Morgunblaðið - 29.11.1980, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980
„Sjómenn ekki of
sælir af sínu“
HÁSETI á einum skuttogaranna
Dagrúnu hafði samhand við Mbl.
og gerði athugasemdir við ýmis-
legt í frétt um laun skipverja á
skuttogurum. sem hirtist i biað-
inu á fimmtudag. Sagði hann. að
sér virtist sem í útreikningum
væri miðað við að viðkomandi
togari væri á þorskveiðum og
allur aflinn færi i 1. flokk.
Fullveldisfagnaður
Fullveldisfagnaður Stúdentafé-
lags Reykjavíkur verður að Hótel
Loftleiðum í kvöld. Enn eru óseld-
ir nokkrir miðar og verða þeir
seldir á hótelinu milli kl. 13 og 14 í
dag.
W?NKn$TRIK
Ekki væri vikið einu orði að
skrapveiðunum, en þær veiðar
kölluðu oft á mesta vinnu, en
minnst laun. Nefndi hann sem
dæmi að siðastliðið vor hefði
skuttogarinn Dagrún fengið um
eitt þúsund tonn af grálúðu á
röskum mánuði. Staðið hefði verið
18 tíma dag hvern á veiðunum, en
vikulaunin hefðu verið svipuð og
hjá þeim, sem sáu um löndunina
og unnu mun skemmri tíma.
Þá sagði hann, að tæpast væri
rétt farið með, að úthaldsdagar
væru 330-340 á ári hjá meðalskipi.
Úthaldsdögum hefði fækkað veru-
lega síðustu ár m.a. með aukinni
sókn í ódýrari fisk, en á þessu ári
t.d. vegna erfiðleika frystihúsa.
Loks sagði þessi sjómaður, að
laun margra sjómanna væru mik-
il, en laun miklu fleiri væru lítil
miðað við þá vinnu, sem að baki
liggur. Sagði hann að einfalt væri
að fletta upp í skattskrám og þá
kæmi í ljós að hásetar á flestum
togaranna væru hvergi meðal
þeirra tekjuhæstu. „Það er aldrei
tt.~ minnzt á hina miklu vinnu sjó-
manna, aldrei minnzt á fjarvistir
frá heimilum. Það er aðeins sagt
frá tekjum sjómanna í beztu
hrotunum, en síðan þagað þunnu
hljóði þess á milli og sannleikur-
inn er sá, að sjómenn eru ekkert of
sælir af sínu,“ sagði þessi sjómað-
ur að lokum.
‘^ÓÍÍTNÚ^NM/ÓÁAÖM^
mvubmwMVMm
154. árgangur
Skírnis kominn
SKÍRNIR. tímarit Hins islenzka
bókmcnntafélags. 154. árgangur.
er kominn út. og er meginefni hans
um leikhús og leikbókmenntir.
Fyrst er: „Um leikstjórn" eftir
Svein Einarsson, Þjóðleikhússtjóra,
erindi á aðalfundi Hins íslenzka
bókmenntafélags 17. desember 1979.
Næst kemur „I»ftur á leiksviðinu",
grein um Galdra-Loft Jóhanns Sig-
urjónssonar í íslenzku leikhúsi eftir
Jón Viðar Jónsson. Þá er birtur
einþáttungurinn: „Hlæðu, Magdal-
ena, hlæðu" eftir Jökul Jakobsson,
og grein eftir Pál Baldvin Baldvins-
son um revíur í Reykjavík". Og þú
skalt sofa í ár. Loks er grein eftir
ritstjóra Skírnis, Ólaf Jónsson, sem
ber heitið Leikrit og leikhús og
undirtitilinn: Um íslenzka leikrita-
gerð eftir 1950.
Einnig eru birt bréf til Skírnis og
ritdómar. Þessi árgangur Skírnis er
um 200 efnissíður og fylgir honum
Bókmenntaskrá Skírnis, samantekt
Einars Sigurðssonar um skrif um
íslenzkar bókmenntir 1979.
„Blessað barnalán“ í Færeyjum
Færeyska leikfélagið Sjónleikarfélagið í Þórshöfn hefur hafið sýningar á leikriti Kjartans Ragnarssonar.
„Blessað harnalán". Leikritið er sýnt í færeyskri þýðingu Ilans Thomsens og ber heitið „Barnalótir".
Leikstjóri er Elin Mouritsen. Meðfylgjandi mynd sýnir atriði úr uppfærslu Færeyinganna á lcikritinu.
Greinargerð í máli Gervasonis:
„Gætum þurft að
aðstoða fleiri“
MORGUNBLAÐINU barst í gær
greinargerð í máli Patricks
Gervasonis, frá stuðningsnefnd
hans. Greinargerðin var áður
send öðrum fjölmiðlum. og birt-
ist til dæmis í Þjóðviljanum í
gær. Morgunblaðið birtir hana
því ekki i heild, heldur aðeins
útdrátt úr henni.
