Morgunblaðið - 29.11.1980, Síða 30
A FJOLUNUM:
30
morgunb;
Leikendur i „íslandsklukkunni“: Jóhann Sigurósson, Július Hjör-
leifsson, Karl Ákúsí Úlfsson ok GuðbjörK Thoroddsen; (fyrir framan
þau) SÍKrún Edda Björnsdóttir, Guðmundur Ólafsson ok Guðjón
Pálsson Peterscn.
NEMENDALEIKIIUSIÐ:
,Jslandskliikkan
u
21. sýning annað
kvöld í Lindarbœ
ANNAÐ kvöld sýnir Nemenda-
leikhús Leiklistarskóla ríkisins
„íslandsklukkuna" eftir Halldór
Laxness í 21. sinn. Leikritið
hefur verið sýnt í Lindarbæ fyrir
fullu húsi áhorfenda síðan um
miðjan október.
Um þessar mundir eru að hefj-
ast æfingar á nýju verkefni hjá
Nemendaleikhúsinu og þess vegna
verða aðeins fimm sýnmgar
viðbót á „íslandsklukkunni".
Næsta sýning er annað kvöld eins
og fyrr er getið, en þarnæsta
sýning á miðvikudagskvöld, 3.
desember. Hefur þessari sýningu
verið vel tekið bæði af
áhorfendum og gagnrýnendum.
Miðasala á sýningar Nemenda-
leikhússins er í Lindarbæ og er
opin milli kl. 16 og 19 alla daga
nema laugardaga. Einnig er hægt
að panta miða í síma 21971 á sama
tíma.
NORRÆNA IIUSIÐ:
Kynning á sænskri
tungu og bókmenntum
í DAG kl. 14.00 efna Norræna
félagið og tslensk-sænska félagið
til kynningar á sænskri tungu.
Samkoma þessi er hin næst siðasta
i kynningaröð á norrænu málaári.
sem íslenska málaársnefndin held-
ur. Allir kynningarfundirnir hafa
verið haldnir í Norræna húsinu og
svo verður einnig að þessu sinni.
Nýr sænskur lektor mun kynna
tungu feðra sinna og bókmenntir.
Hann heitir Lennart Pallstedt og
hefur kennt sænsku víða um lönd.
Á samkomunni syngur hinn víð-
frægi sænski trúbadúr Jerker Eng-
blom.
KVIKMYNDIIl:
,JCrik“ (Gráturinn)
hjá Fjalakettinum
í DAG kl. 13 og annað kvöld kl. 19
og 22 sýnir kvikmyndaklúbburinn
Fjalakötturinn tékkneska kvik-
mynd. „Krik“ (Gráturinn). Leik-
stjóri er Jaromil Jires. Mynd þessi
hlaut Grand Prix-verðlaunin árið
1964.
í sýningarskrá segir m.a. um
myndina: „Gráturinn lýsir einum
degi í lífi ungra hjóna. Eiginkonan
fer snemma dags á fæðingardeild-
ina til þess að eignast barn en
eiginmaðurinn, sem er sjónvarps-
viðgerðamaður, gengur til vinnu
sinnar að vanda og rifjar upp ýmis
atvik úr lífi þeirra hjóna. Myndin
fjallar fyrst og fremst um hvers-
dagslíf venjulegs fólks og lætur
hetjur vinnunnar og aðrar drama-
tískar persónur lönd og leið.“
IIÖTEL BORG:
Magnús Jóhannesson opn-
ar sýningu á mánudag
Á mánudag, 1. desember, opnar Magnús Jóhannesson sýningu á verkum
sínum í veitingasalnum á Hótel Borg.
Á sýningu Magnúsar sem verður opin á venjulegum starfstíma
hótelsins eru 20 akríl- og vatnsiitamyndir. Sýningunni lýkur föstudag-
inn 12. desember.
Magnus Jóhannesson við nokkur verka sinna.
„Að sjá til þin, maður“: Fjölskyldan fyrir framan sjónvarpstækið
— Margrét Helga Jóhannsdóttir, Sigurður Karlsson og Emil
Gunnar Guðmundsson.
„Að sjá
til þín,
maður“
24. sýning
annað kvöld
í KVÖLD er Rommí á fjölunum
hjá Leikfélagi Reykjavíkur í
Iðnó og Grettir á miðnætursýn-
ingu kl. 23.30 í Austurbæjarbíói.
