Morgunblaðið - 29.11.1980, Side 21

Morgunblaðið - 29.11.1980, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980 21 eiríksgata Aístöðumynd. Hnitbjörg lengst til hægri er barnaheimilið á miðri mynd. yfir ánægju sinni með teikn- ingarnar eins og þær liggja nú fyrir." Það er samdóma álit allra þeirra sem við höfum hitt eða frétt af og fást við rekstur barna- heimila, að hagkvæmast sé að þau séu á einu gólfi. Má vera að það stafi af því að menn hafi ekki ráðgast við Gunnlaug Þórðarson um þetta efni. 2. Bull Greinarhöfundur heldur því fram að undirritaði og jafnvel arkitektar yfirleitt teikni flöt þök til þess að skaða íslensku þjóðina og ennfremur að þeir búi til hallandi þök til þess að auðga sjálfa sig. Staðhæfingar af þessu tagi eru bull, sem ekki er hægt að elta ólar víð. 3. Byggingarkostnaður, staðarval og verðmæti lóðar „Engum sem skoðar uppdrætti af þessari fyrirhuguðu byggingu á einum viðkvæmasta bletti borg- arinnar getur dulist að hún verður óhemju dýr í byggingu. Það mætti segja mér að...“ Hefðirðu nú bara spurt, Gunn- laugur! Löngu áður en umrædd grein birtist lá fyrir hver yiði bygg- ingarkostnaður hússins við þá verkþætti sem taka til forms þess og útlits — meðtaldir skágluggar og stórt þak. Heldur fáfengilegt er því að hafa uppi mikla geypan með getgátum um verð hússins. Tilboð voru opnuð þann 14. október 1980 í að gera húsið fokhelt og ganga frá því að utan, steypa veggi í lóð og grófvinna hana. Alls bárust 12 tilboð og voru þau frá kr. 92.816.262.- til kr. 111.553.800.-, ef eitt boð er frátal- ið. Kostnaðaráætlun var kr. 97.938.000.-. Meðaltal þriggja lægstu boða var kr. 94.348.000.-. Meðal bjóðenda voru margir reyndir og virtir byggingameist- arar og því engin ástæða til að ætla að um undirboð sé að ræða enda hefir nú verið samið við lægstbjóðanda um framkvæmd verksins. Áætlað er að kostnaður við þennan verkþátt sé um 54% af heildarbyggingarkostnaði. Alls er húsið 450 fermetrar og 1808 rúmmetrar. Verð á hvern fer- metra er þá kr. 206.000.- en á rúmmetra um kr. 51.000.-. Til samanburðar má benda á að áætluð tala frá byggingadeild menntamálaráðuneytisins um byggingarkostnað skóla fyrir hlið- stæðan verkþátt er á fermetra um kr. 219.000.- en reyndar hefur sú tala reynst of lág fyrir flestar skólabyggingar á síðustu árum. Ennfremur að rúmmetraverð fyr- ir hliðstæðan verkþátt í svo- kölluðu vísitöluhúsi, þ.e. fjölbýlis- húsi, er um 52.000.-. Á þessu sést að byggingarkostnaður hússins er nokkru lægri en gengur og gerist. Að sjálfsögðu skipta nokkrir gluggar, sem ekki hafa öll horn rétt engu máli í því sambandi enda mála sannast að þótt lög- manninum vaxi í augum að ákvarða önnur horn en rétt, þá kunna smiðir og glerskurðarmenn ofur einfaldar aðferðir til þess. „Spurning hlýtur að vakna hvaða börn eiga að njóta þeirra forréttinda (svo!) að vera i þess- ari þakhöll...“ segir greinarhöf- undur. Því er til að svara að það eru fyrst og fremst börn af svæðinu næst heimilinu, þ.e. úr austurbænum en sú stefna er ráðandi í staðarvali dagheimila og leikskóla að börn eigi þess kost að sækja stofnanir sem styst frá heimili sínu svo ekki þurfi að flytja þau um langan veg með ærnum tilkostnaði. Tillaga Gunnlaugs um að leysa dagvistunarmál þessara barna með því að reisa tvö dagvistunar- heimili í Steinahlíð inn við Elliða- vog, „sem væri einkar kærkomin fólki í Breiðholti og Árbæjar- hverfi,“ verður að teljast frumleg. Þá væri komið í veg fyrir það, sem Gunnlaugi „virðist fráleitt með tilliti til verðmætis lóðar og notagildis húss.“ sem sé að reisa þarna barnaheimili á einni hæð. Satt er það að arðbærari hús, mælt beint í krónum og aurum, mætti byggja þarna. Hitt er víst að fá starfsemi myndi lífga eins mikið upp á umhverfið og þessi. Kannski mætti í leiðinni benda á að hús á næstu lóðum, þ.e. Hnit- björg og Hallgrímskirkja eru heldur engin stórgróða fyrirtæki, mæld með sömu mælistiku. Og minna má á að skrifað stendur: „leyfið börnunum ...“ sunnudagur íaðventu Við bjóðum aðventukransa, ótal tegundir. Allt efni í aðventukransana færðu hjá okkur. Á morgun, fyrsta sunnudag í að- ventu, höldum við upp á daginn og bjóðum upp á heitt kakó og heima- bakaðar smákökur. OPIÐ ALLA DAGA OG UM HELGAR FRÁ KL. 9-9 HÉRERBÓKIN! ÁTJAN KONUR, ferill þeirra og framtak í nútímahlutverkum Hin síðari ár hefur ört stækkandi hópur kvenna gengið lítt troðnar leiðir menntunar og sérhæfðra starfa, andlegra sem verklegra. Hér segja 18 konur sögu sína og sanna góðan árangur athafna, sem án efa hefur á stundum reynt á þolið og kostað erfiði. Afrek þeirra mun verða öðrum fyrirmynd og hvati á braut mennta og starfsvals. — Þetta er tímabær bók í þjóðfélagi, sem ört breytist, verður æ sérhæfðara og flóknara. Gísli Kristjánsson ritstýrði og bjó til prentunar. Fríða Á. Sigurðardóttir: PETTA ER EKKERT ALVARLEGT Hér er bók, sem enginn unnandi fagurs skáíd5HaPar ma la*a framhjá sér fara ólesna. Hér fer saman skilríkt og fagurt mál, ótvíræð frásagnarlist, »f3Sh!*n'n9u.r.°9 samuð með því fólki, sem frá er sagt. Hér tekst galdur góðrar sagnalistar. — AhugávC.r?ar' höfundur en Fríða A. Sigurðardóttir hefur ekki sent frá sér frumverk um langt árabil. SKUGGSJÁ BÓKABÚD OUVERS STEINS SE

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.