í greinargerðinni, sem er í
ellefu liðum, er byrjað á að fagna
nýfengnum stuðningi alþjóða-
samtakanna Amnesty Internat-
ional, og einnig er fagnað
„breyttri afstöðu íslenskra
stjórnvalda í málinu í kjölfar
skýrslu samtakanna". Þá er lögð
áhersla á það að samtökin gefi
ekki út yfirlýsingar nema að vel
athuguðu og yfirlögðu ráði, og
sagt er að upplýsingar AI séu
fullkomlega samhljóða öllu því er
stuðningsnefndin hefur látið frá
sér fara um mál P. Gervasonis.
Minnt er á að Amnesty taki
mið af mannréttindayfirlýsingu
Sameinuðu þjóðanna er Islend-
ingar hafi skrifað undir, og sé því
ólíklegt að ósk Frakkans um
pólitískt hæli hér verði hafnað.
Rætt er um að Islendingar verði
að standa við yfirlýsingar sínar
um mannréttindi, og veita Gerv-
asoni full réttindi hér í samræmi
við það. Jafnframt er lögð á það
áhersla að það gæti orðið gott
fordæmi að veita Gervasoni hér
landvist, síðar gætum við þurft
að liðsinna öðrum á sama hátt.
Slíkt fordæmi ætti þó ekki að
þurfa að þýða neins konar færi-
bandaafgreiðslu og sagt er að
„aðgerðir nokkurra ungmenna í
París séu ekki í neinum tengslum
við mál Gervasonis".
Samningar hjá
leiðsögumönnum
LEIÐSÖGUMENN og viðsemj-
endur þeirra undirrituðu nýja
kjarasamninga með venjulegum
fyrirvara um klukkan þrjú
aðfaranótt fimmtudagsins.
Samkomulagið gerir ráð fyrir
að leiðsögumenn taki laun eins og
afgreiðslufólk í gestamóttöku eftir
16. flokki heildarsamkomulagsins
frá 27. október og 18. flokki eftir
tvö ár. Út frá þessari viðmiðun eru
svo laun fyrir einstakar ferðir
reiknuð og mun hækkun þeirra
vera á bilinu frá 3—4% til 22%, en
meðaltalshækkun vera 14—16%.
Aðilar urðu ásáttir um að sér-
stök nefnd skyldi meta starfs-
reynslu leiðsögumanna og úr-
skurða hverjir eigi að taka laun
eftir 18. flokki og verða lífeyris-
sjóðsréttindi lögð þar til grund-
vallar. Nefnd þessi á að Ijúka
störfum fyrir lok febrúar* næst-
komandi.
FólksbiII og vörubíll skullu saman á Miðgarði i Grindavik i fyrradag, en þá var hálka allmikil.
Fólksbíllinn er talsvert mikið skemmdur og slasaðist ökumaður hans nokkuð. ,,, _
Ljtem. Guðfinnur.
Breyting á sjómannalög-
um var tilefni ræðunnar
í FRÉTT sem birtist i Morgun-
blaðinu siðastliðinn fimmtudag
og bar yfirskriftina „2,9 milljón-
ir í hlut skipstjóra„ gætir nokk-
urs misskilnings. Er þar vitnað í
ræðu Ólafs Björnssonar útgerð-
armanns, sem nú situr á Alþingi í
fjarveru Kjartans Jóhannssonar,
og eingöngu fjallað um orð hans
um hátt kaup sjómanna og skip-
stjóra, en það mál var aukaatriði
I ræðu ólafs. Morgunblaðið hafði
samband við ólaf og sagði hann
þá meðal annars:
vafasamur ávinningur fyrir sjó-
menn.
Allar þær tölur sem ég nefndi í
þessu sambandi voru miðaðar við
fiskverð í nóvember en ekki fisk-
verð sem gilt hafa frá síðustu
áramótum eins og miðað er við í
fréttinni, slíkur samanburður er
augljóslega út í hött þar sem
fiskverð hefur breyzt þrisvar á
þessu tímabili. Það hlýtur að vera
augljóst að enginn myndi sætta
sig við bætur í dag sem miðuðust
við kaup (fiskverð) í janúar sl.,“
sagði Ólafur að lokum.
„Ég var alls ekki að kveða mér
hljóðs til að ræða launakjör sjó-
manna eins og helzt er að skilja á
þessari frétt. Ég var fyrst og
fremst að ræða um þá greiðslu-
skyldu sem nýgerðar breytingar á
sjómannalögum setja útgerðinni.
Þetta eru kvaðir sem útgerðin
getur ekki tryggt sig fyrir, ekkert
tryggingarfélag vill ganga í
ábyrgð fyrir þá og getur þessi
breyting því á stundum orðið
©
INNLENT