Morgunblaðið - 17.01.1981, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 17.01.1981, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1981 í TILEFNI þess að IIcilsuKæslustöðin í Fossvogi var formlega tekin i notkun komu fulltrúar Reykjavíkur- borgar og starfsfólk stöðvar- innar þar saman í gær og var starfsemi stöðvarinnar kynnt fyrir biaðamönnum. A fundin- um tóku til máls þau Adda Bára Sigfúsdóttir, formaður Heiibrigðisráðs, Skúli John- sen, borgarlæknir, Örn Smári formaður Læknaféiags Reykjavikur, Ólafur Jónsson frá Heilsugæslustöð Kópavogs og Katrín Fjeldsted, sem tal- aði fyrir hönd starfsfólks hinnar nýju heilsugæslustöðv- ar. í máli þeirra komu m.a. fram eindregnar óskir um að starfsemi stöðvarinnar verði heillarik og að uppbygging á sviðum heilsugæslu á höfuð- borgarsvæðinu muni ganga greiðlega á næstu árum. Með opnun Heilsugæslu- stöðvarinnar í Fossvogi er gert ráð fyrir að hægt verði að veita íbúum hverfisins heimilis- læknaþjónustu, hjúkrun og heilsuvernd skv. lögum frá 1974. Hingað til hefur fólk þurft að sækja til fjölda stofn- ana innan heiibrigðiskerfisins til að fá sinnt þörfum sínum á Frá kynningunni vegna opnunar Heilsugæslustöðvarinnar i Fossvogi. sviði heilsugæslu og miðast starfið á heilsugæslustöðinni við að flytja sem mest af þjónustunni á einn stað og skapa þannig heildarsýn í von um betri árangur. Heilsugæslustöðin í Fossvogi er þriðja heHsugæslustöðin í Reykjavík og sú fyrsta sem sambyggð er sjúkrahúsi. Við fyrstu komu á stöðina verða skráðar ýmsar upplýs- ingar um sjúklinginn og síðan útbúin spjöld, skráningarkort, sem fólk fær í stað sjúkrasam- lagsskírteinisins. Á spjaldið verður m.a. ritað fjölskyldu- númer viðkomandi. Tekin verður upp þjónusta á sviði heilsuverndar, m.a. ung- barna-, smábarna-, og mæðra- Úr nýju Heilsugæslustöðinni í Fossvogi. Heilsugæslustöð fyrir íbúa Fossvogssvæðis vernd. Heimahjúkrun, skóla- hjúkrun og skólalækningar hverfisins munu einnig verða tengdar stöðinni. Síðar á þessu ári er gert ráð fyrir að hægt verði að taka upp vaktþjónustu fyrir íbúa hverf- isins á kvöldin og um helgar, en nánar verður tilkynnt um það þegar starfsliði hefur fjölgað. Þangað til verður stöðin opin hvern virkan dag frá kl. 08—17. Vegna fjölda fyrirspurna er það tekið fram að afgreiðsla tilvísana er alfarið samkomu- lagsatriði milli læknis og sjúkl- ings á þessari stöð. Þó verður reynt eftir megni að leysa sem flest erindi á stöðinni sjálfri, þegar það er mögulegt. Því er eindregið mælst til þess, að fólk leiti ekki til sérfræðinga án þess að ráðfæra sig fyrst við sinn heimilislækni, enda er það í samræmi við reglur sjúkrasamlagsins um tilvísanir. Við heilsugæzlustöðina í Fossvogi starfa í fyrstu tveir heimilisiæknar en sá þriðji bætist líklega í hópinn á þessu ári. Til þess að tryggja að nægur tími verði til að sinna erindi hvers og eins verða ekki skráðir nema 1500 einstakl- ingar á hvorn lækni. Þá er það grundvallaratriði í starfi stöðvarinnar, að fólk velji sér sinn eigin lækni. Ef hann er ekki til staðar þá er annar tiltækur, sem hægt er að leit.a til og hefur hann aðgang að öllum nauðsynlegum upplýs- ingum. LAUGARDAG OG SUNNUDAG FRÁ KL. 1-6 Sýndar verða allar 1981 árgeróirnar: Nýi MAZDA 323 sem kosinn var bill ársins í Japan, MAZDA 626 í nýju útliti með fjölmörgum nýjungum og auknum þægindum og MAZDA 929 L, lúxusbíllinn sem er í senn aflmikill og ótrúlega sparneytinn, en samt á viðráðanlegu verði. B/LABORG HF Smiöshöföa 23.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.