Reykjavíkur sam-
anlagt, þ.e. Kópavogi, Sel-
tjarnarnesi, Garðabæ, Hafnarfirði,
Bessastaðahreppi og Mosfellssveit,
og 2912 manns eldri en sextugir.
Ef litið er á meðfylgjandi línurit
um aldursskiptingu íbúa Reykjavík-
ur í des. 1969 og 1978 (og þó hefur
enn fjölgað öldruðum um 0,2% milli
áranna 1978 og 1979) þá má sjá að
stærstu árgangarnir eru nú frá 15
ára og upp í þrítugt, en yngri
aldurshópar eru fámennari. Þarna
er stóri hópurinn, sem var að
sprengja barnaskólana og barna-
heimilin fyrir skömmu og er nú
kominn í framhaldsskólana og há-
skóla og er einnig nú með fullum
þunga á markaðinum fyrir nýtt
húsnæði. En þessi hópur á eftir að
færast upp og eldast — og auka á
vanda hinna öldruðu, jafnframt sem
yngra fólkinu og vinnandi kemur til
með að fækka.
HELGARVIÐTALIÐ:
MEÐAL ÞEIRRA mörgu mála, sem til umræðu voru á Fiskiþingi voru öryggismál
sjómanna og var talsveröum tíma variö í umræöur um vitamál. í ályktun
Fiskideildarinnar á Austfjöröum segir m.a. aö ástand vita í fjóröungnum sé nú
þannig aö ekki veröi viö unaö. Þrátt fyrír ítrekaöar ábendingar og óskir hafi
vitunum hrakað á undanförnum árum. I ályktun Fiskideildarinnar á Norðurlandi
er mælzt til þess, aö Ijósmagn vita viö Skagafjörö veröi aukiö. Segja
Norölendingar aö Ijósmagn þeirra sé alltof lítiö aö undanskildum vitanum á
Hrauni. í ályktun Fiskideildarinnar í Vestmannaeyjum er bent á brýna nauösyn
þess aö auka Ijósmagn Þrídrangavita.
..Vióhaldi
vita hefur
hrakaó á
síðustu
árum“
Sigurgeir Ólafsson frá Vest-
mannaeyjum haföi framsögu um
öryggismál á Fiskiþingi og spjall-
aöi Morgunblaðiö viö hann um
þau mál og vanda útgeröar í
Vestmannaeyjum á fimmtudag.
Sigurgeir var kjörinn formaöur
fiskideildarinnar í Vestmannaeyj-
um í sumar í staö Guðmundar
Karlssonar alþingismanns. Sig-
urgeir er nú háseti á Herjólfi, en
geröi áöur út og var skipstjóri á
Emmu og Lunda. Þá var hann um
tíma stýrimaöur á Vestmannaey
og Klakk. Viö spuröum Sigurgeir
fyrst um vitamálin, sem þrjár
fyrrnefndar fiskideildir ályktuöu
um á fundum sínum.
„Menn telja ýmsum hlutum
mjög ábótavant í vitamálum og
aö viöhald vita hafi veriö slælegt
á seinni árum,“ sagöir Sigurgeir.
„I mörgum vitanna er of lítiö
Ijósmagn aö mati sjómanna og
má í því sambandi nefna Þrí-
drangavita, en geisli hans er ekki
nærri því eins sterkur og áöur
var.
Vitamálin eru aö sjálfsögöu
gífurlega mikiö öryggis- og hags-
munamál sjómanna, en í þeim
málaflokki eru einnig mörg önnur
stórmál. Mér finnst aö menn séu
svolrfiö að sofna í þeim efnum
meö sífellt stærri og fullkomnari
skipum.
Af málum, sem eru til um-
ræöu, má nefna, aö Sunnlend-
ingar vilja lögleiöa örbylgjustööv-
ar í gúmbáta og þar er um
stórmál aö ræða. Sjóslysanefnd
hefur gert tilraunir meö sleppi-
búnaö gúmbáta og þaö er mál,
sem viö þurfum aö fylgjast vel
með og fylgja eftir. Björgunar-
netiö hans Markúsar Þorgeirs-
sonar vil ég lögleiöa og tel þaö
tvímælalaust mikið öryggistæki.
Sigurgeir ölaísson
Ég hef séö það í notkun og þori
því aö mæla meö því. Þaö er
hægt aö telja upp mörg mál, en
umfram allt veröum viö aö vera
vakandi í þessum málum og vera
duglegir aö fylgja samþykktum
og ályktunum eftir."
— Er ekki ævinlega veriö aö
gera ályktanir og samþykktir um
sömu málin án þess aö nokkuö
frekar gerist síðan?
„Það má segja þaö, hin ýmsu
félög taka sömu málin til um-
Hrollaugseyjarviti
ræöu og samþykktir þeirra eru
keimlíkar. Síöan gerist lítiö og
alltof oft liggja þessi stóru mál í
stofnunum og nefndum, daga
uppi eöa veröa steinrunnin í
kerfinu. Þarna veröum viö aö
standa okkur betur og fylgja
þessum málum alla leið. Þaö er
of mikið í húfi til aö viö megum
sofna.“
22 bátar hafa horfið
úr Eyjaflotanum
— Rætt hefur veriö um fækk-
un báta í flota Vestmannaeyinga
á sama tíma sem floti lands-
inanna stækkar sífellt. Hefur
tekizt aö snúa þessari þróun viö?
