Morgunblaðið - 29.11.1980, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980
HÖGNI HREKKVÍSI
yziitu uyep- t-Afj vap
TM Rog. U.S. Pat. Off— all rights reserved
®1977 Los Angeles Tlmes
ást er...
... að læra box svo
þú getir verndað
hana.
Ég losaði mÍK í gær við stærsta
vandamál mitt. — Ég henti
honum niður stigann!
Það hafa margir komið hingað
og farið út aftur án þess að
borga, i þessari viku!
Það fer varla hjá því að manninn þinn fari að gruna
eitthvað, á hvaða augnabliki sem verða skal.
íslenskt heimavarnarlið
Bragi Melax skrifar:
„Lítill hluti þess sem fyllir síður
dagblaðanna mun lesinn af fjöld-
anum. Þannig er einnig um mig.
Greinar um einn flokk mála fara
þó ekki framhjá mér, þá sjaldan
að um hann er skrifað, en það er
um varnir landsins. Hinn 25. sept.
sl. birtist grein í Mbl. eftir Ara T.
Guðmundsson með yfirskriftinni
„Varnir íslands án Atlantshafs-
bandalagsins". Ekki veit ég hver
maðurinn er, enda skiptir það mig
engu máli. En sem einn af þegnum
þessa lands langaði mig til að lýsa
stuðningi mínum við skoðanir
hans, þær fara að miklu leyti
saman við mínar. Höfundurinn
veit þó allavega að einhverjir
íslendingar eru sama sinnis og
hann. En pennaletin gerði það að
verkum að greinina þessum hug-
myndum til stuðnings samdi ég
aldrei og er ekki að því með
þessum fáu orðum hér.
Máttleysi og vonleysi
Nei, undanfarna daga hefur
maður hlaupið yfir frásagnir af
landsfundi Alþýðubandalagsins.
Bóndi einn norðan úr landi flutti
þingheimi boðskap, varaði við
manninum Ólafi Jóhannessyni
utanríkisráðherra, manninum
sem vill fá „morðsérfræðing" sér
til aðstoðar. Eitthvert máttleysi
kom yfir mig við að lesa þetta,
blandað einhvers konar vonleysi.
Ekki vegna þess að þessi orð
bónda norðan úr Mývatnssveit séu
einhver tímamótaatburður, þótt
hann í þröngsýni sinni þarna efst
á heimskortinu telji sig speki
flytja öllum mannheimi. Nei, nei,
þarna voru aðeins sögð orð, sem
túlka hugsun margra Islendinga.
Þá erum við komin að kjarna
málsins. Hvers vegna hugsum við
svona, en maður hinum megin á
hnettinum öðruvísi?
Hvað voru bænd-
ur að hugsa?
Við skulum athuga nokkur at-
riði, sitt úr hverri áttinni. Það
getur verið að einhver lesandi
hugleiði eitthvert þeirra. íslend-
ingar eru eina þjóðin í veröldinni,
sem án ágreinings ber hugtakið
sér þjóð, sem ekki er með neinar
sjálfstæðar hervarnir. Erum við
þeir vitru en afgangurinn af
mannkyni í villu og svíma? Hvað
vita margir íslendingar, að próf-
essorar í nútímasögu á vestur-
löndum kenna, að Rússar og
Bandaríkjamenn séu fyrir löngu
búnir að koma sér saman um að
ráðast ekki á stórborgir hvorir
annarra í fyrstu lotu, heldur
herstöðvarnar Norfolk og Kefla-
vík t.d.? Hefðu íslendingar unnið
sigur í landhelgisdeilunni með því
að nota trillubáta sem varðskip?
Unnu Islendingar ekki sigur í
þorskastríðinu vegna þess að þeir
voru með ofbeldi fyrst og síðast?
Hvað þurfa margir vel vopnaðir
menn að vera í flugvél, sem flytti
þá til Reykjavíkur í því augnamiði
að ræna verðmætum og flytja til
Afríku? Hvað voru þeir bændur að
hugsa sem samþykktu 75. grein
íslensku stjórnarskrárinnar en
hún hljóðar svo:
Sérhver vopnfær maður er
skyldur að taka sjálfur þátt í vörn
landsins, eftir því sem nákvæmar
kanna að verða fyrir mælt með
lögum.
Hvers vegna?
Hvað haldið þið um lunkheit eða
árvekni bandarísku leyniþjónust-
unnar eftir að Ameríkaninn kom
íslendingum til að geyma nokkur
ullarteppi og annað smávegis uppi
í Mosfellssveit? Hvers vegna voru
ofurlitlar hervarnir hér á 17. öld?
Hvers vegna verður íslendingur-
inn oft úti milli byggða en Græn-
lendingur ekki? Hvers vegna eru
hugmyndir íslensks almúgamanns
og almúgans í Latnesku Ameriku
og við Miðjarðarhaf næstum hinar
sömu varðandi hermennsku?