Annað kvöld verður 24. sýning á
leikriti Franz Xaver Kroetz, „Að
sjá til þín, maður", og er það
jafnframt næstsíðasta sýning á
því verki, en bæði leikritið sjálft
og sýningin hafa vakið athygli.
Vægðarleysi
og samúð
I leikriti Kroetz segir frá
þriggja manna fjölskyldu, sam-
búð hjónanna og átökum innan
fjölskyldunnar um framtíð son-
arins, sem vill ráða því sjálfur
hvað hann tekur sér fyrir hend-
ur. Faðirinn Ottó, vinnur í bíla-
verksmiðju og fær þar enga
lífsfullnægju. Þess í stað dreym-
ir hann dagdrauma við leik að
flugvélamódelum annars vegar,
en hins vegar sýnir hann mátt
sinn og megin innan heimilisins
og smánar fjölskylduna. Persón-
urnar í leiknum eru lítilmagnar,
sem ráða ekki fram úr einföld-
ustu vandamálum líðandi stund-
ar og höfundurinn lýsir þeim
bæði af vægðarleysi og samúð.
Naumast hægt
að gera betur
Jóhann Hjálmarsson sagði í
ritdómi sínum í Mbl. á sínum
tíma: „Túlkun Sigurðar Karls-
sonar á Ottó þótti mér með
afbrigðum, að engu verður fund-
ið því að naumast er hægt að
gera betur ..." og „það er með
fádæmum hve Margréti Helgu
Jóhannsdóttur tekst vel að lýsa í
senn mildi og hörku Mörtu".
KAMMERMUSIKKLUBBURINN:
Tónleikar í Bústaðakirkju
Á mánudagskvöld, 1. des-
ember, heldur Kammermús-
íkklúbburinn aðra tónleika
sína á nýbyrjuðu starfsári.
Tónleikarnir verða haldnir í
Bústaðakirkju og hefjast kl.
20.30. Flytjendur verða Laufey
Sigurðardóttir, fiðla, Helga
Þórarinsdóttir, víóla, Nora
Kornblueh, selló, og Kristján
Þ. Stephensen, óbó.
Á efnisskránni eru verk
eftir Wolfgang Amadeus Moz-
art og Erno Von Dohnányi.
Þrir af fjórum flytjendum á
tónleikum Kammcrmúsikklúbbs-
ins í Bústaðakirkju, f.v.: Helga
Þórarinsdóttir, Nora Kornblueh
og Laufey Sigurðardóttir.
Drekinn ÓKurlegi í „Kóngsdótturinni sem kunni ekki að tala“ hræðir engan en vekur mikla kátinu. Hann
er hérna ásamt biðlum kóngsdótturinnar. Alfreð ok Vilfreð (HeÍKU Thorberg og önnu S. Einarsdóttur;
drekinn: Ragnheiður Arnarsdóttir).
„KONGSDOTTIRIN“:
Þrjár sýning-
ar um helgina
ALÞÝÐULEIKHÚSIÐ verður
með þrjár sýningar um helgina á
barnaleikritinu „Kóngsdóttirin
sem kunni ekki að tala“, i dag, á
morgun og mánudag. 1. desem-
ber, og hefjast þær allar kl. 15.00
i Lindarbæ.
Sýningar á leikritinu verða þá
orðnar 11. Reynt verður að fjöiga
Sýningum áður en jólaösin nær
hámarki en þá gefst lítill tími
fyrir leikhúsferðir.
Aðsókn hefur verið mjög góð og
um síðustu helgi var sett inn
aukasýning, en um þessa helgi
boðið upp á sýningu 1. des. þar
sem barnaskólar eru í fríi þann
dag.
Söguþráður leikritsins er hefð-
bundið ævintýri með óvenjulegum
endi, en honum er komið til skila
með tákn- og talmáli. Einnig eru
notaðar brúður, talandi steinn og
aðrar ævintýraverur til að koma
söguþræði til skila. Greinilegt er
að yngstu börnin njóta vel sýn-
ingarinnar þar sem engin flókin
orðaskipti eiga sér stað, heldur
notaður látbragðsleikur. Drekinn
ógurlegi hræðir engan en vekur
mikla kátínu.