Morgunblaðið - 29.11.1980, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980
41
fclk í
fréttum
*
Isabella
stofufangi
veiktist
+ Dagblað í Buenos Aires,
höfuðborg Argentínu,
greindi frá því fyrir
skömmu, að Isabel Perón
fyrrum forseti, hefði
veikst en væri nú á bata-
vegi. Sagt var að tauga-
spenna hefði haft áhrif á
hjarta hennar.
Fréttir herma að hún
hafi veikst er hún frétti
að brátt ætti að sleppa
henni úr stofufangelsi.
Núverandi forseti, Jorge
Videla, steypti stjórn Isa-
bellu í marsmánuði 1976
og ásakaði hana um spill-
ingu.
Henni er haldið í stofu-
fangelsi á landareign Per-
ónfjölskyldunnar í San
Vincente, skammt frá
höfuðborginni. Þar bíður
hún dómsniðurstöðu fjög-
urra sjálfstæðra réttar-
halda.
Fjársjóður
einræðis-
herrans
fundinn?
+ ítalskur kafari segist hafa fundið
fjóra þunga járnkassa í Gardavatni
á Italíu sem gætu innihaldið fjár-
sjóð fyrrum einræðisherra Ítalíu,
Benito Mussolini. Geymslustaður
þessara auðæfa hefur verið ráðgáta
frá stríðslokum. Sumir segja að
þeim hafi verið sökkt í Comovatn,
nálægt Dongo þar sem Mussolini
var handtekinn, þegar hann reyndi
að flýja til Sviss. Aðrar sagnir
herma, að fjársjóðnum hafi verið
rænt og sumir efast um að hann
hafi nokkurn tíma verið til. Um-
ræddir kassar eru á um 60 metra
dýpi. Það sem einkum þykir renna
stoðum undir tilgátu kafarans er sú
staðreynd, að við þetta vatn stend-
ur Salo, sem voru höfustöðvar
fasistastjórnarinnar 1943—1945.
Kafari þessi segist reiðubúinn til að
ná fengnum upp, ef stjórnvöld lofi
sér hluta verðmætanna. — Musso-
lini var tekinn af lífi ásamt ástkonu
sinni, Clarettu Petacci, í apríl 1945.
1 \
Astar-
kveðjur
frá Raquel
+ Eitthvað virðist hún
Raquel Welch eiga í erfið-
leikum með gerviaugnahár-
in sín, nema þetta sé nýj-
asta tízka. (Reyndar hefur
maður nú heyrt talað um
þriðja augað). En „allt í
plati" því þetta er úr atriði í
nýjum sjónvarpsmynda-
flokki, sem bráðum hefur
göngu sína. Sá nefnist „Með
ástarkveðjum frá Raquel“
(From Raquel with Love) en
í þeim leikur Raquel kvik-
myndastjörnu. Vonandi
fáum við nánari fregnir af
flokki þessum í nánustu
framtíð.
Götu-
sóparar
frá
Kína
+ Hér sjáum við borgarstjóra
New York-borgar, Edward Koch
(til hægri), prufukeyra nýstár-
legan götusópara. Þessi tæki gaf
borgarráð Shanghai í Kína New
York-búum. Það var í heimsókn
ráðamanna í New York til Kína í
febrúar sl., sem tækin vöktu
athygli þeirra. Hinir rausnarlegu
Kínverjar brugðust sumsé fljótt
við og sendu tvo að gjöf. Þeir
munu verða notaðir til hreinsun-
ar í almenningsgörðum í New
York.
Sigurvinsson
Knatlspyrnuævintýri Eyjapeyjans
ettir Sigmund Ó. Steinarsson og
Guöjón Róbert Ágústsson. Nýstár-
legasta bókin á jólamarkaönum í ár.
Stórskemmtileg bók, þar sem
brugöið er upp í máli og myndum
ævintýri eins besta knattspyrnu-
manns í Evrópu, Ásgeirs
Sigurvinssonar.
Óskabók allra íþróttaunn-
enda. ungra sem
aldinna.
Norskt útflutn-
ingsfyrirtæki
óskareftirumboðsmanni á
íslandi til þess aö annast
sölu á viðvörunarkerfum
(þjófabjöllukerfum.)
Holars Automation,
Postboks 25, N-2092
Minnesund NORGE.
Telex nr. 19690 holarn
AK.I.VSINCASIMIW KR:
Jllorounblnbit)
, Fjölskyldu-
skemmtun með
Gosa
-í hódeginu alla sunnudaga
Gosi fer á kreik enn á ný í Veitingabúð Hótels Loftleiða.
Skemmtir sér og krökkunum. Ungtemplarar koma í heimsókn,
kynna starfsemi sína og verða með fræðslu- og skemmtidagskrá.
Bamakór Mýrarhúsaskóla syngur nokkur lög undir stjóm Hlínar
Torfadóttur.
Matseðill:
Spergilsúpa kr. 700
Kálfasneiðar með Zingarasósu kr. 4.300
Steikt fiskflök með Bernaisesósu kr. 3.450
Rjómaís með súkkulaðisósu kr. 1.050
Fyrir bömin:
1/2 skammtur af rétti dagsins 6-12 ára,
frítt fyrír böm yngri en 6 ára.
Auk þess: Gosaborgari m/frönskum kartöflum kr. 1.200
Nórasamloka m/frönskum kartöflum kr. 850
Veríð velkomin