„Frá 1978 hafa 12 bátar veriö
seldir frá Vestmannaeyjum, 8
bátar veriö dæmdir ónýtir og 2
bátar hafa farizt á þessu tímabili.
Samtals eru þetta 22 bátar og
þessari óheillavæniegu þróun
hefur því miður ekki tekizt aö
snúa viö. Einn bátur hefur komiö
í staðinn fyrir þessa 22 báta og
allt útlit er fyrir aö annar fari í
hans staö. Aö auki eru margir
bátar á söluskrá og er allt eins
líklegt aö einhverjir þeirra veröi
seldir.
Ástæðurnar fyrir þessu eru
margar og maður gæti ímyndaö
sér að útgerðarmenn í Eyjum
fengju ekki nægilega fyrir-
greiöslu, þó svo aö Útvegsbank-
inn hafi gert mikiö. Ég vil ekkert
fullyröa um þessi mál, en mér
viröist, aö þó Eyjamenn afli vel
og ekki minna en aörir á fiski-
bönkunum, gangi verr í þeim
bönkum þar sem peningar eru.
Viö gerum okkur grein fyrir
því, aö fiskiskipaflotinn er nógu
stór í heild sinni, en ef fram
heldur sem horfir hjá okkur í
Vestmannaeyjum er framtíö
byggöarlagsins í hættu. Því þarf
aö koma til ör endurnýjun á
Eyjaflotanum og viö erum meö-
mæltir (íeim tillögum, sem fram
hafa komiö um raösmíði skipa af
ýmsum stæröum.
Þaö er okkur Vestmanneying-
um lifsnauösyn aö bátunum
fjölgi. Viö lifum af fiski og nánast
engu öðru og ég vil ekki hugsa
þá hugsun til enda ef útgerö frá
Eyjum minnkar enn. Þaö er ekki
nóg fyrir okkur Vestmanneyinga
aö hafa góöan prest og mikiö af
góöu andlegu fóðri, ef viö höfum
ekkert brauöiö," sagöi Sigurgeir
Ólafsson aö lokum.
Síungar og
syngjandi
ÞAU eru mörg kvenfélögin og
þeir eru margir kórarnir. Hins
vegar fréttist ekki á hverjum
degi af kórum, sem skipaðir eru
konun frá hinum ólikustu
stöðum á landinu.
í Kópavogstíðindum var nýlega
greint frá Ömmukórnum og þar
Mynd Kópavogstlðindi
segir, að í honum séu 8 konur og
kórinn sé orðinn 8 ára. Byrjunin
var söngur á ársþingi Kvenfélaga-
sambandsins og konurnar hittast
síðan af og til og taka lagið
saman. Allar eru þær ömmur,
börnin voru orðin 38 í byrjun
þessa mánaðar og barnabörnin 37
talsins.
Með gítarinn er Guðrún Guð-
mundsdóttir frá Sandhólaferju í
Rangárþingi, annan gítarleikara
Fyrirtæki um
skoðanakannanir
STOFNAÐ hefur verið í
Reykjavík fyrirtæki, sem
ber nafnið „Skoðanakann-
anir á íslandi". Tilgangur
fyrirtækisins er að fram-
kvæma skoðanakannanir
og markaðskannanir á ís-
landi, segir í Lögbirtinga-
blaðinu. Það er dr. Bragi
Jósepsson, sem rekur fyrir-
tækið.
vantar á myndina, Elínu Jakobs-
dóttur frá Grímsey. Standandi
eru frá vinstri: Sigurbjörg Þórð-
ardóttir frá Breiðabólstað á
Fellsströnd, Ragna Kristjánsdótt-
ir frá Bár í Flóa, Ólöf Þorbergs-
dóttir af Álftanesi, Þuríður Egils-
dóttir frá Króki í Biskupstungum,
Pálína Pálsdóttir frá Eyrarbakka
og Ólafía Jensdóttir frá Selárdal í
Arnarfirði.
Thomas Nielsen
Kienzle, en
ekki Kingslay
í Hiaðvarpanum sl. Iaugardag
misritaðist nafn þýzka fyrirtækis-
ins Kienzle Apparate Gmbh. í
blaðinu stóð Kingslay. Fyrirtækið
er m.a. vel þekkt fyrir tölvubúnað.
„Specialist-
eme - vi bare
köber dem“
THOMAS Nielsen, forseti
danska Alþýðusambands-
ins, LO, er staddur hér á
landi um þessar mundir.
Nielsen hefur lengi starfað
fyrir verkalýðshreyfinguna
í Danmörku og segist vera
„alinn upp í verkalýðs-
hreyfingunni". Hann var
spurður álits á stjórnar-
kjöri í ASÍ og að „sérfræð-
ingur“ sambandsins væri
kosinn forseti. Svar Niels-
ens var stutt og laggott:
„Specialisterne — vi bare
kober dem.“