Hlýt að vera
undanvillingur
Það var farið illa með hrepps-
ómagana hér í gamla daga. Marg-
ur hygginn krypplingurinn æjaði
og hrópaði á eftirtekt, „ætlarðu að
berja mig aumingjann". Sam-
kvæmt þessu mottói horfinnar
bændamenningar eru viðeigandi
fallbyssur settar á varðskipin og
sósíalistar frá kreppuárunum um
1930 fá flog ef vikið er frá
hugmyndum krypplingsins.
Samkvæmt íslenskum hug-
myndum hlýt ég að vera undan-
villingur, en á meðan ég veit að
utan landsteina íslands finnst
vart í veröldinni málsmetandi
maður, sem skilur eða styður
hugmyndir okkar íslendinga í
varnarmálum okkar, ætla ég að
leyfa mér að hafa mínar skoðanir,
en þær eru þessar. Rökstuðningi
sleppt.
Hörmuleg einiöldun
á alvarlegu máli
Sú þjóð, sem ekki ver sig sjálf,
verður aldrei varin, í víðtækri
Til hvers varð
heimurinn til
2Horj$tmMaí>ií>
fyrir 50 árum
Sjúkrasamlag
Reykjavíkur
Þótt hlutavelturnar hjer
í bænum sjeu orðnar aéði-
margar í ár og ærið
ánauðarok mörgum manni,
ekki síst þeim, sem oftast er
leitað til um gjafir. kaup-
mönnum og fleiri góðum
mönnum, ætlar Sjúkrasam-
lag Reykjavikur að halda
hlutaveltu i KR-húsinu
næstk. sunnudag, 23. þ.m.
— Hlutaveltur samlags-
ins hafa jafnan verið taldar
einna vinsælastar, og jafn-
vel sjálfsagðastar af öllum
hlutaveltum bæjarins og
ber margt til þess: Menn
hafa nú í full 20 ár sjeð og
beinlinis bjargað margri
fjölskyldunni frá þvi að
komast á vonarvöl, vegna
vanefna og veikinda og
þannig sparað útgjöld bæj-
arfjelagsins, svo að þúsund-
um kr. skiftir árlega. Það
hefir aukið sjálfsbjargar-
viðleitni fjölda manna og
nýtur nú fullkomins skiln-
ings og trausts bæjarbúa.
Nú hefir samlagið orðið
að gera nýja samninga við
læknana og sætt þeim kost-
um, sem ekki var unnt að
umflýja.
Ungur félagi skrifar:
„Sæll félagi!
Það er víst tími til kominn að
ég leggi eitthvað til máls í
þessum umræðum um þróun og
sköpun. Eigi hefi ég hugsað mér
að leggja dóm á hvort sannara
sé, það er mál hvers og eins
hverju hann trúir í því efni.
Allir vita að vísindin hafa leitt
margt gott af sér og sýnt fram á
ólíklegustu hluti. Þannig að
kenningin um þróun er síst
vitlausari en annað. Þetta með
sköpunina er heldur ekki sannað
mál eða ósannað.
Lýsir Guði og vilja
hans með okkur
Nú hefur í þessari umfjöllun
verið skotið á víxl á „andstæð-
inginn" svo mér finnst mál til
komið að fólk temji sér önnur
vinnubrögð. Hvernig væri að þið
sem mæltuð svo á móti þróunar-
kenningunni settust niður og
kynntuð ykkur þetta á gagnrýn-
inn hátt en jafnframt án for-
dóma. Hið sama gerðuð þið sem
gerið gys að gömlum trúarrit-
um. Af hverju ekki að lesa þetta
rit og kynnast því af eigin raun
og afla sér heimilda um sögu
þess og gildi sem heimildarits og
þ.h. Þar sem mér persónulega
finnst ekki skipta máli hvort
heimurinn er skapaður eins og
Biblían segir frá eða þá að
þróun hafi átt sér stað, þá læt ég
vera að fjalla um það hér. Hinu
væri nær að pæla í og það er
Guð. Spurningin ætti frekar að
vera, hver stendur á bak við allt
þetta? Ég held að við ættum að
íhuga frekar hvort það sé Guð
sem stendur á bak við tilveruna
og ef svo er þá getum við bara
ráðið hvort við trúum að hann
hafi skapað heiminn eins og
sagt er frá í Biblíunni eða hvort
heimurinn hafi þróast til þess
sem hann er í dag. Biblían er
engin náttúrufræðibók og er
ekki til þess að við getum sagt
hvernig heimurinn varð til.
Heldur er hún bók er lýsir Guði
og vilja hans með okkur.
Til hvers að lifa
ef það er til einskis?
Nú getur verið að enginn Guð
sé til og er hverjum fjálst að
trúa því, en þá koma spurningar
eins og: Hver stendur á bak við
þetta allt? Og til hvers erum við
að lifa? Kannski er enginn sem
stendur á bak við þetta allt og
kannski enginn tilgangur með
þessu öllu. Nú, ef þú kemst að
því að svo sé þá liggur við að
mér finnist réttast að leggjast
niður og deyja — því til hvers að
lifa ef það er til einskis?
Að lokum: Hver er tilgangur
lífs okkar? Til hvers varð heim-
urinn til? í stað þess að spyrja
hvernig hann varð til.
Með þökk fyrir lesturinn.
Lifið heil og finnið sannleik-
ann!“